Morgunblaðið - 16.10.2007, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ hefur undir
höndum minnisblað forstjóra OR til
borgarstjóra um sölu á eignarhlut
OR í REI, en minnisblaðið er dag-
sett 7. okt. sl.:
„Orkuveita Reykjavíkur hefur
lagt eftirfarandi til REI:
Sjá töflu
Miðað við gengi dagsins 2,77 er
verðmæti OR í REI kr.
23.052.131.000.
Samrunaferli það sem nú er í
gangi mun taka um 6 vikur en marg-
víslegur lögfræðilegur frágangur
fylgir samrunanum með auglýsingu
og lögboðnum tilkynningum og
frestum.
Að því loknu stendur til að selja
um 20% hlut í félaginu til valinna
þriggja fjárfesta, s.s. banka, sjóða
eða fyrirtækja. Talað hefur verið um
að sölugengi gæti verið 3 til 4.
Miðað við gengi 3 reiknast hlutur
OR á tæpa 25 milljarða.
Miðað við gengið 3,5 reiknast
hlutur OR á rúma 39 milljarða.
Miðað við gengið 4 reiknast hlutur
OR á rúma 33 milljarða.
Söluferlið getur að mínu mati ekki
hafist fyrr en samrunaferlinu er lok-
ið. Þá verður væntanlega komið
gengi á það hlutafé sem þá verður
selt. Ekkert ætti að vera því til
fyrirstöðu að hefja sölu fyrir lok
þessa árs. Fram hefur komið að eft-
irspurn eftir þátttöku í REI er mun
meiri en hægt verður að verða við.
Salan ætti því ekki að verða erfið og
henni mætti ljúka á næsta ári.
OR hefur lagt til REI verðmæti í
peningum (4,6 milljarða) og eignum
Enex, Enex Kína og HS (kr. 9,3
milljarðar) alls kr. 13.864.611.000.
Með samrunanum losnar OR við að
kaupa hlut Hafnarfjarðar í HS sem
er léttir því þeim kaupum fylgir
mikil fjárbinding (ca. 8-9 milljarðar)
en lítil sem engin ávöxtun.
Sala á REI að hluta eða öllu kæmi
til með að létta verulega á fjárhag
OR og fjármunir myndu draga veru-
lega úr lánsþörf vegna þeirra virkj-
ana og framkvæmda sem eru á
teikniborðinu
Að mínu mati á ekkert að vera því
til fyrirstöðu að selja allt hlutaféð á
tiltölulega skömmum tíma. Sölu-
verðið gæti orðið 9-20 milljörðum
meira en OR hefur lagt til félagsins.
Inni í þeirri fjárhæð er verðmæti
þjónustusamningsins sem OR hefur
gert við REI. Við samrunann var
hann metinn á 10 milljarða og samn-
ingurinn er til 20 ára. Þetta svarar
til 500 mkr. greiðslu ári á samnings-
tímanum og fyrirframgreitt. Samn-
ingurinn kveður á um að OR fram-
selji verkefni erlendis til REI og
gerir ráð fyrir að OR leigi starfs-
menn til REI til ákveðinna verk-
efna. OR fær allan kostnað greiddan
með álagi.
Eins og áður segir kæmi sala
hlutafjárins sér vel fyrir OR og létti
umtalsvert á lántökum. Einnig
kæmi til greina að selja að hluta, þ.e.
endurheimta það sem OR hefur lagt
út og selja afganginn þegar félagið
fer á markað. Salan gæti ef vel tekst
til skilað OR verulegum hagnaði og
kæmi þá vel til álita að mínu mati að
greiða hluta hans út til eigenda.
Verði ákveðið að selja nú verða
menn að vera undir það búnir að
svara gagnrýni sem fram kann að
koma fari félagið á markað innan
tveggja ára og gengið verði þá um-
talsvert hærra en hér hefur verið
nefnt.“
Minnisblað forstjóra OR til borgarstjóra 7. okt.
Söluverð REI gæti verið 9-20 milljörðum meira
Þar er innifalið verðmæti þjónustu-
samnings að upphæð 10 milljarðar
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vill maðurinn láta blekkjast?
Því mun enginn svara játandi fyrir sitt leyti.
Ágústínus sagði forðum: „Ég hef kynnst mörg-
um, sem fýsti að blekkja aðra, en engum, sem vildi
vera blekktur“ (Játningar X, 23).
Sömu reynslu hafa allir haft.
Ekkert særir sjálfsvirðingu manns meira en að
reka sig á og verða að viðurkenna það, að hann hafi
verið ginntur, það hafi verið leikið á hann, hann hafi
reynst auðtrúa, talhlýðinn, leiðitamur sér til tjóns
og vanvirðu. Enginn vill verða fyrir slíku. Eða
hvað?
Það gerist samt.
Líka má spyrja: Hver vill láta véla sig undir mis-
kunnarlausa, banvæna þrælkun vímuefna?
Hvernig sem því er svarað, þá gerist þetta.
Hver vill særa og kvelja sína nánustu?
Við því gengst varla nokkur manneskja, sem er
með sjálfri sér.
Það gerist eigi að síður dögum oftar í hverri átt.
Það sem heitir freisting á kristnu máli og freist-
ari er einmitt blekkingin, dulbúin, skartbúin, sem
vélar hugann og dylst, þangað til agnið er komið í
kverkarnar, snaran herðist að hálsi eða gildran
smellur yfir mann.
Enginn vill láta veiða sig. Og þegar menn verða
fyrir því er það naprast af öllu að sjá sjálfan sig eins
og leiksopp annarra, blekktan, blindaðan ómerking.
Þetta sættir sig enginn við meðan eitthvað er eft-
ir af mannlegri sjálfsvirðingu.
Það sjálfsmat verður ekki upprætt úr mennskum
manni, að hann sé ábyrgur gjörða sinna og geti ekki
kennt öðrum um en sjálfum sér, ef hann lætur
blekkjast.
Það segir sú sjálfsvitund, sem er mennsk – á
meðan hún er mennsk.
Og er þá jafnframt samviska.
Menn geta reynt að flýja hana, svæfa hana, lama,
blinda. En hún verður ekki upprætt eða drepin,
hvorki þessa heims né annars.
Sigurbjörn Einarsson
Hvað viltu, veröld? (17)
UMBOÐSMAÐUR Alþingis gerir
ekki athugasemd við þá ákvörðun
rektors Háskóla Íslands að verða
ekki við beiðni
Ágústs Ein-
arssonar prófess-
ors um launalaust
leyfi frá störfum í
þrjú ár á meðan
hann gegnir emb-
ætti rektors við Há-
skólann á Bifröst.
Umboðsmaður hef-
ur hins vegar ritað
bréf til háskóla-
rektors þar sem komið er á framfæri
ákveðnum ábendingum vegna stjórn-
sýslu háskólans í máli Ágústs og í til-
efni athugunar umboðsmanns á því.
Í bréfi umboðsmanns til háskóla-
rektors er m.a. bent á að þrátt fyrir
að mælt hefði verið fyrir um það í 5.
mgr. 11. gr. laga um HÍ frá 1999 að
háskólaráð setti almennar reglur
um launalaust leyfi kennara hefði
háskólinn látið hjá líða að setja regl-
urnar. Það hefði ekki verið fyrr en á
fundi háskólaráðs hinn 11. janúar
2007 sem ákveðið var að skipa
starfshóp til að gera tillögur að
verklagsreglum um slík leyfi.
Ágúst Einarsson sagði í gærkvöldi
að í áliti umboðsmanns kæmi fram
gagnrýni á málsmeðferð Háskóla Ís-
lands sem staðfesti margt af því sem
hann hefði gert athugasemdir við.
Hann væri hins vegar ósammála
öðrum atriðum í áliti umboðsmanns
en myndi una niðurstöðunni. Kvaðst
Ágúst nú vera búinn að segja stöðu
sinni við Háskóla Íslands lausri en
hann hafði verið prófessor þar í
sautján ár.
Unir niður-
stöðu umboðs-
manns
Ágúst Einarsson
MÁL Svandísar Svavarsdóttur,
borgarfulltrúa VG, sem hún höfðaði
til að fá eigendafund Orkuveitu
Reykjavíkur dæmdan ólögmætan,
var þingfest fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, en eins og kunn-
ugt er var samþykkt að málið fengi
flýtimeðferð. Lögmaður Orkuveit-
unnar fór fram á tveggja vikna frest
til að leggja fram greinargerð í mál-
inu og varð Sandra Baldvinsdóttir,
settur héraðsdómari, við þeirri
beiðni. Málið verður því að nýju tekið
fyrir mánudaginn 29. okt.
Eins og fram hefur komið telur
Svandís fundinn hafa verið ólögmæt-
an þar sem til hans var boðað með
innan við sólarhrings fyrirvara en
samkvæmt sameignarsamningi OR á
að boða fundi með viku fyrirvara og
þess vegna beri að ógilda allar
ákvarðanir fundarins.
Fram kemur einnig í stefnu að
sérstök lög hafi verið sett um OR ár-
ið 2001 og þar sé í 11. grein mælt fyr-
ir um að eigendur þess fyrirtækis
skuli gera með sér sameignarsamn-
ing, þar sem fram komi frekari
ákvæði um fyrirtækið en beint séu
tiltekin í lögum. Sameignarsamning-
urinn hafi verið staðfestur af aðilum í
framhaldi af þessari lagasetningu.
„Telur stefnandi því ljóst að þeir sem
á hverjum tíma fara með atkvæði
eigenda í fyrirtækinu hafi ekki frjáls-
ar hendur um að víkja einstökum
ákvæðum samningsins til hliðar eftir
því sem þeim þykir henta.“
Mál Svandísar
þingfest í gær
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
ÉG hef ekki nokkra ástæðu til að
fara með rangt mál í þessu og það
kom alls ekki fram á þessum fundi
að um væri að ræða 20 ára einka-
réttarsamning. Það er bara rangt að
halda slíku fram,“ segir Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri
Reykjavíkur, en greinargerð þeirra
Bjarna Ármannssonar, Hauks Leós-
sonar og Hjörleifs Kvaran um að-
draganda samruna Reykjavík
Energy Invest (REI) og Geysir
Green Energy (GGE) vekur spurn-
ingar um það hvenær Vilhjálmur
vissi um eðli þjónustusamningsins
milli REI og Orkuveitu Reykjavíkur
(OR).
Atburðarásin rakin
Í greinargerðinni er rakin at-
burðarásin í aðdraganda sameining-
ar REI og Geysis Green Energy
(GGE) og er meðal annars vísað til
fundargerða stjórna OR og REI. Er
þar vísað til hluta minnisblaðs þar
sem fram koma helstu þættir varð-
andi sameiningu félaganna. Sam-
kvæmt greinargerðinni kynntu og
afhentu Bjarni Ármannsson, stjórn-
arformaður REI og Haukur Leós-
son, stjórnarformaður OR, Vilhjálmi
Vilhjálmssyni borgarstjóra minnis-
blaðið á löngum fundi á heimili hans
að samningurinn hafi verið kynntur
honum líkt og gert er í minnisblaði
Bjarna Ármannssonar. „Það var
bara talað um að það yrði gert sam-
komulag við REI um að fyrirtækið
keypti sérfræðiþjónustu af OR. En
það var aldrei talað um einkarétt-
arsamning.“ Honum hafi ekki verið
fengið neitt minnisblað og hann
sjálfur eigi engin gögn frá fundin-
um. „[Kynningin] gekk út á að REI
myndi kaupa tækniþjónustu, alveg
eins og tillagan sem lögð var fyrir
stjórn OR. Af hverju var tillagan á
stjórnarfundinum ekki sú að veita
REI 20 ára einkaréttarsamning af
tækniþjónustu? Nei, hún var bara
að veita ætti REI aðgang að tækni-
þekkingu.“ Á fundinum hafi mikið
verið rætt um samrunann. „Það var
verið að tala um hvernig samruninn
gæti átt sér stað og hverjir hefðu
hugsanlega áhuga á að koma inn í
þetta – sem ég áttaði mig ágætlega
á.“
Aðspurður hvenær það hafi verið
sem hann áttaði sig á því hvað fólst í
þjónustusamningnum segir Vil-
hjálmur að það hafi verið daginn eft-
ir stjórnarfundinn í OR, þ.e.a.s. 4.
október. „Þá fór ég til Hjörleifs
Kvaran og spurði hann út í þetta.“
Vilhjálmur segist ekki vita hvers
vegna þremenningarnir ættu að
halda því fram að minnisblaðið hafi
verið lagt fram ef svo hafi ekki verið.
„Málið er einfaldlega að þetta til-
tekna minnisblað sá ég ekki. Þeir
voru með gögn í höndunum sem far-
ið var yfir, en ekki nákvæmlega
þetta blað. […] Ég sá ekki þessa
framsetningu á 20 ára einkaréttar-
samningi.“ Hann segir að eðlilegt
hefði verið að greina honum frá efni
samningsins en það hafi aldrei verið
gert. Ekki frekar en við aðra stjórn-
armenn OR.
daginn eftir, 23. sept. Í minnis-
blaðinu segir orðrétt í tölulið 6:
„Orkuveitan og REI geri samning
sín á milli sem tryggi aðgang að
þekkingu og starfsfólki OR. Jafn-
framt heimili notkun vörumerkisins
að Orkuveitan beini öllum verkefn-
um utan Íslands til REI. Samningur
um slíkt sé til 20 ára.“
Vilhjálmur segir það rétt að fund-
urinn hafi farið fram en hafnar því
Borgarstjóri kannast
ekki við minnisblaðið
Vilhjálmur spurði forstjóra OR um efni þjónustusamnings eftir stjórnarfundinn
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ekkert að fela Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segir fullyrðingar
um að hann hafi verið margsaga í málinu rangar. Hann hafi ekkert að fela.
Við stofnun með hlutafé kr. 2.000.000.000,-
Eignir s.s. hlutur í Enex og Enex Kína kr. 590.004.000,-
Hlutafjárloforð til greiðslu fyrir 1. febr. nk. kr. 2.600.000.000,-
Hlutur OR Í HS, bókfært verð
kr. 8.674.611.000,- á gengi 2,77 kr. 3.132.065.000,-
Alls kr. 8.322.069.00,-