Morgunblaðið - 21.09.2007, Síða 29

Morgunblaðið - 21.09.2007, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 29 hvað rnin okk- tla systir g pabba. u ein- gun á hvað i yfir kkur og við ein- framtíð- því að við hana. kkar islegt á eins og nabólga sem or- En engar rannsóknir gáfu til kynna að staðan væri eins alvarleg og raun ber vitni. Í janúar 2006 var gerð á henni hreyfiþroskaathugun sem kom illa út. Hún reyndist með hreyfigetu á við tveggja mánaða barn, þá orðin sjö mánaða. Auðvitað var það áfall, við höfðum ekki gert okkur grein fyrir því að hún væri svona mikið á eftir þó við vissum að hún væri seinni en eðli- legt teldist. Þroskaathugun leiddi líka í ljós seinkun á andlega sviðinu en þó ekki eins mikla. Við tók sjúkraþjálfun og þroskaþjálfun. Allt virtist þetta hjálpa og skila árangri. Á þessu tímabili vöknuðu samt spurningar í hugum læknanna hvort um lysoso- mal-efnaskiptasjúkdóm væri að ræða og voru því einu sinni enn sendar út blóðprufur. Þær fóru af stað í byrjun febrúar en niðurstöður fengum við 24. maí og þá auðvitað löngu búin að afskrifa að nokkuð kæmi út úr þeim. Þessar niðurstöður leiddu í ljós efna- skiptasjúkdóminn GM-1 sem er hrörnunarsjúkdómur. Dóttir okkar er fjórða barnið á Íslandi sem grein- ist með hann frá 1980. Frekari rannsóknir voru gerðar til að staðfesta greininguna en allt bar að sama brunni, síðast í ágúst 2006. Dóttir okkar var án efa með þennan banvæna sjúkdóm og eng- inn gat sagt til um hversu langan tíma hún hefði. Þroski hennar staðnaði í apríl 2006, þá í kjölfar lungnabólgu. Í október hófust flogin. Í byrjun nóv- ember hætti hún að nærast um munn. Það var líka á þeim tíma sem við fengum síðasta brosið, heyrðum hlátur hennar og skríkjur í hinsta sinn; það var á þessum tíma sem hún hætti að nota hendurnar og hætti að velta sér á milli hliða. Leið- in niður á við var hafin og það ansi bratt. Hinn 1. mars hætti ég að vinna og pabbi hennar fór þá fljót- lega að taka út uppsöfnuð leyfi í sinni vinnu. Litla skottan okkar hefur verið háð súrefnisvél síðan í mars en okk- ur tókst að vera heima, með hjálp margra góðra, til 9. júlí. Þá vorum við líka komin upp að vegg, hún orð- in mikið veik og við algjörlega upp- gefin eftir gjörgæslu síðustu mán- aða. Því ekkert annað í stöðunni en rölta út í sjúkrabíl með litlu fallegu hetjuna okkar, vitandi það að hún kæmi aldrei aftur heim til sín. Þetta voru þung skref, ekki síst fyrir systkini hennar, 7 og 8 ára gömul, nógu gömul til að gera sér grein fyrir alvöru málsins. Síðan eru nú liðnir rúmir tveir mánuðir; í rúma tvo mánuði höfum ég og skruddan mín átt heima á Barnaspítalanum og hinn hluti fjöl- skyldunnar verið þar með annan fót- inn. Þessi aðskilnaður við stóru börnin er eðlilega farinn að setja mark sitt á þau. Þau burðast með ansi mikið á sínum litlu öxlum; þau hafa þurft að taka út skjótan þroska allt of hratt. Sápukúla sakleysisins splundraðist á allt of skömmum tíma. Þau hafa uppgötvað að lífið getur verið erfitt og margt getur komið upp á. Þau eru kvíðin, hrædd og sorgmædd. Þeim finnst lífið svo óréttlátt. Við reynum að spila eins vel úr málum og okkur er frekast unnt en valkostirnir í stöðunni eru alls ekki margir. Litla dóttir okkar er að deyja og við viljum fylgja henni þennan lokaspöl. Því er ekkert ann- að í stöðunni en vera hér hjá henni. Ég labba ekki út og sinni minni vinnu – þetta er mín vinna núna og pabbi hennar er með hinum börn- unum okkar og fer í sína vinnu á morgnana. Eldri börnin þurfa að sinna skól- anum og þurfa að hafa ákveðið ör- yggi; eiga einhvern vísi að fjölskyldu og heimilislífi. Við erum þó alltaf saman um helgar, ýmist hér á spítalanum eða að ég fer heim til þeirra og þá er amma hjá skottunni litlu. Ég er mikið búin að velta því fyrir mér hvort nokkur möguleiki sé að fara með dísina okkar heim en ég sé enga lausn færa í því. Hún er orðin of veik til að við getum annast hana heima þó við séum öll af vilja gerð. Hér á spítalanum ganga þrjár vaktir allan sólarhringinn en heima erum við bara tvö en fáum auðvitað mikla hjálp frá ættingjum, vinum og heilsugæslunni. Ferðirnar á milli eru henni líka ansi þungar og því ekki vel gert að þvæla henni í þær. Auk þess yrði pabbi hennar að hætta að vinna ef við færum heim og það er ekki fýsilegur valkostur í stöðunni þar sem borga þarf reikn- inga og annað jafnt nú sem áður. Við höfum þó verið lánsöm. Í kringum okkur er sterkt net ætt- ingja, vina og kunningja sem hefur rétt okkur hjálparhönd. Haldnir hafa verið tónleikar til styrktar dótt- ur okkar, basarar og tombólur svo eitthvað sé nefnt. Fólk hefur verið okkur gott, vinnuveitendur sýnt okkur mikinn skilning og við því ekki þurft að hafa fjárhagsáhyggjur. Allir sem að þessu máli hafa kom- ið hafa reynst okkur vel og maður gengið undir manns hönd til að láta þetta allt saman ganga upp. Fagfólk hefur verið okkur mikill styrkur og greinilegt að valinn maður er þar í hverju rúmi. Allir hafa lagt sitt af mörkum við að greiða götu okkar í þessari göngu; þessari göngu sem enginn óskar sér að þurfa að fara. Við völdum ekki þessar aðstæður, þær völdu okkur. Við vorum aldrei spurð hvort við værum til í að feta þennan veg, okkur var fengið þetta verkefni og við reynum að leysa úr því eins vel og okkur er unnt. Því angrar mig þáttur ríkisins, nánar tiltekið lög þeirra um launa- greiðslur til foreldra langveikra barna. Þessi lög komu til fram- kvæmda hinn 1. janúar 2006 og voru meingölluð. Bara foreldrar barna sem hlutu greiningu eftir þann dag áttu rétt á þessum greiðslum, ekki foreldrar þeirra fáu barna sem þeg- ar höfðu hlotið sinn dóm og voru að heyja sína baráttu. Þessar greiðslur voru líka settar á í þrepum; foreldrar barna sem greindust 2006 eiga rétt á allt að þremur mánuðum, foreldrar barna sem greinast 2007 eiga rétt á allt að sex mánuðum og foreldrar barna sem greinast eftir 1. janúar 2008 eiga rétt á allt að níu mánuðum, en þá er hámarkinu náð. Enginn á rétt á þessum greiðslum fyrr en öll önnur réttindi eru fullnýtt svo sem sjúkrasjóðurinn. Upphæðin sem við erum að tala um eru liðlega 90.000 krónur fyrir skatt, ætlaðar báðum foreldrum. Mér finnst þessi lög vera ansi reytt og rýr skrautfjöður í hatti fyrrum ríkisstjórnar og því til lítillar prýði. Í raun er skömm að þessu. Enginn í þessum aðstæðum er þar vegna þess að hann hafi valið það. Við eignumst börnin okkar og óskum þeim alls hins besta; við ósk- um þeim heilbrigði og hamingju. Í einstaka tilfellum verður okkur ekki að ósk okkar og í þeim tilfellum er ekkert annað að gera en bretta upp ermarnar, spýta í lófana og gera sitt allra besta. Börnin okkar elsk- um við það heitt, hvort sem þau eru heilbrigð eða ekki. Ég tel að ríkið ætti að sjá sóma sinn í því að gera öllum foreldrum langveikra barna kleift að sinna þeim af allri þeirri alúð og ást sem þeim er unnt að veita, án þess að for- eldrarnir þurfi að hafa áhyggjur af peningum og jafnframt hræðast það að missa heimili fjölskyldunnar. Mér finnst að ríkið þurfi að sýna í verki hinn margrómaða kristilega kærleika og taka jafnframt ábyrgð á þessum litla hópi samfélagsins. Ég hef fulla trú á nýjum félags- málaráðherra og vona að hann vænki hag þeirra sem sitja í líkum sporum og ég. Þeirra sem sitja við rúm fárveikra barna sinna og geta ekki annað. Þessi grein var rituð hinn 17. þ.m. Védís Edda lést aðfaranótt 20. september á Barnaspítala Hringsins. Höfundur er móðir tveggja ára langveikrar telpu. mikilvægast að allir væru með og ekki væri lögð ofuráhersla á afrek þeirra einstaklinga sem vinna gull, silfur eða brons, líkt og raunin er á hinum Ólympíuleikunum. Hún sagði að styrkurinn frá fyrirtækjunum þremur breytti gríðarmiklu og væri mun hærri en hún hefði gert sér von- ir um. Að líkindum hefði tekist að afla fjár til fararinnar með öðrum hætti en það hefði þýtt tíma- og orkufreka fjáröflun auk þess sem væntanlega hefði þurft að ganga í sjóði Íþróttasambands fatlaðra og það fé því ekki nýst til annarra starfa. Mikil lífsreynsla Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er mikill stuðningsmaður Special Olympics hér á landi og situr auk þess í stjórn alþjóðasamtak- anna. Þar sem hann er nú í opinberri heimsókn í Rúmeníu var hann fjarri góðu gamni þegar samningurinn var undirritaður í gær en flutti símleiðis stutt ávarp. Hann fagnaði styrknum og bætti við að vilji íslenskra fyrirtækja til að styrkja fatlaða íþróttamenn hefði vakið athygli á vettvangi Alþjóða- samtaka Special Olympics. Special Olympics væru viðburður á heims- mælikvarða og leikarnir væru stærsti íþróttaviðburður í heimi á þessu ári. Þeir væru sömuleiðis menningarviðburður og mikilvægt innlegg í mannréttindabaráttu því þeir vektu athygli á stöðu þessa hóps. Ólafur Ragnar mun fylgja ís- lenska hópnum til Kína. Hann mun taka þátt í opnunarhátíðinni og fylgjast með fyrstu dagana auk þess sem hann situr ráðstefnu um hvern- ig Special Olympics geta stuðlað að auknum mannréttindum, en Ólafur er einn af skipuleggjendum hennar. Ólafur Ragnar kvað það heiður að fá að fylgja íslenska hópnum út. „En það er líka mjög ánægjulegt per- sónulega því eins og ég sagði í upp- hafi þá hefur fátt gefið mér dýpri líf- reynslu á undanförnum árum heldur en að fá að kynnast þeim árangri sem náðst hefur, gleði þátttakend- anna og fjölskyldna þeirra á leikvell- inum sjálfum, þannig að ég hlakka ekki bara til að taka þátt í þessum formlegu hátíðarhöldum í Shanghai heldur líka að fá að verða vitni að keppni íslensku leikmannanna og minnist ég þá sérstaklega þess fræga knattspyrnuleiks í Norður- Karólínu þegar íslenska liðið sigraði heimamenn með meiri markamun heldur en orðið hefur í nokkrum landsleik í fótbolta af hálfu Íslend- inga,“ sagði hann. Aðspurður kvaðst hann ekki muna betur en að leikurinn hefði far- ið 24-6 Íslandi í vil. Ekki tókst að fá markatöluna staðfesta í gær þótt forsvarsmenn Íþróttasambands fatl- aðra teldu þessa tölu nærri lagi, a.m.k. væru þetta engar ýkjur. Íslenski hópurinn heldur utan 28. september og kemur heim 13. októ- ber. Leikarnir hefjast 2. október og þeim lýkur 11. október. Auk kepp- enda, þjálfara og fylgdarmanna fara 35 aðstandendur með til Kína. Ís- lendingar hafa tekið þátt í sumar- og vetrarleikum Special Olympics frá 1991. Morgunblaðið/G.Rúnar ar Gunnarsson og Rut Ottósdóttir eru meðal 32 Íslendinga á Special Olympics. Í HNOTSKURN » Keppendur á SpecialOlympics eru 7.500 frá 169 löndum. » Íslensku keppendurnirkeppa í átta greinum: boccia, borðtennis, fimleikum, frjálsum íþróttum, golfi, keilu, lyftingum og sundi. Allir sein- færir og þroskaheftir geta keppt. » Öll aðildarlönd samtak-anna Special Olympics nota sama heiti og því er nafn þeirra ekki þýtt á önnur tungumál, nema þar sem ensk tunga er ekki þekkt. » Samtökin voru stofnuð afKennedy-fjölskyldunni ár- ið 1968. keppnisskapið er engu minna Morgunblaðið/Rúnar G. Samningurinn undirritaður Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri á sölusviði Actavis, Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista, Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF, og Pétur Þ. Óskarsson, forstöðumaður kynn- ingarmála Glitnis og stjórnarmaður í Menningarsjóði Glitnis. avík, keppir í borðtennis, sem er mmtileg íþróttagrein,“ að hennar rð kvaðst hún þó lítið fylgjast með sjónvarpinu. „Ég horfi bara á Liv- nefnilega púlari,“ bætti hún við. mjög góð í borðtennis en var ekki fallast á að hún væri best. „Aðal- vera með,“ sagði Soffía Rúna. fjórum sinnum í viku Rut Ottósdóttir úr Ösp er afar pnismaður, bæði hér á landi og á vettvangi. Hún er góð í baksundi, og skriðsundi en því miður öllu undi, að eigin sögn. Rut æfir sund m í viku og árangurinn hefur ekki látið á sér standa; þrír bikarar og 109 verð- launapeningar. Hún býst frekar við því að hún komi með fleiri verðlaunagripi frá Kína. „Ég vona bara að fólkið skemmti sér vel, þeir sem fara með okkur út, horfi á okkur og hvetji okk- ur: Áfram Ísland!“ sagði hún og hló kankvís. Birgir Þórisson frá Ösp keppir í keilu sem hann hefur æft í um þrjú ár. Hann hefur að sögn þjálfara síns, Guðrúnar Hallgrímsdóttur, tekið miklum framförum og tekur nú t.a.m. til- hlaup að brautinni en það er ekki öllum íþrótta- mönnum í þessum flokki gefið. Guðrún segir íþróttastarf sem þetta afar mikils virði. Þjálf- unin sjálf skili sér í betra líkamlegu ástandi og þá sé það mikilvægt fyrir íþróttamennina að finna að þau geti bætt árangur sinn. og gleði í hópnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.