Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MÓTVÆGISAÐGERÐIR ríkis- stjórnarinnar eru dropi í hafið þegar horft er til fórna samfélagsins í Eyj- um. Útvegsbændur í Vestmannaeyj- um segja að á undanförnum 6 árum hafi samfélagið í Eyjum fært fórnir upp á 3,1 milljarð króna í formi byggðakvóta, línuívilnunar og ým- issa bóta, meðal annars vegna brests í rækju- og skelveiðum, útflutnings- álags, sem nú hefur verið fellt niður, og þróunarsjóðsgjalds sem síðar varð að veiðigjaldi. Þannig hafi Eyja- menn í raun og veru stutt aðrar sjáv- arbyggðir árlega með liðlega 500 milljóna króna skerðingu eigin afla- heimilda og með sérstökum gjöldum sem færð hafi verið öðrum byggð- arlögum í nafni byggðastefnu, „mót- vægisaðgerða“. Mikil tekjuskerðing Þetta kom fram á aðalfundi Út- vegsbændafélags Vestmannaeyja sem haldinn var í vikunni. „Upplýs- ingarnar byggjast eingöngu á út- flutningsverðmæti ísfisks í gámum en ekki er tekið tillit til aukins vinnsluvirðis sem fellur til við vinnslu í landi og áhrifa þess á tekjur fiskvinnslufyrirtækja, landverka- fólks og tekna Vestmannaeyjabæjar af útsvari. Þá eru í engu metin hin svokölluðu margfeldisáhrif aukinna umsvifa sem tengjast tekjuauka,“ segir í frétt frá Útvegsbændafélag- inu. Útvegsmenn í Eyjum vilja vekja sérstaka athygli á tölum um þennan fórnarkostnað í ljósi þess að ríkis- stjórnin hyggst nú færa sjávar- byggðum jafnvirði 6,5 milljarða á næstu þremur árum til mótvægis við skertar þorskveiðar. Þar af virðist Eyjamönnum ætlað að fá um 100 milljónir króna, en 36 milljónir af þeirri fjárhæð eru stuðningur við samgöngur til Vestmannaeyja. „Ekki er verið að gera lítið úr mót- vægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar en hér er samt einungis verið að ræða þann skell sem Eyjasamfélagið hefur þurft að þola undanfarin ár. Enn stærri skellur er yfirvofandi: 376.000 króna skerðing á hvern íbúa Ef lagður er saman ætlaður tekju- missir útgerða í Vestmannaeyjum árið 2008 vegna skerðingar í þorski og ýsu og vegna hlutdeildar þeirra í byggðakvóta, línuívilnun og sérstök- um bótum ýmiskonar, auk áætlaðs veiðileyfagjalds, nemur tjónið 1.540 milljónum króna eða um 376 þúsund- um króna á hvern einasta íbúa í Eyj- um. Þetta svarar til þess að á höf- uðborgarsvæðinu, frá Mosfellsbæ í Hafnarfjörð, skertust tekjur fyrir- tækja um 72,5 milljarða króna,“ seg- ir í frétt Útvegsbændafélags Vest- mannaeyja. Mótvægisaðgerðirnar eru aðeins dropi í hafið Í HNOTSKURN »Tekjur sjómanna í Vest-mannaeyjum hafa verið skertar af framangreindum ástæðum um rúmlega 1 milljarð króna frá 2002 til 2007. »Útsvarstekjur bæjarsjóðsrýrnuðu á sama tíma um alls 130 milljónir króna. »Tjón útgerðarfyrirtækjaí Eyjum nemur af sömu ástæðum um 1.250 milljónum króna frá árinu 2002. Þá er eingöngu tekið tillit til hagn- aðar útgerðarinnar fyrir af- skriftir, vexti og skatta. Eft- ir skatta er tjónið minna en erfitt er að meta skatt- greiðslur útgerðanna án þess að kanna rekstur hvers og eins útgerðarfélags. Útvegsbændur í Vestmannaeyjum segjast hafa fært fórnir upp á 3,1 milljarð FISKNEYZLA í Þýzkalandi hefur aukizt stöðugt undanfarin ár. Nú er gert ráð fyrir að hún slái met á þessu ári og nái 16 kílóum á hvert mannsbarn að meðaltali. Neyzlan á síðasta ári var 15,5 kíló. Þjóðverjar borða reyndar minna af fiski heima, en eru farnir að borga meira fyrir það sem þeir borða. Verðhækkanir leiða reynd- ar til minni kaupa, en neytendur eru þó almennt tilbúnir til að borga hærra verð fyrir gæðafisk. Þjóðverjar vilja helzt frosinn fisk, en þar koma þægindi við eldamennsku við sögu, en slaki í efnahagslífi Þýzkalands hefur einnig haft sitt að segja. Frystir fiskréttir með grænmeti njóta mik- illa vinsælda, en ferskur mariner- aður fiskur, til dæmis á spjóti, og kald- og heitreyktur fiskur sækja á. Þrátt fyrir að fiskneyzlan sé að aukast, er sparnaður Þjóðverjum í blóð borinn. Þeir verzla því mest við lágvöruverðskeðjur eins og Aldi og Lidl. Lidl hefur nú lagt áherzlu á sölu á umhverfisvott- uðum fiskafurðum. Þeir eru nú að koma með á markað sex fiskrétti úr alaskaufsa, sem er vottaður af Marine Stewardship Council. Þýzkir borða meira af fiski ÚR VERINU CALIN Popescu Tãriceanu, for- sætisráðherra Rúmeníu, hvetur ís- lensk fyrirtæki til að taka virkan þátt í efnahagsuppbyggingunni í Rúmeníu og fagnar áhuga íslenskra orkufyrirtækja og fjárfestingaraðila á að nýta hreinar orkulindir í land- inu. Þetta kom m.a. fram á fundi for- sætisráðherrans með forseta Ís- lands, Ólafi Ragnari Grímssyni, í gærmorgun á öðrum degi opinberr- ar heimsóknar forsetans til Rúmen- íu. Heimsókninni lauk í gær. Í fréttatilkynningu frá forseta- skrifstofunni kemur m.a. fram að forsætisráðherra Rúmeníu hafi talið reynslu Íslendinga afar forvitnilega því þeim hefði tekist að hefja þjóðina úr fátækt til einhverrar mestu vel- megunar sem þekkist í veröldinni á fáeinum áratugum. Rúmenía þyrfti að ná hliðstæðum árangri. Lýsti for- sætisráðherrann áhuga á að koma í heimsókn til Íslands til að kynna sér nánar íslensk orkufyrirtæki og reynslu þjóðarinnar í þessum efnum. Viðskiptaráðstefna Í gær var einnig haldin mikil við- skiptaráðstefna í Búkarest með þátt- töku fulltrúa fjölda íslenskra og rúmenskra fyrirtækja. Útflutnings- ráð undirbjó ráðstefnuna en þar var sérstaklega fjallað um möguleika á samvinnu í orkumálum. Auk forseta Íslands flutti Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ræðu við opnun ráðstefnunnar. Að ráðstefnunni lokinni tók forseti þátt í blaðamannafundi sem íslenska fyrirtækið Kvos hélt í Búkarest. Þar var tilkynnt að Kvos væri nú að verða stærsta prentfyrirtæki í Suð- austur-Evrópu. Forsetinn var einnig viðstaddur opnun nýrrar skrifstofu fjárfesting- arfyrirtækisins Aska Capital í Búk- arest í gær. Rúmenar fagna áhuga Íslendinga Forsætisráðherra Rúmeníu hvetur íslensk fyrirtæki til að taka virkan þátt í efnahagsuppbyggingunni í Rúmeníu Ljósmynd/Skrifstofa forseta Íslands Viðræður Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og forsætisráðherra Rúmeníu, Cãlin Popescu Tãriceanu, ræddust við í Rúmeníu í gær. Opinberri heimsókn forseta Íslands til Rúmeníu lauk í gær. MÁLEFNI Grímseyjarferjunnar voru til umfjöllunar á fundi fjárlaga- nefndar Alþingis í gær og voru skoð- anir skiptar. Meirihlutinn, skipaður fulltrúum stjórnarflokkanna tveggja, lagði til að reglur um flutning fjár- heimilda milli ára og verkefna yrðu gerðar skýrari. Einnig telur hann að kostnaður við endurbætur skuli framvegis vera færður á stofnkostn- aðarliði en ekki sem rekstrarframlög. „Meirihluti fjárlaganefndar leggur áherslu á að sameiginlegur skilning- ur um grundvallaratriði er varðar framkvæmd fjárlaga þarf hverju sinni að vera fyrir hendi hjá aðilum sem vinna að framkvæmdinni og/eða eftirliti,“ segir í áliti meirihlutans. Fulltrúar minnihlutans, þ.e. stjórn- arandstöðuflokkanna þriggja, lögðu til á fundi nefndarinnar að hún frest- aði fullnaðarafgreiðslu á greinargerð Ríkisendurskoðunar frá 14. ágúst sl. um kaup og endurnýjun Grímseyjar- ferjunnar. Segir í áliti minnihlutans að mikilvægt sé að nefndin taki af- stöðu til ágreinings sem hafi risið milli fjármálaráðuneytis og ráðherra annarsvegar og Ríkisendurskoðunar hins vegar um heimild til að ávísa greiðslum. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs og einn nefndarmanna, segir að í skýrslu meirihlutans sé hvergi tekið á aðalatriðum málsins hvað varðar meðferð fjárreiðulaga. Þar að auki sé ekki vitað hvar málið sé statt hvað varðar kostnað og umfang. Segir Jón það skyldu nefndarinnar að rannsaka málið frekar og fresta fullnaðaraf- greiðslu þess. Á fundinum lagði minnihlutinn til að fjárlaganefnd kallaði á sinn fund fulltrúa ráðgjafarfyrirtækisins Nav- is-Fengs og fulltrúa skipasmíða- stöðvarinnar Orms og Víglundar auk þess að fá fulltrúa úr áhöfn núverandi Grímseyjarferju til að gefa umsögn um hæfi ferjunnar. Þá var óskað eftir því að nefndin kallaði eftir áliti Ríkisendurskoðunar á fullyrðingum um sambærileg „brot“ á ákvæðum fjárreiðulaga og lögfræðiáliti um ágreining fjármála- ráðherra og ríkisendurskoðanda vegna ferjumálsins. Minnihlutinn lagði einnig til að óskað yrði eftir því að fá erindisbréf verkefnishóps sem samgönguráð- herra boðaði í ágúst að yrði skipaður til að fara yfir málið allt. Óeining um ferjumál Minnihluti fjárlaganefndar vildi fresta afgreiðslu í máli Grímseyjarferjunnar STJÓRN Búnaðarsambands Aust- urlands (BsA) hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er harð- lega þeim tillögum sem stjórn MS hefur lagt fram um að leggja niður mjólkurvinnslu á Egilsstöðum. Segir í ályktuninni, að með þessu sé vegið að landbúnaði sem atvinnugrein í heilum landsfjórðungi. Þessi breyting muni veikja stöðu landbúnaðar á svæðinu og erfiðara verði að halda úti fullnægjandi þjón- ustu við atvinnugreinina. Þá segir stjórnin, að í nafni hagræðingar hafi á síðustu árum verið lagðar niður tvær mjólkurstöðvar á starfssvæði BsA, í Neskaupstað og á Vopnafirði. Framleiðsla af þessum svæðum hafi í auknum mæli verið að færast yfir á Fljótsdalshérað og nær núverandi mjólkurstöð. Bændur hafi lagt metn- að sinn í að halda uppi framleiðslu þannig að áfram verði grundvöllur fyrir rekstri samlagsins á Egilsstöð- um eins og lofað var við samruna við MBF. „Þessi þróun í framleiðslu mjólkur sýnir okkur hvað muni gerast hér á næstu árum ef mjólkurstöðin verður lögð niður og mjólkinni ekið til vinnslu og pökkunar í aðra lands- hluta,“ segir í ályktuninni. Vilja áfram mjólkur- vinnslu á Egilsstöðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.