Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÓBEISLUÐ ORKA Svo gæti farið að tölvufyrirtækiðMicrosoft setti upp netþjónabúog þróunardeild á Íslandi. Í Morgunblaðinu í fyrradag kom fram að Ólafur Ragnar Grímsson forseti hefði staðfest þetta í samtali á ráð- stefnu um orkumál í New York. Kom einnig fram að Ísland væri eitt níu landa, sem fyrirtækið hefði metið sem vænlega staði fyrir öfluga starfsemi, bæði á sviði uppsetningar öruggrar geymslu fyrir tölvubúnað og gögn og hugsanlega þróunar- og rannsóknar- seturs, svo vitnað sé í fréttina. Nú er vitaskuld ekkert hægt að fullyrða um það hvort Ísland verði fyrir valinu þótt landið komi til greina. Áður hefur komið til tals hvort Ísland væri hentugur kostur fyrir netþjóna og gagnageymslu og áhugi Microsoft sýnir að sú hugsun er ekki út í bláinn. Þetta undirstrikar einnig nauðsyn þess að skoða alla möguleika á að nema nýjar lendur með opnum huga. Netþjónabú þarf ekki að vera í þéttbýli og gæti stuðlað að eflingu landsbyggðarinnar. Hins vegar er ekki gefið að því fylgi mörg bein störf, þótt afleidd áhrif yrðu af ýmsum toga. Eitt af því sem þarf að hafa í huga í sambandi við álver er útblástur. Net- þjónabú og gagnageymslur eiga það sameiginlegt með álverum að þurfa mikla orku, en þar sleppir saman- burðinum. Kosturinn við fyrrnefndu starfsemina er að hún myndi ekki skipta máli í sambandi við skuldbind- ingar vegna Kyoto-sáttmálans. Orkan er hrein og gera verður ráð fyrir að starfseminni fylgi hverfandi mengun. Það hlýtur að vera eftirsóknarvert að sækjast fremur eftir orkufrekri starf- semi, sem ekki fylgir mengun, en orkufrekum iðnaði, sem mengar. Á hinn bóginn vakna eftir sem áður sömu spurningar og í sambandi við ál- ver þegar talið berst að öðrum orku- frekum iðnaði og rekstri. Hvert á að sækja orkuna? Hvar á að virkja þann- ig að um það ríki sátt? Deilur um virkjanir sýna að komið er að ákveðnum mörkum í þeim efnum og verður til dæmis ekki lengra gengið á hálendi Íslands. Þó eru enn mögu- leikar og nægir þar að benda á virkj- un jarðvarma. Eins og áður segir er ekki gefið að Ísland verði fyrir valinu hjá Microsoft og ef til vill er það ólíklegra en hitt. Hins vegar gætu vel verið önnur sóknarfæri á sama sviði því að eins og fram kemur í fréttaskýringu í Morg- unblaðinu í gær skiptir miklu máli að rafmagnsframboð sé traust og raf- magnsleysi fátítt. Þar standi Ísland vel að vígi. En Ísland stendur vel að vígi á öðrum sviðum og Íslendingar búa yfir óbeislaðri orku, sem hægt er að virkja án þess að hafa þurfi áhyggjur af Kyoto. Tækifærin blasa ekki alltaf við þótt þau séu fyrir hendi, hvort sem það er á sviði net- þjónabúa eða í einhverju allt öðru. VENJULEG BÖRN Sýningin á ljósmyndum Mary EllenMark af fötluðum nemendum í Öskjuhlíðar- og Safamýrarskóla, sem nú stendur yfir í Þjóðminjasafninu, veitir innsýn í heim, sem oftast er lok- aður, og færir hann nær almenningi. Mary Ellen Mark er einn fremsti ljós- myndari samtímans og hefur unnið mörg eftirminnileg verkefni. Hún kom til Íslands fyrir tveimur árum til að vinna myndafrásagnir fyrir Morgun- blaðið og Iceland Review og heimsótti þá Öskjuhlíðarskóla. Verkefnið vatt upp á sig og kom Mark alls þrisvar til Íslands og vann hér í sex vikur í allt. Einar Falur Ingólfsson fjallar um sýninguna í Lesbók Morgunblaðsins í dag og er athyglisvert að lesa þar um- mæli Mark eftir fyrstu heimsókn hennar í Öskjuhlíðarskóla: „Ég upp- lifði sterkt að börnin fá að vera þau sjálf og það dylst engum að fólkið sem vinnur þarna elskar börnin. Kennur- unum þykir vænt um nemendurna og persónuleika þeirra, þeir eru opnir fyrir hugmyndum þeirra og skammast sín ekki fyrir þá,“ sagði Mark. „Ég hef komið í stofnanir sem annast fatlaða, þar sem forstöðufólkið skammast sín og vill helst ekki að maður hitti skjól- stæðinga þess. Í Öskjuhlíðarskóla eru börnin virt fyrir það hver þau eru, allir eru fullir af ást og hlýju og þess vegna er umhverfið svo notalegt.“ Mark sneri aftur til Íslands og hafði þá leyfi til að mynda í sérskólunum tveimur fyrir fötluð börn í Reykjavík, Öskjuhlíðarskóla og Safamýrarskóla, og á Lyngási, þar sem hugsað er um mikið fötluð ungmenni. Í Lesbókinni segir Mark að á Íslandi sé þessum börnum búið sérstakt og hlýlegt um- hverfi, í skólakerfi sem virði börnin, þar sem þau fái að vera þau sjálf. Þetta er falleg umsögn um það starf, sem unnið er með fötluð börn á Íslandi. Íslenskt heilbrigðiskerfi liggur oft undir þungu ámæli og þá vill það sem vel er gert gleymast. Það er mæli- kvarði á þjóðfélag hvernig það annast fatlaða. Við opnun sýningarinnar í gær tilkynnti Júlíus Vífill Ingvarsson, for- maður menntaráðs Reykjavíkurborg- ar, að Safamýrarskóli og Öskjuhlíðar- skóli verði sameinaðir í nýjum skóla. Mikill metnaður verður lagður í þá framkvæmd og vonandi fylgir þangað sá andi og virðing, sem Mark lýsir svo eftirminnilega. Á sýningunni í Þjóðminjasafninu eru einnig ljósmyndir eftir Ívar Brynjólfs- son og myndverk eftir nokkra nemend- ur auk þess sem kvikmyndin Alexand- er eftir Martin Bell um dreng í Öskjuhlíðarskóla verður sýnd. Mark talar um að íslenskt skólakerfi virði fötluðu börnin. Það gerir hún einnig í myndum sínum, sem eru bæði áleitnar og innilegar. Hún segir að líf fatlaðra geti vissulega verið dapurlegt, en einn- ig fullt af lífi og húmor: „Þetta eru bara venjuleg börn en þau hafa fötlun sem heilbrigð börn hafa ekki.“ Á sýning- unni í Þjóðminjasafninu getur fólk séð inn í heim þessara barna. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður seg- ir í Lesbókargreininni að áður fyrr hafi hlutverk þjóðminjasafna verið að vera spegill á fortíðina, en nú séu kröfurnar meiri og þau þurfi einnig að hafa áhrif á samtímann: „Safn á að vera hlutlaus staður þar sem hægt er að fjalla um viðkvæmustu mál.“ Það tekst á þessari sýningu. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Þ að allra mikilvægasta núna er að hætta að horfa á ríkið annars vegar og sveitarfélag- ið hins vegar,“ segir Regína en að hennar mati á að efla samfélagsgeðþjónustu í Reykja- vík með aukinni samþættingu þjónustumiðstöðva borgarinnar annars vegar og heilbrigðismála, sem ríkisvaldið sér um, hins veg- ar. Samfélagsgeðþjónusta gengur í grundvallaratriðum út á það að teymi sérfræðinga fari í auknum mæli út af heilbrigðisstofnunum og sinni fólki á sérstökum hverfa- miðstöðvum eða heima hjá því. „Ef fólk er stutt í sínu umhverfi og nærþjónustan er góð held ég að það muni gera það að verkum að það þurfi færri á geðlæknisþjón- ustu og innlögnum að halda í framtíðinni.“ Þjónustumiðstöðvarnar, sem eru sex talsins víðsvegar á höf- uðborgarsvæðinu, gefa upplýs- ingar um þjónustu borgarinnar og veita víðtæka ráðgjöf, m.a. fé- lagslega ráðgjöf og sálfræði- og kennsluráðgjöf vegna leik- og grunnskólabarna. Regína segir að áður en mið- stöðvarnar voru settar á laggirnar hafi stofnanir borgarinnar haft mismunandi hverfamörk. Nú sé lögreglan komin með sömu skipt- ingu og miðstöðvarnar, þrátt fyrir að vera ekki á vegum sveitarfé- lagsins, og miklu máli skipti að heilsugæslan geri slíkt hið sama. Grundvallaratriði sé að í sam- félagsgeðþjónustu vinni saman fé- lagsráðgjafar, sálfræðingar, geð- læknar og aðilar frá heilsu- gæslum. Hver passar sína torfu Sem sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar var Regína yfirmaður allra starfs- manna í félagsþjónustu í Reykja- vík, á sviði sérfræðiþjónustu skóla og leikskóla og loks forvarn- armála. Spurð hvað borgin hafi gert til að efla samfélagsgeðþjón- ustuna segir hún sálfræðiþjónustu vegna barna í leik- og grunn- skólum, félagsþjónustu og for- varnarstarf hafa verið sameinað á þjónustumiðstöðvunum en áður vann fagfólkið hvert í sínu horni. Þetta byggist á þeirri hug- myndafræði að fagfólk innan hverfanna taki sameiginlega ábyrgð á þeim viðskiptavinum sem er að finna á svæðinu. „En ríkið hefur dregið lappirnar með að flytja fötlunarmálin yfir til sveitarfélaganna. Þá þarf að koma fram miklu skýrari vilji til sam- starfs á milli heilsugæslunnar og sveitarfélaganna, sérstaklega hér í Reykjavík.“ Í kjölfar þess að þeir geðlæknar sem rætt hefur verið við hafa mært samfélagsgeðþjónustu hef- ur vaknað sú spurning hví fyr- irkomulaginu hafi ekki verið gert hærra undir höfði hér á landi. Sér í lagi þar sem það þykir hafa gefið góðan árangur í nágrannalönd- unum. Regína segir málið þar snú- ast um sterk áhrif sérfræðistétta og stjórnkerfa spítalanna. Þar börn og unglinga nefnir Reg strax 150 milljóna króna fram lagið sem heilbrigðisráðherr ar að veita til barna- og ungl geðdeildar Landspítalans. „M finnst það brenna við hér á Í að ef það á að gera eitthvert þá setur ríkisstjórnin pening stofnanir sem heyra beint un ríkið. Erlendis þekkist það m vel að ríkisstjórnir eyrnamer fjármagn til brýnna verkefna sveitarfélögin framkvæmi þj ustuna. Ég held að nú sé lag styrkja skólasálfræðiþjónust sveitarfélögunum og ríkisstj gæti komið myndarlega að þ veitt þar inn peninga. Sami f skólasálfræðinga hefur verið skólum svo árum skiptir þrá ir aukinn fjölda nemenda sem í erfiðleikum og þeir eru oft f aðilinn sem foreldrar leita til held það þurfi að styrkja þá þ ustu því þá myndi álagið min barna- og unglingageðdeildin Nýta skal það sem fyrir e Þeim möguleika hefur ver upp að stofna ætti geðheilsu- miðstöðvar. Þá hefur verið n að nauðsynlegt sé að einhver að sér að halda utan um sam og samhæfingu þeirrar þjónu sem þróast hefur utan við ge deildirnar, svo sem félagsmi stöðvarinnar Geðhjálpar, endurhæfingarstöðva, vettva teymis Klepps og BUGL o.fl „Mér finnst það eigi ekki að nýjar stofnanir eða ný embæ þess að halda utan um þetta, ir Regína og nefnir að henni ist umræðan um að setja á st sífellt fleiri nefndir og stofna að kanna málin sé orðin þrey „Það á að nýta það sem fyrir það gerist ekki nema ríkið ho sveitarfélaganna við skipulag ingu allrar þessarar þjónustu Hvað varðar þátt notenda sjálfra og aðstandenda þeirr verði til ákveðnir hagsmunahópar sem séu sterkari þrýstihópur en þeir sem aðhyllast samfélags- geðþjónustu. „Um leið og þú samþættir ein- hverja þjónustu, býrð til einhverja eina þjónustu þar sem margar stofnanir hafa verið, þá er ljóst að einhverjir yfirmenn missa vinn- una eða einhverjir missa spón úr sínum aski. Ástæðan fyrir því að menn heykjast á því að ná fram al- mennilegum samruna stofnana svo hægt sé að mæta þörf við- skiptavina er sú að það er hver að passa sína torfu.“ Aukin samnýting nauðsynleg Spurð hve alvarlegum veik- indum sérfræðingateymin gætu sinnt segir Regína það vera komið undir mati geðlæknis hverju sinni. Markmiðið með þjónustunni sé að fækka innlögnum en aldrei verði hægt að koma algerlega í veg fyrir þær, geðdeildir verði auðvitað allt- af til. Hvað kostnað varðar segir Reg- ína málið snúast um að samnýta betur það fólk sem til staðar sé. Þá verði Íslendingar að horfast í augu við að bráðnauðsynlegt sé að auka útgjöld til velferðarmála. „Þegar menn segja að það geti verið dýrt að beita samfélags- geðþjónustu, að það kosti mikið að byggja upp þessi teymi, þá segi ég; teymin eru til staðar. Það eru félagsráðgjafar og sál- fræðingar úti öllum hverfum sem eru að vinna á vegum sveitarfélag- anna og það er hægt að samnýta þetta kerfi miklu betur og ég tel það eigi að styrkja grunnþjónustu sveitarfélaganna og heilsugæsl- unnar og horfa á þessi mál í heild sinni en ekki bara frá sjónarhorni félagsmálaráðuneytisins eða heil- brigðisráðuneytisins.“ Þegar talið berst að teymi fyrir Erlendis þekkist það mætavel að ríkisstjórnir eyrname verkefna þótt sveitarfélögin framkvæmi þjónustuna Aukin samvinna rí sveitarfélaga nauð Reglulega hefur verið fjallað um samfélags- geðþjónustu á síðum Morgunblaðsins í sumar og umfjöllunin vakið töluverð viðbrögð. Ylfa Kristín K. Árnadóttir ræddi við Regínu Ásvaldsdóttur sem nýverið lét af störfum sem sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar. Stjórnandi Regína Ásvaldsd »Mér finnst fyrir- komulagið á Akur- eyri, að heimsækja sjúklingana, vera til mikillar fyrirmyndar. » Þá verða Íslend- ingar að horfast í augu við að bráðnauð- synlegt er að auka út- gjöld til velferðar- mála. »Ríkið hefur dregið lappirnar með að flytja fötlunarmálin yf- ir til sveitarfélaganna. Þá þarf að koma fram miklu skýrari vilji til samstarfs milli heilsu- gæslunnar og sveitar- félaga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.