Morgunblaðið - 21.09.2007, Side 56
Morgunblaðið/Golli
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
„ÞAÐ er bara kraftaverk að barnið
skuli lifa. Það er eiginlega bara með
ólíkindum,“ segir Hilmar Andrésson,
afi 8 ára drengs sem féll niður um
þak gamla Blómavalshússins á
þriðjudaginn. Hilmar segir ótrúlegt
að borgaryfirvöld skuli ekki hafa
áminnt eiganda hússins um að loka
því af.
Eftir að Blómaval hætti starfsemi
í húsinu við Sigtún var þar um tíma
sala á eignum Varnarliðsins en Hilm-
ar segir að síðan í apríl á þessu ári
hafi engin starfsemi verið í húsinu.
„Þetta er aðdráttarafl fyrir krakk-
ana og fleiri. Það er rafmagn og hiti á
húsinu og fullt af skúmaskotum til að
fela sig í. Þarna lafa rafmagnssnúrur
niður úr loftinu og þarna er búið að
kveikja í. Þarna hafa fíkniefnaneyt-
endur verið að athafna sig og það er
greinilegt að fólk hefur sofið þarna.“
Júlíus Þór Árnason, sonarsonur
Hilmars, var að leika sér ásamt fé-
lögum sínum í húsinu síðastliðinn
þriðjudag. Klifraði hann, ásamt
tveimur öðrum, upp á þak hússins
sem er úr gleri. „Þeir voru að labba
eftir mæninum, sem er 6-7 cm breið-
ur, þegar honum varð fótaskortur og
rann niður. Glerið hélt honum ekki
og hann hrundi niður fimm metra á
steinflísar fyrir neðan,“ segir Hilm-
ar. Félagar Júlíusar komu honum
heim til eins þeirra en þangað kom
Hilmar og segir hann að við sér hafi
blasað ófögur sjón, enda drengurinn
hálfrotaður og stórslasaður. „Við
fórum með hann á slysavarðstofuna
og þar var honum strax gefið morfín
til að lina verkina. Annar framhand-
leggurinn var þverbrotinn og
mjaðmagrindin sprungin.“ Júlíus
gekkst undir aðgerð aðfaranótt mið-
vikudags en enn er ekki búið að meta
að fullu meiðsl hans. Er ástæðan
m.a. sú að verkir drengsins eru það
miklir að erfitt er að rannsaka hann.
Eykt bregst við slysinu
Hilmar gagnrýnir harðlega að eft-
irlitsaðilar á vegum Reykjavíkur-
borgar skuli ekki hafa gert athuga-
semdir við að engar varúðar-
ráðstafanir eða girðingar hafi verið
settar upp af Eykt, eiganda hússins.
„Ég hef haft samband við Reykjavík-
urborg og þar var bara sagt við mig
að við yrðum að passa börnin okkar
betur!“ segir Hilmar og bætir við að
íbúar á svæðinu hafi um nokkra hríð
haft töluverðar áhyggjur af leik
barna í húsinu.
Gunnar Valur Gíslason, forstjóri
Eyktar, segist harma slysið og vonar
að Júlíus nái sér að fullu. Hann bend-
ir hins vegar á að erfitt sé að koma í
veg fyrir að börn leiki sér þar sem
þau megi það ekki. „Við vorum búnir
að fá tilboð í niðurrif á húsinu og þá
stóð náttúrlega til að girða í kringum
húsið. Auðvitað veldur þetta slys því
að við göngum fyrr í að girða þetta
af. Við viljum ekki að börn slasist í
okkar húsum eða annars staðar.“
Átta ára drengur slas-
aðist illa í yfirgefnu húsi
Borgaryfirvöld
segja að foreldrar
verði að passa bet-
ur upp á börn sín
Fall Hilmar Andrésson bendir á þann stað þar sem sonarsonur hans féll
niður um þakið á gamla Blómavalshúsinu í Sigtúni nú á þriðjudaginn.
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 264. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Stórt fíkniefnamál
Átta Íslendingar hafa verið hand-
teknir í þremur löndum í tengslum
við eitt umfangsmesta fíkniefnamál
sem upp hefur komið á landinu.
Magnið er það langmesta sem lagt
hefur verið hald á af hörðum efnum
hér á landi. Fimm mannanna voru
handteknir hér á landi. » Forsíða
Anna Sigríður valin
Séra Anna Sigríður Pálsdóttir,
prestur í Grafarvogskirkju, verður
fyrst kvenna til að gegna embætti
Dómkirkjuprests, en valnefnd í
prestakallinu ákvað í fyrrakvöld að
mæla með henni. » 4
Hætt við risarækjuna
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
samþykkti í gær að hætta risa-
rækjueldi. Það hefur ekki skilað
tekjum og þarf OR að afskrifa um
114 milljónir kr. vegna þess. » 2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Hvað gerðist í Skotlandi?
Forystugreinar: Börnin okkar
elskum við … | Ábyrgð á farangri
Ljósvaki: Hvar voru konurnar?
UMRÆÐAN»
Niðurbrotnir ferðamenn
Mundu að njóta
Af geði og grænum svæðum
Friðarviðleitni í nafni trúar
ESB neyðir bílafyrirtæki til að …
Mikið, meira og mest
Hvað er Bluemotion?
Um kosti stöðugleikabúnaðar
BÍLAR »
31
31 3 1 1 21 01 2 1 4 "5 #
+ '"
6 0! . + 00
310
31 3 13
1 2130
01 2 1 13
)
7. #
3 31
3 120
10
213 1
01 21
1 89::;<=
#>?<:=@6#AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@#7 7<D@;
@9<#7 7<D@;
#E@#7 7<D@;
#/=##@! F<;@7=
G;A;@#7> G?@
#8<
?/<;
6?@6=#/'#=>;:;
Heitast 10°C | Kaldast 2 °C
Norðan 5-10 m/s og
skúrir eða slydduél
norðanlands, en bjart-
viðri sunnanlands.
Hlýjast suðaustanlands. » 10
Styrkjum var út-
hlutað í gær úr
Menningarsjóði
Glitnis til átta ungra
og efnilegra tónlist-
armanna. »51
TÓNLIST»
Ung og
efnileg
ÍSLENSKUR AÐALL»
Elís Pétursson bakar
góða kanilsnúða. »50
Helgi Snær Sigurðs-
son upplifði martröð
þegar hann mætti á
æfingu hjá kór með
enga reynslu af kór-
söng. »49
AF LISTUM»
Að synda
eða sökkva
TÓNLIST»
Unglingar skemmtu sér
vel í Hafnarhúsinu. »52
UPPISTAND»
Kitla hláturtaugarnar
með uppistandi. »46
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Tugir kílóa af fíkniefnum í skútu …
2. Lögregluaðgerðum að mestu …
3. Skúta skilin eftir á …
4. Fótboltamenn gengu um eins og …
GARÐAR Thór Cortes heldur
tónleika í Barbican Center í
London næstkomandi mið-
vikudag. Garðar verður fyrst-
ur Íslendinga til að halda ein-
söngstónleika í þessum
tónleikasal sem er talinn vera
einn sá besti í heimi.
Garðar var nýlega nefndur
sem einn af þeim sem gætu
hugsanlega fetað í fótspor óp-
erusöngvarans Lucianos Pav-
arottis sem lést nýlega. „Það er ótrúlegt að vera
nefndur í sömu setningu og Pavarotti en sam-
anburðurinn er í rauninni mjög rangur, það stíg-
ur enginn í hans spor og það kemur enginn í hans
stað,“ segir Garðar í Morgunblaðinu í dag. | 46
„Það kemur eng-
inn í hans stað“
Garðar Thór
Cortes
PÁLL Gíslason, íþróttakennari og knatt-
spyrnuþjálfari, brosti í gærkvöldi eftir að strák-
arnir hans í 3. flokki Þórs sigruðu Tindastól frá
Sauðárkróki, 3:1, í úrslitaleik bikarkeppni KSÍ á
Norður- og Austurlandi. Leikurinn fór fram á Ak-
ureyri í töluverðum vindi, og lengstum rigndi eins
og hellt væri úr fötu. Páli var sama um rigninguna
en dagurinn var þó ögn vætusamari en hann
kærði sig um. Fyrr um daginn sprakk heitavatns-
rör á heimili hans og ljóst er að allt parket, hurðir
og fleira í íbúðinni er ónýtt og að tjónið hleypur á
milljónum. Í gærmorgun urðu vatnsskemmdir á
fleiri íbúðum í Glerárhverfi af sömu ástæðu. „Ég
er eiginlega búinn að fá alveg nóg af vatni í bili.
Það er eins gott að ég á ekki að kenna sund í
fyrramálið …“ sagði Páll í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi. | 20
„Búinn að fá nóg af vatni“
Milljónatjón vegna vatnsskemmda í íbúð á Akureyri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Allt af Tryggvi Jóhannsson vann í gærkvöldi við
að taka allt parket af gólfum hjá Páli og Jórunni.