Morgunblaðið - 21.09.2007, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2007 47
Óhapp!
eftir Bjarna Jónsson
Leikstjóri Stefán Jónsson
FRUMSÝNING Í KVÖLD
Í KASSANUM
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Föstudagur
<til fjársjóðsleitar>
Nasa
Jeff Who?, Dikta og
Ölvis með tónleika
Oliver
DJ JBK
FÍH-salurinn
Útgáfutónleikar
Sigurðar Flosasonar
Gaukur á Stöng
Hljómsveitin Silfrið
Sólon
DJ Rikki G
Glaumbar
DJ Fannar
Hressó
Public Megabeib og DJ Bjarni
Kringlukráin
Sixties
Prikið
Tónleikar með Indigó. DJ Maggi
Legó
Vegamót
DJ Gorilla funk
Laugardagur
<til láns>
Oliver
DJ Óli Dóri og DJ Símon
Players
Vinir vors og blóma
Gaukur á Stöng
Brain Police og gestir
Players
Austfirðingaball. Fram koma meðal
annars Vax og Dúkkulísurnar.
Barinn
Diskókvöld
Sólon
DJ Rikki G og DJ Brynjar Már
Glaumbar
DJ Fannar
Hressó
Alexander og Örvar. DJ Bjarni
Kringlukráin
Sixties
Nasa
Paparnir
Prikið
Gulli Ósóma
Vegamót
DJ Danni Deluxe
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sætar Dúkkulísurnar leika á Aust-
firðingaballi um helgina.
ÞETTA HELST UM HELGINA»
GLÖGGIR útvarpshlustendur hafa eflaust heyrt nýtt
lag með söngkonunni Birgittu Haukdal sem nýverið
fór að hljóma á öldum ljósvakans. Lagið heitir „Án
þín“ og samdi Birgitta textann sjálf, en lagið er hins
vegar upphaflega með þýsku rokksveitinni Scorpions.
Í þeirra flutningi heitir lagið „Wind Of Change“ og
var það eitt vinsælasta lag veraldar árið 1991.
Lagið „Án þín“ verður annars að finna á nýrri
sólóplötu Birgittu sem væntanleg er í byrjun nóv-
ember. Um er að ræða fyrstu sólóplötu Birgittu, ef
frá er talin barnaplatan Perlur sem kom út árið
2004.
Eins og margir eflaust vita er Birgitta söngkona
hljómsveitarinnar Írafár og svo skemmtilega vill til
að Vignir Snær Vigfússon stýrir upptökum á nýju
plötunni, en hann er einmitt gítarleikari í Írafári.
Birgitta með
nýja plötu
Birgitta Haukdal Ný plata söngkonunnar er væntanleg.
DAVE Grohl, trommari hljómsveit-
arinnar Foo Fighters, lýsti því ný-
verið yfir að Queens of the Stone
Age væri besta hljómsveit sem hann
hefði spilað með. Þessi yfirlýsing
hefur komið mörgum í opna skjöldu,
bæði vegna þess að Foo Fighters er
aðalsveit trommarans, og ekki síður
vegna þess að hann var trommuleik-
ari hinnar goðsagnakenndu rokk-
sveitar Nirvana, sem margir telja
eina bestu rokksveit sögunnar.
„Queens of the Stone Age er besta
hljómsveit sem ég hef nokkurn tím-
ann spilað með, það er enginn vafi á
því,“ sagði Grohl á Radio 1-
útvarpsstöðinni í Bretlandi. „Ég
verð venjulega stressaður áður en
ég fer á svið en ég varð það aldrei
með Queens of the Stone Age því ég
vissi alltaf að áhorfendur yrðu vitni
að því besta sem þeir hefðu séð.“
Betri en
Nirvana?
Reuters
Sérstakur Trommarinn Dave Grohl.