Morgunblaðið - 08.09.2007, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MJÖG góð laxveiði er ennþá um allt
land og verður eflaust þar til veiði
lýkur í mörgum ám um og upp úr
miðjum mánuði. Að sögn Orra Vig-
fússonar, formanns Laxárfélagsins,
er rífandi gangur í Laxá í Aðaldal en
um 1.000 laxar hafa veiðst á öllum
veiðisvæðunum neðan virkjunar.
„Það stefnir í um fimmtíu prósent
aukningu á svæðum Laxárfélagsins
frá því í fyrra,“ sagði Orri. „Þetta er
ein besta veiði í 15 ár.“ Þorri aflans
hefur veiðst síðustu fjórar vikur. Í
fyrra veiddust 811 laxar í ánni. Veitt
er á svæðum Laxárfélagsins til 12.
september en lengur á Nesveiðum.
Eystri-Rangá nálgast 5.000
Samkvæmt nýjustu veiðitölum á
vef Landssamband veiðifélaga,
angling.is, er langmesta veiðin í
Rangánum. Í þeirri eystri höfðu
veiðst 4.757 laxar, þar af gaf einn
dagur í vikunni, í kjölfar flóða, 193
laxa, sem var enn eitt metið þar á bæ
í sumar. Ytri-Rangá og Hólsá höfðu
gefið 4.073. Þriðja áin á listanum er
Þverá-Kjarrá, með 2.295, sem er
betri veiði en í fyrra og vel yfir með-
alveiði síðustu tíu ára. Yfir 300 laxar
veiddust í liðinni viku. Fjórða á list-
anum er Selá í Vopnafirði með 1.914
og þá kemur Norðurá, sem var nán-
ast vatnslaus í allt sumar, með 1.346.
Í síðustu viku veiddust hátt í 200 lax-
ar og eins og fram hefur komið var
veiðitíminn framlengdur, enda
óhemju magn af fiski í ánni. Nú veið-
ast um 30 laxar á dag.
Afar fallegt vatn er í Laxá í Kjós
og veiðin góð eftir því; síðasta holl
náði 84 á tveimur dögum eða 8,4 löx-
um á stöng að meðaltali. Veiðimenn
sem blaðamaður hitti þar í fyrradag
voru lukkulegir, enda búnir að draga
þrjá í beit úr sama hylnum.
Á síðustu fjórum dögum hefur
veiðin í Gljúfurá í Borgarfirði hátt í
tvöfaldast, fór út 61 í 107. Laxá á
Ásum mun stefna í 500 laxana, en
þar er frábær veiði þessa daga, um
tíu laxar á dag á tvær stangir.
Eina laxveiðiáin á Suðurlandi þar
sem lítið veiðist er Stóra-Laxá. Síð-
ustu holl á svæðum I og II hafa náð
tveimur eða þremur löxum.
Báðar Rangárnar yfir 4.000
Rífandi gangur er í
laxveiðinni og mikið
af fiski í mörgum ám
Morgunblaðið/Einar Falur
Var þyrmt Þessi hængur úr Flekku fékk að synda aftur út í strauminn eftir
stutta viðdvöl á bakkanum, en laxinn er tökuglaður þessa regnvotu daga.
STEFÁN Krist-
jánsson og Hann-
es Hlífar Stefáns-
son unnu báðir
skákir sínar í 10.
og næstsíðustu
umferð Íslands-
mótsins í skák
sem tefld var í
gærkvöldi. Vinni
þeir báðir skákir
sínar í dag kem-
ur til einvígis. Bragi Þorfinnsson
getur einnig náð titlinum en hann
er með 6½ vinning.
Á Íslandsmóti kvenna eru þær
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
og Guðlaug Þorsteinsdóttir efstar
og jafnar með 6½ vinning.
Teflt verður til þrautar á morgun
í báðum flokkum og hefjast leikar
kl. 14 í Skákhöllinni, Faxafeni 12.
Stefán og
Hannes efstir
og jafnir
Stefán
Kristjánsson
ELDUR kviknaði í hópferðabifreið
með þrjátíu farþega innanborðs í
Þrastarskógi um kvöldmatarleytið í
gær. Bílstjórinn varð var við smell
og ók inn á bílastæðið við Þrastar-
lund og logaði þá eldur undir bíln-
um. Bílstjórinn náði að slökkva eld-
inn með handslökkvitæki með
aðstoð manns sem kom að. Engan
sakaði. Lögreglan telur líklegt að
gat hafi komið á glussaslöngu og
eldur kviknað út frá heitu útblást-
ursröri. Kallað var eftir öðrum bíl
og hélt hópurinn áfram ferð sinni.
Eldur í hóp-
ferðabifreið
RÍKISSTJÓRN Íslands hefur sam-
þykkt að leigja þyrlu fyrir Land-
helgisgæslu Íslands í stað þyrlunn-
ar TF-SIF, sem eyðilagðist í sjó fyrr
í sumar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Birni Bjarnasyni dómsmálaráð-
herra er þyrlan er af gerðinni
Super Puma og ber einkennisstaf-
ina LN-OBX. Hún var í notkun hjá
Landhelgisgæslunni árið 2006.
Þyrlan er leigð af norska fyrirtæk-
inu Airlift. Áætlaður heildarkostn-
aður vegna leigu á LN-ONX til árs-
loka 2008 er 255 milljónir króna.
Þyrlan kemur til starfa í október.
Ný þyrla í stað
TF-Sifjar leigð
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
ÞAÐ er ljóst að deila Icelandair og
flugmanna hjá fyrirtækinu mun hafa
áhrif á kjaraviðræður flugmanna í
vetur, en kjarasamningur Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og
flugrekenda rennur út um áramót.
Flugmenn hafa lýst því yfir að þeir
muni ekki vinna yfirvinnu, en það fel-
ur í sér að þeir munu ekki koma til
vinnu ef flugmaður veikist. Jón Karl
Ólafsson, forstjóri Icelandair, segir
að fyrirtækið verði að reikna með að
þessar aðgerðir leiði til truflunar á
þjónustu.
Icelandair hefur markað þá stefnu
að sækja verkefni til útlanda, bæði
með kaupum á fyrirtækjum og með
leiguflugi undir merkjum Loftleiða
Icelandic, dótturfélags Icelandair.
Keyptu lettneskt flugfélag
Fyrir rúmu ári keyptu Loftleiðir
meirihluta hlutafjár í lettneska flug-
félaginu Latcharter. Í mars gerði
Latcharter síðan samning við flug-
félagið Virgin Nigeria Airlines um
daglegt flug á þotum af gerðinni
Boeing 767 milli London og Jóhann-
esarborgar með viðkomu í Lagos í
Nígeríu.
Flugmenn gerðu strax athuga-
semdir við þennan samning og ósk-
uðu eftir viðræðum. Ástæðan er sú
að flugmenn Icelandic hafa verið að
fljúga 767-vélum, líkt og notaðar eru
í verkefni Latcharter og flugmenn
líta svo á að þeir hafi forgang að
vinnu á flugvélar sem Icelandair
Group og dótturfélög þeirra nota.
Í kjarasamningi FÍA segir að flug-
menn „skuli hafi forgang að þeim
flugverkefnum sem um er að ræða á
hverjum tíma á vegum Flugleiða á
hverjum tíma, innanlands sem utan.
Tekur þetta til áætlunarflugs, leigu-
flugs og allra umsaminna flugverk-
efna.“
Flugmenn líta svo á að Icelandair
Group hafi tekið yfir skuldbindingar
Flugleiða og þetta nái einnig til dótt-
urfyrirtækja. Tryggvi Þór Hafstein,
varaformaður FÍA, sagði að flug-
menn hefðu aldrei gert neinar kröfur
á hendur fyrirtækinu á liðnum árum
þegar stjórnendur þess hefðu verið
að kaupa fyrirtæki eins og Sterling
og EasyJet. Núna þegar fyrirtækið
væri komið með erlenda flugmenn á
767-vélar á sama tíma og það væri að
segja upp 49 flugmönnum þætti flug-
mönnum ástæða til að stinga við fæti.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair, leggur áherslu á að verkefn-
in sem Latcharter hafi tekið að sér
hafi aldrei verið á vegum Icelandair.
„Við höfum bent mönnum á að það sé
einföld leið til að leysa þetta með því
að fara með málið fyrir Félagsdóm
og fá úr þessu skorið vegna þess að
við viljum ekki brjóta neina samn-
inga. Þeir völdu eftir langa skoðun að
fara ekki með málið þangað. Menn
geta giskað á hvers vegna þeir kom-
ust að þeirri niðurstöðu.“
Sögðu upp 49 flugmönnum
Icelandair tilkynnti í síðasta mán-
uði uppsagnir flugmanna. Ellefu eru
þegar hættir, 15 hætta um næstu
mánaðamót og þeir síðustu eiga að
hætta 1. desember. Tryggvi Þór seg-
ir að samtals séu 49 flugmenn að
missa vinnuna. Ástæðan fyrir upp-
sögnunum eru minni umsvif yfir
vetrarmánuðina.
Þegar uppsagnirnar voru til-
kynntar sögðu stjórnendur Ice-
landair að þeir myndu leita að verk-
efnum erlendis og ef það tækist
kynnu færri að missa vinnuna.
Eftir að flugmenn gerðu athuga-
semdir við samning Latcharter við
Virgin Nigeria hófust viðræður milli
þeirra og Icelandair og segir
Tryggvi Þór að flugmenn hafi lýst
sig tilbúna til viðræðna um að flug-
menn Icelandair fengju í það
minnsta hluta þeirra starfa sem deilt
er um. Þessu hafi verið hafnað. „Við
lítum svo á að það hafi aldrei verið
full heilindi í viðræðunum af hálfu
Icelandair,“ segir Tryggvi Þór.
Jón Karl hafnar því hins vegar að
Icelandair geti samið um forgangs-
rétt íslenskra flugmanna í öðrum
löndum líkt og FÍA geri kröfu um.
„Það er einfaldlega ekki þannig að
það sé hægt að semja í einu landi um
forgang starfsmanna þar á verkefn-
um sem eru í einhverju öðru landi.
Það væri svipað og við værum að
gera kröfu um að íslenskir banka-
menn fengju forgang að störfum
þegar íslenskir bankar kaupa fjár-
málastofnanir erlendis. Slíkt dettur
auðvitað ekki nokkrum manni í hug.“
Jón Karl segir að það séu miklar
árstíðarsveiflur í flugi á Íslandi. Fólk
sé upplýst um það þegar það ráði sig
til starfa. Fyrirtækið sé hins vegar
að leita að verkefnum erlendis á veg-
um Loftleiða.
„Þessar aðgerðir þeirra núna
koma margra ára samstarfi okkar
við flugmenn í uppnám. Ég veit ekki
hvernig við getum verið að leita
verkefna erlendis ef þeir ætla að
standa að svona aðgerðum.
Ég verð að líta svo á að þarna séu
menn að hlaða inn fyrir komandi
kjarasamninga frekar en nokkuð
annað.“
Tryggvi Þór segist líta svo á að
Icelandair ætli sér í framtíðinni að
byggja leiguflugsverkefni fyrst og
fremst á erlendum flugmönnum. Jón
Karl hafnar því alfarið.
Icelandair býr sig undir
tafir á flugi strax á morgun
Morgunblaðið/Sverrir
Deila Flugmenn ræddu ágreining sinn og Icelandair á fundi í fyrrakvöld. Ljóst þykir að leysist deilan ekki á næst-
unni ætla flugmenn sér að knýja fram lausn í næsta kjarasamningi, en samningar renna út um áramót.
Flugmenn telja að forgangur þeirra að vinnu sé ekki virtur en Icelandair neitar því
STARFANDI lögreglumönnum hef-
ur fjölgað úr 678 árið 2003 í 710 ár-
ið 2007, að því er fram kemur í sam-
antekt ríkislögreglustjóra sem
unnin var að beiðni Björns Bjarna-
sonar, dómsmálaráðherra. Ef nem-
ar, héraðslögreglumenn og afleys-
ingamenn eru teknir með í reikn-
inginn eru lögreglumenn samtals
832 og hefur fjölgað um 29 á síð-
ustu fimm árum.
Jafnframt kemur fram að 39 lög-
reglumenn hafa látið af störfum á
þessu ári og hyggst ríkislögreglu-
stjóri láta gera ítarlega athugun á
ástæðum uppsagna í lögreglu
undanfarin fimm ár.
Af þeim 39 sem létu af störfum á
árinu voru níu með 1-5 ára starfs-
aldur, tíu með 6-10 ára starfsaldur,
þrír með 11-15 ára starfsaldur, einn
með 16-20 ára starfsaldur, þrír með
21-25 ára starfsaldur og 13 með
lengri starfsaldur en 31 ár. Ellefu
höfðu náð lífeyrisaldri, þrír hættu
vegna náms, fjórir hófu aftur störf
hjá lögreglu, tveir hættu vegna
veikinda og 19 hurfu til annarra
starfa eða gáfu ekki upp ástæðu.
Í samantektinni er bent á að lög-
reglumenn hafa gefið upp betri
launakjör sem meginástæðu upp-
sagna.
Lögreglumönn-
um hefur fjölg-
að síðustu 5 árFLUGMENN hafa lýst því yfir að vegna viðbragða Icelandair muni þeir
ekki vinna umfram vinnuskyldu, en það þýðir að þeir munu ekki koma til
starfa ef einhver flugmaður forfallast vegna veikinda.
„Við verðum að ganga út frá því að það geti orðið truflun. Það hefur
yfirleitt verið þannig þegar svona aðgerðir byrja að þá melda menn sig
fyrr veika. Við verðum að ganga út frá því að það verði einhverjar seink-
anir út af þessu máli. Við mun fara yfir stöðuna hjá okkur og jafnvel endur-
raða einhverjum flugum til að reyna að koma því þannig fyrir að farþegar
verði fyrir sem minnstu raski út af þessu,“ segir Jón Karl Ólafsson, for-
stjóri Icelandair.
„Icelandair er eina félagið sem flýgur farþegaflug til og frá Íslandi með
íslenskum áhöfnum. Allir aðrir sem við erum í samkeppni við nota erlendar
áhafnir. Við trúum því ekki að flugmenn okkar ætli sér að reyna að trufla
daglega starfsemi félagsins í þeirri samkeppni.“
Einir með íslenska áhöfn