Morgunblaðið - 08.09.2007, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ASTRÓPÍA kl. 2 - 4 - 6:30 - 8:30 - 10:30 LEYFÐ
LICENSE TO WED kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára DIGITAL
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 1:30 - 4 LEYFÐ DIGITAL
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 3:30 LEYFÐ
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
KNOCKED UP kl. 5 - 8 - 10:50 B.i.14.ára
KNOCKED UP kl. 5 - 8 - 10:50 LÚXUS VIP
DISTURBIA kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i.14.ára
LICENSE TO WED kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i.7.ára
ASTRÓPÍA kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 12:30 - 2 - 3 - 5:30 LEYFÐ
THE TRANSFORMERS kl. 3 - 10:10 B.i.10.ára
HARRY POTTER 5 kl. 12:30 B.i.10.ára
WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
BÝR RAÐMORÐINGI Í
ÞÍNU HVERFI?
/ ÁLFABAKKA
eeee
JIS, FILM.IS
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeee
- S.V, MBL
GETUR ROTTA ORÐIÐ
MEISTARAKOKKUR
Í FÍNUM VEITINGASTAÐ?
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
EF einhver hefur reiknað með
Veðramótum sem afsprengi umræð-
unnar um djöfulskapinn sem við-
gekkst innan veggja vistheimila rík-
isins verður sá hinn sami fyrir
vonbrigðum. Kvikmyndagerð-
armennirnir hafa ekki fallið í þá
gryfju að búa til krassandi útrým-
ingarbúðamynd; Veðramót fjalla um
gott fólk sem ræður ekki við að-
stæðurnar og unglinga rænda sak-
leysinu. Illskan er vissulega til stað-
ar og lúrir í baksýn þar sem hún
líkamnast í löggunni/fóstranum líkt
og hræsnin og blinda þjóðfélagsins í
íbúum plássins og sálfræðingurinn
er holdgervingur sofandaháttar
kerfisins. Erfitt er að hemja Veðra-
mót undir ákveðna grein, það má
skilgreina hana sem hrollvekju,
harmleik, sálfræðilega spennumynd;
fyrir mér er hún firnagott mannlegt
drama og það þarf enginn að verða
fyrir vonbrigðum.
Kvikmyndagerðarkonan Guðný
Halldórsdóttir kynntist persónulega
innviðum slíkra stofnana fyrir
„vandræðaunglinga“ og byggir
handritið örugglega á þeirri lífs-
reynslu að talsverðu leyti.
Sögusviðið er vistheimilið Veðra-
mót, sem stendur fjarri alfaraleið
norður í landi. Breytingar standa yf-
ir á rekstrinum, gamli forstöðumað-
urinn (Jóhann Sigurðarson) er að
láta af störfum og við taka þrír
reykvískir hippalingar. Þau Blöffi
(Hilmir Snær), Selma (Tinna) og
Hálfdán (Atli Rafn) ákveða að byrja
á heimsbyltingunni á útnáranum, –
volkaðar, ungar sálir vistheimilisins
sjálfsagt meðfærilegir lærisveinar.
Annað kemur á daginn, vand-
ræðagemsarnir eru sannarlega í
vondu ástandi, en nýju gæslumenn-
irnir reka sig fljótlega á að þeir eru
ekki í frelsarahlutverkum, mussan
ekki rétti stakkurinn. Við þeim
blasa krakkar sem búið er að skaða,
oftast af þeim sem síst skyldi – þótt
þau eigi það sameiginlegt að vera
undir lögaldri. Hér dugar skammt
að þylja upp úr Rauða kverinu og
hippahugsjónirnar reynast álíka
dáðlaust meðferðarúrræði. Þre-
menningarnir eru í síst betri að-
stöðu en ungmennin og umhverfið
sem þau eiga að bæta, krakkarnir
strembnir og faglegur stuðningur
frá yfirvöldum lítill sem enginn.
Guðný sýnir betur en nokkru
sinni áður að hún kann bæði að búa
til góða sögu og segja hana af til-
gerðarlausri og óþvingaðri sögu-
mennsku. Hún byggir upp Veðra-
mót af hreinni kúnst, gefur
áhorfendum mátulega mikið í skyn
til að halda þeim föngnum frá upp-
hafi til enda. Hefur frásögnina í
samtímanum, spólar síðan til baka
um þrjá áratugi, til „hippaáranna“
sem eru aðaltímasviðið, snýr svo aft-
ur til nútímans undir lokin. Ég var
örlítið smeykur þegar líða tók á
seinni hlutann um að hún væri að
sigla í strand með persónurnar og
endinn, akkillesarhæl íslenskra bíó-
mynda. Það er ekki auðvelt að finna
vörðurnar í gjörningaveðrinu sem
hún hefur magnað upp umhverfis
persónur sínar, nánast öll sund lok-
uð til að ná viðunandi og vitrænum
sögulokum. Guðný tapar aldrei átt-
unum og lokakaflinn rökréttur og
snjall. Skilur við mann í þungum
þönkum yfir hryllingnum sem átti
sér stað og fréttir berast af að sé því
miður enn í gangi. Efnið er rauna-
legt en hún gleymir ekki húm-
ornum, Veðramót er full af fyndnum
tilsvörum og uppákomum í bland við
næðinginn. Þetta eru vandmeðfarin
og metnaðarfull efnistök en lukkast
svo vel að maður er hjartanlega
sáttur við árangurinn.
Vandræði unglinganna sem er
holað niður á þessum veðramótum
lífsins eru gömul og ný. Heimilis-
ofbeldi, kynferðisleg misnotkun,
sifjaspell, óregla; ógæfu vistmanna
má rekja til þeirra sem áttu að hlúa
að þessum viðkvæma gróðri, en
brugðust. Veðramót veltir samhliða
fyrir sér erfiðleikum gæslumann-
anna, sem eru skapaðir með nokkru
skáldaleyfi (munum að Veðramót er
dramatíseruð lífsreynsla, ekki heim-
ildarmynd), en lýsingin er sláandi og
sýnir hversu auðveldlega þeir geta
orðið fórnarlömb aðstæðnanna.
Nokkuð sem vert er að velta fyrir
sér.
Líkin í lestinni
Vel heppnuð Veðramót raðar sér umsvifalaust í þröngan hóp bestu mynda
okkar stuttu kvikmyndasögu, að mati gagnrýnanda.
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Há-
skólabíó, Nýja bíó Akureyri
Leikstjóri og handritshöfundur: Guðný
Halldórsdóttir. Kvikmyndataka: Sven
Krövell. Tónlist: Ragnhildur Gísladóttir.
Leikmynd: Toni Zetterström. Búningar:
Rebekka A. Ingimundardóttir. Klipping:
Stefanía Thors. Hljóð: Pétur Einarsson.
Upptökustjóri: Kristín Pálsdóttir. Aðal-
leikendur: Hilmir Snær Guðnason, Tinna
Hrafnsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Jör-
undur Ragnarsson, Ugla Egilsdóttir,
Björn Hlynur Haraldsson, Hera Hilm-
arsdóttir, Baltasar Breki Baltasarsson
o.fl. 102 mínútur. Framleiðandi: Halldór
Þorgeirsson. Kvikmyndafélagið Umbi. Ís-
land. 2007.
Veðramót