Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 257. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
VATN Í MUNNINN
RENUKA PERERA KRYDDAR ÍSLENSKAN
MAT MEÐ FRAMANDI RÉTTUM >> 24
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„ÉG MAN að stundum
átti ég ekki krónu og
notaði þá sömu áhöldin
dögum saman eins
lengi og hægt var,
stundum fékk ég lánuð
áhöld hjá vinum mínum
því það eina sem komst
að hjá mér var að fá
vímuna, deyfa mig nið-
ur. Ég man að ég hugs-
aði alveg um það að ég
gæti smitast, mér var
stundum alveg sama því það eina sem ég
þráði ofar öllu var að deyja. Sem betur
fer varð mér ekki að þeirri ósk minni.“
Þannig lýsir Benedikta, sem bloggar á
slóðinni benna.blog.is, viðbrögðum sínum
við frétt af því að landlæknir óttist að
HIV-faraldur sé í uppsiglingu meðal
fíkniefnaneytenda á Íslandi. Fjórir úr
þessum hópi hafa greinst með HIV það
sem af er ári, jafnmargir og hafa greinst
sl. fimm ár. Talið er að um 500 sprautu-
fíklar séu á höfuðborgarsvæðinu.
Benedikta tekur undir með sóttvarna-
lækni og segir nauðsynlegt að gera áhöld-
in aðgengilegri. „Ég hef oft þurft á hrein-
um áhöldum að halda um nótt en þá hafa
apótekin verið lokuð og ég þá endað með
því að nota einhver gömul frá mér eða
fengið lánað notað dót hjá vinum mínum.“
Erfitt og nær ómögulegt er að ná til
fíkniefnaneytenda með fræðslu að sögn
Inga Rafns Haukssonar, formanns Al-
næmissamtakanna. Aðgangur allan sólar-
hringinn að ókeypis sprautunálum sé því
grundvallaratriði varðandi útbreiðsluna.
HIV-jákvæðir geta fengið alnæmi tak-
ist veirunni að brjóta ónæmiskerfi lík-
amans niður fyrir ákveðin mörk. Mjög
misjafnt er hvenær lyfjameðferð hefst en
dæmi eru um að fólk sé sýkt í 15 ár án
þess að ónæmiskerfið veikist. Veiran er
smitandi eftir sem áður.
Mikill kostnaður en það borgar sig
Árið 1996 komu ný lyf á markað sem
gjörbreyttu horfum HIV-sýktra. Með
lyfjunum er hægt að bæla veiruna og þar
með minnkar smithættan. Innlagnir HIV-
smitaðra á sjúkrahús eru nú hverfandi og
lífslíkur þeirra góðar.
Lyfjameðferð, sem oft felur í sér notk-
un 2-4 lyfja, getur kostað um 150 þúsund
krónur á mánuði fyrir hvern sjúkling sem
fær þau sér að kostnaðarlausu. „Fyrir
þetta verð er þjóðfélagið að forða mörg-
um öðrum frá því að sýkjast,“ bendir Sig-
urður B. Þorsteinsson smitsjúkdóma-
læknir á, lyfin bæli veiruna og minnki þar
með smithættu.
195 einstaklingar, 150 karlar og 45 kon-
ur, höfðu í lok síðasta árs greinst HIV-
jákvæðir á Íslandi. Þar af voru 11% fíkni-
efnaneytendur. Sú tala hefur hækkað í
ár.
Erfitt að
nálgast
hópinn
Aðgengi að sprautum
verði auðveldað
Verð Sprautunál
kostar um 8-10 kr.
í apótekum.
LÖG um greiðslur til foreldra langveikra eða fatl-
aðra barna, sem samþykkt voru í fyrra og tóku gildi
1. júlí 2006, eru meingölluð að mati Birnu Sigurð-
ardóttur. Dóttir hennar, Védís Edda Pétursdóttir,
fædd 17. júní 2005, greindist með banvænan hrörn-
unarsjúkdóm. Lögin ná hins vegar aðeins til barna
sem greindust eftir 1. janúar 2006. Þá eru greiðsl-
urnar settar á í þrepum eftir því hvenær veikindi eða
fötlun barnanna hefur greinst.
Birna telur ríkið eiga að sjá sóma sinn í að gera öll-
um foreldrum langveikra barna kleift að sinna börn-
um sínum án þess að hafa áhyggjur af peningum.
Litla Védís Edda lést í fyrrinótt. | Miðopna
Telur lögin vera
meingölluð
Birna
Sigurðardóttir
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FIMM karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæslu-
varðhald – flestir til 18. október nk. – fyrir aðild
sína að umfangsmiklum innflutningi fíkniefna til
landsins. Þeir eru allir á þrítugs- og fertugsaldri.
Auk þess voru tveir Íslendingar handteknir í
Kaupmannahöfn og einn í Noregi. Þeir verða
leiddir fyrir dómara í dag. Rannsóknin, sem lík-
legt er að staðið hafi yfir frá síðasta ári, teygði
anga sína til fimm Evrópulanda utan Íslands, og
var að miklu leyti unnin í samvinnu við evrópsku
löggæslustofnunina Europol.
Þrír mannanna voru handteknir á Fáskrúðs-
firði í gærmorgun í viðamiklum aðgerðum lög-
reglunnar, sérsveitar ríkislögreglustjóra og
Landhelgisgæslu Íslands. Tveir þeirra voru
teknir höndum í kjölfar þess að þeir komu til
hafnar á 30 feta skútu á sjötta tímanum. Grunur
lék á að fíkniefni væru falin um borð og reyndist
sá grunur á rökum reistur. Fundust allt að 70 kg
af amfetamíni við leit í skútunni. Félagi mann-
anna var handtekinn á bryggjunni skömmu síð-
ar, þegar hann hugðist sækja mennina tvo.
Aðgerðir lögreglu náðu víðar en á Fáskrúðs-
fjörð því í gær voru jafnframt gerðar húsleitir á
höfuðborgarsvæðinu, í Sandgerði, á Kaup-
mannahafnarsvæðinu og í Noregi. Lögreglan í
Kaupmannahöfn handtók tvo menn auk þess
sem einn var handtekinn í Noregi. Jafnframt
teygði málið anga sína til Hollands og Þýska-
lands, þar sem lögregluaðgerðir fóru fram en
enginn var handtekinn.
Mikill trúnaður hefur ríkt innan lögreglu
Mennirnir tveir sem sigldu skútunni voru á
leið frá Noregi, þar sem hún var tekin á leigu, en
höfðu viðkomu í Danmörku og Færeyjum. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins er um vana
sjómenn að ræða, sem hafa áður komist í kast við
lögin – þó ekki fyrir viðlíka brot.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri var
hæstánægður með hversu vel aðgerðirnar tók-
ust. „Þessi aðgerð var mjög vel skipulögð og ég
held að þeir aðilar sem komu af þessari skútu
hafi gengið í flasið á lögreglunni, sér að óvörum.
Það hefur ríkt mikill trúnaður hjá löggæslu-
stofnunum í mjög langan tíma, sem sýnir fram á
að íslenskar löggæslustofnanir eru fullfærar um
að sinna svona stórum verkefnum, sem teygja
anga sína inn í alþjóðasamfélagið, án þess að
vitneskja um það berist út.“
Fjöldi þeirra löggæsluaðila sem að málinu
komu hleypur á tugum og t.a.m. tóku um 25 sér-
sveitarmenn þátt, auk starfsmanna Landhelg-
isgæslu Íslands og lögregluembætta. Fíkniefna-
deild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur
hins vegar haldið utan um rannsóknina sem
fengið hefur nafnið Pólstjarnan.
Fíkniefnamál | 6 og 8
Morgunblaðið/Júlíus
Í kastljósinu Rannsóknarlögreglumenn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu leiða einn hinna
handteknu inn í dómhús héraðsdóms í gærkvöldi þar sem hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Gerðu tugi kílóa af
amfetamíni upptæk
Átta Íslendingar handteknir í þremur löndum vegna innflutnings fíkniefna
Langmesta magn af hörðum fíkniefnum sem lagt hefur verið hald á í einu
Ætlar þú að gera
eitthvað um helgina? >> 48
Leikhúsin í landinu