Morgunblaðið - 21.09.2007, Page 26
neytendur
26 FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Ég var að hugsa núna umdaginn, á skoðunarferðokkar milli nokkurraþeirra staða sem fram-
leiða og rækta lífræn matvæli á Ís-
landi, að það væri ekki vitlaust að
skipuleggja ferð hingað með hóp við-
skiptafélaga okkar og sýna þeim
hvað er að gerast hér,“ segir Jenni-
fer Vermeulen, þar sem við sitjum í
húsakynnum Yggdrasils við Skóla-
vörðustíg og súpum á lífrænum
ávaxtasafa. Hjá okkur situr Joop Bo-
uwman sem starfar hjá hollenska
fyrirtækinu Natudis, sem líkt og
Rapunzel, fyrirtæki Vermeulen, sér-
hæfir sig í lífrænum matvælum. Ver-
meulen er raunar ein af stofnendum
Rapunzel, en þetta þýska fyrirtæki
ætti að vera fjölmörgum Íslend-
ingum vel kunnugt – að minnsta
kosti ef haft er í huga að sé tekið mið
af höfðatölu, þá neyta Íslendingar
matvæla frá Rapunzel í meira mæli
en nokkur önnur þjóð.
Byrjar allt í grasrótinni
Og Vermeulen heldur áfram að
ræða hugmyndina að Íslandsferð.
„Við förum nú þegar í ferðir með
viðskiptafélaga okkar til Tyrklands
og Ítalíu og Ísland hentar ekki síður
vel.“ Bouwman samsinnir. „Þeir sem
standa að lífrænni framleiðslu hér
þurfa vissulega á þeim stuðningi að
halda sem veita má með því að beina
kastljósinu að þeim. Og það er svo
sannarlega ýmislegt að sjá. Hér
starfar fólk sem gefur sig allt í sína
lífrænu framleiðslu og þó að það sé ef
til vill ólíklegt að Ísland nái að fram-
leiða lífræn matvæli í einhverju
magni fyrir erlendan markað þá er
vissulega hægt að þróa framleiðsl-
una frekar en orðið er,“ segir hann.
Þau Vermeulen og Bouwman búa
yfir mikilli þekkingu á lífrænni mat-
vælaframleiðslu, enda hafa þau bæði
starfað lengi í þessum geira. Ver-
meulen frá 1974 og Bouwman frá
1981. Þau segja þau grasrótina enn
áberandi í lífrænni framleiðslu á Ís-
landi, en þannig þróist þessi fram-
leiðsla víðast hvar í upphafi. Vermeu-
len nefnir Rapunzel sem dæmi, en
fyrirtækið var stofnað 1974. „Við
stofnuðum fyrirtækið sjálf þar sem
að í Suður-Þýskalandi fengum við
ekki þau matvæli sem við vorum vön
í Belgíu. Þannig byrjuðum við á því
að baka brauðin sjálf og rækta græn-
metið.“
Aukin eftirspurn úr austri
Í dag má svo orðið finna víða í
Þýskalandi, og raunar fleiri ríkjum
Evrópu, stórmarkaði sem sérhæfa
sig í lífrænum afurðum.
„Á undanförnum árum hefur orðið
sannkölluð sprenging í Evrópu,“
segir Bouwman. „Áður fyrr sátum
við jafnan uppi með afgangshráefni á
ári hverju, en nú framleiðum við og
framleiðum og það er aldrei nóg.“ Og
það er ekki bara í Vestur Evrópu
sem vinsældir lífrænna matvæla fara
sívaxandi. „Við merkjum verulegan
mun á eftirspurn frá Austur-
Evrópuríkjum á borð við Króatíu,
Tékklandi, Póllandi og svo nátt-
úrulega Rússlandi. Í öllum þessum
löndum eru menn byrjaðir á eigin
framleiðslu að einhverju marki og
flestir vilja fylgja eftir evrópskum
framleiðslustöðlum.“
Jafnvel í Kína vex áhugi á lífrænni
ræktun hröðum skrefum, enda kom-
in þar upp stétt efnafólks með kjör
harla ólík þeim sem þorri kínverskr-
ar alþýðu til sveita þekkir.
Þar gætir hins vegar nokkurrar
tortryggni gagnvart eigin lífrænni
framleiðslu. „Þar gætir nefnilega
stundum svolítils misskilnings gagn-
vart lífrænni ræktun,“ segir Bouwm-
an. „Menn halda að með einni til-
skipan sé hægt að strika út fortíðina
og gera heilu akrana lífræna á auga-
bragði. En það gengur náttúrulega
ekki, því þetta tekur allt tíma. Jarð-
vegurinn þarf til að mynda tíma til
hreinsa sig af þeim tilbúna áburði
sem áður var notaður.“
Í Kína, líkt og víða um heim, má þó
finna ræktendur sem stundað hafa
lífræna ræktun árum saman. „Við
höfum unnið í þó nokkurn tíma með
kínverskum bændum, enda fundum
við virkilega góða vöru þar,“ segir
Vermeulen. „Það gildir þó það sama
þar og annars staðar, það þarf að
sýna fram á að ræktunin uppfylli
okkar lífrænu staðla.“
Staðlar sem neytendur
eiga að geta treyst
Til að fá Evrópumerkið fyrir líf-
ræna ræktun verður að fylgja eftir
nokkuð ströngum stöðlum, þó að
vissulega séu til aðrir strangari og
má þar nefna þýsku staðlana Bioland
og Demeter.
„Evrópustaðallinn er einfaldari en
þessir tveir,“ segir Vermeulen.
„Þannig getur bóndi til að mynda
bæði verið með lífrænt kjúklingabú
og hefðbundið kúabú og samt fengið
Evrópumerkið. Samkvæmt Demeter
og Bioland stöðlunum væri slíkt aldr-
ei samþykkt.“
Tilkoma Evrópumerkisins er þó af
hinu góða að hennar mati, „því þar
erum við komin með eitthvað sem
evrópskir neytendur eiga að geta
treyst. Að hafa of margar merkingar
í gangi verður bara ruglingslegt og
þá er erfitt að vita hvaða merking
stendur fyrir hvað.“
Þó að merkingaflokkum hafi fækk-
að umtalsvert með samræmdum
stöðlum á undanförnum árum getur
engu að síður samt gætt nokkurs
ruglings. Þannig slá sumir til að
mynda saman lífrænni merkingu
matvæla og svo „Fair Trade“ sem
segja má að standi fyrir sanngirnis-
viðskipti. „Þessi merki eiga vel sam-
an og fara stundum saman, en vara
sem er „Fair Trade“ er ekki endilega
lífræn eða öfugt,“ segir Vermeulen,
en Rapunzel hefur komið sér upp
sinni eigin merkingu Hand in hand
sem merki yfir þær vörur fyrirtæk-
isins sem sameina þessa tvo þætti.
„„Fair Trade“ er falleg hugsjón,
það er þó að mínu mati ekki nóg að
vara fari vel af stað, að framleiðslu-
grunnurinn sé að aðstoða fólk við að
Lífræn ræktun mun bara aukast
Morgunblaðið/Frikki
Lífræn framtíð Joop Bouwman og Jennifer Vermeulen telja að sífellt fleiri evrópskir bændur eigi eftir að færa sig yfir í lífræna ræktun á næstu árum.
Sannkölluð sprenging
hefur orðið í eftirspurn
eftir lífrænum matvælum
á sl. árum og ásóknin á
bara eftir að aukast,
heyrði Anna Sigríður
Einarsdóttir hjá þeim
Jennifer Vermeulen og
Joop Bouwman.
bil tíu sekúndur, sem Vík-
verja finnst ansi stutt.
Það er fremur óþægilegt
að þurfa að fálma eftir
nemanum sem kveikir á
vatninu með sápu í
hárinu. Svo er vatnið líka
of kalt að mati Víkverja.
x x x
Annað er það sem Vík-verji á erfitt með að
sætta sig við. Sonurinn
sundelski hóf í haust nám í
sex ára bekk í Vestur-
bæjarskólanum. Eftir
skóla fer hann á frístunda-
heimili og líst Víkverja að mestu vel á
starfið þar. Víkverji er hins vegar
ósáttur, ef ekki reiður, yfir því að einu
sinni í viku er liður í starfsemi heimilis-
ins sem heitir kirkjustarf.
x x x
Víkverji og sonur hans eru ekkiskráðir í trúfélög. Víkverja
finnst fáránlegt að blanda kristni í
skólastarf með þessum hætti. Það er
ekki eins og hann eigi annarra kosta
völ en að senda barnið á frístunda-
heimilið.
Víkverji og sonurhans eru miklir
aðdáendur sundstað-
anna á höfuðborgar-
svæðinu. Á frídögum
þykir þeim gaman að
kíkja í laugarnar og
prófa heita potta, inni-
laugar og rennibrautir.
x x x
Víkverji hefur gamanaf því að bera sam-
an gæði potta í laugun-
um en uppáhaldslaugar
sonarins eru þær sem
bjóða bestu brautirnar.
Um þessar mundir er Lágafells-
laug í Mosfellsbæ vinsæll áfanga-
staður Víkverja. Laugin er nýleg og í
flesta staði vel heppnuð.
x x x
Raunar er það bara eitt sem Vík-verji á erfitt með að fella sig við
í lauginni. Það eru sturturnar, en þær
eru þannig úr garði gerðar að vatnið
rennur aðeins í takmarkaðan tíma.
Þetta er sennilega gert til að spara
vatn. Í Lágafellslaug dugir rennslið
úr sturtunum þó ekki nema í um það
víkverji skrifar | vikverji@mbl.isSölusýning á morgun, laugardag, frá kl.14-16
Reykjavíkurvegur 52A og 52B - Hafnarfirði
Fullbúnar íbúðir fyrir 50 ára og eldri
Vel innréttaðar 3ja og 4ra herb. íbúð-
ir í nýju glæsilegu fimm hæða lyftu-
húsi í Hafnarfirði. Íbúðirnar skilast
fullbúnar með gólfefnum, parketi og flísum og í eldhúsi fylgja uppþvottavél og ísskápur. Sérstæði með
hverri íbúð í lokaðri bílageymslu. Afhending fljótlega. Fullbúin sýningaríbúð: ÍBÚÐ MERKT 303 Í
HÚSI 52B innréttuð frá versluninni EGG.
Lýsing íbúðar hönnuð af LÚMEX. FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali
Sölumenn verða á staðnum.
Nánari upplýsingar ásamt myndum á
www. fastmark.is
M
bl
9
12
52
2