Morgunblaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.08.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VIÐSKIPTA- og hagfræðideild Háskóla Íslands býður öllum áhugamönnum um hagfræði og efnahagsmál að sækja sér að kostnaðarlausu háskólafyrirlestra í þjóðhagfræði handa byrjendum. Þetta er þriðja árið í röð sem við- skipta- og hagfræðideild býður þjóðinni í þakkarskyni að sækja fyrirlestrana. Ekki er krafist undirbúnings umfram almenna menntun til stúdentsprófs. Fyr- irlesarinn er Þorvaldur Gylfason prófessor. Morgunblaðið/Þorkell Kennir hag- fræði ókeypis MEST efnir til Ís- landsmóts í kranastjórnun í höfuðstöðvum sínum að Malar- höfða 10 í Reykjavík á morgun, föstu- dag, frá klukkan 8 til 17. Kepp- endur leysa ákveðnar þrautir og sá vinnur sem fer hraðast yfir. Íslandsmeistarinn öðlast þátt- tökurétt í Evrópukeppninni, sem fram fer í Þýskalandi. Íslendingar unnu silfurverðlaun í þeirri keppni árið 2005. Íslandsmót í kranastjórn KONA á fertugsaldri var flutt á slysadeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss eftir harðan árekstur við Dalveg í Kópavogi í gærmorgun en þar rákust saman fólksbíll og jeppabifreið. Meiðsl konunnar eru ekki talin alvarleg. Kalla þurfti til tækjabifreið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og var klippum beitt til að ná kon- unni út. Með henni í bílnum var barn hennar sem meiddist lítillega. Báðar bifreiðar eru taldar gjör- ónýtar og þurfti að fjarlægja þær með dráttarbíl. Harður árekstur varð í Kópavogi Á FÖSTUDAG verða bæjarstjóra- skipti í Mosfellsbæ. Þá mun Haraldur Sverrisson, formaður bæjarráðs, taka við stjórn bæjarins af Ragnheiði Rík- harðsdóttur, en Ragnheiður hefur tekið sæti á Alþingi. Nýr bæjarstjóri MAGNÚS Árna- son hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmda- stjóra Skíða- svæða höfuð- borgarsvæðisins. Hann hefur lokið félagsfræði- menntun frá HÍ og MBA frá Há- skóla Reykjavíkur. Magnús starfaði áður m.a. sem starfsmannastjóri 10-11 og rekstrarráðgjafi hjá BYKO. Einnig hefur verið gengið frá endurráðningu þriggja fyrrverandi starfsmanna skíðasvæðanna. 12 sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu reka skíðasvæðin í Bláfjöllum og skíðasvæðið í Skála- felli. Mun stjórna skíðasvæðum Magnús Árnason göngutengingar við Suðurlands- veg. Þá verður mikil áhersla lögð á að fella fyrirhugaða byggð vel að SKIPULAGSRÁÐ Reykjavíkur samþykkti í gær að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi athafnasvæð- is á Hólmsheiði. Svæðið er norðan Suðurlandsvegar, á milli Hafra- vatnsvegar og hesthúsasvæðisins í Almannadal (Fjárborgar). Stefnt er að því að deiliskipulagsferli svæð- isins verði lokið í nóvember næst- komandi og að lóðunum verði út- hlutað fljótlega eftir það. Í tilkynningu frá skipulagsstjóra Reykjavíkur kemur fram að heild- arstærð nýja athafnasvæðisins sé um 170 hektarar. Þar af fara um 100 hektarar undir lóðir sem verða af ýmsum stærðum, eða allt frá 0,1 hektara upp í 10 hektara. Flestar verða lóðirnar 0,1-0,5 hektarar að stærð. Húshæðir verða frá einni hæð og upp í sex hæðir. „Ef heim- ildir til uppbyggingar eru nýttar að fullu er áætlað að á svæðinu geti rúmast byggingar sem verða sam- tals allt að 700.000 m2 að flatarmáli. Með þessu nýja svæði er tryggt stóraukið framboð fyrirtækjalóða og mun meira en í boði hefur verið mörg undanfarin ár.“ Nýja atvinnusvæðið við Hólms- heiði þykir hafa mjög góðar sam- landinu og náttúrulegum kostum svæðisins. „Í skipulaginu eru skil- málar rúmir en lögð áhersla á vandaða hönnun og að byggingar falli vel að landi og nánasta um- hverfi.“           "     #      $ !%                      !       Fjöldi nýrra atvinnulóða á Hólmsheiði ALLS voru 127 mál sem tengjast heimilisofbeldi tilkynnt lögreglunni það sem af er árinu, að sögn Rannveigar Þórisdóttur, deildarstjóra upplýs- inga- og áætlanadeildar Lögreglustjórans á höf- uðborgarsvæðinu. Málin eru mjög misjöfn Á ráðstefnunni Karlar til ábyrgðar, sem fram fer í dag, mun Rannveig fjalla um heimilisofbeldi og þau gögn sem lögregla hefur um slík mál. Þar verður jafnframt rætt um meðferð fyrir karla sem beita ofbeldi á heimili og þjónustu við þolendur heimilisofbeldis. Rannveig segir að í kringum 200 mál er varða heimilisofbeldi komi til kasta lögreglu á hverju ári og hafi fjöldi þeirra verið nánast óbreyttur síðasta áratug. Fram til ársins 1997 hafi komið tímabil þar sem tilkynningum um þessi mál hafi fækkað mikið og hafi það verið rakið til bættrar stöðu kvenna í samfélaginu. Rannveig segir að hafa þurfi í huga þegar heimilisofbeldi er skoðað að málin séu af af- ar misjöfnum toga. „Kannski þurfum við svolítið að einbeita okkur frekar að því að aðgreina þessi mál,“ segir Rann- veig. Mjög stóri hluti málanna komi upp um helgar og tengist áfengisneyslu en hugsanlega þurfi að taka öðruvísi á slíkum málum og öðrum sem koma upp á virkum dögum „og eru kannski ekki tengd áfengi eða neinu slíku“. Eitt af því sem lögreglan geti gert sé að auka samstarf við félagsmálayfirvöld og félagsþjón- ustu. „Oft erum við að kljást við mál sem kannski enginn einn getur leyst, heldur þarf samvinnu margra,“ segir Rannveig. 127 mál sem tengjast heimilis- ofbeldi tilkynnt lögreglu á árinu Segir aukið samstarf lögreglu og félagsmálayfirvalda æskilegt Í HNOTSKURN »Árið 2005 lét Ríkislögreglustjóri útbúaverklagsreglur sem leiðbeina lög- reglufólki um skráningu heimilisofbeld- ismála. »Þar eru líka upplýsingar fyrir lög-reglumenn um hvert þeir geta leitað þegar þeir vinna úr slíkum málum. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.