Morgunblaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MINNINGAR ✝ Þorgrímur Ein-arsson var fædd- ur í Winnipeg í Kan- ada hinn 20. júní 1920, hann lést á Elliheimilinu Grund í Reykjavík 21. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Þor- gríms voru: Einar Þorgrímsson, f. 15.6. 1896, d. 24.4. 1950, og Jóhanna Þuríður Oddsdóttir, f. 21.7. 1895, d. 2.5. 1972. Alsystkini Þorgríms voru: Jóhanna, f. 18.5. 1915. Hún er látin. Anna Sigríður, f. 5.8. 1921 og Einar Þór, f. 10.7. 1925. Bróðir Þorgríms, sammæðra, er Rafnar Karl Karlsson, f. 12.11. 1937. Syst- ir hans, samfeðra, er Edda Ein- arsdóttir, f. 15.1. 1940. Þorgrímur kvæntist 29.4. 1944 Aðalheiði Sig- ríði Skaptadóttur, f. 10.8. 1920, d. 13.4. 2004, og eignuðust þau fjög- ur börn. Þau eru: Skapti, f. 25.9. 1945 ókvæntur og barnlaus. Sigríður Anna, f. 15.8. 1947, gift Gylfa Sveinssyni, hún á fimm börn, sex barnabörn og tvö lang- ömmubörn. Einar, f. 30.9. 1949, er í sambúð með Sigurlínu Sveins- dóttur, hann á tvo drengi og sex barnabörn. Ragnar Lúðvíg, f. 25.6. 1953, kvæntur Önnu Snæbjörnsdóttur, þau eiga þrjú börn. Námsferill Þorgríms: Að loknu barnaskólanámi í Barnaskólanum í Keflavík var hann við nám í Reykjaskóla í Hrútafirði 1936-37. Hóf nám 1938 í offsetprentun í Lithoprenti þegar það var stofnað. Tók sveinspróf 23.2. 1948. Hann nam leiklist í Leiklistarskóla Ævars Kvarans 1949-1950. Meistarabréf í off- setprentun 30.10. 1950. Starfsferill Þor- gríms: Hann starf- aði áfram í Litho- prenti til 1953. Áður 1937-1938, í Nýju prentmyndagerðinni í Reykjavík. Vann hjá bandaríska sendi- ráðinu og fyrir herliðið í síðari heimsstyrjöldinni. Starfaði hjá Vitamálaskrifstofunni 1953-1961 við prentun sjókorta. Í eigin fyrir- tæki Endurprenti 1961-1967. Við önnur störf 1968. Í Lithoprenti frá 1969, fyrst sem verkstjóri, síðan sem framkvæmdastjóri og einn eigandi fyrirtækisins uns Litho- prent var lagt niður snemma á árinu 1972. Starfaði í Leiftri hf. 1972-1987. Við upplestur, söng o.fl. á Elli- heimilinu Grund meðan heilsan leyfði. Félags- og trúnaðarstörf: Formaður Offsetprentarafélags Íslands (OPÍ) um árabil. Í trún- aðarráði Alþýðuflokksins um skeið. Útför Þorgríms fer fram frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudag- inn 30. ágúst, og hefst athöfnin kl. 15. Fallega, hljómfagra röddin hans er hljóðnuð. Mildu augun hans hafa lokast í svefninum langa. Hann er horfinn á braut. Ég gæti sagt ótal margt um góð- vild hans og gæsku en hann bannaði mér að vera væminn ef ég minntist sín í minningargrein. „Segðu frá einhverju skemmti- legu,“ sagði hann, „ekki dapurlegum hlutum“. Óhætt er að segja að hann var óvenjulegur maður, hann pabbi. Góðum gáfum gæddur og ótal hæfileikum, fyndinn og listrænn. Hann hafði ánægju af að setja saman gamanvísur og um ellina hafði hann til dæmis þetta að segja: Oft hef ég hárið á höfði mér reytt, er heilinn mig svíkur, ég man ekki neitt. Það ætti nú samt að vera einhver von, ég veit hvað ég heiti en ekki hvers son. Hann lagði stund á leiklist í Leik- listarskóla Ævars Kvarans og lék eitt aðalhlutverkið í kvikmynd Ósk- ars Gíslasonar „Ágirnd“ árið 1952. Einnig ferðaðist hann um landið, í félagi við Karl Guðmundsson leikara með gamanmál, látbragðsleik og upplestur sem landsmenn gerðu góðan róm að. Hann skrifaði ótal greinar um menn og málefni í blöð og tímarit mest þó í „Prentarann“, mál- gagn Félags bókagerðarmanna. Pabbi eignaðist frábæra eigin- konu, móður okkar Aðalheiði Sigríði Skaptadóttur, og unnust þau hugást- um. Hann missti hana úr Alzheim- erssjúkdómnum árið 2004 og varð aldrei samur maður eftir það. Eftirfarandi ljóð „Til Heiðu“ orti hann til hennar árið 1995. Það hallar sumri, hugur leitar að hjarta þínu, ástin mín. Þá elska vil ég ennþá heitar og ylja mér við brjóstin þín. Æviárin áfram líða, ellin kemur – tekur völd. Við leggjum saman lófa þýða og leiðumst inn í ævikvöld. Þótt ást væri mikil á heimili þeirra gaf stundum á bátinn eins og gengur. Eitt sinn sagði pabbi við mömmu: „Við höfum gengið saman gegnum súrt og sætt, Heiða mín.“ Þá svaraði mamma að bragði: „Þú meinar súrt og súrt.“ Pabbi var afbragðs snókerspilari á sínum yngri árum, svo og góður skákmaður og bridgespilari. Einnig samdi hann hugljúf söng- lög á efri árum og verður eitt þeirra, sem hann tileinkaði mömmu, „Ást- aróður til Heiðu“, flutt við jarðarför hans í dag í Fossvogskirkju. Síðustu æviárin dvaldist hann á Elliheimilinu Grund við góðan að- búnað. Við færum starfsfólkinu á sjúkradeild V 2 og öllum öðrum sem önnuðust um föður okkar af alúð og drengskap, okkar bestu þakkir. Við erum stolt yfir að vera börn foreldra okkar. Minning þeirra mun lifa í hjörtum okkar um ókomna framtíð. Fyrir hönd okkar systkinanna, Einar Þorgrímsson. Sá gamli er farinn, sagði bróður- sonur minn og nafni við mig í sím- ann, þegar hann vakti mig af svefni í gærmorgun. Ég þurfti ekki frekari vitnanna við. Sá gamli, sem hann kallaði svo, var faðir hans, eldri bróð- ir minn, Þorgrímur, besti vinur ævi- langt – sem kvatt hafði lífsins táradal þá um nóttina, eftir stutta hinstu legu. Andlátsfregnin var þungbær, en huggun var þó harmi gegn, að Doddi, eins og hann var kallaður í daglegu tali, hafði verið manna heilsuhraust- astur, og orðinn 87 ára gamall þegar hann lést. Lífið hafði þó ekki alla tíð verið tómur dans á rósum hjá bróðurnum. Hann hafði til að mynda fyrir fáum árum þurft að sjá á bak konu sinni, Aðalheiði Skaptadóttur, sem hann hafði kynnst ungur að árum, þegar hann kom úr Keflavíkinni syðri til okkar á Barónsstíg 19. Aðalheiður lést fyrir nokkrum árum úr Alzheim- erssjúkdómnum. Við, alsystkinin fjögur, vorum öll í heiminn borin vestanhafs. Þorgrím- ur, Jóhanna og Anna Sigríður í Kan- ada; undirritaður eilítið sunnar, í Bandaríkjunum. Löngu síðar eign- uðumst við tvö hálfsystkin, Eddu Einarsdóttur og Rafnar Karl Karls- son, bæði í Reykjavík. Við fluttumst til Íslands í krepp- unni miklu á þriðja tug síðustu aldar, og var komið í fóstur hjá venslafólki vítt og breitt um suðvesturhornið. Doddi bróðir dvaldist í fyrstu hjá Þorgrími afa, Þórðarsyni, héraðs- lækni í Keflavík og hans fjölskyldu, eða fram að fermingu, en fluttist þá til okkar á Barónsstíg 19 í Reykjavík. Þar bjuggu þá Þuríður móðuramma og Haraldur Magnússon, seinni maður hennar. Mig höfðu gömlu hjónin tekið í fóstur á öðru árinu – við komuna frá USA – og ólu upp síð- an. – Bróðir minn dvaldist þó ekki lengi hjá okkur á Barónsstígnum. Anna Þorgrímsdóttir, föðursystir okkar, hafði misst eiginmann sinn, Jón Bjarnason, héraðslækni að Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði, og var með sex börn á framfæri sínu í Reykjavík. Ekki lét hún það þó aftra sér frá því að taka vel á móti bróð- ursyni sínum, en tók hann á heimili sitt sem eigin son, og varð honum alla tíð síðan stoð og stytta í lífsbar- áttunni. Systurnar tvær, Jóhanna og Anna Sigríður fóru í fóstur til Björns, bróður pabba, og eiginkonu hans, Mörtu Jónsdóttur miðils, og ólust upp á heimili þeirra. Ekki löngu eftir að faðir okkar kom loks á ný til Íslands, líklega á árinu 1937, réðst hann í að stofna prentsmiðju, ásamt öðrum Vestur- Íslendingi, heimkomnum, Guðmundi Jóhannssyni, en hann hafði numið og stundað leturprentiðn um áraraðir. Ekki var þetta þó hefðbundin prent- smiðja, heldur fyrsta offset-prent- verk landsins, en þessar tvær grein- ar, offsetprentun og leturprentun eru ansi ólíkar. Lithoprent kölluðu félagarnir fyrirtækið og komu því fyrir í kjallaranum á Nönnugötu 16 í Reykjavík. Doddi varð fyrsti offset-prentar- inn til að útskrifast sem slíkur á Ís- landi – og vann við þá iðngrein allt til starfsloka; og tók drjúgan þátt í fé- lagsmálum prentara, meðal annars sem formaður fagfélags offsetprent- ara. En mál er at linni margmælgi þessari. Far vel, vinur og bróðir, Ingveldur og Einar. Elsku afi! Mig langar að kveðja þig með örfá- um orðum. Það er gott að vita til þess að þú sért kominn til hennar ömmu Heiðu sem þú hefur saknað svo sárt frá því hún fór frá okkur. Ég get ekki ímyndað mér annað en að þið séuð nú eins og ástfangnir unglingar. Þegar ég hugsa til baka kemur ým- islegt upp í hugann. Ég mun alltaf geyma minningarnar um bíltúrana okkar til Keflavíkur á brúna Bens- anum. Ég man hvað mér fannst alltaf gaman þegar þú þóttist finna lýs í hárinu á mér og ég mun alltaf hugsa til þín þegar ég dýfi sykurmolum í kaffið mitt eins og þú kenndir mér þegar ég var lítil, ég er reyndar farin að leyfa Selmu og Þórunni að gera það. Ég vona að þú fáir fullt að pyls- um þarna uppi og jafnvel kartöflu- mús með. Elsku afi minn! Ég bið að heilsa ömmu og ég sakna ykkar sárt. Margrét. Mýrdalurinn er grænn og grósku- mikill enda er úrkoma þar að jafnaði mikil. Í Litla-Hvammi, hjá móður- foreldrum mínum, þeim Stefáni og Steinunni Helgu lágu leiðir okkar Dodda frænda míns fyrst saman. Það var ævinlega sól og blíða þeg- ar Doddi og kona hans, Heiða, sóttu Mýrdalinn heim, að minnsta kosti í minningunni. Það segir nokkuð um þá birtu og gleði sem þau færðu okk- ur, hvort sem úti var breyskjuþurrk- ur eða rosi. Heimsókn þeirra fylgdi ævinlega eftirvænting. Þegar komu- dagurinn rann upp gafst oft vel að rölta upp á Haus sem gaf góða yf- irsýn til vesturs. Þar voru augun pírð langtímum saman í þeirri veiku von að sjá glampa á eðalvagninn. Það gerðist að jafnaði nokkuð seinna en ætlað var. Ástæðan var sú að bílarnir voru oftar en ekki orðnir nokkuð lún- ir þegar þarna var komið sögu og jafnvel við það gefast upp. Doddi skilaði samt sér og sínum ævinlega heilum í höfn og þá brást ekki að hann hafði æsispennandi ferðasögu að segja. Vinnusemi var í hávegum höfð í minni sveit. Mér fannst fljótt sem Doddi væri ekkert sérstaklega at- hafnasamur. Um tíma taldi ég hon- um þetta heldur til hnjóðs. Síðar lærðist mér að framlag hans lá fyrst og fremst í þeirri hvatningu sem aðr- ir fengu af því einu að hafa hann ná- lægt. Allt varð skemmtilegra þegar Þorgrímur Einarsson ÁRIÐ 2001 samþykkti Alþingi ný lög sem m.a. snertu skattlagn- ingu í einkarekstri. Þessi nýju lög gerðu einstaklingum í at- vinnurekstri mögu- legt að breyta einka- rekstri í einkahlutafélög og uppskera umtals- verða skattalækkun. Til að skilja um- ræðuna um hvort sveitarfélög eigi að fá hlut í fjármagns- tekjuskatti eða ekki verða menn að skilja breyttan skattaút- reikning vegna þess- ara skattalagabreyt- inga. Til að bera saman rekstr- arformin, einkarekst- ur og einkahluta- félög, og skattlagningu af þessu tvennu þá skal þetta sett upp í dæmi A og B. A) Einstaklingur með sjálfstæða starfsemi í eigin atvinnurekstri reiknar sér laun mánaðarlega og greiðir staðgreiðsluskatt af því. Sá hagnaður sem verður af at- vinnurekstrinum umfram þessi reiknuðu laun skatt- leggst á sama hátt sem laun í einkarekstrinum. Bæði laun og hagnaður skatt- leggst með tekjuskatti og útsvari. Samkvæmt flokkun skattyfirvalda þá er í flokki B5 lágmarkslaun á mánuði kr. 312.000 eða kr. 3.744.000 í árslaun. Í þessum flokki er fjölmennur hópur skatt- greiðanda en ekki endilega þeir tekjuhæstu. B) Einstaklingur með sjálf- stæða starfsemi í eigin at- vinnurekstri stofnar einka- hlutafélag um rekstur sinn. Eftir sem áður verður hann að reikna sér lágmarkslaun, kr. 312.000 á mánuði. Sá hagnaður sem verður af at- vinnurekstrinum umfram þessi reiknuðu laun skatt- leggst á annan máta en í dæmi A. Hagnaðurinn skattleggst með tekjuskatti á einkahlutafélagið sem rennur allur til ríkissjóðs. Hagnaður í félaginu að frá- dregnum tekjuskatti greið- ist eigandanum sem arður (viðbótarlaun!?) og skatt- leggst með 10% fjármagns- tekjuskatti sem allur rennur til ríkisins. Í báðum dæmum eru reiknuð laun og hagnaður alls kr. 6.000.000 á ársgrundvelli, heildarskattgreiðslur eru mis- munandi eftir því hvort rekstrar- formið er notað. Í dæmi A eru heildarskattgreiðslur alls kr. 1.858.507, til ríkisins kr. 1.076.707 og til sveitarfélagsins kr. 781.800. Í dæmi B eru heild- arskattgreiðslur alls kr. 1.619.769, til ríkisins kr. 1.131.926 og til sveitarfélagsins kr. 487.843. Við útreikning skatt- anna er miðað við álagning- arreglur vegna tekna 2006. Niðurstaðan er sú að skatt- greiðandinn hagnast. Heildar- skattgreiðslur lækka um kr. 238.738. Ríkissjóður hagnast líka, um kr. 55.219. Sveitarfélagið er eini aðilinn í þessum þríhyrningi sem tapar – skatttekjur sveitar- félagsins minnka um kr. 293.957 eða fjárhæð sem er jöfn sam- anlögðum hagnaði skattgreiðand- ans og ríkisins!! Skatttekjur ríkissjóðs hækka þar sem tekju- skattur af einkahlutafélaginu og fjármagnstekjuskattur af arði eru samanlagt meiri en tekju- skattur var af hagnaði í einka- rekstri. Hverjir fengu hrósið ? Þegar þessar skattalagabreytingar voru gerðar á árinu 2001 tóku aðstand- endur ríkisvaldsins við hrósinu um lækk- un skatta og eru duglegir að tíunda afrek sín í skatta- lækkunarmálum. En það er ekki alveg víst að allir hafi átt- að sig á því að afrek ríksivaldins í þetta skipti var á kostnað sveitarfélaganna. Öll lækkun skatta til einstaklinga minnk- aði tekjur sveitarfé- laganna. Ríkissjóður lækkaði skatta tiltek- inna skattgreiðenda og fékk hrós fyrir en sveitarfélögin voru látin borga þessa lækkun án andmæla af þeirra hálfu. Um hvaða fjárhæðir er að ræða Hagdeild sveitarfélaga reikn- aði út fyrir um 2 árum að þessi skattalagabreyting kosti sveit- arfélögin a.m.k. 1 milljarð á ári í minni útsvarstekjur og er líklegt að miðað sé við hagnað af rekstri sem annars hefðu verið venjuleg- ar launatekjur. Sá mikli hagn- aður sem verður við eignasölu er áreiðanlega ekki meðtalinn. Á ár- unum 2002-2006 hafa 14.057 einkahlutafélög verið stofnuð. Þessar nýskráningar eru í mjög mörgum tilvikum einungis gerð- ar til að lækka skattana. Með því að margfalda tölu nýju hluta- félaganna með tekjutapi sveitar- félaga ( 294 þ. x 14.000 ) þá er útkoman rúmlega 4 milljarðar. Þetta gæti verið tap sveitarfé- laga á útsvarstekjum en þessa niðurstöðu þarf að taka með hinni mestu varfærni. Þetta er ákveðin einföldun á málinu, hér sett fram fyrst og fremst til að sýna að tekjutap sveitarfélaga gæti verið mun hærri fjárhæð en áætlun Hagdeildar segir til um. Á sama máta má reikna auknar skatttekjur ríkissjóðs upp á kr. 773 milljónir vegna þessara skattalagabreytinga. Lokaorðin Ríkisvaldið beitti valdi sínu og skaðaði tekjustofna sveitarfélag- anna með breytingum á skatta- lögunum án þess þau fengju rönd við reist. Á sama tíma og ríkisvaldið sker niður tekjur sveitarfélaga og eykur með því eigin tekjur þá þola sveit- arfélögin ávirðingar um eyðslu- semi og aðra óáran og látið líta út sem slík eyðslusemi og óáran þekkist ekki á öðrum bæjum. Sveitarfélögin eru ekki betlikerl- ing á ríkissjóð. Það er sama fólk- ið sem greiðir skattana til rík- issjóðs og sveitarfélaga. Sama fólkið. Þetta er einfaldlega spurning um réttláta skiptingu allra skatttekna og þar má rík- isvaldið svo sannarlega bæta sig í samskiptunum við sveit- arfélögin. Þeir sem þekkja þessa litlu sögu sem hér hefur verið sögð um fjármálaleg samskipti ríkis og sveitarfélaga ættu að sjá ríka ástæðu til að láta sveitarfélögin hafa ríflegan hluta af fjármagns- tekjuskattinum. Aðdragandi að ójafnri skiptingu Sigurður Tómasson skrifar um fjármagnstekjuskatt Sigurður Tómasson »Ríkissjóðurlækkaði skatta tiltekinna skattgreiðenda og fékk hrós fyrir en sveit- arfélögin voru látin borga þessa lækkun. Höfundur er endurskoðandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.