Morgunblaðið - 08.09.2007, Síða 46

Morgunblaðið - 08.09.2007, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Lífið á landnámsöld Sýningin er opin alla daga frá 10–17 Aðalstræti 16 101 Reykjavík www.reykjavik871.is Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand EKKI HAFA ÁHYGGJUR AF OKKUR HERRA HLUNKUR... VIÐ EIGUM EFTIR AÐ HAFA ÞAÐ FÍNT Í KVÖLD EF ÞÚ VERÐUR ÁHYGGJUFULLUR ÞÁ GETUR ÞÚ ALLTAF HRINGT Í MIG TAKK... ÉG GERI ÞAÐ ÉG VERÐ MEÐ SÍMANN VIÐ HÖNDINA Í ALLT KVÖLD ÞÚ ÁTT EFTIR AÐ FÁ ÞETTA BORGAÐ HANN ER EINI HUNDURINN SEM NEITAR AÐ BORÐA OF FEITAN MAT FLJÓTUR! FELDU ÞIG! MAMMA OG PABBI ERU AÐ FARA ÚT Í KVÖLD OG FENGU RÓSU TIL AÐ PASSA OKKUR! ÞÚ VEIST HVAÐ ÞAÐ ÞÝÐIR! AÐ VIÐ FÖRUM Í HÁTTINN kl. 18:30? JÁ! VIÐ FÁUM EKKI AÐ HORFA Á NEITT SJÓNVARP, EKKI LEIKA OKKUR, EKKI NEITT! BARA BEINT Í RÚMIÐ HÚN KYSSIR OKKUR ALDREI GÓÐA NÓTT! VILT ÞÚ ÞAÐ? ÞÚ ERT ÓGEÐ! ÉG Á ALDREI EFTIR AÐ GLEYMA FALLEGU STELPUNNI SEM ÉG HITTI Á SPÁNI ÞEGAR ÉG VAR UNGUR MAÐUR HÚN VAR MEÐ DÖKKT HÁR, GRÆN AUGU, RAUÐAR VARIR, BROS SEM GAT FENGIÐ HVAÐA MANN SEM ER TIL AÐ BRÁÐNA OG FÆÐINGABLETT Á VINSTRI HANDLEGGNUM HVAÐ HÉT HÚN? MAN ÞAÐ EKKI... ÞETTA ER FRÁ LEYNILEGUM AÐDÁANDA ÞAÐ SEM MÉR FINNST HVAÐ SKEMMTILEGAST VIÐ ÞETTA BOÐ OKKAR ERU HEFÐIRNAR... Á HVERJU ÁRI HITTUMST VIÐ OG LESUM KAFLANN Í BIBLÍUNNI UM FLÓTTANN FRÁ EGYPTALANDI... OG BORÐUM KJÖTRÉTTINN HENNAR ÖMMU! KRAKKAR... ÉG BJÓ REYNDAR TIL NÝJA HEFÐ Í ÁR MIKIÐ ER GOTT AÐ VERA BÚINN AÐ FINNA BÚNINGINN NÚNA ÆTLA ÉG BARA AÐ SLAPPA AF OG HORFA AÐEINS Á SJÓNVARPIÐ ROD RAYMOND, ERUÐ ÞIÐ M.J. PAR NÚNA EFTIR AÐ ÞÚ BJARGAÐIR HENNI ÚR ELDSVOÐANUM? NEI... VIÐ ERUM BARA GÓÐIR VINIR Æ, NEI! dagbók|velvakandi Ormafullar tófur og berjatínsla Í KYNNINGARBLAÐI um Vest- firði fyrir ferðamenn rakst ég á grein sem fjallaði um íslenska ref- inn sem á orðið sitt griðland á Vestfjörðum sem eitthvert að- dráttarafl fyrir ferðamenn á svæð- inu. Þar skjálast þeim hrapallega, fyrir utan að flest fólk sem ber eitthvert skynbragð á heilbrigða náttúru tekur fagurt fuglalíf og fuglasöng fram yfir að sjá ljón- stygga tófu skjótast fyrir stöku sinnum, getur berjatínsla á tófu- svæðum verið heilsuspillandi. Eins og bandormur var hér landlægur á árum áður og færa þarf heimilis- hunda og sauðfé reglulega í hreinsun, hvernig má það vera að tófan sé ormafrí? Eitt er víst að þetta tófueldi fyrir vestan mun ekki laða að sér þýskumælandi ferðamenn. Á stórum svæðum í Þýskalandi og Austurríki, þar sem tófur eru landlægar, er búið að banna að borða ber án þess að sjóða upp á þeim fyrst. Er ekki kominn tími til að hérlendir nátt- úrufræðingar fari að gera sér grein fyrir að taka verði með í reikninginn hið stórkostlega inn- grip mannsins í náttúruna? Þó að fuglalíf hafi blómstrað hér sem aldrei fyrr fyrir daga tófuveiðanna og því sé haldið fram að það að halda niðri tófu snúist bara um hagsmuni hlunnindabænda, er raunveruleikinn annar. Fuglarnir eiga orðið fleiri óvini en tófuna á Íslandi í dag, sem þeir áttu kannski ekki svo marga fyrir alda- mót, það er ekki bara minkurinn og samkeppni um fæðuna við verk- smiðjutogara. Hinn sístækkandi stofn sílamáfsins, fylgifisks menn- ingar og mengunar, er að kaffæra hér fuglalíf á stórum svæðum og víða annarstaðar. Hvernig ætli þessi fugl fari svo með lífríkið á ræktarlandi fyrir utan að taka fæðuna frá mófuglunum sem safn- ast saman á túnunum um þetta leyti árs? Hafa náttúrufræðingar ekkert litið út um gluggana hjá sér og velt fyrir sér sílamáfsskörunum sem hanga á túnblettum Háskól- ans. Hefur einhverjum dulist fjölg- un hrafnsins hérna á höfuðborg- arsvæðinu síðastliðinn áratug, öðrum en fyrrnefndum fræðing- um? Nú er svartbaksstofninn í sögulegu lágmarki, getur ekki ver- ið að sílamáfurinn eigi einhvern þátt í því? En það er þó ánægju- legt að það skyldi þó vera svart- bakurinn sem vék svona afgerandi fyrir honum fyrstur. Vonandi að það verði til að opna augu ráða- manna þjóðarinnar í það minnsta fyrir afleiðingum þess ef einni teg- und fer að fjölga um of. Ef halda á áfram að ala önn fyrir hröfnum, tófum og sílamáfum í þessu landi verður ekki langt að bíða að hér fari fuglalífið í sama horf og í lönd- unum í kringum okkur. Ásdís Arthúrsdóttir leiðsögumanneskja. Fyrirspurn til Símans MIG langar bara til að vita hvern- ig stendur á því að Síminn getur tekið dráttarvexti af reikningi þar sem gjalddagi er 1. september en borgaður 2. september vegna þess að 1. september ber upp á sunnu- dag. Móðir mín lenti í þessu síðast- liðinn mánudag og finnst mér þetta vera frekar gróft vegna þess að hún stendur alltaf í skilum á réttum tíma. Með ósk um svör. Sólrún Sigurðardóttir. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is LITADÝRÐ regnbogans er fögur sjón. Alltaf er hann rauður, gulur, grænn og blár. Stöku sinnum er regnboginn tvöfaldur, er það vegna speglunar á bakhlið vatnsdropanna. Þá er litaröðin í efri boganum blár, grænn, gulur og rauður. Myndin var tekin á Kjalarnesi. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Í regnbogans litum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.