Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 48
Við vorum náttúrlega
svo spreyjaðir að það
þurfti alltaf að ná í hárið aft-
ur þegar það var búið að
slökkva á vindvélinni … 52
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
HLJÓMSVEITIN Buff ásamt
Reykjavik Sessions Quartet verður
með tónleika til heiðurs tónlist-
arsnillingnum Paul McCartney í
Austurbæ fimmtudaginn 13. sept-
ember næstkomandi.
„Við félagarnir í Buffinu erum
allir miklir Bítlaaðdáendur og ég
hef persónulega spilað á tvennum
tónleikum til heiðurs John Lennon.
En það hefur aldrei verið haldið
neitt svona til heiðurs Paul
McCartney en hann samdi nú hinn
helminginn af lögunum með Bítl-
unum. Svo okkur fannst tími til
kominn að heiðra karlinn aðeins,“
segir Pétur Örn Guðmundsson sem
er meðlimur Buffs ásamt þeim
Stefáni Erni Gunnlaugssyni, Bergi
Geirssyni, Hannesi Friðbjarnssyni
og Einari Þór Jóhannssyni.
Spurður af hverju McCartney sé
í uppáhaldi segir Pétur það að-
allega vera vegna þess hversu góð-
ur lagasmiður hann sé.
„Lennon var uppreisnarseggur
og maður orða og aðgerða en
McCartney er svo lunkinn melódíu-
smiður. Þeir sömdu Bítlalögin mik-
ið til saman og voru skemmtilegt
mótvægi hvor við annan.
Ég og Bergur bassaleikari fórum
líka á McCartney-tónleika fyrir
nokkrum árum í Kaupmannahöfn,
það var æðislegt og karlinn í ótrú-
legu formi svo ekki féll hann af
stallinum við það.“
Stjarna stjarnanna
Á tónleikunum verða aðallega
flutt lög eftir McCartney síðan
hann var í Bítlunum og frá sólóferli
hans til um 1990.
„Þótt við séum mjög hrifnir af
nýjasta efninu frá honum vildum
við byrja á því að taka klassískan
McCartney. Tökum hitt eftir 10
ár,“ segir Pétur.
Strákarnir í Buff ættu þá að hafa
úr nægu efni að velja því McCart-
ney gaf út sína tuttugustu og
fyrstu sólóplötu í vor sem nefnist
Memory Almost Full. Hann samdi
að venju öll lögin á plötunni sem
hefur fengið góðar viðtökur um
heim allan.
Pétur segir McCartney eiga
laumulega stóran aðdáendahóp á
Íslandi.
„Ég held að það komi á óvart
hvað hann er vinsæll hér. Það er
ekki spurning að ef hann héldi tón-
leika í Egilshöllinni myndi hann
fylla hana. Hann er reyndar mjög
vinsæll út um allan heim ennþá,
hann er stjarna stjarnanna,“ segir
Pétur með stjörnur í augum.
„Það er ekki hægt að horfa
framhjá því að McCartney hefur
samið mörg fallegustu lög poppsög-
unnar, það er ekkert flóknara.
Áhrif hans á tónlistarsöguna eru
mikil,“ segir Pétur sem getur ekki
gert upp á milli laga McCartneys.
„Hann er svo afkastamikill og
hefur samið svo mörg flott lög að
það er ekki hægt að gera upp á
milli.“
Persónulegt og krúttlegt
Gestasöngvarar á tónleikunum
eru ekki af verri endanum en það
eru Magni Ásgeirsson, söngvari í Á
móti sól, Matthías Matthíasson,
söngvari Papanna og Dúndurfrétt-
amaður, og Ragnar Zolberg, söngv-
ari Sign.
„Þeir voru allir til í þetta sem
gladdi okkur mikið. Ragnar mun
m.a. syngja heljarinnar rokklag,
„Helter Skelter“, sem McCartney
samdi og margir telja fyrsta þunga-
rokkslag sögunnar,“ segir Pétur.
Ásamt Buffi kemur strengja-
sveitin Reykjavik Sessions Quartet
fram á tónleikunum.
„Smáhluti af tónleikunum verður
órafmagnaður, þá tökum við syrpu
af rólegri lögum McCartneys í
kassagítarsútsetningum og höfum
þetta persónulegt og krúttlegt. Það
verður samt rokkað inn á milli.“
Aðeins verða haldnir þessir einu
McCartney-tónleikar í Austurbæ á
fimmtudaginn kemur milli klukkan
20:00 og 22:30. Miðasala á tón-
leikana er hafin í Austurbæ, á midi-
.is, Skífuverslunum í Reykjavík og
BT úti á landi.
Til heiðurs Paul McCartney
Morgunblaðið/G.Rúnar
Heiðursmenn Meðlimir hljómsveitarinnar Buff ásamt Magna sem verður gestasöngvari á tónleikum til heiðurs Paul McCartney í Austurbæ á fimmtudaginn kemur.
www.myspace.com/buffid
verkefninu almennilega á lagg-
irnar næstu árin, og gefa fólki sem
hefur áhuga á sjálfboðastarfi tæki-
færi til þess að vinna sjálfstætt við
metnaðarfullt verkefni. Ef allt fer
að óskum verður vonandi að lokum
hægt að láta stelpurnar taka alfar-
ið við verkefninu og reka það sjálf-
ar.
Ætlunin með tónleikunum í
kvöld er bæði að safna peningum
fyrir verkefnið sem og kynna sjálf-
boðavinnuna fyrir fólki. Milli kl. 16
og 19 í Iðnó verður ljósmynda- og
myndbandssýning frá verkefninu
og kynning á því. Tónleikarnir
hefjast kl. 21 og kostar 1.000 kr.
inn.
TÓNLEIKAR til styrktar upplýs-
ingamiðstöð fyrir ungar stelpur í
þorpinu Maganja da Costa í Mo-
zambique fara fram í Iðnó í kvöld.
Meðal tónlistarmanna sem koma
þar fram eru Megas, Örn og Ösp
Eldjárn, Ólafur Arnalds, Shadow
Parade og Jakobínarína.
Það eru Stefanía Eir Vignisdóttir
og Charlotte Ólöf Ferrier sem
standa að tónleikunum en þær
dvöldu í hálft ár í Mósambík og
settu upplýsingamiðstöðina á lagg-
irnar. Þar fá ungar stelpur fræðslu
um kynsjúkdóma og kynlíf sem og
ýmislegt annað sem stuðlar að því
að þær geti lifað sjálfstæðara lífi.
Ætlunin er að reyna að koma
Megas í Iðnó
Morgunblaðið/Þorkell
Megas Verður einn með gítarinn.Jakobínarína Leikur á tónleikum til styrktar stúlkum í Mozambique.