Morgunblaðið - 30.08.2007, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 11
FRÉTTIR
NEMENDUM í unglingadeildum
grunnskóla Reykjavíkur býðst frá
og með þessu skólaári að stunda
framhaldsskólanám í fjarnámi við
Fjölbrautaskólann við Ármúla
(FÁ). Námið verður ókeypis en
samningur um þetta var undirrit-
aður milli menntasviðs Reykjavík-
urborgar og FÁ í gær.
Gísli Ragnarsson, skólameistari
FÁ, segir að í fyrravetur hafi um
170 nemendur á grunnskólastigi
verið í fjarnámi í skólanum. „Þess-
ir nemendur hafa staðið sig alveg
framúrskarandi vel og langflestir
lokið prófum með miklum sóma,“
segir Gísli. Um 90% þeirra grunn-
skólanema sem verið hafi í fjar-
náminu hafi tekið lokapróf í þeim
áfanga eða áföngum sem þeir
völdu.
Skapar sveigjanleika
milli skólastiga
Möguleikinn á fjarnáminu skapi
ákveðinn sveigjanleika milli skóla-
stiga. „Duglegir nemendur, til
dæmis í ensku, stærðfræði og
þýsku, fái þarna að reyna sig við
framhaldsskólaefni,“ segir hann.
Gísli segir skólann reikna með
því að með þessu tilboði, að geta
stundað ókeypis fjarnám við skól-
ann, muni nemendunum fjölga
mjög.
Framhaldsskólanám á Íslandi er
greitt af ríkinu, hvort sem þeir
sem það stunda eru á grunn- eða
framhaldsskólastigi. Skólar hafa
hins vegar tekið gjöld af nemum í
fjarnámi, enda segir Gísli töluvert
um það að fólk fari í áfanga en
ljúki ekki prófi í þeim. Svo vel hafi
gengið með þá grunnskólanema
sem tekið hafa áfanga í skólanum
að skólinn treysti sér til þess að
hafa valkostinn ókeypis.
Gísli segir að samningurinn við
borgina komi til af því að skólinn
vilji vinna að málinu í samvinnu
við þá. „Við viljum að skólarnir,
heimilin og nemendurnir sjálfir
hafi hönd í bagga, þannig að það
sé til dæmis ekki verið að setja
nemanda í stærðfræðiáfanga sem
hefur ekkert þangað að gera,“ seg-
ir Gísli. Hugmyndin hafi verið
kynnt í öllum grunnskólum
Reykjavíkur og nágrannasveitar-
félaganna og til standi að kynna þá
í öllum skólum á landinu. Fjarnám
sé hægt að stunda hvar sem er.
Fá ókeypis fjarnám í FÁ
Morgunblaðið/ÞÖK
Samkomulag Sigríður R. Sigurðardóttir, formaður skólanefndar, Gísli
Ragnarsson skólameistari og Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi.
Knattspyrnudómari á sextugsaldri
þurfti að leita aðhlynningar á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi eftir lík-
amsárás sem átti sér stað eftir leik í
utandeildinni á þriðjudagskvöld.
Dómarinn hafði vikið árásarmann-
inum af velli og hann svaraði aftur
fyrir sig með því að slá til dómarans
og sparka undan honum fótunum.
Þrjú rifbein brotnuðu við atlög-
una og segir Valur Steingrímsson
knattspyrnudómari lífsreynsluna
slæma. „Ég rak hann út af tveimur
mínútum áður en leik lauk og hann
yfirgaf völlinn en hreytti í mig ein-
hverju. Eftir að leikurinn klárast
kemur hann svo hlaupandi og er
með einhvern munnsöfnuð. Hann
slær svo í höfuðið á mér og tekur af
mér húfu og hendir í jörðina. Ég
segi honum að róa sig og sný mér
undan en þá sparkar hann undan
mér löppunum.“
Árásarmaðurinn ritaði afsök-
unarbeiðni til Vals og andstæðinga
sinna í leiknum á vef liðsins. Þar seg-
ist hann sjá eftir framkomu sinni.
Valur segist ekki vera búinn að
ákveða hvort hann kæri atburðinn
til lögreglu, það muni hann ræða við
lögreglumann í dag.
Réðst að dóm-
ara knattleiks
TALIÐ er að heildarmagn karfa í
úthafinu, á svæðinu frá lögsögu Kan-
ada og að Íslandi, sé ríflega 1,2 millj-
ónir tonna, sem er svipað magn á
mældist árið 2005. Mun minna af
karfa mældist með bergmálsmæl-
ingu en í síðasta leiðangri en á hinn
bóginn meira með togtilraunum.
Nýlokið er alþjóðlegum karfaleið-
angri og alþjóðlegum hvalatalning-
um um borð í R/S Árna Friðrikssyni.
Alþjóðlegi karfaleiðangurinn er
farinn annað hvert ár í Grænlands-
hafi og aðliggjandi hafsvæðum og er
tilgangur hans að meta stofnstærðir
karfa í úthafinu. Í ár tóku auk Ís-
lendinga Rússar þátt í þessum leið-
angri. Upphaflega stóð til að Þjóð-
verjar sendu skip í leiðangurinn en
vegna bilunar urðu þeir að hætta við
þátttöku. Aðstæður til mælinga voru
góðar, t.d. var veður yfirleitt gott og
engar hindranir voru vegna íss.
Lítið fannst með
bergmálsmælingum
Úthafskarfinn, sem mældur var
með bergmálsaðferð, fannst allt
vestur að lögsögu Kanada og talið er
að náðst hafi að mestu að fara yfir
útbreiðslusvæði hans. Alls mældust
rúm 372 þúsund tonn af karfa með
bergmálsaðferð og er þetta um
þriðjungs minnkun miðað við árið
2005 og lægsta mæling sem fengist
hefur ef frá er talin mælingin árið
2003, en sú mæling þótti ekki mark-
tæk vegna tímasetningar leiðang-
ursins. Meginþorri þess magns sem
mældist var, líkt og árið 2005, á
svæðinu sunnan og suðvestan við
Hvarf á Grænlandi. Þar sem því var
við komið var magn karfa mælt en
þar sem karfi heldur sig dýpra en
hægt er að mæla með bergmálsmæl-
um var magnið metið með togtil-
raunum. Samsvarandi mælingar
hafa verið gerðar frá árinu 1999.
Mat á magni karfa á dýptarsviðinu
350-950 metrum, byggt á þeirri að-
ferð, var áætlað um 854 þúsund tonn
sem er tæp 200 þúsund tonnum
meira og mældist árið 2005. Því er
talið að heildarmagn karfa í úthaf-
inu, á svæðinu frá lögsögu Kanada
og að Íslandi, sé ríflega 1,2 milljónir
tonna, sem er svipað magn á mæld-
ist árið 2005. Mest fékkst af karfa í
dýpri lögum sjávar á norðaustur-
hluta rannsóknasvæðisins.
Í leiðangrinum fékkst talsvert af
karfa á lengdarbilinu 28-33 cm í
bæði efri og neðri lögum sjávar, sem
gefur til kynna að nokkur nýliðun
eigi sér stað.
Sjávarhiti hærri
Sjávarhiti í leiðangrinum mældist
nokkru hærri nú en á fyrri hluta síð-
asta áratugar, sem er svipað og hann
hefur verið það sem af er þessari öld.
Sameiginleg skýrsla þeirra sem
þátt tóku í leiðangrinum liggur nú
fyrir og verður höfð til hliðsjónar
þegar Alþjóðahafrannsóknaráðið
(ICES) veitir ráðgjöf um veiðar úr
karfastofnum í lok október. Skýrsl-
una má nálgast á vef ICES (http://
www.ices.dk/reports/RMC/2007/
SGRS/sgrs07-2.pdf).
Leiðangursstjóri var Kristján
Kristinsson. Skipstjóri var Kristján
Finnsson.
Svipað magn af karfa í úthafinu
Sameiginlegur leiðangur Íslendinga og Rússa mældi 1,2 milljónir tonna af karfa
"
##$%
&
"#'
"
" !
(!
& " '
)
*
+
,-
!
Í HNOTSKURN
»Í leiðangrinum fékkst tals-vert af karfa á lengdar-
bilinu 28-33 cm í bæði efri og
neðri lögum sjávar, sem gefur
til kynna að nokkur nýliðun
eigi sér stað.
»Sjávarhiti í leiðangrinummældist nokkru hærri nú
en á fyrri hluta síðasta áratug-
ar, sem er svipað og hann hef-
ur verið það sem af er þessari
öld.
»Aðstæður til mælinga vorugóðar, t.d. var veður yfir-
leitt gott og engar hindranir
voru vegna íss.
ÚR VERINU
GLÆSIBÆ S: 553 7060
www.xena.is
no:1
no:2
no:3
no:4
N
ý
s
e
n
d
in
g
a
f
sk
ó
m
&
t
ö
sk
u
m
Glæsibæ
Stærðir yfir kálfa: S-M-L-XL-XXL
KRINGLUNNI - Sími: 568 9955
OPIÐ
TIL 9
Listamaður HelmaTékk-Kristall
www.tk.is
eftir íslenska og erlenda listamenn
-mikið úrval í öllum verðflokkum
TÆPUM 71.600 tonnum af fiski hef-
ur verið landað í Færeyjum fyrstu
sjö mánuði ársins. Það er um 6.800
tonnum eða 9% minna en á sama
tíma í fyrra. Samdráttur er í lönd-
unum á öllum fiskitegundum, en
mestur er hann í botnfiski.
Þorskafli við Færeyjar hefur farið
minnkandi síðustu misserin.
Fara þarf aftur til ársins 2001 til
að sjá minni afla á sama tíma. Þrátt
fyrir að samdráttur í magni sé 9%, er
samdráttur í verðmætum mun minni
vegna hækkandi fiskverðs. Á þessu
tímabili í ár var verðmæti landaðs
fiskafla 685 milljónir færeyskra
króna eða 8,2 milljarðar íslenzkra
króna. Á sama tíma í fyrra var afla-
verðmætið 702 milljónir færeyskar
eða 8,4 milljarðar íslenzkra króna.
Minna við Færeyjar
.
"##'*
(# %
#"
#%
#/#!# ((()$ * *
+* , - *$
! *
0!
"
#
!
'
"
#
! (
./011
2//1
/ /3.4
43/5
1 4/445
03.62
603/
//
/004
41/2
1 44021
78336
74600
3 7045
7424
3/ 7418
3/21/