Morgunblaðið - 08.09.2007, Side 29

Morgunblaðið - 08.09.2007, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 29 skilgreiningu veikindanna og meðferð við þeim segir Regína grundvallaratriði að fólk hafi meira að segja um hvernig þjón- ustu það fær. Þá sé þátttaka vina og vandamanna afar mikilvæg, kjósi notandinn hana, þar sem nánasta umhverfið skipti gríð- arlega miklu máli og oft vilji að- standendur vera meira með en þeim er leyft. Þá styður Regína að fólk fái val um hvort það vilji leggjast inn, fá tímabundna þjónustu eða áð- urnefnda samfélagsgeðþjónustu í hverfinu sínu. „Það að vera kippt út úr raunveruleikanum, sínum daglegu aðstæðum, getur verið mjög afdrifaríkt þannig að ég held að fólk eigi algerlega að hafa val um þetta. En mér finnst fyr- irkomulagið á Akureyri, að heim- sækja sjúklingana, vera til mik- illar fyrirmyndar.“ Mismunandi viðhorf Regína segir viðhorf til sam- félagsgeðþjónustu fara eftir því hvernig horft er á veikindi fólks. „Það fer eftir því hvort þú aðhyll- ist þær kenningar að samfélagið og félagslega umgjörðin hafi áhrif á veikindin til hins verra eða ekki. Ef þú aðhyllist það þá liggur nær- tækast við að vinna með fólki í því umhverfi sem það býr við.“ Hún segir málin snúast um ákveðinn faglegan ágreining þar sem sumir aðhyllist samfélagslega sýn en aðrir leggi traust sitt á mjög sér- hæfða þjónustu, t.d. að skólasál- fræðingar, barnaverndarstarfs- menn og félagsráðgjafar vinni án nokkurs samráðs hver við annan. „Við þurfum að ná einhvers konar samkomulagi um hvernig við ætl- um að veita þessa þjónustu og skoða málin bæði frá sérfræði- sjónarhorninu og því samfélags- lega.“ gína m- ra ætl- inga- Mér slandi átak ga í ndir mæta- rki a þótt jón- að tuna í jórnin því og fjöldi ð í átt fyr- m eiga fyrsti l. Ég þjón- nnka á nni.“ er rið velt - nefnt r taki mstarf ustu eð- ð- angs- l. stofna ætti til ,“ seg- finn- tofn anir til ytandi. r er og orfi til gn- u.“ nna ra í erki fjármagn til brýnna íkis og ðsynleg Morgunblaðið/Frikki dóttir, fyrrverandi sviðsstjóri. ylfa@mbl.is Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is BRESKRI móður, sem hefur stjórnað fjögurra mánaða leit að ungri dóttur sinni, Madeleine McCann, var tilkynnt formlega í gær að hún væri sjálf grunuð um að hafa orðið stúlkunni að bana fyrir slysni. Ættingjar konunnar sögðust óttast að hún yrði ákærð. Portúgalska lögreglan yfirheyrði Kate McCann, móður Madeleine, í tæpar fimm klukkustundir í lög- reglustöð í bænum Portimao. Dag- inn áður hafði hún verið yfirheyrð í ellefu klukkstundir. Gerry McCann, faðir Madeleine, var einnig yfirheyrður í lög- reglustöðinni síðar um daginn. Vinir hjónanna sögðu að Gerry McCann fengi líklega einnig stöðu grunaðs manns og að lögreglan hefði boðið móður stúlkunnar samning um væg- ari dóm ef hún játaði að hafa orðið stúlkunni að bana. „Þeir reyndu að fá hana til að játa að hafa orðið Madeleine að bana fyr- ir slysni með því að bjóða henni samning. Þeir sögðu: ef þú segir að þú hafir drepið Madeleine fyrir slysni getum við ábyrgst tveggja ára fangelsisdóm eða jafnvel vægari,“ sagði systir Gerry McCann, Philo- mena, í viðtali við breska sjónvarpið ITV í gærkvöldi. Blóðagnir í bíl og hóteli Justine McGuinness, talskona McCann-fjölskyldunnar, sagði að portúgalskir lögreglumenn hefðu sagt Kate McCann að „þeir teldu sig hafa sönnunargögn sem sýndu að hún væri með einhverjum hætti við- riðin dauða dóttur sinnar“. McGuinness bætti við að blóðagn- ir hefðu fundist í farangursgeymslu bíls sem McCann-hjónin hefðu leigt 25 dögum eftir að Madeleine hvarf þriðja maí. Hermt er að blóðagnir hefðu einnig fundist í herbergi stúlkunnar í hótelíbúð í Algarve þar sem fjölskyldan dvaldi þegar Made- leine hvarf. Philomena, föðursystir Made- leine, sagði að rannsóknarmennina grunaði að Kate McCann hefði með einhverjum hætti orðið Madeleine að bana fyrir slysni, geymt líkið í tæpan mánuð og síðan notað bílinn til að losa sig við það. „Ég hef aldrei á minni lífsfæddri ævi heyrt aðra eins fjarstæðu,“ sagði Philomena McCann í viðtali við Sky News. Blórabögglar? Fyrr í gær sagði föðursystir Made- leine í viðtali við ITV-sjónvarpið að svo virtist sem portúgalska lög- reglan væri að gera McCann-hjónin að blórabögglum. „Þau eru fórn- arlömb hryllilegs glæps og núna reynir lögreglan að flekka mannorð þeirra á viðbjóðslegan hátt með þessari rógsherferð – þetta er með hreinum ólíkindum.“ Móðir Kate McCann, Susan Healy, tók í sama streng í viðtali við breska sjónvarpið Channel 4 í gær- kvöldi. „Hún er mjög reið út af stöðu sinni,“ sagði Healy. „Hún veit ósköp vel að ef þessi sönnunargögn eru til þá sanna þau að einhver í portú- gölsku lögreglunni, eða einhver sem hafði aðgang að hótelíbúðinni, kom gögnunum fyrir þarna.“ McCann-hjónin höfðu áður neitað fréttum í portúgölskum fjölmiðlum um að þau hefðu sjálf orðið stúlk- unni að bana. Þau hafa höfðað mál gegn blaði sem hélt því fram að þau hefðu gefið stúlkunni róandi lyf sem yfirheyra hina grunuðu og þarf að sýna þeim sönnunargögn í málinu. Hvarf Madeleine vakti heims- athygli og McCann-hjónin hafa ferðast til Spánar, Þýskalands, Hol- lands, Marokkó og Ítalíu til að leita að stúlkunni. Í nokkrum löndum hafa verið birtar fréttir um að sést hafi til Madeleine, allt frá Argentínu til Marokkó og Norður-Evrópu. Ótt- ast hefur verið að alþjóðlegur glæpahringur barnaníðinga hafi rænt stúlkunni. Foreldrar Madeleine eru kaþ- ólskrar trúar og leituðu m.a. til Benedikts XVI páfa. Kate McCann sýndi honum mynd af dóttur sinni og páfi blessaði hana. Stjórnmálaleiðtogar og íþrótta- stjörnur hafa lagt McCann- hjónunum lið og safnast hefur jafn- virði rúmra 130 milljóna króna í sjóð sem stofnaður var í þágu barna sem hafa horfið. Fótboltastjörnur á borð við David Beckham og Christiano Ronaldo komu fram í sjónvarpi til að skora á þá sem kynnu að hafa rænt stúlk- unni að skila henni. Sjónvarps- auglýsing um hvarf Madeleine var sýnd á úrslitaleik UEFA-bikarsins og úrslitaleik bikarkeppni enska knattspyrnusambandsins. Þá hafa dagblöð og kaupsýslu- menn í Bretlandi og Portúgal lofað verðlaunum að andvirði rúmra 2,6 milljóna punda, eða 340 milljóna króna, fyrir upplýsingar sem leiddu til þess að Madeleine fyndist heil á húfi. Fyrir utan móður stúlkunnar hef- ur aðeins einn fengið réttarstöðu grunaðs manns vegna rannsókn- arinnar á málinu. Það er 33 ára gam- all Breti, sem býr um 150 metra frá hótelíbúðinni þar sem Madeleine hvarf. Hann var yfirheyrður í lög- reglustöð tólf dögum eftir að stúlkan hvarf en var ekki handtekinn eða ákærður. gagnrýnd í Bretlandi fyrir seina- gang við rannsókn málsins. Til að mynda þykir undarlegt að leit- arhundar voru fluttir frá Bretlandi í hótelíbúðina þremur mánuðum eftir hvarf stúlkunnar og svo virðist sem þeir hafi fundið blóðagnir og fleira sem rannsóknarmönnum portú- gölsku lögreglunnar hafi sést yfir. Gerry McCann sagði á vefsetrinu www.findmadeleine.com að það væri „fáránlegt“ að ýja að því að Kate hefði átt aðild að hvarfi Madeleine. „Allir sem hafa einhverja vitneskju um 3. maí vita að Kate er alsaklaus. Við ætlum að berjast gegn þessu þar til yfir lýkur og hættum ekki að leita að Madeleine.“ Leituðu til páfa Samkvæmt portúgölskum lögum njóta þeir sem hafa réttarstöðu grunaðra ákveðinna réttinda. Þeir hafa t.a.m. rétt til að svara ekki spurningum lögreglunnar og að hafa lögfræðing hjá sér við yfirheyrslur. Lögreglan fær meira svigrúm til að hefðu dregið hana til dauða, að því er fram kom á fréttavef breska dag- blaðsins The Times. Portúgalska lögreglan hefur verið Grunuð um að hafa orðið dóttur sinni að bana AP Ákærð? Kate McCann, móðir bresku stúlkunnar Madeleine McCann, á leið til yfirheyrslu í lögreglustöð í Portúgal í gær. McCann, 39 ára heimilislæknir, er grunuð um að hafa orðið dóttur sinni að bana fyrir slysni. AP Líka undir grun? Gerry McCann, faðir Madeleine, á leið í lögreglustöð í Portimao í Portúgal þar sem hann var yfirheyrður í gær. Í HNOTSKURN » Kate McCann er 39 áraheimilislæknir. Eigin- maður hennar, Gerry, er hjartasérfræðingur á sjúkra- húsi í Leicestershire. » Madeleine svaf í herbergihótelíbúðar í Algarve ásamt systkinum sínum, tveggja ára tvíburum, þegar síðast spurðist til hennar. For- eldrar þeirra voru í veitinga- húsi um 150 metra frá íbúð- inni og litu inn til barnanna á hálftíma fresti. AP Auglýst eftir Madeleine McCann. Móðir Madeleine McCann yfirheyrð eftir að blóðagnir fundust í bíl sem foreldrar bresku stúlkunnar leigðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.