Morgunblaðið - 30.08.2007, Side 18

Morgunblaðið - 30.08.2007, Side 18
|fimmtudagur|30. 8. 2007| mbl.is daglegtlíf Hjólaferðir um framandi slóðir geta verið góður fríkostur, sér- staklega þegar um ræðir slóðir sem fáir hafa heimsótt. »21 hjólreiðar Sumarið var viðburðaríkt á Ak- ureyri. Friðrik V. opnaði á nýjum stað, Lúkas týndist og Akur- eyringar urðu 17.000. »25 bæjarlífið Súpukjöt og kjöt af nýslátruðu, ásamt fiskmeti og ávaxtasöf- um er áberandi í helgartilboð- unum. »24 helgartilboðin Náttúrufegurð einkennir nán- asta umhverfi Seattle,enda dregur borgin að sér fjölda ferðamanna ár hvert. »20 ferðalög Lagabreyting gæti verið nauð- synleg til að tryggja að þeir sem ekki vilja ómerktan fjölpóst, sleppi við að fá hann. »24 neytendur Fólk lætur fara vel um sig áCafé Flóru annaðhvort inni ígróðurhúsinu, fullu af blóm- um, eða úti á stéttinni mitt í Grasa- garðinum í Laugardal. Þarna nýtur fólk þess að anda að sér fersku lofti um leið og það borðar létta rétti, marga hverja úr lífrænt ræktuðu grænmeti. Það er ekkert sem mælir gegn því að setið sé utan dyra þótt farið sé að hausta því Marenza hefur frá upphafi boðið fólki upp að slá teppi yfir herðar sér eða vefja um fót- leggina sé því ekki nægilega hlýtt. Nú situr fólk úti fram á haust „Annars hefur mikið breyst und- anfarin ár. Fólk er farið að gera sér grein fyrir því að það er hægt að sitja úti í úlpunni, eins og fólk gerir á kaffi- húsum erlendis, en sitja ekki bara úti þegar það er að sóla sig í hlýrabol. Það á alls ekki að láta veðrið fara í taugarnar á sér enda er alltaf sumar hér hjá okkur í gróðurhúsinu þótt úti rigni. Café Flóra verður opið fram til 15. september og það er dásamlegt að það skuli vera hægt að lengja sum- arið innan um plönturnar og ljúfa tónlist. Svo er sjarmerandi að opna aftur á vorin þegar gróðurinn er að vakna til lífsins og þá bjóðum við upp á vorsúpur, andstætt haustsúpunni á þessum árstíma.“ Lítill kryddjurtagarður er bak við Café Flóru en að auki er Marenza í samvinnu við Grasagarðinn og notar þaðan lífrænt ræktað grænmeti. Haustsúpan er falleg á litinn og í henni leynist óvenjuleg planta sem heitir stilkbeðja. Hún er með dökk- grænum blöðum en leggirnir eru gul- ir og bleikleitir. Hún setur því svip á matinn þótt hún sé ekki bragðmikil en þaðan af hollari. Rótargrænmetið holt „Súpur eru mjög vinsælar,“ segir Marentza, „og ég legg mikið upp úr að þær séu ekki uppbakaðar. Allar okkar súpur eru unnar úr grænmet- inu sem er látið sjóða niður og mynda kraftgrunn sem við leikum okkur svo með. Við notum mikið af rót- argrænmeti sem vex hér úr jörðinni. Ég hef nefnilega þá trú að það eigi betur við okkur sem búum hér á kald- ari slóðum að borða það sem vex hér úr moldinni fremur en það sem kem- ur frá suðlægum slóðum.“ Það er gaman að ganga um Grasa- garðinn og koma við í Café Flóru. Hér er mikil orka og súrefni og öllum hlýtur að líða einstaklega vel innan um fallegan gróðurinn. Haustsúpan í Flóru 1 rauð paprika 1 stór laukur 1-2 hvítlauksrif 1 kúrbítur 4 stilkar af stilkbeðju 250 g lambakjöt smá olía til steikingar 2 l af vatni, 2 msk. saxað, ferskt rósmarín 2 msk. tómatpurée 1 msk. grænmetiskraftur (má sleppa) salt og pipar Skerið kjötið í smáa bita. Papr- ikan, kúrbíturinn og stilkbeðjan eru skorin í grófa bita, laukurinn saxaður smátt og hvítlauksrifin pressuð. Rósmarínið saxað fínt. Olían sett á pönnu og allt sett út á hana og látið kraum um stund. Síðan er vatnið sett í pott og blöndunni af pönnunni hellt út í og tómatpurée blandað saman við. Látið sjóða um stund. Gott er að sjóða kjötbeinin með til að fá meiri kjötkraft. Súpan er smökkuð til og bætt í hana smá pipar, kannski salti, og jafnvel hunangi sem og grænmetis- krafti ef fólki finnst hann muni bæta hana. Haustsúpa í garðinum Útivera Lilja Matthíasdóttir og Hrafnkell Már Einarsson kunna að njóta útiverunnar, vafin í teppi, og gæða sér að sjálfsögðu á haustsúpunni sem hæfir árstímanum. Morgunblaðið/Frikki Stilkbeðja Marenza sýnir okkur stilkbeðjuna sem minnir í fljótu bragði á rabarbara en líkist honum þó ekki að neinu leyti hvað bragðið snertir. Litrík Haustsúpan er fallega á litin og í henni er grænmeti sem færir okkur orku og kraft, auk svolítils kindakjöts sem gerir hana einkar þjóðlega. „Það er óskaplega gaman að búa til súpur eftir árs- tíðum,“ segir Marentza Poulsen í Café Flóru í Grasagarðinum. Hún hefur reitt fram græn- metissúpu úr haustlegu grænmeti sem Fríða Björnsdóttir verður að viðurkenna að smakk- aðist býsna vel. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Klapparstíg 44 Sími 562 3614 Kr. 2.200 Tilboð kr. 1.100 Kr. 3.500 Tilboð kr. 1.750 ELDFAST LEIRTAU Má fara í örbylgjuofn og uppþvottavél French Design Hvítt, gult, grænt og appelsínugult 50% afsláttur 19 87 - 2007 TILBOÐIÐ GILDIR FIM., FÖS. OG LANGAN LAUGARDAG

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.