Morgunblaðið - 08.09.2007, Qupperneq 26
tíska
26 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
www.cubatravel.cu www.vivacuba.se
uhj@mbl.is
Ævin-
týralegir
töfrar
Morgunblaðið/G.Rúnar
Ýktar augnlínur „Hér er ég að leika mér með samspil ljóss og skugga,“
segir Margrét R. Jónasdóttir förðunarmeistari hjá Make Up Store. „Ég not-
aði gráan augnskugga sem grunn á augnlokin og dró breiða augnlínu með
sjóhersbláum vel út fyrir þau. Breiðar, ýktar augnlínur eru mikið í tísku
núna,“ segir Margrét. Með gráa augnskugganum notaði hún bláan skugga
sem hún segir að séu áberandi hjá Make Up Store ásamt, brúnum og gyllt-
um. „Ég setti líka augnblýant og augnskugga undir augun sem gerir augn-
förðunina dramatískari. Varaliturinn er í dekkri kantinum en í vetur verð-
ur áherslan bæði á augu og varir en ljósar varir verða samt líka með.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Varalitablýantur Blýanturinn frá
Sheiseido getur komið í stað vara-
lits og þá er flott að setja gloss yfir.
Þeetta er litur LC2.
Flottur Baume Baiser er
rakagefandi salvi fyrir
varirnar frá Lancôme.
Aðdráttarafl Hjá Shiseido er áherslan í vetur á augun, þar sem svart,
brúnt og grátt verður allsráðandi. „Í vetur verður augnförðunin dökk og
áberandi, farðinn náttúrulegur en andlitsdrættir skerptir með smávegis
af sólarpúðri eða kinnalit,“ segir Kristín Ágústsdóttir förðunarmeistari
hjá Shiseido. „Varirnar eru ljósar og ekki endilega notaður varablýant-
ur. Förðun sem þessi er oft kölluð „smokey look“. Kristín notaði Dual
Balancing Foundation farða sem hún segir henta ungum stúlkum vel.
„Hann hefur tvöfalda virkni þar sem hann mattar þau svæði þar sem
húðin á að glansa en gefur raka á þurrkusvæðum. Kristín byrjaði á því
að draga dálítið breiða línu með brúnum augnblýanti í kringum augun
og ntaði síðan skugga úr augnskuggaboxinu Q10 Desert Winds. „Þetta
er nokkurs konar lagskipt förðun, dekksti liturinn neðst og svo lýsist
það upp á við. Ég setti dökkbrúna litinn ofan á blýantslínuna og mildaði
þannig skilin og ljósu skuggana þar fyrir ofan. Að lokum setti ég svart-
an maskara. Á vörunum er fyrirsætan með Automatic Lip Crayon nr.
LC1 á varirnar og gloss G27.“
Dulúð „Það var sagan ,,Morðið í Austurlandahraðlestinni,“ eftir Agöthu
Christie sem kveikti hugmynd Gucci Westman Neville, að haust- og vetr-
arlínu Lancôme í ár,“ segir Kristjana Rúnarsdóttir förðunarmeistari. „Yf-
ir Austurlandahraðlestinni hvíldi alltaf dulúð og spenna og það gerir það
líka í haust- og vetrarförðun Lancôme. Örlagateningurinn sem Alexis Ma-
bille hannaði, með spilavíti hraðlestarinnar í huga er sérstaklega skemmti-
legur. Í honum eru bæði augnskuggar og varalitir sem léku burð-
arhlutverk í förðuninni. Ég dró svarta línu eftir augnlokunum og skyggði
þau og augnsvæðið upp að augabrúnum með ljósgræna litnum úr Deep
Fascination og þeim vínrauða úr Charisma. “ Á kinnarnar notaði Kristjana
plómulitaðan kinnalit nr. 21 frá Lancôme og á varirnar varalitinn úr Deep
Fascination ásamt léttum gljáa.
Haustið er tíminn til
þess að skipta um ham,
breyta um stíl – eins og
náttúran. Það er eitt-
hvað ævintýralegt við
þennan árstíma – og
veturinn. Förðunin
haustið 2007 er blæ-
brigðarík, ekkert síður
en rökkrið getur verið,
og gaman að bregða á
leik með litina sem eru í
boði. Í augnskuggum
eru áberandi annars
vegar brúnir tónar og
gylltir, eins og í fatalín-
unum, og hins vegar
gráir og silfraðir, bláir
og blágrænir tónar.
Dramatíkin má leika
lausum hala, augnum-
gjörðin vera dökk og dá-
leiðandi og varirnar jafn-
vel líka áberandi og
tælandi. Förðunin á að
draga fram ævintýrið
sem býr í andliti hverrar
konu.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Bláskjár Augn-
skuggarnir frá
Make Up Store
eru margir í
bláum tónum á
þessu tímabili.
Berjarauður
Þessi varalitur
vísar til hinna
fallegu berja
en hann heitir
Orchid og er
frá Make Up
Store.
Mildir Í Q10 augn-
skuggaboxinu frá
Shiseido eru litatón-
arnir brúnir og gyllt-
ir og henta vel til
skyggingar bæði
hversdags og spari.
Örlagateningurinn
Sannkallaður töfra-
teningur frá Lan-
côme en í honum
eru tveir augn-
skuggar og tveir
varalitir. Þessi nefn-
ist Deep Fasc-
ination.