Morgunblaðið - 21.09.2007, Qupperneq 46
Fyrsta sýning er í Sjallanum á Akureyri í kvöld og fer miðasala fram í Pennanum á Glerártorgi. Miðaverð er 1.900
krónur. Í október verður sýningin svo sett upp í Reykjavík, Vestmannaeyjum, á Egilsstöðum og Grundarfirði.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
ÞRÍR fyndnir menn, þeir Þorsteinn
Guðmundsson leikari, Þórhallur Þór-
hallsson, fyndnasti maður Íslands, og
Úlfar Linnet, sem eitt sinn bar titilinn
fyndnasti maður Íslands, hefja í kvöld
ferð um landið. Tilgangurinn er að
kitla hláturtaugar landsmanna með
uppistandi, en fyrsti viðkomustaðurinn
er Akureyri. „Ég veit ekkert hvað þeir
eru að fara að tala um. Við myndum
bara svona dagskrá saman,“ segir Þor-
steinn um umfjöllunarefnið. „Hver okk-
ar talar um það sem honum býr í brjósti
í svona 15 mínútur – hálftíma.“
Yfirskrift þessara uppistandskvölda
er heimsendir, sem Þorsteinn segir
vera þemað í sínu gríni. „Mín kynslóð
er sú kynslóð sem hefur verið hræddust
í mannkynssögunni, með heimsendi og
plágum og sjúkdómum. Ég er aðeins að
svara fyrir mig í þessu,“ segir Þor-
steinn og nefnir kalda stríðið sem
dæmi. „Sumir virðast vera búnir að
gleyma því, en aðrir segja að það sé að
byrja aftur. En það hefur enginn fengið
að heyra heimsendaspá jafnmikið og
við,“ segir Þorsteinn og vísar þar til
þeirra sem fæddir eru á árunum í
kringum 1968. „Það má kannski segja
að þetta séu þeir sem voru krakkar í
kalda stríðinu, þeir fá nasaþefinn af
þessu. Upp úr því fara heimsendaspár
að verða mikið fjölmiðlaefni og kyn-
slóðin í dag sleppur ekkert, hún er
skjálfandi af hræðslu yfir því að heim-
urinn sé að farast út af mengun, hækk-
andi hitastigi og flóðum. Það eru allir
skíthræddir. Þetta er mikið fréttaefni,
en skemmtiefni um leið.“
Heimsendir í nánd
Úlfar LinnetÞórhallur Þórhallsson Þorsteinn Guðmundsson
Þó maður sé á ein-
hvern hátt einstakur
heima, þá er maður ekkert
einstakur í milljóna sam-
félagi… 51
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
STÓRSÖNGVARINN Garðar Thór Cortes held-
ur tónleika í listamiðstöðinni Barbican Center í
London næstkomandi miðvikudag. Hann segir
tónleikana leggjast mjög vel í sig. „Ég hlakka
bara til. Þetta er æðislegt tónlistarhús, ég hef
mikið farið á tónleika þarna og viðburði en aldr-
ei sungið fyrr en í næstu viku,“ segir Garðar
sem var staddur á eyjunni Jersey í Bretlandi
þegar blaðamaður náði í hann. „Ég og pabbi er-
um hérna í Jersey þar sem ég er með tónleika á
morgun [í dag] fyrir tæplega 3.000 manns.“
Garðar mun einmitt syngja undir stjórn föður
síns, Garðars Cortes, í Barbican Center. „Það er
voðalega þægilegt að hafa pabba með sér og við
vinnum vel saman, enda þekkjum við hvor annan
í gegn,“ segir Garðar sem verður fyrstur Íslend-
inga til að halda einsöngstónleika í þessum tón-
leikasal sem er talinn vera einn sá besti í heimi.
Á tónleikunum syngur Garðar lög af nýútkom-
inni plötu og annað efni við undirleik The Nat-
ional Symphony Orchestra. „Ég flyt mestmegnis
efni af plötunni, enda eru þetta hálfgerðir
útgáfutónleikar í Bretlandi, svo verð ég líka með
önnur lög og óperudúetta með Diddú, þannig að
þetta ætti að vera skemmtileg og áhugaverð efn-
isskrá.“ Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, verður
sérstakur gestur Garðars á tónleikunum og taka
þau a.m.k. þrjú lög saman. „Það er virkilega
gaman að hafa íslenska söngkonu með sér.
Diddú er líka svo æðisleg og gott að vinna með
henni, við tvö ættum að geta haldið uppi stuðinu
á tónleikunum,“ segir Garðar og hlær en hann
og Diddú hafa sungið nokkrum sinnum saman
áður.
„Það kemur enginn í hans stað“
Garðar var nýlega nefndur í Lundúnablaðinu
The Thelegraph sem einn af þeim sem gæti
hugsanlega fetað í fótspor óperusöngvarans Lu-
ciano Pavarotti sem lést nýlega. Spurður hvern-
ig honum hafi litist á þessa samlíkingu blaðsins
er Garðar ekki hrifinn.
„Það er ótrúlegt að vera nefndur í sömu setn-
ingu og Pavarotti en samanburðurinn er í raun-
inni mjög rangur, það stígur enginn í hans spor
og það kemur enginn í hans stað, þannig að ég
hlusta ekki á þetta. Auðvitað er fallegt að fólki
skuli finnast þetta, maður getur ekki fussað við
því, en hitt er annað mál að þetta er alrangt, það
verður enginn Pavarotti númer tvö og ég er eng-
an veginn jafn góður söngvari og hann,“ segir
Garðar af sinni alkunnu hógværð og skynsemi.
Á ferð með Lesley Garrett
Fyrir utan að syngja í Jersey um helgina og í
Barbican Center um næstu helgi er margt og
mikið framundan hjá Garðari. „Eftir tónleikana í
London á miðvikudaginn fer ég í smá tónleika-
ferðalag með Lesley Garrett, verð gestur hennar
á tíu tónleikum fram að áramótum. Svo eftir
áramót fer ég til Sviss að syngja og kem meira
fram í Englandi,“ segir Garðar. Spurður hvort
hann sé ekkert orðinn þreyttur á frægðinni og
þeytingnum sem fylgir henni svarar hann; „Ég
held að þetta sé engin frægð en þeytingurinn er
samt dálítill og auðvitað er hann þreytandi en
þegar maður kemst heim inn á milli og nær að
hlaða batteríin er þetta í lagi.“
Enn eru til miðar á tónleikana á miðvikudag-
inn en Iceland Express býður uppá sérstaka
ferð til London í tengslum við þá. Einnig má
nálgast miða á slóðinni www.ticketmaster.co.uk
Enginn Pavarotti
Cortes Garðar Thór syngur í Barbican Center næstkomandi miðvikudag og verður þar með fyrstur Íslendinga til að halda einsöngstónleika þar.
Þriðja plata Katie Melua, Pict-
ures, er væntanleg. Söngkonuna
langar að koma til Íslands og spila.
„Ég þekki náttúrlega tónlistina
hennar Bjarkar og finnst hún frá-
bær, en kannast ekki við neina
hefðbundna íslenska tónlist. Það
væri gaman að tékka á henni,“ seg-
ir hún. Rætt verður við Katie Me-
hlua í Morgunblaðinu á morgun.
Katie Melua vill kynn-
ast íslenskri tónlist
Heyrst hefur að hin gríðarlega
vinsæla rokkhljómsveit Jeff Who?
ætli að senda frá sér nýja plötu fyr-
ir jól. Nú hefur hins vegar fengist
staðfest að lengri bið verður eftir
annarri plötu sveitarinnar, því hún
kemur ekki út fyrr en í mars eða
apríl á næsta ári. Óþolinmóðir geta
þó fengið forsmekkinn á tónleikum
sveitarinnar á NASA í kvöld...
Ný plata Jeff Who?
væntanleg árið 2008
Hr. Örlygur og Two Little Dogs
Itd. standa fyrir tónleikum í Lond-
on á miðvikudaginn í næstu viku til
að kynna Iceland Airwaves tónlist-
arhátíðina, sem er á næsta leiti.
Meðal þeirra sem fram koma eru
Jan Mayen, Motion Boys og Hafdís
Huld, en þau troða öll upp á hátíð-
inni sem hefst 17. október næst-
komandi. Tónleikarnir eru númer
tvö í röðinni af tónleikaröð sem ber
yfirskriftina Reykjavik Nights in
London.
Hitað upp fyrir
Airwaves í London