Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 24
matur 24 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Framandi Karrífiskur með kókosmjólk og grænmetishrísgrjónum. Ég hef alltaf haft mikinnáhuga á matargerð ogstarfa nú sem matráðs-kona á leikskólanum Öldukoti þar sem ég reyni að krydda íslenska matinn með framandi rétt- um svona af og til. Börnin og starfs- fólkið eru afskaplega ánægð með þetta,“ segir Renuka Perera, sem fluttist til Íslands frá Kólombó, höf- uðborg Sri Lanka, fyrir ellefu árum. Hún kom fyrst til Íslands sem au- pair í gegnum systur sína sem hér var búsett, en nú er Renuka gift Fransmanninum Jean-Rémi Char- eyre, sem hún hitti í Alþjóðahúsinu fyrir fjórum árum. Saman eiga þau synina Noël-Elías 2 ára og Símon Thomas 15 mánaða og fyrir átti Ren- uka soninn Imesha, sem er í Haga- skóla og æfir nú badminton af kappi með KR. Þrjú tungumál á heimilinu Jean Rémi, sem er frá Le Cheyl- ard, litlu þorpi í Ardéche-sýslu í Suð- austur-Frakklandi, kom til Íslands fyrir fimm árum til að kenna frönsku við Menntaskólann á Laugarvatni, en nú er hann í gítarnámi í Listahá- skólanum í Reykjavík. Að sögn Ren- uku unir fjölskyldan sér vel á Ís- landi. „Sri Lanka er minni eyja en Ís- land, en þar búa 20 milljónir manna á móti þrjú hundruð þúsund íbúum á Íslandi. Miklu dýrara og kaldara er að búa á Íslandi, en Ísland er mun barnvænna og minni stéttaskipting er hér.“ Þrjú tungumál, íslenska, franska og sengala, móðurmál Renuku, eru töluð jöfnum höndum á heimili fjöl- skyldunnar, sem býr í vesturbæ Reykjavíkur, og svo fer þetta allt í einn graut hjá börnunum, segir fjöl- skyldufaðirinn og brosir. Renuka og Jean-Rémi tala nefnilega saman á ís- lensku, en pabbinn talar við börnin á frönsku og mamman á sengala. Renuka segir að matarhefðir Sri Lanka búa séu mjög heilsusamlegar, en dálítið tímafrekar. „Við eldum aldrei minna en tvo til þrjá rétti fyrir hvern málsverð sem við borðum með fersku salati, grænmeti og miklu af hrísgrjónum eða brauði, sem við köllum poppadum. Það eru næfur- þunnar kökur, djúpsteiktar í heitri olíu á pönnu.“ Vill verða „alvöru“ kokkur Hún segir að alltaf eigi að nota ólífuolíu til steikinga vilji menn halda í hollustuna og þó öll framandi krydd fáist nú orðið á Íslandi, kjósi hún að fá sumt sent frá Sri Lanka, t.d. sérstakan kanil, sem þar vex og hefur annan keim en sá sem hér fæst. „Ég á mér þann draum að verða alvöru kokkur með alvöru réttindi og fara kannski út í sjálfstæðan rekstur einhvern tímann þar sem matur yrði í aðalhlutverkinu. Það kemur kannski að því þegar mað- urinn minn er búinn að læra, en ég hef m.a. verið að elda fyrir veislur og Morgunblaðið/G.Rúnar Fjölskyldan Renuka ásamt eiginmanninum Jean-Rémi og sonunum Imesha, Noël-Elíasi og Símoni Thomasi. Kryddar íslenska matinn með framandi réttum „Þetta er besti matur í heimi,“ hafa börnin á leikskólanum Öldukoti sagt um mat- inn hennar Renuku Perera frá Sri Lanka. Jóhanna Ingvarsdóttir smakkaði karrí- fisk með kókosmjólk og grænmetishrísgrjón heima hjá Renuku og fjölskyldu. Matráðskonan Renuka Perera, sem flutti frá Sri Lanka til Íslands fyrir ellefu árum, segir að matargerðin sé mikið áhugamál hjá sér. Íslenskt handverk Fjöldi handverksfólks er starfandi hér á landi og margir sem senda frá sér hina áhugaverðustu hluti þó ekki beri alltaf mikið á þessum gripum í listasöfnum. Í menningarmiðstöð- inni Gerðubergi verður nú á laug- ardag opnuð sýningin Handverks- hefð í hönnun sem er vel þess virði að líta á um helgina. Þar getur að líta verk 34 hönnuða, lista- og hand- verksfólks og má þar nefna þau Önnu Guðmundsdóttur, Ásdísi Birg- isdóttur, Björgu Juto og Friðgeir Guðmundsson, svo nokkur séu nefnd. Sýningin er unnin í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands og Handverk og hönnun og er sett upp í tilefni Norræns heimilisiðnaðar- þings sem haldið verður dagana 26.- 30. september n.k. Eins og titill sýn- ingarinnar ber með sér er markmið Heimilisiðnaðarfélagsins að hvetja til þess að handverkshefðin sé nýtt sem innblástur að nýjum verkum. Og svo allir á völlinn Vinsældir kvennaknattspyrnu hafa aukist þó nokkuð undanfarið í kjölfar góðs gengis stelpnanna „okk- ar“ í leikjum heima sem erlendis. Það er þó ekki bara landsliðið sem á athygli skilda og því tilvalið að bregða sér líka á leiki í bikarkeppn- inni. Nú þegar liggur fyrir að Valur er Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna þetta árið og spennandi að sjá hverjar verða bikarmeistarar nú um helgina. Úrslitaleikurinn um bik- arinn þetta árið verður á milli Kefla- víkur og KR. Það er því um að gera fyrir stuðningsmenn þessara liða og aðra að skella sér á Laugardalsvöll- inn á laugardag kl. 16 og hvetja sín- ar stelpur áfram, það er jú til mikils að vinna. Klassík í Salnum Góð tónlist er sannkölluð næring fyrir sálina og því ekki úr vegi fyrir aðdáendur klassískrar tónlistar að bregða sér í Salinn í Kópavogi annað hvort á laugardag eða sunnudag, en þá mun franski meistarinn Désiré N’Kaoua minnast sjötugustu ártíðar Maurice Ravels með heildarflutningi píanóverka hans. Þetta er í annað sinn sem Désiré N’Kaoua sækir Sal- inn heim, en hann lék áður í TÍBRÁ á fyrsta starfsári Salarins í sept- ember árið 1999. N’Kaoua, erfingi Ravels í tækni, er í dag einn af mjög fáum sérfræð- ingum í tónlist þessa tónskálds, en árangur hans í píanóleik hefur gert hann að eftirsóttum einleikara með mörgum virtum hljómsveitum. Dansað á Gauknum Þeir sem hafa gaman af að stíga sporin á dansgólfinu geta brugðið sér á Gauk á stöng í kvöld og hlýtt þar á nýja hljómsveit, Silfur, og e.t.v. tekið nokkur dansspor, en hljóm- sveitin stefnir ótrauð á ballmark- aðinn. Meðlimir Silfurs koma úr ýmsum áttum og eru því e.t.v. ýms- um kunnir úr fyrri sveitum, en þeir Andri og Svenni spiluðu saman í 8 Villt, Rut söng með Chernobyl, en Stebbi plokkaði síðan bassann í hljómsveitinni Black Out og Leifur gerði síðan garðinn frægan í Euro- vision með lagið Áfram. Sé það hins vegar þyngri taktur sem heillar er um að gera að bíða til morgundagsins, en þá stíga dreng- irnir í Brain Police á svið á Gauknum og lofa þeir bæði þrusurokki og hausaskaki. mælt með …
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.