Morgunblaðið - 21.09.2007, Side 20

Morgunblaðið - 21.09.2007, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ TALSVERÐAR breytingar hafa orðið í borgarstjórn Reykjavíkur að undanförnu og má geta þess að Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, sest nú á þing og lætur af starfi borgarfull- trúa. Þorleifur Gunn- laugsson dúklagn- ingameistari verður aðal- fulltrúi í stað Árna Þórs, að sögn Svandísar Svav- arsdóttur, leiðtoga VG í borgar- stjórninni. Þorleifur skipaði þriðja sætið á lista VG fyrir síðustu borg- arstjórnarkosningar. Hann hefur starfað mikið innan VG og meðal annars gegnt formennsku VG í Reykjavík. Árni situr hins vegar út þennan vetur í stjórn Faxaflóahafna. Nýr maður kemur inn í menningar- og ferðamálaráð fyrir VG, Hermann Valsson. Steinunn Valdís Óskarsdóttir sest einnig þing og við stöðu hennar í borgarstjórn fyrir Samfylkinguna tók Sigrún Elsa Smáradóttir. Oddný Sturludóttir situr nú í borgarstjórn fyrir Stefán J. Hafstein sem er í tímabundnu leyfi frá störfum sem borgarfulltrúi. Fyrstu varamenn Samfylkingar eru nú Stefán Bene- diktsson og Guðrún Erla Geirsdóttir sem var í tíunda sæti á lista flokksins í síðustu kosningum. Breyting- ar í borg- arstjórn Þorleifur Gunnlaugsson Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti samhljóða á fundi sínum nú í vikunni tillögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, formanns skipulags- ráðs, að hefja strax vinnu við mótun gæðastefnu í skipulagi og bygging- arlist fyrir Reykjavík. Í sam- tali við Morg- unblaðið segir Hanna Birna markmið gæða- stefnunnar að við- halda og auka enn frekar gæði í manngerðu um- hverfi borg- arinnar og treysta þannig stöðu hennar sem fallegrar, aðlaðandi og spennandi höfuðborgar. „Með stefnunni verði sett fram skýr viðmið og kröfur um gæði jafnt í hönnun sem handverki, þar sem sér- stök áhersla verði lögð á framúrskar- andi byggingarlist, metnað í upp- byggingu og reykvísk sérkenni,“ segir Hanna Birna og tekur fram að mikilvægt sé að átta sig á því hver séu hin reykvísku og íslensku sér- kenni, hvernig best sé að vinna með þau og þróa til framtíðar. Eigum að setja markið hátt „Við erum í raun að segja að okkur langi til að sjá meiri metnað í bygg- ingunum okkar og opnu svæðunum. Okkur langar til að setja skipulags- og byggingarmál á hærra stig. Við er- um komin á þann stað í velsæld og velmegun að hér eiga að vera bygg- ingar og manngert umhverfi á heims- mælikvarða. Við trúum því að við get- um búið til fegurstu borg í heimi, m.a. í gegnum skipulag og byggingar, og okkur finnst að það eigi að setja markið það hátt,“ segir Hanna Birna og tekur fram að þróun slíkrar gæða- stefnu eigi sér erlenda fyrirmynd. Bendir hún í því samhengi á borgir á borð við Barcelona, Kaupmanna- höfn og Helsinki, þar sem borgaryf- irvöld hafi sett sér skýr markmið um hvernig ná megi árangri í fegrun borganna með sérstakri áherslu á metnað og gæði í arkitektúr, hönnun og handverki. Að sögn Hönnu Birnu er ein árang- ursríkasta leiðin til að ýta yndir sköp- un að efna til hugmyndasamkeppna. „Í dag nota menn of sjaldan sam- keppnir sem tæki til að ýta undir það að menn fari raunverulega í keppni um hugmyndir,“ segir Hanna Birna og telur nýafstaðna hugmyndaleit í Kvosinni dæmi um vel heppnaða keppni sem leitt hafi til bestu lausn- arinnar. „Við erum sannfærð um að sú hugmyndaleit skilaði því sem hún skilaði vegna þess að við settum af stað samkeppni hugmynda í stað þess að ráða aðeins einn aðila til verksins.“ Gæðin endurspeglist í hinu smæsta jafnt sem hinu stærsta Segir Hanna Birna ljóst að gæða- stefnan muni gera meiri kröfur til fagaðila og framkvæmdaaðila í borg- inni, en hún muni einnig gera meiri kröfur til borgaryfirvalda um að fylgja af festu aukinni áherslu á gæði og metnað í allri uppbyggingu í Reykjavík. Bendir hún á að borgin sé þegar farin að huga að því að vanda betur til, þegar komi að opnum rým- um borgarinnar og gólfinu í borginni, þ.e. gangstéttum og götum. „Við vilj- um beita gæðastefnuhugsuninni al- veg frá hinu smæsta að hinu stærsta. Um leið og við eigum að auka gæðin í húsunum, byggingunum og mann- virkjunum okkar þá tel ég sér- staklega brýnt að við hugum að opnu rýmunum okkar. Ef við vöndum okk- ur betur í opnu rýmunum, búum t.d. til lítil torg og skemmtileg afdrep fyr- ir fólk útivið, þá leitar fólk meira í þau og þannig skapast meira líf í borg- inni.“ Að sögn Hönnu Birnu verður gæðastefna Reykjavíkur unnin af fimm manna starfshópi, skipuðum af skipulagsráði, í góðu samráði við helstu fag- og hagsmunaðila. Segir hún stefnt að því að ganga frá skipun hópsins snemma í næsta mánuði, en ráðgert er að gæðastefnan liggi fyrir til samþykktar hjá borgaryfirvöldum eigi síðar en vorið 2008. Að sögn Hönnu Birnu verður gæðastefnan fylgiplagg með aðalskipulagi borg- arinnar sem nú er í vinnslu. Langar að sjá meiri metnað Hanna Birna Kristjánsdóttir Reykvísk sérkenni Horft yfir Þingholtin til austurs. Eitt af markmiðunum með mótun gæðastefnu er að menn geri sér betur grein fyrir reykvískum og íslenskum sérkennum þegar kemur að byggingastíl. AKUREYRI Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is MILLJÓNATJÓN varð í tveggja hæða raðhúsíbúð við Steinahlíð í gær eftir að heitavatnsrör á efri hæð gaf sig. Stutt er síðan lokið var við að setja upp ellefu nýjar hurðir á heimilinu en þær eru ónýtar eins og parketið á stofu og svefnher- bergjum, sem einnig er nýlegt, og ýmislegt fleira, t.d. virðist tréhand- rið og hluti veggja mikið skemmt. Þrýstibylgja Ekki er vitað hvenær óhappið átti sér stað því enginn var heima frá því í gærmorgun, en þegar 12 ára dóttir hjónanna kom heim um þrjúleytið var allt á floti og mikil gufa í íbúðinni vegna hitans. Í gærmorgun höfðu orðið tals- verðar skemmdir á nokkrum íbúð- um í sama hverfi og í Síðuhverfi, skammt frá, þegar sjóðandi heitt vatn flæddi um þær. Það er rakið til þess að þrýstibylgja kom á vatnskerfið, á meðan starfsmenn Norðurorku unnu við tengingar, með þeim afleiðingum að öryggis- lokar opnuðust í um 30 húsum, en þeirra hlutverk er að koma í veg fyrir að kerfin í húsunum spryngi. Í einhverjum tilfellum virðast þeir ekki hafa virkað sem skyldi og því fór vatn að leka. Einnig fór inntak við Steinahlíð sem varð til þess að töluvert flæddi þar. Það var ekki öryggisloki sem bil- aði í íbúðinni þar sem skemmdirn- ar urðu mestar heldur virðist rör einfaldlega hafa gefið sig vegna mikils þrýstings á vatninu. Páll Gíslason og Jórunn Jóhann- esdóttir búa, ásamt tveimur dætr- um sínum, í íbúðinni þar sem lang- mesta tjónið varð. Páll gat þrátt fyrir allt brosað í gærkvöldi en sagðist reyndar hafa fengið nóg af vætu þann daginn. „Þetta var góður endir á vondum degi,“ sagði hann eftir að hafa fagnað sigri í úrslitaleik 3. flokks karla í bikarkeppni KSÍ fyrir Norður- og Austurland. Páll þjálf- ar nefnilega strákana í 3. flokki Þórs og fljótlega eftir að ljóst var hvað gerst hafði heima hjá honum þurfti hann að drífa sig á fund drengjanna því úrslitaleikurinn átti að hefjast hálfri annarri klukkustund síðar. Leikið var á Akureyrarvelli – í grenjandi rign- ingu! „Ég er eiginlega búinn að fá alveg nóg af vatni í bili. Það er eins gott að ég á ekki að kenna sund í fyrramálið,“ sagði Páll í gærkvöldi og reyndi að líta á björtu hliðarnar, en hann er íþróttakennari við Síðu- skóla. Las bók um fisk Jórunn eiginkona Páls er leik- skólakennari. Hún hafði ótrúlega sögu að segja: „Ég las í gærkvöldi, af algjörri tilviljun, bók sem heitir Fiskur, en hún fjallar um það hvernig maður getur lifað lífinu betur; hvernig maður getur valið sér viðhorf; hvort maður vill svekkja sig á öllu eða reyna að lifa lífinu jákvæður. Ég held svei mér þá að þessi bók hafi bjargað mér þegar ég kom heim [í dag]. Í stað þess að fara að gráta ákvað ég að vera jákvæð, áttaði mig á því að það þýddi ekkert annað.“ Skemmdir víða Á nokkrum öðrum stöðum í Glerárherfi urðu skemmdir í gær- morgun, sem fyrr segir. Til dæmis flæddi heitt vatn í geymslukjallara í Steinahlíð, steinsnar frá húsi Páls og Jórunnar. Talið er að þar hafi verið 10 cm djúpt vatn og nokkurt tjón varð í geymslum íbúa hússins vegna vatns og gufu. Við Fögrusíðu urðu skemmdir í nokkrum íbúðum en þó ekki veru- legar. Íbúi þar var kominn í jakk- ann og á leið í vinnu um hálf níu leytið þegar hann skaust fram í þvottahús og þá var herbergið orð- ið fullt af gufu og heitt vatn flaut um allt en hann náði að skrúfa fyr- ir. „Ég spyr ekki að leikslokum hefði ég ekki farið fram í þvotta- hús,“ sagði hann við blaðamann. Skemmdir víðar, því þrýstingur kom á vatnskerfið og inntak gaf sig Tjón nemur milljónum eftir að heitavatnsrör gaf sig í íbúð Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ljót aðkoma Slökkviliðsmenn komu á svipstundu í íbúðina við Steina- hlíð og hófu að bjarga hlutum undan vatni og hreinsa til. Í HNOTSKURN »Páll Gíslason og Jórunn Jó-hannesdóttir eiga íbúðina við Steinahlíð þar sem mestar skemmdirnar urðu vegna vatnstjónsins. „Maður verður að horfa á björtu hliðarnar þó íbúðin manns sé full af vatni. En ég get þó ekki annað en hugsað um það hve gríðar- legum tíma við pabbi eyddum í að setja parketið á íbúðina og við að koma upp öllum hurð- unum; nú finnst mér íbúðin nánast vera fokheld; svipuð og þegar við fórum að breyta hér eftir að við fluttum inn fyrir tveimur árum,“ sagði Páll við Morgunblaðið í gærkvöldi. KAUPTILBOÐ barst í síðustu viku, skv. heimildum Morgunblaðsins, í húsið Hafn- arstæti 98, Hótel Akureyri; umtalaðasta hús höfuðstaðar Norðurlands um þessar mundir. Sem kunnugt er stóð til að rífa húsið og reisa nýja byggingu á lóðinni en eftir að húsafriðunarnefnd ákvað í vikunni að leggja til við menntamálaráðherra að friða húsið er óljóst hvert framhaldið verð- ur. Kauptilboðið frá því í síðustu viku kom frá félagi í Reykjavík, sem mun hafa áhuga á því að endurgera húsið. Tilboðið barst Akureyrarbæ, Brauðgerð Kristjáns og Vinstri hreyfingunni – grænu framboði, sem enn eru þinglýstir eigendur hússins. Eitt tilboð borist í Hótel Akureyri KOMIÐ hefur í ljós að ríflega 420 settu nafn sitt undir áskorun til meirihluta bæjar- stjórnar Akureyrar um að hann segði af sér, en ekki 600 eins og greint var frá þegar listarnir voru afhentir bæjar- stjóra nýverið. Áskor- unin var gerð í tilefni þess að fólki á aldrinum 18-23 ára var meinað að gista á tjald- stæðum bæjarins á hátíðinni Einni með öllu um verslunarmannahelgina. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri lagði listana fyrir fund meirihlutaflokk- anna, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. „Í heildina voru þetta ríflega 420 nöfn og þar af um 200 Akureyringar – hinir 200 voru einstaklingar sem búa ekki hér í bæ og eru reyndar víðsvegar að á landinu,“ sagði Sigrún Björk við Morgunblaðið. „Niðurstaða meirihlutafundarins var að þetta gæfi ekki tilefni til afsagnar.“ Telja ekki ástæðu til afsagnar Sigrún Björk Jakobsdóttir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.