Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR Frá því að Skotar bönnuðu reyk-ingar á opinberum svæðum hafa undur og stórmerki átt sér stað. Tíðni hjartaáfalla hefur minnkað um 17% af hundraði. Vís- indamenn hafa velt því fyrir sér hvað geti valdið þessu. Ekki hafa matarvenjur Skota breyst eða drykkjusiðir. Það eina sem breyst hefur í jöfnunni lífsstíll Skota er að reykingar hafa verið bannaðar á veitingastöðum og opinberum svæðum.     Óbeinar reyk-ingar í nokkrar klukku- stundir geta haft mælanleg áhrif á blóðið. Líkaminn bregst nefnilega þannig við að sam- loðun blóðkornanna eykst og því þarf ekki nema lítið magn af reyk til að hafa skaðleg áhrif. Ef ein- staklingur er þegar kominn í áhættuhóp geta óbeinar reykingar gert útslagið.     Talið er að reykingabannið hafileitt til þess að 551 Skoti fékk ekki hjartaáfall.     Niðurstöðurnar frá Skotlandi eruí samræmi við það, sem gerst hefur annars staðar í heiminum. Í tímaritinu Der Spiegel í þessari viku er tekin saman tölfræði frá nokkrum stöðum í heiminum. Á Ír- landi hefur hjartaáföllum fækkað um 11% frá því að reykingar voru bannaðar í mars 2004. Eftir að bann var sett í Ítalíu hefur hjartaáföllum einnig fækkað um 11% meðal íbúa undir 60 í Piemont-héraði. Í bænum Pueblo í Colorado í Bandaríkjunum fækkaði hjartaáföllum um 27% árið eftir reykingabann miðað við árið áður. Í bænum Helena í Montana fækkaði hjartaáföllum um 40% eftir að reykingabann var sett 2002. Eft- ir að dómari hnekkti banninu fór hins vegar allt í sama farið aftur.     Efast menn um gildi reyk-ingabanns á veitingastöðum? STAKSTEINAR Óbeinn reykur. Hvað gerðist í Skotlandi? FRÉTTIR                   ! " #$    %&'  (  )*+  ,                   )(!  - ./ 0  & 1 2    - /                  ! !    34     3  5   6 4/ 4  ) /  7  3 % 8! (9: ; 6 $  (                 "          <  )$=>            !  "   #$ )! $$ = )! #  $     %  & +4 +! +4 +! +4 # %$   ' "( )*+ >$ /         =  !    %&  '  !(  )  )#* #*! +     *(     ,      , 1    -. &, !,    * +     *(       *  " / #$ ,-  ..    / *  ' " 5'67 ?6 ?)+7@ AB )C01B+7@ AB .7D2C ,0B ! 012 0! 0! !0 2!    3! !  !0 3! 3! 2! 2! 2! 2!0 0!  13 1 10 1 1 012 01 10 12 1 1 1 1 01            Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Gunnar R. Jónsson | 20. september Bjargar deginum Það er hreint út sagt hressandi að sjá fram- sóknarflórnum mokað út úr stjórnkerfinu. Það var afskaplega erf- itt að koma auga á það hvaða faglegu ástæður réðu því að Alfreð Þorsteinsson, af öllum mönnum, fékk þetta hlutverk enda reynslan af verklegum fram- kvæmdum undir hans stjórn með eindæmum vafasöm. Heilbrigðisráðherra á allt hrós skilið fyrir þessa ákvörðun sína. Meira: grj.blog.is Egill Harðar | 20. september 2007 Ætli þeir hafi verið búnir að hringja í Lippi? Hlutirnir gerast hratt. Maður hefur varla við að fylgjast með. Ég hef enga trú á að Avram Grant þessi verði lengi við völd hjá Chelsea. Hann er einfaldlega ekki af því kalíberi sem menn þurfa að hafa til að tolla í svona starfi. Þá er spurning hvað gerist næst? Meira: egillhardar.blog.is Dagur Snær Sævarsson | 20. sept. Matur eða dóp? Ég hef alltaf haldið að það sé afskaplega auð- velt að smygla inn fíkniefnum sjóleiðina inn í landið. Ef málið á Fá- skrúðsfirði snýst um það er Gæslan vonandi jafnvakandi fyrir smygli og tollgæslan á Leifs- stöð. Ég efast reyndar um að hér sé um að ræða ólöglegar veiðar þessara skútumanna. Ef ég ætti skútu væri ég þó örugglega úti að veiða núna. Meira: maturungafolksins.blog.is Hjörtur J. Guðmundsson | 19. sept. Niðurstaðan ákveðin fyrirfram Sú var tíðin að helzta útspil stuðningsmanna þess að Ísland gengi í Evrópusambandið var að halda því fram að sambandið væri ein- hvers konar Paradís á jörðu sem Ísland yrði að ganga í sem allra fyrst. En fyrir nokkrum árum breyttist boðskapurinn í það að það væri ekki spurning hvort Ísland myndi ganga í Evrópusambandið heldur aðeins hvenær það gerðist. Það væri aðeins tímaspursmál. Und- ir það síðasta hafa umræddir stuðn- ingsmenn bætt um betur og tala nú hver í kapp við annan um það þegar Ísland gangi í Evrópusambandið eins og þeir séu þeim hæfileika gæddir að sjá fyrir um alls óorðna hluti. Vitanlega er hér þó aðeins um ákveðið pólitískt útspil að ræða sem ætlað er að koma því inn hjá fólki að íslenzk Evrópusambandsaðild sé eitthvað óumflýjanlegt, svona rétt eins og dauðann. Skilaboðin eru m.ö.o. þau að íslenzkir kjósendur muni, þegar allt kemur til alls, ekki hafa neitt um málið að segja. Það sé frágengið hvernig það muni fara og því sé tilgangslaust að streitast á móti. Sömu aðilar kalla æ ofan í æ eftir því að farið verði í aðildarviðræður við Evrópusambandið sem allra fyrst og að aðildarsamningurinn verði síðan lagður í þjóðaratkvæða- greiðslu til samþykktar eða synj- unar. En hver er tilgangurinn með því að setja málið í þjóðaratkvæði ef búið er að ákveða niðurstöðuna fyr- irfram? Er þá ekki bara um að al- gert formsatriði að ræða? Að vísu er ekki langt fyrir íslenzka Evrópusambandssinna að sækja for- skriftina. Í Evrópusambandinu er það vinnuregla að í þau fáu skipti sem almenningi er leyft að segja álit sitt á einhverjum samrunaskrefum innan þess (sem er nota bene aldrei að frumkvæði sambandsins sjálfs sem þvert á móti reynir frekar að koma í veg fyrir slíkt) þá er kosið aftur og aftur þar til „rétt“ nið- urstaða fæst og þá er aldrei kosið um málið aftur. Skoðanir almennings eru m.ö.o. algert formsatriði. Niðurstaðan hef- ur þegar verið ákveðin. Meira: sveiflan.blog.is BLOG.IS HVER árstími hefur sinn sjarma og víst er að haustið með allri sinni litadýrð snertir streng í mörgum. Á sumr- in ríkir græni liturinn á litakortinu og í sumar var fjöl- breytni græna litarins óvenju mikil. Kannski hið góða veður hafi átt sinn þátt í því. Eftir sumar kemur haust og gróður fölnar. Þá tekur við skemmtilegur tími þegar allir grænu litir sumarsins breytast í ýmsa liti; gulan, rauðan, appelsínugulan og jafnvel fjólubláan. Þessi ungi maður gengur ákveðinn eftir bakka Tjarn- arinnar í Reykjavík. Ósagt skal þó látið hvert ferðinni er heitið. Morgunblaðið/Kristinn Allir litir haustsins voru grænir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.