Morgunblaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 17 SUÐURNES Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Það er mikil ögrun fyrir listamann að taka þessi þekktu myndefni úr Bibl- íunni og túlka á sinn hátt. Þetta hafa meistararnir gert í gegnum aldirnar og mér fannst gaman að vinna þessa sýningu,“ sagði myndlistarkonan Sossa Björns- dóttir í samtali við Morgunblaðið en á Ljósanótt lýkur sýningu hennar, „Biblíumyndirnar mín- ar“, sem staðið hefur yfir í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju, í allt sumar. Á sunnudag verður sýningin kvödd með formlegum hætti með hug- leiðingum þriggja fræðimanna út frá myndunum. Yfirskriftin er „Madonnan á Miðnesheiði“. Trúin, guðsóttinn og Biblían hafa spilað stórt hlutverk í lífi listakonunnar Sossu þó að hún segist ekki trúaðri en gengur og gerist. Hún var þó að miklu leyti alin upp í Keflavíkurkirkju enda þjónaði faðir hennar, séra Björn Jónsson, þar lengi fyrir altari. Hún fór yfirleitt í barnamessu á sunnudögum þar sem krakkarnir fengu litlar biblíumyndir í messulok. Er Guð ekki kona? „Ég safnaði þessum myndum og átti mínar uppáhaldsmyndir. Þegar séra Skúli Ólafsson kom að máli við mig með þá hugmynd að ég héldi sýningu rifjuðust upp fyrir mér ýmis þau mótíf sem myndirnar höfðu að geyma og ekki síst þær hugsanir sem kviknuðu. Myndirnar eru sjö sem er heilög tala og þetta eru mínar biblíumyndir,“ sagði Sossa í sam- tali við blaðamann. Sossu þótti við hæfi að setja myndefnið inn í þann raunveru- leika og það umhverfi sem hún ólst upp við og má í verkunum sjá kunnugleg fjöll og staði, eins og Snæfellsjökul, Keili og Bás- inn, svo eitthvað sé nefnt. Annað sem vekur athygli í nokkrum verkanna er fiskar. Sossa sagðist hafa verið upptekin af fiskisögunum í Biblíunni. „Sögurnar í Biblíunni eru sögur af veiðimönnum, t.d. eru læri- sveinarnir allir veiðimenn. Fisk- urinn er auk þess tákn kristinnar trúar og mér fannst ekki síður gaman að tengja þetta við sálna- veiðar,“ sagði Sossa. Í sex mynd- um af sjö er vísað til hluta úr einhverju guðspjallanna, en við það sjöunda er ljóð eftir Snorra Hjartarson, „Ung móðir“. „Þegar ég fór að vinna við myndirnar komu ákveðin mótíf strax upp í hugann. Ég vann margar mynd- irnar í samstarfi við pabba minn og áttum við skemmtilegar um- ræður um verkin. Pabbi á því stóran þátt í þessari sýningu,“ sagði Sossa og þakkar föður sín- um og hinum „meisturunum“ fyr- ir innblásturinn. Konur, mæður og börn eru ekki síður áberandi í biblíumynd- um Sossu, enda aðalpersónur í Biblíunni samhliða fiskimönnun- um. Má nefna mótíf eins og Boð- un Maríu og Fæðingu frelsarans, auk móðurinnar ungu. Konur eru Sossu hugleikið myndefni, hvort sem um er að ræða lærisveinana eða Jesú. Biblíumyndirnar hafa annað slagið ratað á strigann hjá Sossu en hún segist ekkert endi- lega ætla sér að vinna þetta í framtíðinni. Keflavík – Kaupmannahöfn Framundan eru tvær sýningar í Kaupamannahöfn sem hún hef- ur að undanförnu unnið að, ásamt því að opna vinnustofu sína í Keflavík á Ljósanótt á laugardag og í Kaupmannahöfn á menningarnótt 12. október nk. „Eins og undanfarin ár verð ég með í Art Copenhagen í Kaup- mannahöfn, þar sem öll helstu gallerí í Kaupmannahöfn sýna sína listamenn. Þessi sýning verður 21. til 23. september og verk mín þar verða með ýmsu móti. Hins vegar verður „hreyf- ing“ þema sýningar sem haldin verður á verkum mínum í Sct. Gertrude-galleríinu hinn 6. októ- ber. Þar hef ég haldið sýningu undanfarin 13 ár.“ Undanfarin þrjú ár hefur Sossa verið með vinnustofu í Kaupmannahöfn enda sagði hún ófært að vera alltaf að flytja verkin á milli landa. Hún sagði það líka henta sér vel að skipta sér á milli landanna. Hún máli út í eitt í Kaupamannahöfn, enda meiri friður. Þeir sem vilja skoða nýjustu verk Sossu geta litið inn á vinnu- stofu hennar í Keflavík milli kl. 14 og 19 á laugardag en hugleið- ingar út frá biblíumyndum henn- ar verða í Kirkjulundi á sunndag kl. 17. Þar flytja dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur Kjalar- nesprófastsdæmis, sr. Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur í Kefla- víkurkirkju, og dr. Hákon Leifs- son, organisti í Keflavíkurkirkju, stutt erindi undir heitinu: Ma- donnan á Miðnesheiði. Madonnan á Miðnesheiði Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Madonna Listakonan Sossa við verkið Immanuel (Madonna í Básnum) sem fjallar um túlkun guðspjallamannsins Matteusar á fæðingu Jesú. Reykjanesbær | Frændur vorir, Færeyingar, koma víða við sögu á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Félagar úr Dans- ifélaginu í Þórs- höfn verða gestir á hátíðinni og bjóða upp í fær- eyskan dans auk þess sem sýnd verður tíska, myndlist og ljósmyndir frá Fær- eyjum. Tíu félagar úr ljósmyndafélaginu Fók- us sýna ljósmyndir frá Færeyjum. Sýn- ingin Hugnám verður í Kjarna við Hafn- argötu, við Bókasafn Reykjanesbæjar. Hún verður opnuð í dag og stendur út septembermánuð. Í tengslum við sýn- inguna mun Bókasafn Reykjanesbæjar sýna færeyska muni og bækur. Félagar úr Fókus ferðuðust um Fær- eyjar í vor. Farið var vítt og breitt um eyjarnar og tekið hús á Færeyingum og allt myndað í bak og fyrir. Þeir hrifust af Færeyjum og Færeyingum eins og yf- irskrift sýningarinnar bendir til. Gefa þeir, í samvinnu við Bókasafn Reykja- nesbæjar, gestum Ljósanætur 2007 kost á að upplifa með sér Færeyjar með því að skoða myndir af húsum, fólki og landi. Sýnendur eru Anna Jonna Ármanns- dóttir, Einar Ásgeirsson, Elín Þórð- ardóttir, Georg Theodórsson, Guðmar Guðjónsson, Helga Jörgensen, Helgi Bjarnason, Kim Mortensen, Rafn Sig- urbjörnsson og Sæþór L. Jónsson. Fókus er félag áhugaljósmyndara með aðsetur í Reykjavík og hefur starfað í rúm átta ár. Félagið er opið öllu áhuga- fólki um ljósmyndun, jafnt byrjendum sem lengra komnum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Félagsmenn eru um sjötíu talsins. Sýna ljósmyndir frá Færeyjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.