Morgunblaðið - 30.08.2007, Side 24
helgartilboðin
24 FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Bónus
Gildir 30. ág. - 2. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Holta ferskar kjúklingabringur ................ 1.498 1.926 1.498 kr. kg
Holta fersk hálfúrbeinuð kjúklingalæri .... 599 899 599 kr. kg
KF ferskt lambafillet af nýslátruðu .......... 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Kf fersk lambalæri af nýslátruðu ............ 975 1.168 975 kr. kg
Ferskt ungnautahakk innflutt................. 859 1.298 859 kr. kg
Bónus brauð 1 kg. ............................... 98 129 98 kr. kg
Svali 3x250 ml .................................... 68 89 90 kr. ltr
Bónus ís 2 ltr....................................... 179 219 90 kr. ltr
Kristjáns djöflaterta 445 g .................... 298 398 670 kr. kg
Euroshopper smjörlíki 500 g ................. 59 69 118 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 30. ág. - 1. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Nautahakk magnpk ca 2 1/2kg ............ 998 1.173 998 kr. kg
Nautagúllas úr kjötborði ....................... 1.295 1.598 1.295 kr. kg
FK lamba ofnsteik ................................ 1.125 1.615 1.125 kr. kg
FK Bayonneskinka................................ 1.149 1.426 1.149 kr. kg
Reykt folaldakjöt .................................. 498 734 498 kr. kg
Kjúklingabringur frá Matfugli ................. 1.685 2.515 1.685 kr. kg
Ný laxaflök úr fiskborði ......................... 998 1.198 998 kr. kg
Heimaís 2 ltr vanillu/súkkul. ................. 498 560 498 kr. kg
Appelsínur .......................................... 99 129 99 kr. kg
Mangó ................................................ 198 243 243 kr. kg
Hagkaup
Gildir 30. ág. - 2. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Lambagrillleggir úr kjötborði.................. 798 825 798 kr. kg
Lambainnralæri úr kjötborði.................. 2.498 3.095 2.498 kr. kg
Súpukjöt í pokum frosið ....................... 399 399 399 kr. kg
Bayonne skinka ................................... 898 1.498 898 kr. kg
Holta kjúklingalundir ferskar ................. 1.497 2.304 1.497 kr. kg
Myllu spelt brauð ................................. 179 242 179 kr. stk.
FROOSH bláberja brómberja ................. 169 214 169 kr. stk.
FROOSH jarðaberja/banana ................. 169 214 169 kr. stk.
Firefly sharpen up dr. 330 ml ................ 199 257 199 kr. stk.
Firefly de-tox drykkur 330 ml ................ 199 257 199 kr. stk.
Krónan
Gildir 30. ág. - 2. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Goða súpukjöt lítill poki........................ 349 499 349 kr. kg
Kjarnafæði lambalifur frosin.................. 139 281 139 kr. kg
Goða lifrarpylsa frosin 1 STK ................. 279 379 279 kr. stk.
Goða svið frosin í poka ......................... 288 575 288 kr. kg
Móa læri/leggir magnkaup ................... 365 609 365 kr. kg
Myllu Heimilisbrauð 770 g.................... 98 158 127 kr. kg
Happy Day 100% Safi 3 teg 2 ltr ........... 239 269 119 kr. ltr
Bergtoppur sítrónu/skógarberja 500 ml. 79 89 158 kr. ltr
Coke Light 2 ltr .................................... 89 148 44 kr. ltr
Góu Lakkrísdúndur bitar 200 g.............. 189 219 189 kr. pk.
Nettó
Gildir 30. ág. - 2. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Saltkjöt ............................................... 196 418 196 kr. kg
London lamb....................................... 1.245 1.660 1.245 kr. kg
Grísk lambalæristeik ............................ 1.904 2.539 1.904 kr. kg
Spánskar pylsur................................... 568 1.136 568 kr. kg
Kjúklingur ferskur (heill) ....................... 398 699 398 kr. kg
Kjúklingabringur .................................. 1.128 2.256 1.128 kr. kg
Freschetta Italiano 2 í pk ...................... 349 499 349 kr. pk.
Freschetta Rusticale 2 í pk ................... 349 499 349 kr. pk.
Egils Pepsi Max 2 ltr. ............................ 88 152 88 kr. stk.
Toffypops 150.gr.................................. 49 99 49 kr. stk.
Nóatún
Gildir 30. ág. - 2. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Lambalæri af nýslátruðu ....................... 1.098 1.598 1.098 kr. kg
Lambahryggur af nýslátruðu.................. 1.298 1.798 1.298 kr. kg
Lamba súpukjöt af nýslátruðu ............... 399 779 399 kr. kg
Laxasteik m/hvítlauk............................ 998 1.498 998 kr. kg
Ítalskar nautahakkbollur tómat ............. 998 1.594 998 kr. kg
Ungnauta prime ribs ............................ 1.998 2.998 1.998 kr. kg
Myllu fjölkornasamlokubrauð 770 g ...... 199 277 258 kr. kg
ISIO4 Ólívuolía 1 ltr.............................. 359 449 359 kr. ltr
Riceselect lífræn hrísgrjón 3 teg ............ 399 499 399 kr. kg
Pepsi Max 2 ltr..................................... 99 176 49 kr. ltr
Samkaup/Úrval
Gildir 30. ág. - 2. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Goði ofnsteik með dönskum blæ........... 1.239 1.656 1.239 kr. kg
Kjötborð lambalærisneiðar ................... 1.479 1.975 1.479 kr. kg
Bautabúr skólaskinka........................... 1.029 1.585 1.029 kr. kg
Borgarnes frönsk sveitaskinka............... 1.198 1.722 1.198 kr. kg
Matfugl kjúklingalæri magnkaup ........... 419 609 419 kr. kg
BKI kaffi classic 500 g ......................... 299 394 598 kr. kg
Egils Mix 2 ltr....................................... 109 178 55 kr. ltr
Kelloggs special K 750 g ...................... 399 475 532 kr. kg
Melóna gul.......................................... 99 149 99 kr. kg
mangó................................................ 199 299 199 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 30. ág. - 5. sept. verð nú verð áður mælie. verð
Borgarnes skólaskinka 165 g................ 164 205 800 kr. kg
Borgarnes spánskar pylsur .................... 909 1.136 909 kr. kg
Borgarnes lambagrillsneiðar þurrkr. ....... 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Stjörnu hrásalat 350 g ......................... 168 210 480 kr. kg
Weetos heilhveitihringir 375 g............... 279 339 744 kr. kg
Weetabix 430 g ................................... 259 319 602 kr. kg
Kexsmiðjan kanilsnúðar 400 g .............. 219 379 548 kr. kg
Hunt Tómatsósa 680 g ......................... 109 159 160 kr. kg
Pepsi Max 50cl dós.............................. 59 95 118 kr. ltr
Súpukjöt, fiskur og ávaxtasafar
Lagabreyting gæti veriðnauðsynleg til að tryggjaað fólk, sem ekki villómerktan og óumbeðinn
fjölpóst, sleppi við að fá hann. Ekkert
er vikið í lögum að rétti viðtakenda til
að afþakka fjölpóst. Íslandspóstur
hefur hætt sölu gulra miða sem fólk
gat notað til að afþakka póstinn en
dreifendur fríblaðanna tveggja segja
burðarfólk sitt eiga að taka mark á
skilaboðum móttakenda á póst-
lúgum.
Í fyrra bárust 176 kíló af auglýs-
ingapósti og dagblöðum að meðaltali
inn á hvert heimili á landinu. „Árið
2003 fengum við hóp fólks til að safna
auglýsingapósti og dagblöðum heima
hjá sér yfir einhvern tíma og end-
urtókum það svo árið 2006,“ segir
Ragna Halldórsdóttir, deildarstjóri
gæða- og þjónustusviðs hjá Sorpu.
„Niðurstöðurnar voru sláandi því á
þessu tímabili jókst þessi póstur um
76 prósent eða úr 100 kílóum árið
2003.“
17 heimili tóku þátt í þessu verk-
efni, úr nokkrum hverfum á höf-
uðborgarsvæðinu, á Suðurnesjunum,
Suðurlandi og Norðurlandi. „Aukn-
ingin endurspeglaðist í endurvinnsl-
unni hjá okkur því á sama tíma jókst
það magn pappírs sem sent var til
endurvinnslu um 40 prósent, eða úr
5.000 tonnum í 8.000 tonn. Engu að
síður enda um 27 prósent pappírs í
heimilissorpinu,“ heldur Ragna
áfram.
Hún segir mikilvægt að ná þeirri
tölu niður enda sé markmiðið að
draga úr lífrænum úrgangi í almennu
sorpi um 75% miðað við grunntölur
árið 1995. Þau markmið séu í sam-
ræmi við tilskipanir Evrópusam-
bandsins um urðun og endurvinnslu.
Vilji fólk forðast að fá slíkan póst
ráðleggur Ragna því að merkja póst-
lúgur og -kassa með miða þar sem
hann er afþakkaður og ganga svo eft-
ir því við dreifingarfyrirtækin að þau
skilaboð séu virt.
Handskrifuð skilaboð
Dagný Ragnarsdóttir er deildar-
stjóri á dreifingardeild Pósthússins
ehf. sem dreifir m.a. Fréttablaðinu,
Hagkaupsbæklingnum, Sjónvarps-
dagskrá vikunnar og Smáralind-
arbæklingnum ásamt fleiru. Að
hennar sögn eru vinnureglur útburð-
arfólks fyrirtækisins þess efnis að
miðar þar sem tekið er fram að við-
komandi óski ekki eftir fjölpósti eru
virtir og enginn fjölpóstur settur á
þann stað. Hins vegar þurfi fólk að
óska sérstaklega eftir því að fá ekki
Fréttablaðið, vilji það ekki fá það.
Svipaða sögu hefur Örn Þórisson,
dreifingarstjóri Árvakurs, að segja.
„Hins vegar tökum við ekki mark á
gula miðanum sem Pósturinn fór af
stað með fyrir nokkrum árum. Áður
lentum við stundum í því að fólk sem
var með gulu miðana vildi samt sem
áður fá Blaðið og því höfum við tekið
þá afstöðu að setja það inn um lúguna
hjá fólki nema það taki sérstaklega
fram að það vilji það ekki.“
Fólk eigi ekki lúgurnar sínar
Ágústa Hrund Steinarsdóttir, for-
stöðumaður markaðsdeildar Íslands-
pósts, segir fólk lítið geta gert til að
verjast fjölpósti. „Ekki eins og stað-
an er í dag. Pósturinn bauð upp á
miða sem á stóð „Engan fjölpóst,
takk“ og fólk gat keypt á pósthúsum.
Í vor var hins vegar tekin sú ákvörð-
un að hætta þessu því við vorum þeir
einu sem fóru eftir þessum skila-
boðum. Okkur finnst ekki sanngjarnt
að við séum þeir einu sem bjóðum
upp á þennan möguleika því það
skerðir samkeppnisstöðu okkar
gagnvart öðrum dreifingarfyrir-
tækjum.“
Hún segir bréfbera Póstsins virða
þá miða sem fólk var búið að kaupa
og setja upp hjá sér áður en verklagi
fyrirtækisins var breytt. Hins vegar
sé ekki boðið upp á nýja. Bréfberum
Póstsins sé uppálagt að taka ekki
mark á handskrifuðum skilaboðum á
kössum og lúgum. „Póstkassi eða
póstlúga er skilgreint í lögum um
póst- og fjarskiptaþjónustu sem kassi
eða rifa á byggingu fyrir söfnun póst-
sendinga í póstþjónustu. Strangt til
tekið á fólk því ekki lúgurnar sínar.
Við erum póstfyrirtæki og það er bú-
ið að greiða burðargjald undir þenn-
an póst. Okkur er því skylt sam-
kvæmt lögum að dreifa honum.“
Fólk geti því lítið gert til að verjast
óumbeðnum pósti að hennar sögn.
„Ekki sem stendur en málið er til
meðhöndlunar hjá Póst- og fjar-
skiptastofnun. Við bíðum spennt eftir
niðurstöðu hennar því auðvitað vild-
um við hafa þetta öðruvísi.“
Vantar lagaleg úrræði
Að sögn Björns Geirssonar, for-
stöðumanns lögfræðideildar Póst- og
fjarskiptastofnunar, hefur ekki bor-
ist formlegt erindi um málið til stofn-
unarinnar. „Hins vegar er okkur
kunnugt um þessa breyttu fram-
kvæmd hjá Íslandspósti og höfum átt
í óformlegum viðræðum við fyr-
irtækið út af henni. Meðal annars er-
um við að skoða hvort einhver laga-
grundvöllur sé fyrir okkur að hafa
aðkomu að þessu máli því í póstlög-
unum hvílir engin skylda á póstrek-
endum að virða bannmerkingar mót-
takenda.“
Hann segir marga ólíka hags-
munaaðila koma að málinu, s.s. dreif-
ingarfyrirtæki, auglýsendur, neyt-
endur og útgefendur svo eitthvað sé
nefnt. „Sjálfsagt munum við byrja á
því að leita eftir sjónarmiðum þeirra
og sjá hvort einhver grundvöllur sé
fyrir samkomulagi milli þeirra.“
Hann bendir á að lagaleg úrræði
skorti til að taka á málinu. „Í póst-
lögum er ekkert vikið að hugs-
anlegum rétti móttakenda til að
hafna slíkum fjölpósti. Þannig að ef
ekki næst samkomulag með aðilum
þarf hugsanlega að grípa til laga-
breytingar til að breyta þessu
ástandi.“
ben@mbl.is
Lagalegur réttur viðtakenda enginn
Morgunblaðið/Ásdís
Fjölpóstur Magnið yfir árið jókst úr 100 kílóum á heimili árið 2003 í 176 kíló árið 2006.
Hann streymir inn um
lúguna í formi ómerktra
auglýsingapésa, bækl-
inga og fríblaða. Samtals
er hann 176 kíló á með-
alheimilinu yfir árið.
Bergþóra Njála Guð-
mundsdóttir kannaði
hvort og hvernig hægt er
að losna undan „ruslpóst-
inum“ svokallaða.
neytendur
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Sýnum í dag fallega og mikið endurnýjaða 121 fm hæð í þríbýli ásamt 30 fm bílskúr.
Búið er að endurnýja gólfefni, eldhús, lagnir og fl. Tvennar svalir, stórar stofur.
Toppeign á rólegum og góðum stað. LAUS STRAX. Verð 36,9 millj.
Jóhann frá Fasteign.is s: 8 600 399 verður á staðnum.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17.30–18:00
GOÐHEIMAR 24 – EFRI HÆÐ