Morgunblaðið - 30.08.2007, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Tónlist
Menntaskólinn við Hamrahlíð | Stórtónleikar á sal Mennta-
skólans við Hamrahlíð þar sem fram koma Stuðmenn, Páll
Óskar, Baggalútur, Hjaltalín og djasstríóið Babar með Sigríði
Thorlacius, allt tónlistarmenn sem koma úr MH og kór skól-
ans. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og rennur ágóðinn til Kína-
ferðar Hamrahlíðarkórsins nú í september.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin kl. 9-16.30. Boccia kl.
10.
Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handavinna kl. 9-16.60, smíði/
útskurður kl. 9-16.30, Boccia kl. 9.30, leikfimi kl. 11, helgi-
stund kl. 10.30-11.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Farið verður í
berjaferð fimmtudaginn 6. september. Brottför frá Gull-
smára kl. 13 og Gjábakka kl. 13.15. Leitað verður berja í Hval-
firði og nágr. Eigið nesti. Verði veður óhagstætt til berjat-
ínslu verður farið í óvissuferð „út í bláinn“. Skráning í
félagsmiðstöðvunum.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, handavinna, fótaað-
gerð, morgunkaffi/dagblöð, hádegisverður, kaffi. Vetrardag-
skráin er óðum að taka á sig mynd, í boði er m.a. bókband,
kertaskreytingar, almenn handavinna, leikfimi, kinesiologi/
yoga, bútasaumur, myndlist, myndvefnaður o.fl. Uppl. í síma
535-2760.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefnaður kl. 9.15. Handa-
vinnustofan opin. Kynning kl. 14 á fyrirhugaðri vetr-
arstarfsemi í Gjábakka. Allir velkomnir.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 9 handavinna. Kl. 10
ganga. Hádegisverður kl. 11.40. Kynning á vetrarstarfsem-
inni í Gullsmára 13 á morgun, föstudag kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Hannyrðafólk, verið
velkomin í handavinnuhornið í Garðabergi í dag kl. 13-16.
Skráning í hauststarfið hafið, skráningarblöð liggja frammi í
Garðabergi. upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 820-
8565.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund umsj. Ragn-
hildur Ásgeirsd. djákni. Vinnustofur opnar frá hádegi.
Fimmtud. 6. sept hefst myndlist, leiðsögn veitir Nanna S.
Baldursd. Föstud. 7. sept. er Breiðholtsdagur, m.a. fjölbreytt
dagskrá og viðburðir í hverfinu, nánar kynnt síðar. S. 575-
7720.
Hraunsel | Félagsmiðstöðin opnar kl. 9. Félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Böðun fyrir hádegi. Hádegisverður kl.
11.30. Félagsvist kl. 13.30, góðir vinningar, kaffi og meðlæti í
hléi. Allir velkomnir.
Hæðargarður 31 | Starfið er öllum opið. Enn er möguleiki
að skrá sig. Hauststarfið hefst á fullu mánudag 3. sept.
Munið laugardagsgönguna kl. 10 árdegis. S. 568-3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Boccia karla kl. kl. 10.30.
Handverks og bókastofa kl. 13. Boccia kvennaklúbbur kl.
13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9-12
aðstoð v/böðun. Kl. 9.15-15.30 handavinna. Kl. 9-10 boccia,
Sigurrós (júní). Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 13-14 leik-
fimi, Janick (júní-ágúst). Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handavinnustofa opin kl. 10-
14.30, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, hárgreiðslu og fóta-
aðgerðastofur opnar allan daginn.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin kl. 17-22. Sr. Jóna
Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í kirkjunni og eftir sam-
komulagi í síma 858-7282. Kvöldbænir kl. 20. Allir vel-
komnir.
Fríkirkjan Kefas | Í kvöld verður Ný kynslóðar samkoma kl.
20. Allir á skólaaldri eru velkomnir.
Háteigskirkja | Kl. 20 ljúfur kyrrðarsöngur, lesið úr ritning-
unni, bænir, altarisganga, fyrirbæn með handayfirlagningu
og smurningu. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 12 kyrrðarstund. Orgelleikur í kirkj-
unni kl. 12-12.10. Að stundinni lokinni er léttur málsverður í
boði í safnaðarheimilinu.
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbænastund kl.
21. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna. Boðið
upp á kaffi í lok stundar.
70ára afmæli. Hinn 27.ágúst síðastliðinn varð
sjötug Elísabet A. Bjarnadótt-
ir, húsfreyja á Mánárbakka. Í
tilefni af því verður boðið upp
á kaffi og meðlæti á heimili
sonar hennar og tengdadóttur
á Mánárbakka laugardaginn
1. sept. frá kl. 14.30.
50ára afmæli. Í dag, 30.ágúst, er Árni Árna-
son, Heiðarholti 40, Keflavík,
fimmtugur. Árni og kona hans
Erla Ó. Melsteð eiga þrjú börn
og tvö barnabörn. Árni og
Erla eru að heiman í dag.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 30. ágúst, 242. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Hann stendur mér við hlið til þess að veita mér lið og vernd. (Daníel 11, 1.)
Helgina 1. til 2. septemberverður mikið um dýrðir íÍþrótta- og sýningarhöll-inni Laugardal. Þá fer
fram ÍSMÓT 2007 –íslandsmeist-
aramót hársnyrta, snyrtifræðinga,
gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara
innan Samtaka iðnaðarins.
Jónína Sóley Snorradóttir, formað-
ur meistarafélags í hárgreiðslu, segir
frá dagskránni: „Um er að ræða
stærsta Íslandsmeistaramót iðn-
greina sem haldið hefur verið á veg-
um Samtaka iðnaðarins til þessa,“
segir Jónína. „Við munum bjóða upp
á skemmtilega keppni og sýningu,
þar sem ungt hæfileikafólk í þjón-
ustugreinum SI sýnir hvað í því
býr.“
Dagskráin hefst kl. 10 á laug-
ardag: „Keppnin hefst með Nordic
Youth Skills hársnyrtikeppninni, þar
sem keppendur frá flestum Norð-
urlöndunum keppa um titil besti ungi
hársnyrtir Norðurlandanna, sem
veitir réttindi til þátttöku í alþjóð-
legum keppnum,“ segir Jónína.
„Keppni snyrtifræðinga stendur yfir
allan daginn, ljósmyndarar sýna
hvað í þeim býr og tískuteymi og
nemendur af hönnunardeild verða
með sýningu. Allan daginn verður
eitthvað um að vera og hægt að
skoða áhugaverða sölubása.“
Á dagskránni eru einnig fyr-
irlestrar virtra erlendra athafna-
manna: „Michael Cole flytur á laug-
ardag fyrirlesturinn How to be a
Fantastic Professional, þar sem hann
gefur góð ráð um rekstur þjónustu-
fyrirtækis. Á sunnudag mun svo Joa-
kim Roos halda fyrirlesturinn Train
the Trainers en hann heldur einnig
sýningu á laugardeginum.“
Keppni hefst aftur kl 10 að morgni
sunnudags. „Þá verða tískuteymin í
sviðsljósinu en þar vinna saman ein-
staklingar úr öllum greinum. Einnig
verður valinn hárlitur ársins og hald-
in keppni í hárlitun.“
Dagskráin nær hámarki að kvöldi
sunnudags með gala-kvöldverði þar
sem úrslit verða kynnt með pomp og
pragt. „Þema kvöldins er Demantur
og mun Hera Björk vera veislustjóri
og Páll Óskar þeyta skífum þegar
formlegri dagskrá lýkur.“
Aðgangur er ókeypis að dagskrá
helgarinnar. Sjá www.si.is/ismot
Hátíð | Íslandsmeistaramót þjónustugreina SI haldið í Laugardalshöll
Fjör og ferskir straumar
Jónína Sóley
Snorradóttir fædd-
ist í Hafnarfirði
1963. Hún lauk
sveinsprófi í hár-
greiðslu frá IR
1984 og hlaut
meistararéttindi
frá sama skóla
1986. Jónína starf-
aði hjá Hrönn Helgadóttur til ársins
1990 þegar hún opnaði hársnyrti-
stofuna Höfuðlausnir sem hún hefur
rekið síðan. Jónína var kjörin form.
Meistarfélags í hárgreiðslu 2001 og er
varafors. Intercoiffeur á Íslandi. Eig-
inm. Jónínu er Sigurður M. Bjarnason
verke.stj. og eiga þau tvær dætur.
ELDRI kona gengur á eftir asna í fjallaþorpinu Tsovkra í Dagestan.
Það virðist fara ágætlega á með þeim á þessu rölti en það er spurning
hvort konan er að reka asnann eða hann að leiða hana áfram.
Áfram gakk
Kona og asni í göngutúr
Reuters
ÞEGAR viðburður er skráð-
ur í Stað og stund birtist til-
kynningin á netinu um leið
og ýtt hefur verið á hnapp-
inn „staðfesta“. Skrásetjari
getur nýtt sér þann mögu-
leika að nota leiðrétt-inga-
forritið Púkann til að lesa
text-ann yfir og gera nauð-
synlegar breytingar sé þess
þörf. Hver tilkynning er að-
eins birt einu sinni í Morg-
unblaðinu. Bent er á að
hægt er að skrá atburði í
liðina félagsstarf og kirkju-
starf tvo mánuði fram í tím-
ann. Allur texti sem birtist í
Morgunblaðinu er próf-
arkarlesinn.
Skráning í
Stað og stund
MORGUNBLAÐIÐ birtir til
kynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/ eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á net-
fangið dagbok@mbl.is, eða
senda tilkynningu og mynd
í gegnum vefsíðu Morg-
unblaðsins, www.mbl.is, og
velja liðinn „Senda inn
efni“. Einnig er hægt að
senda vélritaða tilkynningu
og mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Birting
afmælis-
tilkynninga
Sigrún þýddi
SIGRÚN Kr. Magnúsdóttir þýddi
grein norska rithöfundarins Lars
Saabye-Christensen um ljóðabók
Einars Más Guðmundssonar,
Kannski er pósturinn svangur, sem
birt var í Lesbók á laugardaginn.
Láðist að geta þess við kynningu
greinarinnar. Beðist er velvirðingar
á því.
LEIÐRÉTT
FRÉTTIR
SLÍPAÐIR og
óslípaðir dem-
antar og hundr-
uð demants-
skartgripa
verða meðal
sýningargripa á
ÍSMÓTI 2007.
Um er að ræða
Íslandsmeist-
aramót hársnyrta, snyrtifræð-
inga, gullsmiða, klæðskera og
ljósmyndara innan Samtaka iðn-
aðarins og verður það haldið í
Íþrótta- og sýningarhöllinni í
Laugardal helgina 1.-2. septem-
ber.
„Það er fyrirtækið Demantar.is
sem sýnir demantana og hleypur
heildarverðmæti sýningargrip-
anna á hundruðum milljóna
króna. Þar má til dæmis nefna
demantshálsmen að verðmæti um
15 milljónir króna, demantshring
sem kostar um 11 milljónir og ós-
lípaðan 16 karata demant sem
gæti orðið um 15 milljóna króna
virði slípaður. Auk Demanta.is
mun verslunin Gull og silfur sýna
demantsskartgripi, auk þess sem
35 skartgripir keppa um titilinn
„skartgripur ársins“. Eins og gef-
ur að skilja verður öryggisgæsla
mjög mikil þar sem þessi hluti
sýningarinnar fer fram, enda
mikil verðmæti í húfi,“ segir í
fréttatilkynningu.
Nánari upplýsingar um ÍSMÓT
má finna á slóðinni si.is/ismot.
Demanta-
sýning á
Ísmóti 2007
STJÓRN Sambands ungra fram-
sóknarmanna samþykkti eftirfar-
andi ályktun á síðasta fundi sínum:.
„Stjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna (SUF) kallar eftir
ókeypis skólabókum fyrir náms-
menn í framhaldsskólum eins og
Samfylkingin lofaði fyrir síðustu
kosningar. Einnig lofaði Samfylk-
ingin því að innritunar- og efn-
isgjöld yrðu felld niður.
Það er ábyrgðarlaust að fara
fram með svona loforð sem hefur
bein áhrif á fjárútlát ungs fólks ef
ekki stendur til að standa við það.
Samfylkingin gekk í sumum kjör-
dæmum svo langt að senda út ávís-
un stílaða á nemendur út af þessu
kosningaloforði sínu.
Skorar SUF því á þingmenn Sam-
fylkingarinnar að standa við gefin
loforð og tryggja framhald-
skólanemum ókeypis námsbækur
og að innritunar- og efnisgjöld
verði felld niður.“
SUF kallar
eftir ókeypis
skólabókum
Amælisþakkir
Elskuleg börn mín, barnabörn, vinir og vanda-
menn , þakka ykkur öllum allt sem þið gerðuð til
að gera 90 ára afmælið ánægjulegt, þakka
skeytin og kveðjurnar.
Kærar kveðjur,
Steinunn Sigurðardóttir