Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING VIÐBRÖGÐ við andláti Lucianos Pavarottis hafa verið mikil um allan heim. Fjölmiðlar keppast við að lýsa áhrifum hans á sönglistina og mæra afrek hans og söngvarar og söngsérfræðingar eru kallaðir til og inntir álits á söngvaranum fræga. Söngfélagar Pavarottis, Placido Domingo og José Carreras, hafa augljóslega haft í nógu að snúast að við að segja sína sögu og vitnað er í orð þeirra víða. „Ég dáðist stöðugt að guðdómlegri fegurð raddar hans,“ sagði Domingo í viðtali við BBC, og bætti því við að raddblær Pavarottis hefði verið einstakur og persónulegur á öllu raddsviðinu, frá botni og upp úr, alveg sérstakur raddblær sem einkenndi hann. „En ég elskaði líka húmorinn hans. Það kom fyrir að við gleymdum því á tónleikum tenóranna þriggja að við værum að syngja fyrir áheyrendur sem höfðu keypt miða sína dýrum dómum, því við höfðum svo gaman af þessu sjálfir,“ sagði Domingo ennfremur. „Við verðum að minnast hans sem þess stórkostlega lista- manns sem hann var,“ sagði Carr- eras. „Hann var gæddur einstökum og yndislegum persónutöfrum,“ sagði hann og bætti við: „Hann var einn mikilvægasti tenórsöngvari tónlistarsögunnar allrar.“ Rödd sem alltaf þekkist Í Scala-óperunni í Mílanó var boðuð einnar mínútu þögn í minn- ingu Pavarottis þegar fregnin af andlátinu barst þangað, en hann söng þar 140 sinnum. Dame Joan Sutherland, sem var ein helsta mót- söngkona Pavarottis á sjöunda ára- tugnum, sagði að það hefði æv- inlega fylgt því mikil gleði að vinna með honum. „Það var ólýsanleg til- finning að syngja með honum á sviðinu. Raddgæðin voru svo ótrú- leg og ólík öllu sem ég hafði heyrt. Og þessa rödd gat maður alls stað- ar þekkt, hvar sem var, ef maður heyrði þetta undur vissi maður að þar var Luciano að syngja.“ Zubin Mehta, hljómsveitarstjór- inn sem vann mest með tenórunum þremur, sagði að í dag og næstu daga yrðu útvarpsstöðvar um allan heim fullar af söng Pavarottis. „Og þannig verður það. Það er arfleifð hans. Hann mun aldrei hljóðna.“ Í Modena, heimabæ Pavarottis, hafa þúsundir syrgjenda safnast saman við dómkirkjuna þar sem kista söngvarans stendur opin. Þar hvílir hann í svörtum smóking, með hálsklútinn sinn. Bloggsíður um allan heim eru uppfullar af sögum af meistaranum, og á vef BBC hefur verið komið fyrir minningarsíðu þar sem al- menningur getur minnst hans með eigin orðum. Þar skrifar Ron Freeman: „Ég farðaði hann ótal sinnum fyrir sýningar í Konunglegu óper- unni og það var alltaf gaman. Ein- hvern tíma fundum við ekki hárkoll- una hans, þá dró hann hárvöndul upp úr vasa sínum sem hann hafði tínt af fötum sínum. Ég spurði hvað í ósköpunum ég ætti að gera við þetta. Hann svaraði: „Sýndu mér að þú sért jafn góður förðunarmeistari og ég er söngvari.““ Pavarott- is minnst Luciano Pavarotti Í DAG gefst öllum áhugasöm- um tækifæri til að kynnast Sin- fóníuhljómsveit Íslands því nú er Sinfóníudagurinn haldinn í Háskólabíói. Dagskráin hefst kl. 13 með því að einstakir hljóðfærahópar hljómsveit- arinnar kynna sig og hljóðfæri sín fyrir gestum í anddyri og hliðarsölum bíósins. Trúðurinn Barbara mun veita tónlist- armönnunum dygga aðstoð við þetta starf. Klukkan 14.30 verða síðan stuttir tón- leikar með allri hljómsveitinni í aðalsalnum, og þá verður líka dregið í happdrætti sem gestir Sinfón- íudagsins geta tekið þátt í. Aðgangur er ókeypis. Tónlist Hljómsveitin kynnir sig Sinfóníuhljómsveit Íslands. ÞESSA heims og annars: Einar Þor- láksson & Gabríela Friðriksdóttir heitir sýningin sem opnuð verður í Listasafni Árnesinga í dag. Sýn- ingin býður upp á samtal tveggja ólíkra og afgerandi listamanna sem kanna leiðir til þess að kortleggja sinn innri heim með myndmáli fantasíu og abstraksjónar. Stundum má finna bein sjónræn tengsl en sýningunni er þó fremur ætlað að bjóða upp á samanburð sem dregur fram einkenni hvors um sig; skapa grundvöll til að hugleiða hugtök eins og abstraksjón, málverk og súrrealisma í list í dag. Myndlist Samtal Einars og Gabríelu Listasafn Árnesinga. VETRARSTARF Sinfóníu- hljómsveitarinnar verður kynnt á Sinfóníudeginum sem haldin verður í Háskólabíói kl. 13 í dag. Það er trúðurinn Barbara sem leiðir gesti á milli hljóðfærahópa þar sem gestir geta spurt liðsmenn sveitarinnar spjörunum úr, en Barbara verður einmitt kynnir Tónsprotans, fjöl- skyldutónleikaraðar hljómsveitarinnar í vetur. Dagskránni lýkur með stuttum tónleikum þar sem m.a. verður fluttur Lærisveinn galdrameist- arans eftir Paul Dukas. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Tónlist Sinfóníudagurinn í Háskólabíói Hallfríður Ólafs- dóttir flautuleikari. YFIRLITSSÝNING á málverkum Eggerts Péturssonar verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvals- stöðum í dag kl. 16. Þar gefst í fyrsta sinn tækifæri til að líta verk þessa dáða listamanns frá upphafi ferils hans til dagsins í dag. Á sýn- ingunni eru rúmlega fimmtíu verk, þar af nokkur sem aldrei hafa verið sýnd áður. Verkin eru í eigu Lista- safns Reykjavíkur og fengin að láni hjá einkaaðilum, fyrirtækjum og op- inberum söfnum. Sýningarstjóri er Ólöf K. Sigurðardóttir. Eggert er kunnur fyrir málverk af fínlegri en harðgerri náttúru landsins. Verkin eru unnin af mikilli nákvæmni og vekja áhorfandann til umhugsunar um þá fegurð sem býr við sérhvert fótmál í náttúru lands- ins. Eggert hélt sína fyrstu einkasýn- ingu árið 1980 og hefur síðan haldið fjölda einka- og samsýninga hér- lendis og erlendis. Á sýningunni eru nokkur verk frá upphafsárum lista- mannsins en flest spanna síðustu tvo áratugi þar sem íslenskar jurtir og blóm hafa verið meginefniviðurinn. Eggert hlaut önnur verðlaun Carn- egie Art Award-sjóðsins árið 2006. Eftir Eggert liggja margar mynd- skreytingar en kunnust er mynd- skreyting hans í nýrri útgáfu bók- arinnar Íslensk flóra sem Ágúst H. Bjarnason grasafræðingur skrifaði og kom út árið 1983. Sýningu Eggerts Péturssonar verður fylgt úr hlaði með vandaðri bók um listamanninn. Hana prýða fjölmargar myndir auk þess sem skyggnst er í skissubók listamanns- ins, sem varpar áhugaverðu ljósi á þróun verka hans. Ólöf K. Sigurð- ardóttir og Eva Heisler skrifa um Eggert og list hans, en þar er einnig viðtal sem Ingólfur Arnarson mynd- listarmaður tók við Eggert. Hönn- uðir bókarinnar eru Hildigunnur Gunnarsdóttir og Snæfríð Þor- steins. Fyrsta yfirlitssýning á verkum Eggerts Péturssonar opnuð í dag á Kjarvalsstöðum Fegurðin við sérhvert fótmál Án titils Eitt af málverkum Eggerts Péturssonar á yfirlitssýningunni á Kjarvalsstöðum, málað 2004-5. „ÞAÐ er gríðarlega mikilvægt fyrir Listasafn Reykjavíkur að geta sýnt þverskurð af list Eggerts Péturssonar,“ segir Soffía Karlsdóttir, deildarstjóri markaðs- og kynningarmála safnsins. „Eggert er á hátindi ferils síns í dag. Þarna eru verk frá hví hann hóf að mála 1980 til dagsins í dag. Hann hefur mikla sérstöðu sem málari því hann hefur helgað sig blóma- og náttúrumyndum frá upphafi. Fyrir okkur er menntunar- og miðlunargildi sýningar- innar mikið því það er mikilvægt fyrir almenning að geta skoðað þróun eins listamanns með jafn áþreifanlegum hætti og hægt er á þessari sýningu. Gildi sýningarinnar felst svo ekki síst í fagurfræði verkanna sjálfra, það liggur við að maður finni anganina af blómabreiðunum. Fegurð verkanna er óviðjafnanleg og því má ekki gleyma.“ Þar angar blómabreiða UM þessar mundir er víða haldið upp á 100 ára dánarafmæli Edvards Grieg. Í Norræna húsinu og í Laugarborg verða haldnir tónleikar um helgina undir yfirskriftinni „Í skugga Griegs“, en þar verða flutt nokkur lög Griegs en jafnframt flutt sönglög eftir sex norsk tónskáld, sem til- heyra kynslóðinni sem fylgdi í kjölfar hans og hlutu þau örlög að hverfa eða gleymast í skugga meistarans. Þetta eru tónskáldin Johannes Harklou, Ole Olsen, Hjalmar Borgström, Arne Eggen, Catharinus Elling og Gerhard Schelde- rup, sem eru fæddir um eða upp úr miðri 18. öld og voru samtímamenn rithöfundarins Knuts Hamsun, listmálarans Edvards Munch og tón- skálda á borð við Jean Sibelius, Gustav Mahler, og Maurice Ravel. Þeir voru sprottnir upp úr norskri þjóðernisrómantík, en ólíkt Grieg feng- ust þeir lítt við að þróa sérstakt norskt tónmál. Þótt þeir væru innbyrðis ólíkir áttu þeir samt margt mikilvægt sameiginlegt: þeir voru al- þjóðlega sinnaðir, námu tónsmíðar í Leipzig, og sömdu óperur í evrópskum síðrómantískum stíl. Þótt öll þessi sex tónskáld hafi oft fengið verk sín flutt meðan þeir voru á lífi, þá er þau sjaldan að finna á tónleikaefnisskrám nú á dögum, upp- tökur eru torfundnar, og sum af verkum þeirra hafa verið flutt í allra fyrsta sinn nú á síðustu ár- um. Það er norski tenórinn Harald Björköy, pró- fessor við Griegakademíuna í Bergen, sem hefur átt frumkvæði að því að safna saman sönglögum eftir tónskáldin og koma þau senn út á geisladiski í flutningi hans og fleiri norskra listamanna. Á tónleikunum á Íslandi mun Selma Guð- mundsdóttir píanóleikari leika með Harald Björköy og eru tónleikarnir samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Griegakademíunnar í Bergen. Tónleikarnir í Norræna húsinu verða í dag kl. 16, en í Laugarborg á morgun kl. 14. Tónskáldin í skugga Griegs Harald Björköy Selma Guðmundsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.