Morgunblaðið - 21.09.2007, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÁTTA Íslendingar hafa verið hand-
teknir í þremur löndum í tengslum
við eitt umfangsmesta fíkniefnamál
sem upp hefur komið hér á landi.
Magnið er það langmesta sem lagt
hefur verið hald á af hörðum efnum
hér á landi. Fimm mannanna voru
handteknir hér á landi og sitja allir í
gæsluvarðhaldi. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins voru flestir úr-
skurðaðir í varðhald til 18. október
nk., sem þykir fremur langur tími og
til merkis um gríðarmikið umfang
málsins. Ekki er loku fyrir það skot-
ið að fleiri verði handteknir á næstu
dögum.
Ráðist var til atlögu í gærmorgun
við Fáskrúðsfjarðarhöfn og var að-
gerð löggæsluaðila þaulskipulögð og
kom tveimur grunlausum skipverj-
um ómerktrar skútu greinilega á
óvart, þar sem þeir athöfnuðu sig við
bryggjuna. Þeir voru snarlega hand-
teknir og fluttir á brott, líkt og félagi
þeirra sem ók beint í flasið á lög-
reglumönnum þar sem þeir stóðu á
bryggjunni.
Sigldu hingað frá Færeyjum
Skútunni var lagt að bryggju við
frystihús Loðnuvinnslunnar á Fá-
skrúðsfirði á sjötta tímanum í gær-
morgun og samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins var henni siglt hing-
að til lands frá Noregi en með við-
komu í Danmörku og Færeyjum.
Skútan er um þrjátíu fet og talið er
að hún hafi verið tekin á leigu í Nor-
egi.
Í skútunni voru tveir menn sem
voru að sögn sjónarvotts fremur illa
áttaðir. Spurðu þeir fyrst hvort þeir
væru ekki örugglega á Fáskrúðsfirði
og því næst hvort hægt væri að
hringja í frystihúsinu.
Starfsemi í frystihúsinu hefst
venjulega upp úr klukkan sex á
morgnana en starfsmaður er mættur
hálftíma fyrr og ræddi sá við menn-
ina. Leyfði hann þeim að hringja og
að símtalinu loknu héldu mennirnir
sína leið, niður að skútunni.
Sérsveitarmenn úr öllum áttum
Ekki liðu nema nokkrar mínútur
þar til heyrðist í nokkrum jeppabif-
reiðum þeysast um bæinn á miklum
hraða og niður að höfn. Þar voru á
ferð menn úr sérsveit ríkislögreglu-
stjóra sem handtóku mennina tvo á
staðnum – þeir veittu ekki mót-
spyrnu. Skömmu síðar var litlum
gráum bílaleigubíl ekið niður á
bryggju og í honum var ungur mað-
ur, um tvítugt, að sögn sjónarvotta.
Hann var snarlega færður í járn og
voru mennirnir allir fluttir á brott.
Hafnarsvæðinu var lokað af á
meðan lögregla athafnaði sig og fólki
á leið til vinnu í frystihúsinu mein-
aður aðgangur. Það fékk þó að fylgj-
ast með aðgerðum úr fjarlægð.
Á tíunda tímanum kom varðskip
Landhelgisgæslu Íslands til hafnar
og var skútan færð að borðstokk
hennar. Í kjölfarið var framkvæmd í
henni leit og við hana meðal annars
notaðir fíkniefnaleitarhundar. Upp
úr krafsinu kom að nærri 70 kg af
ætluðu amfetamíni voru falin um
borð.
Nefndist Pólstjarnan
Ríkislögreglustjóri og lögreglu-
stjóri höfuðborgarsvæðisins boðuðu
til fundar fyrir hádegi í gær þar sem
greint var frá helstu málavöxtum.
„Rannsókn þessi hefur teygt anga
sína til margra Evrópulanda og hafa
lögreglulið í þessum löndum komið
að henni fyrir tilstuðlan og vegna
tengsla okkar við Evrópulögregluna
Europol,“ sagði Stefán Eiríksson
lögreglustjóri, en þau lönd sem um
ræðir eru Danmörk, Noregur, Fær-
eyjar, Þýskaland og Holland.
Rannsókninni er stjórnað af fíkni-
efnadeild lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu og hófst samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins á síðasta ári.
Hún gekkst undir nafninu Pólstjarn-
an.
Í gær var víða leitað á heimilum og
í bátum vegna málsins, m.a. í Sand-
gerði, Reykjavík, Kaupmannahöfn
og Noregi. Tveir menn voru hand-
teknir á höfuðborgarsvæðinu í kjöl-
farið auk þess sem lögregluyfirvöld í
Noregi og Danmörku tóku einnig
höndum menn sem taldir eru viðrið-
nir málið. Einungis er um Íslendinga
að ræða.
Að sögn lögreglu er rannsókn á
frumstigi og erfitt enn um sinn að
meta hvert umfang hennar verður.
Boðað hefur verið til blaðamanna-
fundar í morgunsárið þar sem frek-
ari upplýsingar ættu að fást.
Fíkniefnamál teygir anga
sína til fimm Evrópulanda
Í HNOTSKURN
»Skútan lagðist að bryggjuí Fáskrúðsfjarðarhöfn á
sjötta tímanum í gærmorgun,
með tvo menn innanborðs.
»Hún var að öllum líkindumleigð í Noregi og siglt
hingað með viðkomu í Dan-
mörku og Færeyjum.
» Í skútunni fundust nærri70 kg af amfetamíni sem
er mesta magn harðra fíkni-
efna sem lagt hefur verið hald
á í einu hér á landi.
Umfangsmikil lögreglu-
rannsókn sem staðið hef-
ur yfir undanfarna mán-
uði skilaði tilætluðum
árangri í gærmorgun
þegar lagt var hald á
nærri 70 kg af amfeta-
míni í ómerktri skútu.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan Hörður Jóhannesson, Jón H.B. Snorrason, Stefán Eiríksson, Haraldur Jóhannessen, Friðrik Smári
Björgvinsson og Jón Bjartmarz gerðu grein fyrir aðgerðum lögreglunnar á blaðamannafundi í gær.
SAMKVÆMT upplýsingum frá
hafnarverði hafnarinnar í Fáskrúðs-
firði er þar lítil umferð skúta,
kannski tvær til þrjár yfir sumartím-
ann. Hins vegar man hann eftir einni
sem lá við bryggju á svipuðum árs-
tíma árið 2005. Um borð voru ungir
bræður, annar búsettur í Noregi en
hinn á Íslandi.
Sú skúta lagðist að bryggju í byrj-
un september og báru skipverjar við
að um vélarbilun væri að ræða – líkt
og í tilviki gærdagsins. Ægir Krist-
insson hafnarvörður segist hafa rætt
við bræðurna og sögðust þeir hafa
stefnt á að fara hringinn í kringum
landið, en þurft frá að hverfa. Þeir
sögðust jafnframt vera að koma frá
Noregi.
Bræðurnir létu sig fljótlega hverfa
og lá skútan bundin við bryggju yfir
veturinn, eða þar til bjóða átti hana
upp vegna vangoldinna hafnar-
gjalda. Þá komu eigendurnir loksins
aftur og sóttu hana.
Ekki er vitað til þess að lögreglan
hafi haft nokkur afskipti af skútunni,
eða hún tekin til tollskoðunar yfir
höfuð.
Skúta kom
frá Noregi
árið 2005
ÞRÁTT fyrir nokkur stór fíkniefna-
mál á undanförnum árum kemst
ekkert þeirra í hálfkvisti við það sem
upp komst í gærmorgun, þegar lagt
var hald á allt að 70 kg af amfeta-
míni.
Í síðasta ári komu upp fjöldamörg
amfetamínmál og m.a. var lagt hald á
næstmesta magn harðra efna í einu
lagi. Það var 3. apríl þegar tollgæsl-
an í Reykjavík fann 42 flöskur með
fíkniefnum í bensíntanki BMW-bif-
reiðar. Flöskurnar innihéldu samtals
15 kg af amfetamíni og 10 kíló af
hassi. Fimm menn voru handteknir í
tengslum við málið, fjórir ákærðir og
dæmdir fyrir innflutninginn, þrír Ís-
lendingar og einn Hollendingur.
6. júlí voru tveir Litháar hand-
teknir eftir að um 12 kg af amfeta-
míni fundust í bensíntanki bifreiðar
þeirra sem flutt var með Norrænu
og tvívegis voru Litháar teknir á
Keflavíkurflugvelli með amfetamín-
basa sem nægt hefðu til að framleiða
13,5 og 17 kg af amfetamíni.
Fjölgun am-
fetamínmála
„ÞETTA mál sýnir okkur hversu mikilvægt
það er að treysta hafnir landsins, Landhelg-
isgæsluna og löggæsluna, því það virðist vera
opin leið á milli Evrópu og Íslands yfir Atl-
antshafið,“ sagði Haraldur Johannessen rík-
islögreglustjóri á fundi með fjölmiðlum í gær-
morgun. Undir þetta tekur
aðstoðartollstjórinn í Reykjavík sem bætir því
við að skútur geti í raun komið tiltölulega auð-
veldlega að landinu hvar sem er, í skjóli myrk-
urs.
„Tollgæslan hefur eftirlit með komu farar-
tækja til landsins en [ef ekki berast tilkynn-
ingar], þá er erfitt að átta sig á því ef einhver
læðist að landi í skjóli myrkurs,“ segir Sig-
urður Skúli Bergsson aðstoðartollstjóri. Hann
segir það því ekki hafa komið sér á óvart að
upp hafi komist um fíkniefnasmygl í gegnum
höfn í smábæ. „Það hefur verið rætt um að
þetta sé viss áhættuþáttur og menn hafa reynt
að vera vakandi fyrir þessum ferðum smábáta.
En það er sama sagan, strandlengjan er löng
og menn geta þess vegna verið að fara í land á
litlum gúmmítuðrum.“
Sigurður Skúli segir eftirlit með höfnun hins
vegar vera nokkuð gott og lítið hafi fundist af
fíkniefnum í minni bátum. „En það eru margar
hafnir og víða hægt að koma að landi þar sem
lögregla eða tollgæsla er ekki til staðar. Þann-
ig að ef menn eru að standa í þessu á annað
borð, þá eru margir möguleikar í stöðunni.“
Erlendar skútur verður að tilkynna til Vakt-
stöðvar siglinga með sólarhringsfyrirvara og
reynir Landhelgisgæslan að fylgjast með
skipaferðum eftir bestu getu. Ríkislögreglu-
stjóri þakkaði m.a. Gæslunni fyrir vel unnin
störf í aðgerðinni og sagði hana væntanlega
ekki hafa heppnast með þeim hætti sem raun
ber vitni, hefði hennar ekki notið við.
Alþjóðleg samvinna ber árangur
Í byrjun árs sendu íslensk lögregluyfirvöld
fulltrúa sinn til evrópsku löggæslustofnunar-
innar Europol og segir ríkislögreglustjóri að
hann hafi gegnt veigamiklu hlutverki í aðgerð-
inni. „Ljóst er að alþjóðleg lögreglusamvinna
er orðin með því móti að íslensk lögregluyfir-
völd geta ekki unnið sína vinnu sómasamlega
nema með þátttöku erlendra löggæslustofn-
ana,“ sagði Haraldur í gær og vísaði þar m.a. í
störf Arnars Jenssonar lögreglufulltrúa, en
starf hans hjá Europol felst m.a. í að tengja
saman löggæslustofnanir.
Arnar sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að um fjörutíu tengslaskrifstofur séu inn-
an Europol. „Það er einn af þessu stóru kost-
um, að við erum í sama húsinu og því í beinu
sambandi við fulltrúa hjá öllum hinum lönd-
unum sem aftur hafa aðgang að upplýsingum
og gagnagrunnum heima fyrir. Þannig er
hægt að koma á tengslum og fylgja eftir að-
gerðum.“
Starf sem ber mikinn árangur
Á umliðnum árum hefur betur og betur
komið í ljós að Íslendingar eru orðnir aðilar að
erlendum glæpasamtökum og því er starf Arn-
ars nær ómetanlegt fyrir lögregluna hér á
landi, þó svo árangurinn af því starfi sé fyrst
að koma í ljós núna.
„Europol sinnir eingöngu verkefnum á sviði
skipulagðrar glæpastarfsemi og hryðjuverka.
Það eru verkefni sem íslensk yfirvöld sáu að
þau þyrftu að tengjast og það hefur borið ár-
angur. Það eru mörg svona verkefni í gangi og
hafa verið í gangi,“ segir Arnar og bætir við.
„Það er alveg klárt mál að það er erfitt fyrir ís-
lensku lögregluna og rannsóknir innan henn-
ar, að ná svona sveigjanlegu og fljótvirku sam-
bandi við marga erlenda aðila á meðan þeir eru
heima á Íslandi. Hér eru reglulega fundir á
meðal fulltrúa þar sem við berum saman bæk-
ur okkar og fylgjum málum eftir, og tengjum
saman rétta aðila,“ sagði Arnar Jensson.
Auðvelt aðgengi í skjóli myrkurs
Ríkislögreglustjóri segir mikilvægt að treysta hafnir landsins, Landhelgisgæsluna og löggæsluna
Fulltrúi íslensku lögreglunnar hjá evrópsku löggæslustofnuninni sinnti lykilhlutverki í málinu
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Leit Lögreglumenn leita um borð í skútunni
sem liggur í Fáskrúðsfjarðarhöfn.
♦♦♦