Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.09.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 51 Stærsta kvikmyndahús landsins Miðasala á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á www.haskolabio.is Sími - 530 1919 Veðramót kl. 3:20 - 5:40 - 8 - 10:20 Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4 - 6 Surf’s Up m/ensku tali kl. 8 - 10 Astrópía kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 The Bourne Ultimatum kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 14 ára MATT DAMON ER JASON BOURNE eeeee - LIB, TOPP5.IS eeeee - SV, MBL Sýnd kl. 1:30 og 3:35 Með íslensku tali eeee - JIS, FILM.IS eee - FBL eee - DV - BLAÐIÐ MATT DAMON SNÝR AFTUR SEM LAUNMORÐINGINN ÓDREPANDI JASON BOURNE ÞAR SEM REGLURNAR BREYTAST Sýnd kl. 2 og 4 Með íslensku tali Þrjár vikur á toppnum í USA BÝR RAÐMORÐINGI Í ÞÍNU HVERFI? Ef þér þykja mörgæsir krúttlegar og sætar... þá þekkir þú ekki Cody! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:20 B.i. 14 ára Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Ef þér þykja mörgæsir krúttlegar og sætar... þá þekkir þú ekki Cody! MATT DAMON SNÝR AFTUR SEM LAUNMORÐINGINN ÓDREPANDI JASON BOURNE eeeee - LIB, TOPP5.IS eeeee - SV, MBL MATT DAMON ER JASON BOURNE eeeee - LIB, TOPP5.IS eeee - S.V, MBL Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:20 B.i. 14 ára eeee JIS, FILM.IS Sýnd kl. 3, 6 og 9 B.i. 14 ára -bara lúxus Sími 553 2075 MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI! Sagan sem mátti ekki segja. 450 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU eeee „VONANDI EIGA SEM FLESTIR EFTIR AÐ NJÓTA FRÁBÆRRAR MYNDAR OG ÚRVALS AFÞREYINGAR.“ - S.V., MORGUNBLAÐIÐ eeee „VÖNDUÐ OG GÓÐ ÍSLENSK KVIKMYNDAGERГ - VJV, TOPP5.IS Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „VIÐ byrjuðum í vor en kláruðum ekki, við tókum bara svokallaðan fyrri hluta. En nú hefst seinni hluti,“ segir Eyjólfur Kristjánsson sem á morgun heldur í tónleikaferð um landið ásamt Stefáni Hilmarssyni, en í daglegu tali ganga þeir undir nöfn- unum Stebbi og Eyfi. Þeir félagar ætla að halda tónleika á u.þ.b. 20 stöðum víðs vegar um landið á næstu vikum. „Við ætlum að heimsækja þá staði sem við skildum útundan síð- ast,“ segir Eyfi. Fyrstu tónleikarnir fara fram á Ísafirði annað kvöld og dugar ekkert minna en Ísafjarð- arkirkja fyrir þá félaga. „Við gerðum það á fyrri hluta túrsins líka, vorum mikið í kirkjunum,“ segir Eyfi. „Tón- listin okkar er líka mjög aðgengileg, það er ekkert rugl í henni þannig að það gengur alveg upp að flytja hana í kirkjum. Svo er ákveðinn andi sem svífur yfir vötnum þegar maður held- ur tónleika í kirkjum, það er eins og fólk hlusti betur en ef maður er til dæmis á einhverjum öldurhúsum. Það gefur líka yngri áheyrendum tækifæri á að mæta því það er nátt- úrlega ekkert aldurstakmark í kirkjum. Svo er hljómburðurinn oft- ast æðislegur í þessum kirkjum.“ Vinir í mörg ár Á tónleikunum munu þeir Stebbi og Eyfi spila lög af plötunni Nokkrar notalegar ábreiður sem þeir sendu frá sér í október, en að sjálfsögðu fá eldri slagarar einnig að fljóta með. „Við erum báðir búnir að vera að syngja í hátt í 25 ár þannig að þetta er orðinn svolítill haugur af lögum sem við höfum verið að syngja,“ segir Eyfi, en á meðal þekktustu laga þeirra eru „Álfheiður Björk“, „Danska lagið“ og auðvitað „Draum- ur um Nínu“. Eyfi segir þá ætla að reyna að heimsækja sem allra flesta staði á þessum síðari hluta tónleika- ferðalagsins. „Fyrst við erum á túr á annað borð er ferlega leiðinlegt að syngja á sumum stöðum en ekki öðr- um,“ segir hann, og bætir við að vissulega sé þetta ákaflega ánægju- leg vinna. „Þetta er mjög skemmti- legt, við erum líka búnir að vera vinir í mörg ár og maður er manns gaman, eins og einhvers staðar segir,“ segir Eyfi, en þeir félagar verða bara tveir á túrnum. Náðu í hárið Glöggir lesendur Morgunblaðsins hafa eflaust tekið eftir því að í blaðinu á fimmtudaginn var vitnað í bloggsíðu Davíðs Þórs Jónssonar, en þar full- yrðir hann að hann hafi haldið á vind- vélinni sem feykti hári Eyfa svo eft- irminnilega í laginu „Ég er vindurinn sem þýtur“ í Söngvakeppni Sjón- varpsins á níunda áratugnum. Ekki er annað hægt en að bera þessar full- yrðingar undir Eyfa og hann segir þær eiga við rök að styðjast. „Ég man eftir þessu, þetta var ’88. Við segjum einmitt frá þessu, við Stebbi, þegar við höldum tónleika. Við tökum þetta lag og það er mikill formáli að því. Þegar myndbandið var gert var ég nefnilega með meira hár en í dag, og þetta var náttúrlega „eighties“. Davíð mætti með vindvélina og kveikti alltaf á henni í viðlaginu. Hárið feyktist aft- ur og svo var það bara þar, við vorum náttúrlega svo spreyjaðir að það þurfti alltaf að ná í hárið aftur þegar það var búið að slökkva á vindvél- inni,“ segir Eyfi og hlær að tískunni á níunda áratugnum. Maður er manns gaman Morgunblaðið/Eggert Draumur um landið Stebbi og Eyfi munu syngja víða um land á næstu vikum, m.a. í hinum ýmsu kirkjum. Stebbi og Eyfi halda í tónleika- ferðalag um landið Stebbi og Eyfi spila í Ísafjarð- arkirkju annað kvöld, í Patreks- fjarðarkirkju á mánudagskvöld, í Bragganum á Hólmavík á þriðju- dagskvöld og svo á Hvammstanga á miðvikudagskvöldið, 12. sept- ember. Allir tónleikarnir hefjast 20.30. Á næstu vikum munu þeir svo m.a. heimsækja Siglufjörð, Dalvík, Akureyri, Húsavík, Vopna- fjörð, Egilsstaði, Neskaupstað, Akranes, Hofsós og Sauðárkrók.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.