Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 30
lifun 30 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ EF ÞÚ FINNUR EKKI RÉTTU STÆRÐINA EKKI KENNA OKKUR UM X E IN N IX 0 7 09 0 02 Þ egar ég var átján og nítján ára bjó ég tvö sumur í litlum bústað sem stóð hér við hliðina á Lynghóli og ég hafði þann starfa að vera fjárgæslumaður borgarinnar. Ég sat ekki á pen- ingahrúgu heldur fór ég ríðandi um á hestunum mínum og stuggaði kindum burt af þeim svæðum sem þær máttu ekki vera á og kom þeim aftur á heiðina. Þessi smalavinna var mjög skemmtileg og ég tengdist þessum stað hér sterkum böndum. Eiginlega skaut ég niður rótum hér strax þá,“ segir Unnur Jökulsdóttir rithöfundur sem býr í litlu gömlu sumarhúsi við Elliðavatn. „Mörgum árum seinna þegar ég kom heim eftir að hafa verið í út- löndum og var nýbúin að leigja mér íbúð í miðbænum sá ég auglýsingu í blöðunum um sumarbústað til leigu rétt utan við Reykjavík. Ég mælti mér mót við eigandann og þegar ég kom hingað inn var allt frekar dimmt og rakt og svolítil fúkkalykt. En ég fann strax að þetta var stað- urinn minn. Ég fékk annan leigjanda í miðbæjaríbúðina og flutti hingað upp eftir og hef verið hér síðan. Ég hef skotið æ dýpri rótum á þessum tíu árum sem ég hef verið svo lán- söm að búa hér á Lynghóli.“ Unnur keypti húsið fljótlega enda var það dánarbú. „Ég hef verið að gera það upp meira og minna síðan, brotið niður ótal veggi og breytt og bætt. Byggt verönd, skipt um alla glugga, skipt um gólfefni, breytt kjallaranum í bókasafn og ýmislegt fleira.“ Vinur skógarmannanna Kyrrðin og andrúmsloftið er ein- stakt á Lynghóli og Unnur hefur skýringu á því. „Hér er húsandi sem er mjög góður og hingað kom miðill sem sagði mér að andi þessi væri kona. Fyrri eigandi sem nú er löngu látinn, hefur líka sést hérna og ég hef fengið skilaboð um að hann sé mjög sáttur við að ég hafi sest að hér í bústaðnum hans, enda kynntist ég honum þegar ég var í smalastarfinu forðum.“ Húsið á Lynghóli er um 120 fer- metrar í heildina. Elsti hluti þess er frá 1928 en viðbyggingin frá 1968. Unnur hefur sinn eigin bát og bryggju og býr vel að gömlum hefð- arrétti sem leyfir henni að sigla bátnum út á Elliðavatn, en mjög fáir hafa leyfi til þess. „Allt umhverfið hefur gjörbreyst frá því ég var stelpa að smala kindum hér á heið- inni. Þá rétt kíkti Breiðholtið yfir hæðirnar hinum megin við Elliða- vatn. En þrátt fyrir aukna byggð er stórt svæði enn friðað og fólkið sem fer hér um kemur til að njóta náttúr- unnar, hvort sem það eru hesta- menn, veiðimenn, göngufólk eða hjólafólk. Eins hef ég alltaf verið í góðum vinskap við skógarmennina eins og ég kalla starfsmenn skóg- ræktarinnar sem sjá um skóginn hér í Heiðmörkinni.“ Ferðasaga um huldufólk Mæðgurnar Unnur og Alda fjög- urra ára dóttir hennar búa ekki ein- Tuskudýr í eldhúsi Börnum fylgir dót og því þarf einhversstaðar að koma fyrir. Ástarhornið Þó stofan sé ekki stór er hún notaleg og björt og skógurinn allt í kring. Morgunblaðið/Golli Báturinn okkar Unnur og Alda fara oft með tíkinni Jöklu niður að vatni og koma við á bryggjunni við Lynghól. Skrifandi veiðivörður í skóginum Tíkin Jökla er eins og lítill ísbjörn þar sem hún skokk- ar um í frelsinu umhverfis Lynghól, lítinn bæ í Heið- mörkinni. Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti mæðgur sem búa í sælureit við borgarmörkin. Ég sat ekki á peninga- hrúgu heldur fór ég ríðandi um á hestunum mínum og stuggaði kindum burt af þeim svæðum sem þær máttu ekki vera á og kom þeim aftur á heiðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.