Morgunblaðið - 30.08.2007, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Rolf Johansenfæddist 10.
mars 1933 á Reyð-
arfirði. Hann lést í
Reykjavík 23. ágúst
2007. Rolf var son-
ur hjónanna Thul-
ins Johansen, full-
trúa, f. 1907, d.
1975, og Svövu Þor-
gerðar Þórhalls-
dóttur Johansen, f.
1912, d. 2003.
Systkini Rolfs eru
Bertha Ingibjörg, f.
1934, Kitty, f. 1936,
Hulda, f. 1938, stúlka, f. 1938, d.
1938, Þórhallur, f. 1943, og Thul-
in, f. 1946.
Rolf kvæntist Kristínu Ásgeirs-
dóttur, f. 26.1. 1940, á Reyðar-
firði, árið 1958. Foreldrar hennar
voru Ásgeir Ásgeirsson, kaup-
maður, f. 1885, d. 1972, og kona
hans, Agnes Matthíasdóttir, f.
1912, d. 1994. Börn þeirra eru: 1)
Agnes, f. 1958. Dætur hennar og
Friðjóns Einarssonar eru Kristín
son, f. 1973. Börn þeirra eru Nína,
f. 2004 og Martin, f. 2005.
Rolf ólst upp á Reyðarfirði, en
fluttist ungur til Reykjavíkur og
stundaði nám við Verslunarskóla
Íslands og Samvinnuskólann. Að
námi loknu vann hann til sjós og í
sölumennsku um nokkurt skeið.
Árið 1957 stofnaði hann innflutn-
ingsfyrirtækið Rolf Johansen &
Company og var í umsvifamiklum
rekstri um áratugaskeið. Hann
var meðal annars frumkvöðull í
innflutningi vara frá Austurlönd-
um fjær. Fyrir nokkrum árum dró
hann sig að mestu í hlé frá dag-
legri stjórnun fyrirtækisins, en
sonur hans, Ásgeir, tók við rekstri
þess. Fyrirtækið er enn í farsæl-
um rekstri og fagnaði Rolf fyrr á
þessu ári 50 ára afmæli þess með
fjölskyldu sinni og samstarfsfólki.
Hann var ræðismaður Mexíkó á
Íslandi í nokkur ár. Rolf lét til sín
taka á ýmsum sviðum og voru ým-
is framfaramál honum hugleikin.
Nú nýverið tók hann þátt í stofn-
un Krabbameinsfélagsins Fram-
farar.
Rolf verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju, í dag, fimmtu-
daginn 30. ágúst, kl. 13.
Una, f. 1981 og
Tanja Marín, f. 1984.
2) Thulin, f. 1959.
Synir hans og Guð-
rúnar Þorleifsdóttur,
sambýliskonu hans,
eru Anton Fannar, f.
2003 og Andri Stein-
ar, f. 2005. 3) Svava
Þorgerður, f. 1964.
Sonur hennar og Ás-
geirs Bolla Kristins-
sonar er Ásgeir
Frank, f. 1996. Sam-
býlismaður Svövu er
Björn Sveinbjörns-
son, f. 1968. 4) Berglind, f. 1966.
Eiginmaður hennar er Pétur
Albert Haraldsson, f. 1963. Dætur
þeirra eru Kristjana, f. 1992, Kar-
ólína, f. 1995 og Erna Katrín, f.
2001. 5) Ásgeir, f. 1971. Eiginkona
hans er Aki Ishise Johansen. Börn
þeirra eru Nicole Hanna, f. 1994,
Rolf, f. 1996, Sebastian, f. 1997,
Mia Luly, f. 2001 og Lilja París, f.
2006. 6) Kristín, f. 1971. Eigin-
maður hennar er Halldór Harðar-
Hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín,
enda þótt öll sé kross
upphefðin mín.
Hljóma skal harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.
Villist ég vinum frá
vegmóður einn,
köld nóttin kringum mig,
koddi minn steinn,
heilög skal heimvon mín.
:,:Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.
Sofanda sýndu þá
sólstigans braut
upp í þitt eilífa
alföðurskaut.
Hljómi svo harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.
Árla ég aftur rís
ungur af beð.
Guðs hús á grýttri braut
glaður ég hleð.
Hver og ein hörmung mín
hefur mig, Guð, til þín,
hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín.
Lyfti mér langt í hæð
lukkunnar hjól,
hátt yfir stund og stað,
stjörnur og sól,
hljómi samt harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.
(Matthías Jochumsson.)
Jesús sagði: „Ég er upprisan og líf-
ið. Sá sem trúir á mig, mun lifa þótt
hann deyi. Og hver sem trúir á mig,
mun aldrei að eilífu deyja.“ Jh. 11.26.
Elsku Stína, Addý, Túlli, Svava,
Linda, Ásgeir og Stína. Ég sendi ykk-
ur og fjölskyldunni allri mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Gyða Dan Johansen
og fjölskylda.
Á fallegum sumardegi um miðjan
ágúst hringdi Rolf bróðir og spurði
hvort við ættum ekki að hittast og
fara í bíltúr. Ekki datt mér í hug að
þetta yrði okkar síðasta samveru-
stund hérna megin moldar.
Eins og oft áður á okkar stefnu-
mótum var ýmislegt spjallað, farið yf-
ir dægurmál líðandi stundar og þegar
komið var að pólitíkinni vorum við
miklir samherjar, báðir miklir sjálf-
stæðismenn og fylgjendur þeim gild-
um sem Sjálfstæðisflokkurinn stend-
ur fyrir. Aðdáendur Davíðs og Geirs
sem forsætisráðherra og báðir stuðn-
ingsmenn núverandi meirihluta í
borginni. Rolf hafði sterkar skoðanir
á mönnum og málefnum en aldrei var
hnýtt í nokkurn mann. Hann hafði
þann skemmtilega eiginleika að sjá
jákvæðu hliðarnar á málunum sem
annars virtust lokaðar. Alltaf skildum
við ánægðir og með þeim orðum að
hittast fljótlega aftur. Að leiðarlokum
er margs að minnast og góðar minn-
ingar koma upp í huga mér.
Það var sterkur strengur milli okk-
ar bræðra sem efldist frekar meðan
báðir lifðu. Þeir sem þekktu og
kynntust Rolf fundu fljótt hversu
sterkur persónuleiki hann var. Hann
átti fáa en góða vini sem sýndu hon-
um mikla tryggð enda ræktaði Rolf
vel sinn vinahóp með reglulegum
samskiptum. Það var afar ríkt í eðli
hans að geta glatt aðra með einum
eða öðrum hætti. Það var Rolf eðli-
legra að vera gefandi en þiggjandi.
Í mörg ár hefur það verið viðtekin
venja hjá honum að senda systkinum
sínum gjafir um jól og áramót og eftir
að hann lét Ásgeiri syni sínum eftir
stjórn fyrirtækisins var það hans
hlutverk um jólin að keyra gjöfum til
systkinanna. ,,Nú er ég í starfi send-
ilins og því kominn á byrjunarreit,“
sagði hann eitt sinn við mig. Rolf var í
eðli sínu feiminn maður og hlédræg-
ur. Það kann að hljóma sem öfugmæli
þar sem starfsvettvangur hans gegn-
um árin var á sviði verslunar og við-
skipta og samskipti mikil við annað
fólk, bæði innanlands sem utan.
Það kemur manni alltaf í opna
skjöldu þegar kallið kemur til náins
ættingja og mig setti hljóðan við tíð-
indin.
Ég kveð bróður með sorg og sökn-
uði en það er huggun harmi gegn að
hann fékk að halda reisn sinni til síð-
ustu stundar.
Blessuð sé minning hans.
Þórhallur Dan Johansen.
Kynni mín af Rolf hófust þegar ég
var fjögurra ára, þá nýflutt á Laug-
arásveginn. Kynni tókust á milli mín
og Berglindar dóttur hans og eftir
það var ég tíður gestur á glæsilegu
heimili Rolfs og Kristínar. Rolf tók
mér afar vel frá fyrstu byrjun og kall-
aði mig ætíð fósturdóttur sína og
reyndist hann mér vel alla tíð.
Rolf var litríkur persónuleiki og
það var aldrei lognmolla í kringum
hann. Hann var rausnarlegur og
höfðingi heim að sækja. Rolf var jafn-
framt viðkvæmur en oft er sagt að
viðkvæmustu einstaklingarnir séu
jafnframt þeir sterkustu. Það átti vel
við Rolf. Það eru margar minningar
sem koma upp í hugann á þessari
stundu. Í æsku var alltaf spennandi
að hlaupa yfir á heimili þeirra hjóna.
Fjölskyldan var stór og alltaf eitt-
hvað skemmtilegt um að vera.
Rolf var einn af frumkvöðlum á
sínu sviði í viðskiptum. Kynni mín af
Japan hófust t.d. þegar Rolf sýndi
mér myndir og sagði á sinn skemmti-
lega hátt frá ferðalögum sínum þang-
að. Það segir allt sem segja þarf um
framsýni hans að hafa tekið upp við-
skipti við Asíu á þessum tíma þar sem
Asía var í órafjarlægð og samgöngur
og samskiptatækni komin mjög stutt
á veg miðað við þær ótrúlegu breyt-
ingar sem hafa átt sér stað á því sviði
undanfarin ár. Rolf var langt á undan
sinni samtíð í viðskiptum og vegnaði
vel í því sem að hann tók sér fyrir
hendur. Hann sá möguleika sem aðr-
ir sáu ekki á þessum tíma og fram-
kvæmdi það sem hann hafði trú á.
Það segir allt sem segja þarf um hans
sterka persónuleika, víðsýni og fram-
sýni.
Á seinni árum náðum við Rolf vel
saman í hugleiðingum um andleg
málefni. Rolf sýndi þessum málefn-
um áhuga í seinni tíð og var mér
einkar kært að spjalla við hann á
þessu nótum.
Elsku Rolf. Það voru forréttindi
kynnast þér. Síðustu ár fóru okkar
samskipti að mestu fram í tölvupósti
en strengurinn á milli okkar slitnaði
aldrei. Þú kenndir mér margt sem ég
hef getað nýtt mér í lífinu og mun
koma að góðum notum í framtíðinni.
Hugur minn er hjá ykkur Kristín,
Túlli, Addí, Svava, Linda, Ásgeir og
Stína. Guð styrki ykkur á þessum erf-
iðu tímum.
Kærar þakkir fyrir samfylgdina,
elsku Rolf. Blessuð sé minning þín.
Hendrikka Waage.
Rolf eða Rolli eins og við kölluðum
hann var með skemmtilegri mönnum
sem ég hef þekkt. Ég man ekki
hvernig ég kynntist honum en allt í
einu var hann orðinn vinur minn og
góður vinur. Hann var gull af manni,
örlátur, traustur og sannur. Hann
stóð við allt sem hann sagði og enginn
fór gjafarlaus frá honum. Einu sinni
sat ég upp á skrifstofu hjá Rolla og
sagði honum hve mikið mig langaði í
málverk eftir Kristján frænda minn
Davíðsson en málverkið kostaði bara
um ferföld mánaðarlaun mín. Rolli
sagði það ekki mikið mál og linnti
ekki látum fyrr en hann var búinn að
kaupa verkið og afhenda mér það.
Svona var Rolli. Rolli hafði lag á að ná
góðum umboðum. Einu sinni spurði
ég hann hvernig hann færi að þessu?
Hann sagði það ekki mikið mál. Þeg-
ar hann kæmi til einhvers lands, legð-
ist hann upp í rúm á hótelinu með
einn drykk og kveikti á sjónvarpinu.
Og horfði bara á auglýsingarnar.
Þegar einhver auglýsing vekti at-
hygli hans færi hann út í búð og skoð-
aði það sem auglýst var (eða smakk-
aði). Ef honum litist vel á varninginn
tæki hann umboð fyrir hann. Smekk-
ur Rolla brást aldrei. Að vísu hafði
einu sinni nær farið illa. Frönsk frú
hafði einu sinni bankað upp á og boð-
ið honum umboð fyrir Lancôme. Lan-
Rolf Johansen
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 - www.englasteinar.is
Sendum
myndalista
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN JÓSEPSDÓTTIR
frá Ísafirði,
Jöldugróf 22,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn
31. ágúst kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minning-
arsjóð líknardeildar LSH í síma 543 1159.
Margrét V. Friðþjófsdóttir, Stefnir Þór Kristinsson,
Sigríður María Friðþjófsdóttir, Tómas Valdimarsson,
Ingibjörg Friðþjófsdóttir
og barnabörn.
✝
ÞORMÓÐUR PÁLSSON
fyrrverandi aðalbókari ÁTVR,
lést laugardaginn 18. ágúst.
Útför hans fór fram í kyrrþey að hans ósk.
Fjölskyldan þakkar öllum sem önnuðust hann og
hjúkruðu í Víðinesi og Roðasölum.
Árni Þormóðsson, Guðrún Jónsdóttir,
Viðar Þormóðsson,
Berglind Gunnarsdóttir, Jón Bjarki Gunnarsson,
Þórdís Árnadóttir, Sigurður Rúnar Jónsson,
Jón Árni Árnason, Anna Berglind Finnsdóttir,
Þorfinnur Kristinn Árnason, Tinna Rós Pálsdóttir
og barnabarnabörnin.
✝
Elskulegur fósturfaðir okkar, afi og langafi,
KRISTJÁN V. JÓHANNESSON
frá Flateyri,
lést þriðjudaginn 28. ágúst á öldrunardeild
Sjúkrahúss Ísafjarðar.
Jarðarförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugar-
daginn 8. september kl. 14.00.
Jóhannes Jónsson, Sigrún Sigurðardóttir,
Ásgeir Magnússon, Svanfríður Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Maðurinn minn og faðir okkar,
BJÖRN TH. BJÖRNSSON
listfræðingur og rithöfundur,
lést laugardaginn 25. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
6. september kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minn-
ast hans er bent á líknarfélög.
Ásgerður Búadóttir og börn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HELGA ERLENDSDÓTTIR
frá Laugarholti,
lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 18. ágúst sl.
Útförin fer fram frá Reykjakirkju laugardaginn
1. september kl. 13.00.
Ingibjörg Sveinsdóttir, Árni Gíslason,
Helgi Sveinsson,
Monika Erla Sveinsdóttir, Felix Antonsson,
Guðmundur Sveinsson
og fjölskyldur.
✝
Kæri bróðir, mágur, frændi og vinur,
PÁLMI GUÐJÓNSSON
garðyrkjumaður,
lést mánudaginn 6. ágúst.
Kveðjuathöfn hefur farið fram.
Lilja Guðjónsdóttir, Símon Kristjánsson
Reynir Guðjónsson, Margrét Vilmarsdóttir
og systkinabörn.