Morgunblaðið - 21.09.2007, Síða 41

Morgunblaðið - 21.09.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 41 Atvinnuauglýsingar ⓦ Blaðberar óskast í Hveragerði Upplýsingar í síma 893 4694 eftir kl. 14.00 Vélstjóri óskast 1. Vélstjóra vantar á m/s Gullberg VE 292. Þarf að geta leyst af sem yfirvélstjóri. Vélarstærð 1056 Kw. Nánari upplýsingar í síma 892-2592. Verktakafyrirtæki í byggingariðnaði óskar eftir að ráða góðan smið eða húsasmíða- meistara sem verkstjóra. Verður að hafa góða stjórnunarhæfileika. Upplýsingar í síma 820 7062 eða 820 7060. Tilvalið fyrir skólafólk Veitingahús og bar í Austurstræti óskar eftir starfsfólki í eftirfarandi stöður: Dyravörslu, á bar og þjóna í sal. Bæði kemur til greina fullt starf og vaktavinna. Uppl. í símum 578 7900, 866 2580, 697 8185. Raðauglýsingar 569 1100 Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir: Haukur EA-76, skipaskr. nr.0236, þingl. eig. Stakkar ehf, gerðarbeiðendur Olíuverslun Íslands hf og Tryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 26. september 2007 kl. 09:30. Sýslumaðurinn á Akureyri, 20. september 2007. Eyþór Þorbergsson, ftr. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrif- stofu embættisins að Borgarbraut 2, Stykkishólmi, sem hér segir: Sæberg SH-475, sknr. 6565, hluti, ásamt rekstrartækjum og veiðiheimildum, þingl. eig. Hafsteinn Guðmundsson og Hafþór Hafsteinsson, gerðarbeiðendur Tryggingamiðstöðin hf og Þrymur hf, vélsmiðja, þriðjudaginn 25. september 2007 kl. 10:00. Sýslumaður Snæfellinga, 20. september 2007. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Selhóll, fnr. 211-4515, Snæfellsbæ, þingl. eig. Jens Sigurbjörnsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf, þriðjudaginn 25. september 2007 kl. 11:30. Sýslumaður Snæfellinga, 20. september 2007. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Hafnarbraut 10, 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-4884), þingl. eig. Aníta Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 26. september 2007 kl. 14:00. Hjallalundur 7a, 01-0101, Akureyri (214-7439), þingl. eig. Ólöf Vala Val- garðsdóttir, gerðarbeiðendur Akureyrarkaupstaður og Íbúðalána- sjóður, miðvikudaginn 26. september 2007 kl. 10:00. Klettaborg 28, íb. 08-0203, Akureyri (227-5157), þingl. eig. Pála Björk Kúld og Leó Magnússon, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf, miðvikudaginn 26. september 2007 kl. 10:30. Sjávargata, fiskvinnsluhús, 01-0101, Hrísey, Akureyri (215-6379) , þingl. eig. Frystihúsið Sandhorni ehf, gerðarbeiðendur Akureyrar- kaupstaður, Íslensk-ameríska versl.fél. ehf, Olíuverslun Íslands hf, Síldarvinnslan hf og Vátryggingafélag Íslands hf, þriðjudaginn 25. september 2007 kl. 14:00. Skíðabraut 3, 01-0201, Dalvíkurbyggð (215-5171), þingl. eig. Orri Hil- mar Gunnlaugsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, miðviku- daginn 26. september 2007 kl. 14:30. Ægisgarður shl. Arnarneshreppi (215-7206), þingl. eig. Heiðar Ágúst Ólafsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 26. sep- tember 2007 kl. 11:30. Öldugata 18, verslun 01-0101, Dalvíkurbyggð (215-6660), þingl. eig. Konný ehf, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, miðvikudaginn 26. september 2007 kl. 15:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 20. september 2007. Eyþór Þorbergsson, ftr. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Eldshöfði 17, 204-2893, Reykjavík, þingl. eig. Faktoria ehf, gerðar- beiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 25. september 2007 kl. 11:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 20. september 2007. Tilboð/Útboð Auglýsing um deiliskipulag hafnarsvæðisins á Þórshöfn, Langanesbyggð Deiliskipulag hafnarsvæðisins á Þórshöfn. Tillaga að deiliskipulagi hafnarsvæðisins á Þórshöfn auglýsist hér með skv. 25. gr. skipu- lags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Tillagan verður til sýnis á skrifstofum Langa- nesbyggðar, Þórshöfn og Bakkafirði, frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka daga frá 21. september 2007 til 19. október 2007. Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist sveitarstjóra Langanesbyggðar eigi síðar en kl. 16.00 föstudaginn 2. nóvember 2007. Hægt verður að nálgast uppdrátt og greinar- gerð á heimasíðu Langanesbyggðar – http://www.langanesbyggd.is – frá og með 21. september 2007. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskil- ins frests, teljast samþykkir tillögunni. Þórshöfn 21. september 2007. Sveitarstjóri Langanesbyggðar Félagslíf I.O.O.F. 12  18892181/2  I.O.O.F. 1  1889218  Raðauglýsingar sími 569 1100 Raðauglýsingar sími 569 1100 FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Einari Hermannssyni skipaverkfræðingi: „Þótt undirrituðum sé þvert um geð að standa í deilum við Gríms- eyinga í fjölmiðlum eða á öðrum vettvangi, þá er ég knúinn til að gera nokkrar athugasemdir við at- riði í grein frá sveitarstjóra Gríms- eyjar sem birtist í Morgunblaðinu 19. september. Ég get ekki lagt dóm á það hvort Grímseyingar voru beittir þrýstingi við kaupin á „Oileain Ar- ann“. Hins vegar árétta ég, að fram til þess tíma sem kaup skips- ins voru ákveðin, í nóvember 2005, þá sat ég einungis einn fund hjá Vegagerðinni með fulltrúa Gríms- eyinga í september 2005 og því vart við mig að sakast um meintan þrýsting. Það er rétt með farið hjá sveit- arstjóranum, að ég, að beiðni Vegagerðarinnar og samgöngu- ráðuneytisins, gerði frumteikning- ar að þeim breytingum sem Gríms- eyingar óskuðu eftir. Þetta gerði ég hins vegar í október 2005, all- nokkru áður en kaup skipsins voru ákveðin. Það skal áréttað að um var að ræða einungis frumdrög og engar kostnaðaráætlanir, enda um- ræddar breytingar og þær sem fram komu seinna hannaðar af verkfræðistofunni Navis-Feng ehf. sem einnig gerði tilheyrandi kostn- aðaráætlanir. Óháð því sem skrifað hefur verið í Morgunblaðinu áður, þá hef ég aldrei sagt að mér blöskruðu óskir Grímseyinga um breytingar á skip- inu, enda ekki mitt að dæma um slíkt. Hins vegar taldi ég, þegar umræddar óskir lágu fyrir, að verkið væri orðið að umfangi víðs fjarri því sem ég og fulltrúi Sam- skipa hf. lögðum upp með í skoðun okkar á skipinu og tilheyrandi skoðunarskýrslu og beindi því til Vegagerðarinnar að hún réði ann- an aðila til að hanna umræddar breytingar og gera útboðslýsingu og kostnaðaráætlanir. Eins og sveitarstjórinn veit mætavel, þótt hann kjósi ekki að geta þess, réð Vegagerðin verkfræðistofuna Nav- is-Feng ehf. til verksins í nóvem- ber 2005 og voru öll samskipti um áðurnefndar breytingar og síðari beint milli Grímseyinga og fulltrúa Navis-Fengs ehf. og því ómaklegt af sveitarstjóranum að gefa annað í skyn. Sveitarstjórinn vísar til fyrir- varalausrar heimsóknar sinnar til Gunnars Gunnarssonar aðstoðar- vegamálastjóra í mars 2007. Álíka fyrirvaralaust hafði Gunnar Gunn- arsson þá samband við mig sím- leiðis og bað mig að fara með Grímseyingum og fulltrúum Navis- Fengs ehf. um borð í skipið í Hafn- arfirði vegna óska Grímseyinga um frekari minniháttar breytingar á skipinu. Þar sem ég starfa fyrir Vegagerðina í mörgum öðrum mál- um en Grímseyjarferju, þá skor- aðist ég ekki undan þessari beiðni Vegagerðarinnar, þótt ég hafi þá ekki átt beina aðkomu að verkefn- inu síðan Vegagerðin réð Navis- Feng ehf. til verksins. Í kjölfar þessarar heimsóknar var síðan fundað með Grímseyingum á skrif- stofu Navis-Fengs ehf. í Hafnar- firði og óskir Grímseyinga af- greiddar í sátt og samlyndi. Til að árétta hversu fjarstæðukenndar aðdróttanir sveitarstjórans og ann- arra um aðkomu mína að þessu máli eru, þá var þetta í eina skiptið sem ég kom um borð í skipið frá komu þess til landsins í apríl 2006 fram til dagsins í dag, eða í sam- tals 17 mánuði. Sveitarstjórinn fullyrðir að skip- ið hafi við kaupin ekki fullnægt tveimur af sex kröfum sem settar voru fram af Grímseyjarnefnd, þ.e. um flokkun né uppfyllt öryggis- staðla fyrir B-siglingaleiðir. „Oilea- in Arann“ var byggt í flokki hjá Lloyds Register of Shipping og var í flokkun hjá félaginu fram til 1997, þegar eigandi mun hafa valið að láta flokkun falla niður. Í öllum skýrslum og umsögnum um skipið komu þessar upplýsingar fram og var ætíð gert ráð fyrir því í skýrslum mínum og fulltrúa Sam- skipa hf. að skipið yrði tekið í flokkun á ný hjá Lloyds Register og gert ráð fyrir kostnaði viðvíkj- andi þeirri framkvæmd. Fullyrðing sveitarstjórans um að skipið upp- fyllti ekki öryggisstaðla á B-sigl- ingaleiðum er beinlínis röng, því það er skjalfest af bæði smíðaaðila skipsins og hönnuðum þess að skipið uppfyllti umrædda staðla. Ég vona síðan að lokum, að sveitarstjórinn leiti á önnur mið, ef honum er kappsmál að finna söku- dólg í þessu máli. Í því samhengi vil ég árétta að ég vinn sem ráð- gjafi fyrir Vegagerðina og skv. orðsins hljóðan þá tek ég engar ákvarðanir í málefnum Vegagerð- arinnar.“ Grímseyjarferjan uppfyllir öryggisstaðla Athugasemd frá Einari Hermannssyni skipaverkfræðingi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.