Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 41
gæti. Fjölskylduhátíðíðin fer fram í safnaðarheimilinu þar sem við- gerðir standa yfir í kirkjunni. Barnastarf í Fríkirkj- unni í Reykjavík FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA kl. 14. Barnastarfið er hafið hjá okkur og verða barnaguðsþjónust- ur alla sunnudaga kl. 14. Þema dagsins er Jesús og börnin. Við syngjum bæði gamla og nýja barna- sálma. Skírt verður í guðsþjónust- unni, helgisagan sögð og leikbrúð- urnar koma í heimsókn. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir þjónar og henni til aðstoðar er Nanda María guð- fræðinemi. Kalli Möller og Anna Sigga leiða almennan safnaðar- söng. Eftir guðsþjónustuna gefum við fuglunum á Tjörninni brauð. Messa í Grindavíkurkirkju SR. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir lætur af störfum sóknarprests og kveður við messu í Grindavíkur- kirkju sunnudag kl. 14. Kór Grindavíkurkirkju syngur. Org- anisti og kórstjóri Friðrik Vignir Stefánsson. Sr. Jóna Kristín kom til starfa sem sóknarprestur í Grindavíkurprestakalli árið 1990. Hvetjum við alla, söfnuðinn sem aðra, er til hennar þekkja í prests- starfinu að fjölmenna í kirkjuna. Eftir messuna verður boðið til kaffisamsætis í safnaðarheimili kirkjunnar. Sóknarnefnd Grinda- víkurkirkju. Kyrrðar- og íhugunar- stundir í hádegi í Vídalínskirkju SÚ nýjung verður tekin upp í safn- aðarstarfi Garðasóknar á þessu hausti að bjóða upp á kyrrðar- stundir í hádegi. Þriðjudagar hafa orðið fyrir valinu og byrjar stundin kl. 12. Þá er gengið inn í þögnina. Kl. 12.10 fyllist kirkjuskipið af tón- list. Sá flutningur stendur í tuttugu mínútur með þremur hléum, en þá eru flutt ritningarvers eða ljóð. Stundin endar á bæn, sálmasöng og blessunarorðum. Á meðan tónlist er leikin í kyrrðarstundinni er hægt að ganga á milli bænastöðva í kirkjuskipinu. Stöðvarnar eru fjór- ar; við skírnarfontinn, altarið, bænastjakann og grátmúrinn. Þar er hægt að dvelja við hugsanir sín- ar og leyfa hinni lífgefandi nær- veru Guðs að umvefja sig. Á miðvikudögum er bænahring- ur fyrir í konur í kapellu Vídalíns- kirkju kl. 17.30-18.15 yfir vetrar- tímann í umsjá sr. Jónu Hrannar Bolladóttur. Á fimmtudagskvöldum eru bænastundir í Vídalínskirkju kl. 21 í umsjá safnaðarfólks og Nönnu Guðrúnar Zoëga djákna. Þau sem vilja senda inn bænarefni geta sent þau á netföngin jona- hronn@gardasokn.is og ngdjakni- @gardasokn.is. „Bænir breyta ekki veruleikanum, en bænir breyta mönnum og mennirnir breyta veru- leikanum.“ Sjá www.gardasokn.is. Upphaf vetrarstarfs í Bessastaðakirkju. SUNNUDAGINN 9. september verður fjölskylduguðsþjónusta sem markar upphaf sunnudagaskóla og fermingarstarfs í Bessastaðasókn. Guðsþjónustan hefst kl. 11 í Bessa- staðakirkju. Sr. Jóna Hrönn Bolla- dóttir leiðir stundina og fjallar í predikun um boðskap og innihald messuformsins sem er notað í hefð- bundnu helgihaldi safnaðarins. Bjartur Logi Guðnason organisti og Álftaneskórinn leiða tónlistina. Nýtt starfsfólk sunnudagaskólans verður kynnt og einnig Fjóla Har- aldsdóttir djákni sem er í afleys- ingum við söfnuðinn. Barn verður borið til skírnar og í guðsþjónust- unni verða sungnir nýir sunnu- dagaskólasöngvar og biblíufræðsla á forsendum yngstu barnanna. Í lok stundarinnar mun sóknarnefndar- fólk afhenda fermingarbörnum kirkjulykilinn, en það er lítil messu- bók sem femingarbörnin eiga að nota í helgihaldi kirkjunnar á þess- um vetri. Allir velkomnir. Kvennakirkjan í Seltjarnarneskirkju KVENNAKIRKJAN heldur guðs- þjónustu í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 9. september kl. 20.30. Yfirskrift messunnar er: Við ráðum við eigin streitu. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar. Kór Kvennakirkjunnar leiðir sönginn við undirleik Aðalheiðar Þorsteins- dóttur. Á eftir verður kaffi í safn- aðarheimilinu. Vetrarstarf Kvennakirkjunnar er nú að hefjast og eru nýjar konur velkomnar að slást í hópinn. Í vetur verða haldin námskeið, söngæfingar og örþing þar sem tekin eru fyrir málefni líð- andi stundar. Um allt þetta má fræðast á heimasíðu Kvennakirkj- unnar, www.kvennakirkjan.is. Vetrarstarf að hefjast hjá Óháða söfnuðinum VETRARSTARFIÐ hjá Óháða söfn- uðinum hefst sunnudaginn 9. sept- ember með guðsþjónustu kl. 14 og hefst þá um leið barnastarfið með því að Stopp-leikhópurinn flytur leikritið Eldfærin eftir HC Ander- sen. Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að koma með börnum sínum sem og ömmur og afar. Einn- ig munum við bjóða velkominn nýj- an organista og kórstjóra, Kára Allansson, sem hafið hefur störf hjá okkur. Kirkjukórinn okkar getur bætt við sig söngfólki svo ef það eru einhverjir sem langar að koma og syngja með okkur eru þeir vel- komnir. Heitt á könnunni og maul eftir messu. Hinn 11. september hefst Alfa 1- námskeið með kynningarkvöldi á frumfræðslunámskeiði í kristni og hefst það kl. 19 með mat og mun sr. Pétur leiða það námskeið ásamt að- stoðarfólki. Á Alfa-námskeiðinu gefst fólki tækifæri til að spyrja spurninga og taka þátt í skapandi umræðu um lífið og tilveruna. Alfa lýkur kl. 22. 12 sporin, andlegt ferðalag – fyrsti kynningarfundur af fjórum verður fimmtudaginn 20. septem- ber kl. 19.30. Það eru allir velkomn- ir að koma og kynna sér sporin eins og þau eru unnin í kirkjunni. Hver kynningarfundur er einstakur og eru áhugasamir hvattir til að mæta á alla fundina og taka síðan afstöðu um framhaldið. Fundunum lýkur kl. 21.30. Ögursögur í kvöldmessu Laugarneskirkju NÚ hefja þær göngu sína að nýju kvöldmessur Laugarneskirkju, þar sem gospel og djass rennur saman við guðsorð og bænir um leið og helstu grunngildi lífsins eru til op- innar umræðu. Í vetur munu góðir hverfisbúar segja ögursögur úr eigin lífi við hverja kvöldmessu og er það Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir sem ríður á vaðið, en messan hefst kl. 20:00. Það er lær- dómur fyrir mann að heyra hvernig lífið hefur ögrað öðru fólki, hvað það hugsaði þá og hvernig það brást við. Sem fyrr skipa djass- kvartettinn þeir Matthías M.D. Hemstock á trommur, Gunnar Gunnarsson á píanó, Tómas R. Ein- arsson á bassa og Sigurður Flosa- son á saxófón, en kór Laugarnes- kirkju syngur. Bjarni Karlsson sóknarprestur mun prédika og þjóna við altarið ásamt sr. Hildi Eiri Bolladóttur og Sigurbirni Þor- kelssyni meðhjálpara. Yfir í safn- aðarheimilinu bíður svo messukaffi við kertaljós í umsjá Gunnhildar Einarsdóttur kirkjuvarðar. Djass- inn hefst í húsinu nokkru fyrir messu og því er gott að koma tím- anlega í góð sæti og njóta alls frá byrjun. Samvera eldri borgara í Laugarneskirkju FYRSTA samvera eldri borgara á nýju starfsári verður haldin fimmtudaginn 13. september kl. 14. Á þessum samverum blandast sam- an gamni og alvara, áhugaverð fundarefni eru hvert sinn áður en sest er að kaffiborði í góðum fé- lagsskap og notið líðandi stundar. Umsjón er í höndum sr. Bjarna Karlssonar sóknarprests, þjónustu- hóps kirkjunnar og Gunnhildar Einarsdóttur kirkjuvarðar. Verið velkomin. Gæði náinna tengsla í Laugarneskirkju Á ÞESSU hausti mun Bjarni Karls- son, sóknarprestur í Laugarnes- kirkju, bjóða upp á trúfræðslutíma hvert þriðjudagskvöld kl. 20.30 þar sem hann mun kynna meistara- prófsritgerð sem hann er um þess- ar mundir að ljúka við guðfræði- deild HÍ. Titill ritgerðarinnar er Gæði náinna tengsla og fjallar hún um þau grundvallargildi í kristinni siðfræði sem varða farsæld fólks í einkalífi. Er fólki frjálst að ganga beint inn um dyr safnaðarheimilis- ins kl. 20.30 eða koma fyrst í kvöld- söng í kirkjunni kl. 20. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.