Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 45 Krossgáta Lárétt | 1 kinnungur á skipi, 4 innihaldslausar, 7 ekki djúp, 8 auðugan, 9 hóglát, 11 sögn, 13 fóðr- un, 14 sjávardýr, 15 ysta lag, 17 þveng, 20 kvæðis, 22 þokast áfram, 23 bögg- ull, 24 gripdeildin, 25 lag- vopns. Lóðrétt | 1 beygð, 2 heila- brot, 3 skökk, 4 naut, 5 stór, 6 dreg í efa, 10 út- vöxturinn á líkama, 12 löngun, 13 bókstafur, 15 farartæki, 16 skraf- gjörn, 18 bætir við, 19 skadda, 20 óráðshjal, 21 fita. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 Grindavík, 8 ræfil, 9 vökna, 10 lúi, 11 krani, 13 klafi, 15 skúta, 18 áfall, 21 urg, 22 leigð, 23 ósatt, 24 klæðnaður. Lóðrétt. 2 rifja, 3 núlli, 4 atvik, 5 ískra, 6 brák, 7 mani, 12 nót, 14 lyf, 15 sult, 16 úrill, 17 auðið, 18 ágóða, 19 at- aðu, 20 læti. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Litlu kraftaverkin halda áfram að gerast. Biddu vini þína að segja þér undrasögur og þær gefa þér von um að þín bíði hinar fullkomnu aðstæður. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það verður þér til góðs að gerast meðvitaðri um heiminn. Nýttu tímann til að soga inn í þig allar nýjungar sem fyrir þig ber. Örlögin bíða þín. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Hugmyndir þínar njóta meiri stuðnings en þú áleist í upphafi. Einhver vinnur fyrir þig bakvið tjöldin. Það er gott að vita að maður er ekki einn. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Sumir ýkja vandamálið sem bíður ykkar, en þú gerir lítið úr því. Það gerir þig mjög aðlaðandi í augum viðskiptavina, kunningja, aðdáenda og bogmanna. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Drifkrafturinn er í rénun, bíttu á jaxlinn og gerðu það samt! Yfirmenn fylgjast náið með þér. Það sem skiptir máli er frammistaðan þegar þú ert áhuga- laus. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Eitthvað gæti verið áríðandi án þess að vera alvarlegt. Í dag skaltu sleppa lausum prakkaranum í þér. Það kemur eitthvað gott út úr því. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þér verða kynntir samningar. Ekki treysta aðstöðu þar sem peningarnir skipta meira máli en vinnan. Kvöldið líkist hraðskreiðum bíl – festu beltið. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Nú reynir á samskiptahæfi- leika þína. Vertu tillitssamur. Ástvinir þurfa að sjá, snerta og finna ást þína. Í kvöld halda stjörnurnar keppni. Þú vinn- ur! (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Öllum réttindum fylgir ábyrgð. Öllum sérréttindum fylgir við- vörun. Í dag skaltu nýta þér rétt þinn á fyrirmyndar máta svo allir fái að þér dáðst. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Verk sem þú gast rumpað af, taka nú lengri tíma. Þú gætir misst þig í eitthvert verkefni, en útkoman verður ekki endilega betri. Kannski jafnvel öfugt. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þótt þú kunnir að meta vel sagða sögu, þarfnastu staðreynda núna. Spurðu beinna og umbúðalausra spurn- inga og þú færð öll svörin sem þú þarfn- ast. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú ert nákvæmur og veitir hverju smáatriði athygli, sérstaklega í lagalegum efnum. Áætlun þín kostar meira en þú hafðir í huga. Kipptu því í liðinn. stjörnuspá Holiday Mathis 1. Rf3 d5 2. c4 dxc4 3. Ra3 Rf6 4. Rxc4 e6 5. g3 Be7 6. Bg2 O-O 7. O-O c5 8. b3 Rc6 9. Bb2 Rd5 10. Hc1 b6 11. d4 cxd4 12. Rxd4 Rxd4 13. Dxd4 Bf6 14. Dd2 b5 15. Bxf6 gxf6 16. Ra5 Kg7 17. Hfd1 Bd7 18. Rb7 Db6 Staðan kom upp á Skákþingi Íslands, landsliðsflokki, sem lauk fyrir skömmu í Skákhöllinni í Faxafeni 12 í Reykjavík. Ingvar Þ. Jóhannesson (2344) hafði hvítt gegn Davíð Kjartanssyni (2324). 19. e4! Dxb7 20. exd5 Da6 21. dxe6 Bxe6 22. Bxa8 Hxa8 23. Hc5 hvítur hef- ur nú skiptamun yfir og innbyrti hann vinninginn 17 leikjum síðar: 23...Bg4 24. Hf1 He8 25. f3 Bh3 26. Hfc1 Db6 27. b4 De6 28. g4 Hd8 29. Df2 Dd6 30. De3 Dd2 31. Dxd2 Hxd2 32. H1c2 Hd1+ 33. Kf2 h5 34. Hxh5 Bf1 35. Hhc5 Bc4 36. Hc7 Hb1 37. a3 a6 38. Hc3 Kg6 39. h4 f5 40. Hc6+ og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Þrjú-núll lega. Norður ♠852 ♥Á1086 ♦973 ♣Á75 Vestur Austur ♠1094 ♠G763 ♥D92 ♥– ♦D102 ♦8654 ♣D1063 ♣KG984 Suður ♠ÁKD ♥KG7543 ♦ÁKG ♣2 Suður spilar 6♥. AV hafa ekkert sagt og vestur kemur út með spaðatíu. Hvernig er best að spila? Giski sagnhafi á að leggja niður hjartakóng er málið úr sögunni – vörnin fær slag á tígul og búið. En það er slæm spilamennska. Aðeins drottningin þriðja í trompi ógnar slemmunni (og á því eru 22% líkur). Eigi austur Dxx í trompi er enga hjálp að fá í tíglinum, en ef vestur á trompin þrjú má spila honum inn og komast hjá svíningunni í tígli. Því er nákvæmara að taka fyrst á tromp- ásinn. En það þarf að undirbúa inn- kastið – taka fyrst laufás og trompa lauf. Spila svo hjarta á ás. Þegar leg- an kemur í ljós er lauf aftur trompað, hjartakóngur tekinn, spaða spilað til enda og loks er vestur sendur inn á hjartadrottningu. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Samkaup vilja fá lóð hjá Faxaflóahöfnum? Hver erframkvæmdastjóri fyrirtækisins? 2 Skaðræðissniglar hada fundist hér við land. Viðhvaða land eru þeir kenndir? 3 Hver er handhafi Íslensku barnabókaverðlaunanna íár? 4 Kvikmyndahátíð er að hefjast í Reykjavík. Hvað kall-ast hún? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Leikritinu Killer Joe hef- ur verið boðið til Litháen. Hver fer með aðalhlutverk- ið? Svar: Björn Thors. 2. Geir H. Haarde var í opin- berri heimsókn á Balkan- skaga. Í hvaða landi? Svar: Svartfjallalandi. 3. Íslenskt fyrirtæki hlaut verðlaun fyrir framsækni í fjarskiptaþjónustu. Hvaða fyrirtæki? Svar: Industria. 4. Íslendingur hefur verið kjörinn í stjórn Post Eur- ope. Hver er hann? Svar: Ingimundur Sigurpálsson. Spurter… ritstjorn@mbl.is dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig FRÉTTIR FRÆÐSLUSÝNING um sjálfbæra þróun verður opnuð á morgun, laugardaginn 22. sept., kl. 11 í Gamla bókasafninu, Mjósundi 10 í Hafnarfirði. Sýningin er byggð á hugmyndum Jarðarsáttmálans, sem saminn var af nefnd skipaðri af Sameinuðu þjóðunum. Í nefndinni sat fólk frá öllum heimshornum og öllum stigum þjóðfélagsins og lagði sitt af mörkum. Sáttmálinn byggist á þeim grundvallaratriðum sem einstaklingar, fyrirtæki og þjóðir þurfa að tileinka sér til að hægt sé að skapa heim sem byggist á sjálf- bærri þróun, umhverfisvernd og fé- lagslegu réttlæti. Líkt og Mannréttindasáttmáli og Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna voru gerðir til að tryggja réttindi allra jarðarbúa, er Jarðarsáttmál- inn gerður með vernd jarðarinnar að leiðarljósi og um leið afkomu, réttlæti og velsæld allrar jarðar- búa, segir í fréttatilkynningu. Að sýningunni standa Umhverfis- nefnd Hafnarfjarðar, Staðardag- skrá 21 í Hafnarfirði, SGI á Íslandi og Gamla bókasafnið. Sýningin er öllum opin og aðgangseyrir er eng- inn. Sýningartími er kl. 14-18 virka daga og 14-20 um helgar. Skóla- hópar eru boðnir velkomnir milli kl. 9-12 virka daga eftir samkomu- lagi og býðst leiðsögn um sýning- una. Hægt er að bóka tíma með því að hringja í síma 857-5732. Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni www.simnet.is/meistarar Sýning um sjálfbæra þróun Í TILEFNI af Samgönguviku munu tónlistarmenn stíga á stokk í Strætó í dag, föstudag, sem hér segir: Kira Kira á leið 1 kl. 7.20 frá Firði að HÍ, Mr. Silla á leið 3 kl. 7.21 frá Gerðubergi að MR, Svavar Knútur og Jón Geir á leið 6 kl. 7.20 frá Spönginni að Hlemmi, Ólöf Arn- alds á leið 13 kl. 7.38 frá Öldu- granda að Verzló og Magga Stína á leið 14 kl. 7.23 frá Lækjartorgi að Grensási. Einnig gefst farþegum færi á að fræðast nánar um leiðakerfi strætó þar sem ráðgjafar verða til staðar á Hlemmi og í Mjódd. Þá mun hljómsveitin Retro Stef- son spila á Hlemmi kl. 16.30. Stemning í strætó SKÍÐAGÖNGUFÉLAGIÐ stendur fyrir hjólaskíðamóti á Bláfjalla- afleggjaranum á morgun, laugar- daginn 22. september. Mótið hefst kl. 11.00 og verða gengnir 10 kíló- metrar. Startað verður fyrir neðan bröttu hlykkjóttu brekkuna og verður gengið upp á planið þar sem gönguskíðabrautin í Bláfjöllum byrjar. Í markinu verður boðið upp á samlokur og drykki og verðlaun í boði í karla- og kvennaflokki. Skíðagöngufélagið var stofnað í sumar af hópi sem hefur verið að æfa fyrir og taka þátt í Vasagöng- unni í Svíþjóð, segir í fréttatilkynn- ingu. Hjólaskíðamót við Bláfjöllin EVA Kamilla Einarsdóttir, há- skólanemi og umsjónarmaður frístundaheimil- is, gefur kost á sér sem varafor- maður Ungra jafnaðarmanna á landsþingi hreyfingarinnar í Reykjavík dag- ana 6. og 7. október. Eva Kamilla hefur setið í stjórn Ungra jafnaðarmanna frá 2006 og var kjörin í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins fyrr á árinu. Þá átti hún sæti á framboðslista Samfylkingar- innar í Reykjavík norður fyrir þingkosningar í maí sl. Eva Kamilla leggur stund á nám á þroskaþjálfabraut Kennarahá- skóla Íslands samhliða því að starfa sem umsjónarmaður á frí- stundaheimili. Undanfarin ár hef- ur hún starfað hjá Sérsveit Hins Hússins með einstaklingum með fötlun. Eva Kamilla býr í Hlíðunum ásamt tveimur dætrum sínum og öldruðum gullfisk sem heitir Þór- bergur. Í framboði sem varaformaður UJ Eva Kamilla Einarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.