Morgunblaðið - 21.09.2007, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sími 590 5000
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
8
1
0
2
Eigum frábært úrval nýlegra lúxusfólksbíla og jeppa frá Volkswagen, Audi og Mercedes Benz með
allt að 90% lánum á afar hagstæðum kjörum. Bílarnir eru til sýnis á Bílaþingi, Laugavegi 174.
Opið kl. 10–18 á Laugavegi 174
VW Touareg Dísil R5
skr.d. 29.12.2005
Dráttarbeisli, loftpúðafjöðrun
lykillaust aðgengi, vindskeið
rafmangnsopnun á hlera
leðurinnrétting, krómpakki
Xenon-ljós
Verð 5.690.000 kr.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
RANNSÓKN á fíkniefnamálinu
sem upp kom á Fáskrúðsfirði í
gærmorgun hefur staðið allt frá
því á síðasta ári. Óljóst er hvernig
lögregla komst á snoðir um áform
fimmmenninganna en ljóst er að
mennirnir hafa skipulagt inn-
flutninginn vel, og augljóslega
talið að með því að fara inn um
höfn í smábæ væru þeir hólpnir.
Ekki liggur fyrir hvaðan þeir
keyptu efnin en ef miðað er við
götuverð á einu grammi af am-
fetamíni á Íslandi, sem er um
fimm þúsund krónur, þá er um að
ræða gríðarlega fjármuni, hefði
efnið farið á götuna. Ekki er óvar-
legt að áætla að hægt sé að fá um
og yfir hálfan milljarð króna fyrir
efnin, en það veltur allt á styrk-
leika þess og hversu mikið það er
drýgt með íblöndunarefnum.
Það er því ljóst að margir varpa
öndinni léttar yfir því að menn-
irnir hafi náðst, enda um gríðar-
lega mikið magn að ræða sem
aldrei kemst til íslenskra fíkni-
efnaneytenda.
Enn er rannsókn málsins á
frumstigi og því óvíst hver þáttur
hvers og eins er, og eins hvort að
um sé að ræða burðardýr eða
fjármögnunaraðila og skipu-
leggjendur. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins er alla vega
um að ræða tvo vana sjómenn, og
margt sem bendir til þess að þeir
hafi verið fengnir til þess að flytja
efnin hingað til lands.
E-töfludómar þyngstir
Þyngsti dómur sem fallið hefur
í fíkniefnamáli hér á landi er 10
ára fangelsi. Sá dómur féll í
Hæstarétti í maí árið 2002. Refsi-
ramminn vegna innflutnings á
fíkniefnum var hækkaður úr tíu
árum í tólf vorið 2001 en Hæsti-
réttur sá ekki ástæðu til að full-
nýta hann, og hefur það enn ekki
verið gert í einstöku máli.
Tryggvi Rúnar Guðjónsson var
dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir
innflutning á 17.000 e-töflum, um
200 grömmum af kókaíni og rúm-
lega 8 kg af hassi.
Fyrr sama ár hafði Héraðs-
dómur Reykjavíkur dæmt Aust-
urríkismanninn Kurt Fellner til
12 ára fangelsisvistar en hann var
handtekinn með 67.485 e-töflur
við komuna til landsins í septem-
ber árið 2001. Hæstiréttur mild-
aði hins vegar dóminn niður í níu
ára fangelsi.
Gríðarlegir fjármunir
Mennirnir hefðu getað fengið um hálfan milljarð króna fyrir efnin
Þyngsti dómur sem fallið hefur í fíkniefnamáli er tíu ára fangelsi
Morgunblaðið/Kristinn
Huldir Fimm karlmenn voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar í gærmorgun. Þeir voru allir leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur undir kvöld og úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
!"
„ÁRANGUR lögreglunnar
í dag sýnir, að hún hefur
lagað sig vel að gjör-
breyttum aðstæðum, þegar
leitað er allra ólögmætra
leiða til að koma fíkniefn-
um til landsins.“ Þetta
segir Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra um að-
gerðir lögreglunnar sem
leiddu til handtöku manna
sem grunaðir eru um stórfellt fíkniefna-
smygl.
„Markvisst hefur verið unnið að því und-
anfarin misseri að styrkja innviði lögregl-
unnar með sérsveit og greiningardeild hjá
ríkislögreglustjóra og verkaskiptingu innan
hins nýja lögreglustjóraembættis á höf-
uðborgarsvæðinu. Á allt þetta hefur reynt í
þeirri aðgerð sem lauk í dag og auk þess
samstarf við Europol og lögreglulið ann-
arra landa. Þá lét landhelgisgæslan veru-
lega að sér kveða. Loks reyndi verulega á
hið nýja og öfluga tetra-fjarskiptakerfi. Frá
mínum bæjardyrum séð hefur nú komið í
ljós, hve mikilvægt hefur verið að búa
þannig um hnútana, að þeir, sem gæta ör-
yggis í landinu, geti stillt saman strengina
innbyrðis og gagnvart öðrum þjóðum. Ég
fagna þessum árangri og færi þeim þakkir
og heillaóskir, sem að því hafa komið að
honum var náð,“ sagði Björn.
Höfum lagað
okkur að breytt-
um aðstæðum
Björn Bjarnason