Morgunblaðið - 30.08.2007, Page 36
Magni fór mikinn í við-
tali í Morgunblaðinu
fyrir stuttu …40
»
reykjavíkreykjavík
BÍÓDÖGUM Græna ljóssins lauk í
gærkvöldi og að sögn Ísleifs B. Þór-
hallssonar tókst hátíðin vel. Tæp-
lega 10.000 manns hafa séð þær 18
myndir sem hafa verið í boði í Regn-
boganum síðstliðnar tvær vikur og
segir hann að á ýmsum sýningum
hafi mun færri komist að en vildu.
Í mörgum tilfellum hefur verið
uppselt á ýmsar kvikmyndir svo til
sleitulaust og aðsókn hefur ekki síst
verið góð vikuna sem nú er að ljúka.
Vegna fjölda áskorana hefur verið
ákveðið að sýna nokkrar af vinsæl-
ustu myndum hátíðarinnar áfram í
Regnboganum til mánudagsins 3.
september.
Myndirnar 11 sem eru sýndar
áfram eru þessar:
Sicko, Away From Her, Shortbus
The Bridge, Deliver Us From Evil,
Cocaine Cowboys, Goodbye bafana,
Hallam Foe, Die Falscher Zoo og
No Body is Perfect.
Sýningardagskrá þessara mynda
til mánudagsins 3. september er fá-
anleg á Miði.is og þar er einnig hægt
að tryggja sér miða á allar sýningar.
Bíóhátíðafíklar þurfa svo ekki að
bíða lengi eftir næsta skammti því
tæpur mánuður er í að Alþjóðleg
kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF)
hefjist en þar verða hátt í 70 kvik-
myndir, heimildarmyndir og stutt-
myndir sýndar á 10 daga mara-
þonhátíð.
Þar, eins og á Bíódögum, ætti að
vera eitthvað fyrir alla.
Glæsilegum bíódögum lokið
Shortbus Myndin er ein þeirra sem
sýndar verða áfram í Regnbog-
anum fram í næstu viku.
Væntanlegt
siðbótarrit Þor-
gríms Þráins-
sonar til handa
karlmönnum hef-
ur vakið mikla at-
hygli síðan fregn-
ir af bókinni komust í blöðin.
Þorgrímur hefur lengi verið fyr-
irmynd íslenskra karlmanna og nú
er ekki langt að bíða þar til Þor-
grímur verður orðinn að fyrirmynd
kynbræðra sinna um allan heim
sem vilja verða betri eiginmenn og
fullnægja þörfum eiginkvenna
sinna jafnvel og Þorgrímur.
En einhverjir hafa spurt sig í
framhaldinu af hverju Þorgrímur
ætti að afmarka sig við bókarskrif.
Sérstaklega í ljósi þess að karlmenn
eru svona yfirleitt tregir til að lesa
sjálfshjálparbækur. Hvað um sjón-
varpsþátt? Hvaða séns á til dæmis
Dr. Phil í Þorgrím Þráinsson?
Dr. Þráinsson getur
hjálpað þér!
Einar Ágúst Víðisson lætur allt
flakka í átakanlegu viðtali sem birt-
ist í nýjasta hefti tímaritsins Ísa-
foldar. Af viðtalinu að dæma er
ljóst að Einar Ágúst hefur gengið
niður til heljar, eins og sagt er, en á
tímabili var hann svo illa farinn af
neyslu eiturlyfja að hann var búinn
að hrekja í burtu fjölskyldu sína og
vini og hafðist við í bíl á næturnar.
En með hjálp bróður síns og ann-
arra er Einar kominn á rétt ról aft-
ur, heimtur úr helju, og framtíðin
blasir bjartari við en hann gat
ímyndað sér fyrir ári.
Einar Ágúst undirbýr nú tvær
plötur sem hann stefnir á að gefa út
áður en langt um líður. Önnur mun
vera plata með vögguvísum sem
verður seld til styrktar Konukoti en
hin mun vera poppuð gítartónlist-
arplata sem Einar hefur haft í mag-
anum í mörg ár.
Batnandi manni er best að lifa.
Einar Ágúst snýr aftur
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„JAN Mayen er náttúrlega svo miklu betri en
manns hefðbundna líf og platan er það auðvitað
líka,“ segir Viðar Friðriksson, trommuleikari
rokksveitarinnar Jan Mayen sem heldur útgáfu-
tónleika á Organ í kvöld. Sveitin sendi nýverið
frá sér sína aðra hljómplötu sem ber hið sér-
kennilega nafn So Much Better Than Your
Normal Life. Heil þrjú ár eru síðan fyrsta plata
sveitarinnar kom út, en hún heitir Home Of The
Free Indeed. „Það urðu mannaskipti í sveitinni í
millitíðinni, og svo var upptökuferlið óvenju
langt. Við byrjuðum að taka upp í fyrra en
hentum því öllu. Okkur fannst það ekki ganga
upp þannig að við fórum aftur í upptökur,“ út-
skýrir Viðar og bætir við að upphaflega hafi
staðið til að gefa nýju plötuna út fyrir um ári.
„Við vildum hins vegar ekkert vera að flýta
okkur heldur gefa frekar út gott verk sem við
værum sáttir við.“ Aðspurður segir Viðar að
mikið popp og sérstaklega mikil spilagleði ein-
kenni nýju plötuna. „Það var mjög gaman að
taka hana upp og maður heyrir það þegar mað-
ur hlustar á hana. Hún er mjög hressandi en um
leið mjög rokkuð,“ segir hann. „Sumum finnst
hún að vísu poppaðri og jafnvel aðeins léttari en
fyrri platan. En annars erum við að sjálfsögðu
orðnir betri en á fyrri plötunni, það er komin
meiri reynsla á þetta og við erum farnir að
þekkja hvor annan miklu betur en við gerðum.“
Á leið til London
Fyrsta plata Jan Mayen, Home Of The Free
Indeed, fékk mjög góða dóma á sínum tíma.
Mörgum sveitum hefur reynst erfitt að fylgja
eftir velgengni frumburðar með góðri plötu
númer tvö og segir Viðar þá félaga hafa verið
meðvitaða um það. „Óneitanlega hugsuðum við
um að það gæti verið erfitt að fylgja henni eftir,
en við vorum fyrst og fremst að gera plötu fyrir
okkur sjálfa. Það sem skipti mestu máli var að
við yrðum sáttari við hana en fyrri plötuna,“
segir hann.
Auk tónleikanna í kvöld mun Jan Mayen
koma fram á Iceland Airwaves-tónlistarhátíð-
inni í október, en í millitíðinni mun hún halda
tónleika í London. „Þar munum við spila á tón-
leikum sem kallast Reykjavik Nights og verða
hinn 26. september. Við munum spila ásamt Mo-
tion Boys og Hafdísi Huld. Þetta er í annað
skipti sem þessir tónleikar eru haldnir í Lond-
on, Trabant og Æla spiluðu á þeim í júní,“ segir
Viðar, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem Jan
Mayen spilar á erlendri grundu því hún kom
fram í Noregi og Bretlandi í kjölfar fyrstu plöt-
unnar.
Jan Mayen sendir frá sér sína aðra hljómplötu og boðar til útgáfutónleika í kvöld
Morgunblaðið/ÞÖK
Jan Mayen Frá vinstri: Sveinn Helgi Halldórsson bassaleikari, Viðar Friðriksson trommari, Ágúst Bogason gítarleikari og Valgeir Gestsson söngvari.
Tónleikarnir á Organ hefjast stundvíslega kl.
21.30 og miðaverð er 500 krónur. Um upphitun
sér The Deversion Sessions.
Betra en hefðbundið líf