Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.09.2007, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Erla Sig-urgeirsdóttir fæddist 31. ágúst 1939. Hún lést 1. september síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sig- urgeir Jóhannsson verkamaður í Reykjavík, f. 13.1. 1911, d. 9.9. 1943, Húnvetningur, og Jóna Ingibjörg Ágústsdóttir hús- freyja í Reykjavík, f. 22.8. 1914, d. 27.2. 1993, Skagfirðingur. Systk- ini Erlu eru Jóhann Björgvin, f. 10.6. 1935, Ingólfur Kristófer, f. 13.8. 1936, Ásthildur Fríða, f. 28.10. 1937, og Soffía Hrefna, f. 14.4. 1941. Erla giftist Erik Ásbirni Carl- sen, f. 22.11. 1935. Þau skildu. kvæntur Jónínu Jónsdóttur, f. 7.10. 1967, synir þeirra eru Jón Ásbjörn, f. 5.6. 1993, og Róbert Elí, f. 22.2. 1996. Sonur Erlu og Ragnars Magnússonar er Magnús Þór, f. 24.11. 1961, var ættleiddur og er skrifaður Jónsson, kvæntur Þórunni Þórisdóttir. Dóttir Erlu og Haf- þórs Edmonds Byrd, f. 15.11. 1943, er Guðrún Auður, f. 13.10. 1964, gift Gunnlaugi Val- týssyni, f. 5.3. 1959. Börn þeirra eru Erla Dögg, f. 1.9. 1984, og Hafþór Örn, f. 18.9. 1985, í sambúð með Helenu Guðmundsdóttir, f. 30.11. 1981, dóttir þeirra er Viktoría Björt, f. 13.6. 1905. Sambýlismaður Erlu er Sig- urður Jónsson. Erla vann ýmis störf og ásamt heimilisstörfum og barnauppeldi mest í Þjóðleik- húsinu og síðan á Nesjavöllum. Erla verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Börn þeirra eru: a) Eiríkur Ásbjörn Carlsen, f. 26.7. 1957. Kona 1 Ragn- heiður Hilm- arsdóttir, f. 17.10. 1962, dóttir þeirra er Sólrún Björk, f. 6.3. 1983, maki 1 Ásmundur Sigfús- son, f. 20.4. 1982, sonur þeirra er Vignir Blær, f. 2.7. 2002, maki 2 Jón Berg Reynisson, f. 1.1. 1983. Kona 2 Guðrún María Guðmundsdóttir, f. 11.6. 1963, dóttir þeirra er Guðmunda Rós, f. 31.1. 1988. Eiríkur flutti til Englands og hefur búið þar í rúm 13 ár. b) Sólrún Björk Eiríksdóttir, f. 4.2. 1959, d. 30.9. 1960. c) Rögnvald- ur Ingi Eiríksson, f. 4.7. 1960, Ég sit hérna og get ekki sætt mig við missinn. Við áttum svo margt eftir að gera og mér fannst eins og við hefðum allan þann tíma sem við þurftum. Ég fékk allt sem ég þurfti af ást, hlýju, hvatningu, hrósi og styrk. Þú lést okkur systkinin ganga fyrir og vannst oft á tíðum á þremur stöðum og greipst svo í prjónana þegar tími gafst en hafðir samt tíma fyrir okk- ur. Fyrst komum við, svo þú, ef af- gangur væri. Ég man hvað ég var stolt af að geta hjálpað þér þegar þú vannst á barnum í hléunum í Þjóðleikhúsinu, þá fórst þú alltof snemma að vinna eftir aðgerð. Þú varst ein að hugsa um heimili og okkur þrjú systkinin og vildir standa þig. Við vorum meira en móðir og dóttir, það viss- um við. Þú bjargaðir þér alltaf þótt við þyrftum að flytja oft, þú vildir enga ölmusu. Elsku mútta mín, ég kem ekki öllu því sem mig langar að skrifa því það er svo margt og ekki til nógu mörg blöð í heiminum. Þú varst að vinna á Nesjavöllum og kynntist Sigga. Hann er góður maður og voruð þið saman, árin liðu og þið áttuð eftir að gera svo margt. Voruð búin að fara tvær ferðir á ferðabílnum og við hittumst í þeirri seinni á Akureyri og þeirri ferð mun ég lifa á. Það var sungið öll kvöld í karókí sem Erla Dögg á, þú hafðir svo gaman af söng. Það yljaði mér um hjartarætur. Engan grunaði að þetta yrðu okkar síðustu dagar í góðra vina hópi. En svo dundu ósköpin yfir. Þú stóðst þig eins og hetja sem þér var lagið. Brostir þegar þú hafðir tök á og enginn vissi það sem koma skyldi. Áttir að fá að fara heim eftir tvær vikur. En svo veiktist þú alvarlega og fórst aftur á gjörgæslu. Ég vissi ekki hvort þú hefðir þrek í meira en þú fórst í langan bardaga. Ég hélt að þú myndir ná þér en þetta varð þér ofviða. Þú reyndir, það veit ég. Varst búin að biðja mig að sjá til þess að þú værir ekki í neinum vél- um ef það væri engin von, vildir aldrei vera byrði en hvernig gastu verið það? Þú átt og áttir allt skilið. Það var komið að þeim tíma sem enginn okkar skildi né vildi, kveðju- stund. Ég stóð við það, þú gafst mér styrk til þess en elsku besta mútta mín ég gerði það af ást, já óendanlegri ást til þín. Lagðist á koddann hjá þér, hvíslaði í eyra þér, tók utan um þig og það erf- iðasta sem ég hef þurft að gera í lífi mínu var að segja; slökkva. Ég þakka þér, elskulega mútta, fyrir allan tíma okkar saman. Þú ert langlangbesta mútta, tengda- mamma, amma og langamma í heimi og þótt víðar væri leitað. Við munum ylja okkur við minningarn- ar um þig. Mig skorti aldrei neitt, þú sást til þess, en lést þig oft á tíð- um sitja á hakanum. Það eru svo margir sem bíða þín, enginn vildi vera án þín, en eigingirnin í mér vildi ekki sleppa þér. En ég sleppti af ást, óendanlegri ást til þín. Nú færð þú að knúsa Sólrúnu systur, þú misstir hana unga, og pabba þinn, sem kvaddi þig fjög- urra ára. Það kemur sá tími sem við hittumst á ný, ég veit að þú verður fallegur, brosmildur engill og ég mun þekkja þig. Elsku besta mútta mín, hvíl í friði, og guð tekur þig í faðm sér og kallar þig lillu Mími. Elsku besta mútta mín, hvíl í friði og guð og englar taka þig í faðm sinn, þú sannarlega gerðir þitt besta sem ekki verður metið til fjár. Þín heittelskandi dóttir Guðrún. Meira: mbl.is/minningar Það er með trega sem maður sest niður og skrifar hinstu kveðju til henna Erlu, Erlu sem hefur verið sambýliskona pabba í rúm 20 ár. Alltaf var gott að leita til hennar og ræða málin því hún gaf sér tíma og hlustaði. Þetta fundu börnin líka fljótt og hændust að henni. Hún hafði einstaklega hlýja nærveru sem var einkenni hennar, það fundu allir. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku pabbi og fjölskyldur, miss- ir ykkar er mikill og megi guð styrkja ykkur. Hanna Björk, Jón Matthías og fjölskyldur. Látin er um aldur fram eftir erfið veikindi kær mágkona og vinur, Erla Sigurgeirsdóttir. Það tekur mann sárt þegar fólk fellur frá á besta aldri og lífárin ættu að geta verið mörg og björt framundan til leiks og verka ef heilsa leyfði. Glaðvær og hress kom Erla inn í fjölskyldu okkar fyrir rétt um 20 árum þegar þau Sigurður bróðir hófu sambúð. Frá fyrsta degi voru öll samskipti við Erlu afar góð, enda tók hún öllum í fjölskyldunni mjög vel, börnum Sigurðar, barna- börnum sem og móður okkar. Hún unni börnum sínum og barnabörn- um mjög og minntist þeirra oft í daglegu spjalli. Erla var myndarkona í alla staði, fáguð til verka og skipti þá ekki máli hvað hún tók sér fyrir hendur. Að standa að veislum og reiða fram góðan mat og meðlæti við hæfi var hennar sérfag, enda var það hennar starf mestan hluta starfsævinnar. Hún hafði yndi af því að klæða sig upp og njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða í góðra vina hópi, hvort sem var heima við yfir kaffi- bolla með fagurt útsýni yfir borgina og fjallasýn til allra átta, á Nesja- völlum, í sumarbústaðarferðum sem víðar. Ferðalög voru henni hugleikin hvort sem var innanlands eða er- lendis og áttu þau Sigurður þar margar góðar ferðir saman, ein á ferð eða í góðra vina hópi, enda var Erla traustur og skemmtilegur ferðafélagi í alla staði. Um skemmtilegar ferðir og góðar sam- verustundir með Erlu væri hægt að skrifa langa grein, en þær minn- ingar verða geymdar og rifjaðar upp síðar í minningu um góða og glaðværa samferðakonu. Fyrir allar þessar stundir fyrr og síðar þökkum við nú að leiðarlok- um. Minningin um Erlu verður okkur kær um ókomin ár, minning um konu sem vildi öllu samferðafólki sínu vel. Við kveðjum Erlu með virðingu og þökk fyrir allt og allt og biðjum góðan Guð að vernda hana. Guð gefi Sigurði, börnum Erlu og fjölskyldum styrk og ljós til fram- tíðar. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Þú hraða tíð, er flýgur fljótt og fyrr en varir hverfur skjótt, en kemur eitt sinn aftur, oss kenn, hve ótt að ævin þver, en eilíft líf í skauti ber Guðs sterki kærleikskraftur. (Valdimar Briem) Ómar Gaukur, Ágústa og fjölskylda. Elsku besta amma. Nú kveðjumst við í bili. (Time to say goodbye.) Fékk þær fréttir að þetta væri búið og að þú værir farin úr þessu lífi. Partur af mér brotnaði í þúsund mola, en hinn parturinn af mér hugsaði að þetta væri kannski betra fyrir þig. Sloppin frá sársauk- anum og kvölunum sem þú talaðir aldrei um. Þú varst þannig að þú sýndir engum ef þér leið illa, vildir alls ekki að fólk hefði áhyggjur af Erla Sigurgeirsdóttir ✝ Hjörtur LíndalGuðnason fædd- ist á Akranesi 16. desember 1963. Hann lést í Reykja- vík 11. september síðastliðinn. Hjörtur var yngstur átta barna, hjónanna Guðna Jóhannesar Ásgeirssonar, f. 1.3. 1930, d. 18.5. 2005 og Sigríðar Hjart- ardóttur, f. 26.10. 1933. Systkini hans eru Elísabet, Hjör- dís Líndal, Jón Geir, d. 27.4. 2007, Ásta Sigríður, Rannveig, Ólöf Kristín og drengur, d. 14.12. 1961. Fyrri sambýliskona Hjartar er Kristín Ósk Guðmundsdóttir, börn þeirra eru: 1) Kristinn Aron, f. 18.12. 1986, sam- býliskona Helga Dís Heiðarsdóttir, f. 29.8. 1988, börn þeirra eru Íris Rán, f. 28.3. 2004, og Guðni Maron, f. 26.12. 2006, 2) Sig- ríður Mist, f. 7.5. 1991, 3) Petra, f. 16.5. 1993, og 4) Ósk, f. 16.5. 1993. Seinni sambýlis- kona Hjartar er Sæ- rún Ágústsdóttir, sonur þeirra er Viktor Frans, f. 28.4. 2003 og stjúpsynir Hjartar eru Matthías, f. 26.6. 1984, Steinar Ernir, f. 27.4. 1991 og Hilmar, f. 23.10. 1992. Útför Hjartar verður gerð frá Akraneskirju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Ástin mín, nú skrifa ég mitt síð- asta bréf til þín. Ég vil þakka þér fyrir allt það góða sem þú gafst mér, sem er svo margt. Á þessum ellefu árum sem við áttum saman gengum við í gegn um svo margt, þessi tími var bæði hamingjuríkur og storma- samur. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að eiga þær stundir með þér þegar þú varst þú sjálfur, því þá sýndir þú þinn innri mann sem var svo mikill húmoristi og mikill sjarm- ör sem heillaðir alla sem umgengust þig. Þú áttir svo marga góða kosti sem þú áttir svo erfitt með að sjá sjálfur þegar þú varst sem veikastur, þá tók einhver annar völdin og þú sjálfur lagðist í dvala. En alltaf beið ég eftir að fá manninn sem ég elskaði svo heitt til baka og alltaf komstu aftur. Ég er þakklát fyrir að hafa aldrei misst vonina en þú varst búinn að missa hana og við því var ekkert hægt að gera. Ég þekkti þig svo vel og þess vegna virði ég þína ákvörð- un. Ég veit að núna ertu á góðum stað og færð þá hvíld sem þú þráðir. Takk fyrir Viktor Frans sem þú elskaðir svo heitt, það var svo sterkt samband á milli ykkar, þú varst svo hamingjusamur fyrstu stundirnar í lífi hans þegar þú hélst á honum og neitaðir að sleppa. Á þeirri stundu tengdust þið sterkum böndum sem aldrei slitnuðu. Missir hans er mikill, hann er svo ungur og skilur ekki af hverju hann fær ekki að hitta pabba. En ég mun halda minningu þinni að honum svo hann gleymi þér aldrei. Takk fyrir uppeldið á strákunum mínum sem þér þótti svo vænt um og reyndist svo vel. Þú varst svo stoltur af að eiga hlut í átta börnum og ég veit að þér þótti sárt að geta ekki sinnt börnunum þínum á Skaganum eins vel og þú vildir, því þér þótti svo vænt um þau en áttir bara svo erfitt með að sýna það. En innst inni vissir þú að þeim þótti innilega vænt um þig og þau vissu að þú elskaðir þau. Ég sé það núna að þú komst til Eyja helgina áður en þú lést til að kveðja okkur og við áttum mjög góðar stundir saman og gott samtal um drauminn okkar um að þú næðir bata og við næðum aftur saman en innst inni vissum við það bæði að þetta var draumur sem aldrei yrði að veruleika og það er svo sárt. En þessi helgi styrkir mig í sorginni og ég varðveiti stundina þegar þú kvaddir og tókst utan um mig og sagðir: „Særún mér þykir svo of- boðslega vænt um þig, þú munt alltaf eiga stóran hlut í hjarta mínu.“ Takk fyrir lagið sem þú sendir mér og sagðir að lýsti þínum tilfinningum til mín. Það er mér ómetanlegt. Lagið er Með þér með Bubba Morthens, sem var þinn uppáhaldstónlistar- maður: Sérðu ekki við fæddumst til að standa hlið við hlið og halda út á veginn saman og líta aldrei við Með þér vil ég verða gamall og ganga lífsins veg með þér er líf mitt ríkara með þér er ég bara ég. Ég votta öllum átta börnunum sem syrgja þig og öðrum aðstand- endum mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning þessa yndis- lega manns. Þín ætíð Særún Ágústsdóttir. Jæja pabbi, þá er okkar tími sam- an búinn. Ég get ekki lýst því hvað ég sakna þín mikið og hversu skrítið það verður að hitta þig ekki aftur. Þú varst alltaf svo hress, skemmtilegur og mjög eftirminnilegur maður, manni leið aldrei illa í návist þinni og þú fékkst mig alltaf til að brosa. Síð- an ertu farinn og ég verð lengi að fylla upp í þessa holu sem þú skildir eftir því mér þótti svo vænt um þig. En ljóðin þín deyja aldrei og ég ætla að láta fylgja ljóð eftir þig sem heitir Takmark: Ég veit að til er betra líf en það sem ég hef lifað í von um að komi betri tíð á því hefur hjarta mitt lifað. Ég hef nú öðlast trú um að ég nái bata viðhorfum mínum þarf að snú þá greið verður mín gata. Aðrir leiðina hafa gengið og hamingjusamir lifa að trúa að þetta geti gengið með því að af mér gefa. Þegar hugsun mín um batabraut og létta lífsins hark að leysast undan lífsins þraut er mitt æðsta takmark. Ég vona að þú hafir náð þínu tak- marki og vona að þú fáir þá hvíld sem þú þarfnast til að takast á við ný verkefni á nýjum og betri stað. Minning þín gleymist aldrei og láttu guð geyma þig. Sjáumst seinna. Með söknuði Kristinn Aron Hjartarson. Ég sit hér og hugsa um þig pabbi minn. Góðu stundirnar okkar sem við áttum t.d. í sumarbústaðnum í fyrra með Viktori, Særúnu og Hilm- ari og þessi stund mun alltaf fylgja mér sem minning okkar. Ég man alltaf eftir þér sem dug- legum og frábærum manni sem elsk- aðir mig. Ég veit að nú ert þú á betri stað og sársaukinn þinn er horfinn. Ég mun aldrei gleyma þér, elsku pabbi minn. Með söknuði Petrea Hjartardóttir. Þú varst í okkar lífi í ellefu ár og á þeim tíma léstu sem við værum þínir eigin synir og þér fannst þú alltaf eiga mikið í okkur. Betri fóstur- pabba og fyrirmynd var ekki hægt að biðja um. Þegar við áttum í erf- iðleikum varstu alltaf til staðar. Þú hafðir svo ríka réttlætiskennd. Það var svo bjart yfir þér þegar þú varst heill heilsu og þægilegt að umgang- ast. Þú hafðir svo mikla ánægju af fótbolta og Manchester United var okkar uppáhaldslið, við horfðum á svo marga leiki saman og gengum í gegnum súrt og sætt. Við munum aldrei gleyma því þegar þú hringdir og sagðir okkur að við værum búnir að eignast lítinn bróður, hann Viktor Frans eða „Bangsa“ eins og þú kall- aðir hann áður en hann kom í heim- inn. Hann Viktor mun aldrei gleyma þér og við munum minna hann á hvað þú elskaðir hann mikið og hvað þú varst góður við hann. Þú mátt vita að við elskuðum þig alltaf og munum alltaf gera. Takk fyrir að vera hluti af okkar lífi og fyrir að ala okkur upp og gera okkur að því sem við erum í dag. Við gleymum þér aldrei og öllu því sem þú gerðir fyrir okkur. Steinar og Hilmar. Okkar fyrstu kynni af Hirti voru fyrir rúmum 10 árum. Hann var þá nýkominn í samband með einni af bestu vinkonum Unnar, Særúnu. Við hittum þau fyrst saman á Akureyri þegar þau komu í heimsókn til okk- Hjörtur Líndal Guðnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.