Morgunblaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐURNES
Framkvæmdastjórn Börn voru fengin til að bregða sér í ýmis hlutverk
vegna útgáfu ársskýrslu Heilbrigðisstofnunar. Hér er framkvæmdastjórn
að funda, Drífa Sigfúsdóttir ásamt þremur leikurum, þeim Birtu Rún Ingi-
mundardóttur, Andreu Ósk Sigurðardóttur og Sigurði Helga Sigurðssyni.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Keflavík| „Nú þarf ég að fara í það að
ljúka meistaranámi mínu. Ég þarf að
gera nýtt verkefni og vona að reynsla
mín hér nýtist við það,“ segir Drífa
Sigfúsdóttir sem starfað hefur sem
framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja í eitt ár í leyfi Sigríð-
ar Snæbjörnsdóttur. Sigríður er nú
að koma heim, eftir að hafa unnið að
verkefni á vegum Þróunarsamvinnu-
stofnunar Íslands í Malaví í eitt ár.
„Það verður átak að taka aftur til
við að ljúka náminu, eftir að hafa slitið
sig frá því í eitt ár,“ segir Drífa. Hún
var í námi í mannauðsstjórnun við
Háskóla Íslands. Var byrjuð á verk-
efni sem snerist um samruna og yf-
irtökur en vegna breytinga í skólan-
um getur hún ekki haldið því áfram.
Hún hefur nú fengið augastað á verk-
efni á heilbrigðissviði og vonast til að
geta nýtt sér reynsluna úr þessu eins
árs starfi við Heilbrigðisstofnunina
við það.
Of mikill tími í peningamálin
Drífa segist hafa haft mikla
ánægju af því að starfa hjá Heilbrigð-
isstofnuninni þennan tíma og kynnast
því góða fólki sem þar vinnur. Hún
segir að starfsmannamálin séu mest
ögrandi enda tengist þau námi henn-
ar.
Fjármálin eru sífellt viðfangsefni
framkvæmdastjóra heilbrigðisstofn-
ana og segir Drífa að það fari of mikill
tími í að útvega peninga. Í lok síðasta
árs fékk Heilbrigðisstofnunin auka-
fjárveitingu sem hreinsaði upp halla
sem safnast hafði upp en Drífa segir
að það hafi ekki dugað til. Þannig
stefnir í hallarekstur í ár.
Að sögn Drífu stafar það ekki síst
af mikilli uppbyggingu á Suðurnesj-
um og fjölgun íbúa. Þannig fjölgaði
íbúum á Suðurnesjum um 5,5% á milli
áranna 2005 og 2006 og útlit er fyrir
svipaða fjölgun í ár. Fjárveitingar
taka ekki mið af þessari öru fjölgun
og það hefur skapað erfiðleika og
auka kostnað við heilsugæsluna og
fleiri þætti. „Við hefðum þurft að hafa
meiri fjármuni til að mæta þessu. Við
verðum að sinna þessu fólki, getum
ekki lokað,“ segir Drífa. Sömuleiðis
nefnir hún að tvö rúm vanti í reikni-
líkan sem fjárveitingar taki mið af og
við það verði stofnunin af 36 milljóna
króna tekjum.
Unnið hefur verið að því að taka
svonefnda D-álmu í notkun. Búið er
að innrétta 3. hæð hússins en þar
verða þrjár skurðstofur en auk þess
skrifstofa, fundarsalur og fleira. Enn
vantar fjármuni til að ljúka verkefn-
inu en Drífa vonast til að hægt verði
að kaupa tæki á skurðstofurnar og
taka þær í notkun í byrjun næsta árs.
Drífa rifjar það upp í þessu sambandi
að hún var formaður samninganefnd-
ar þegar samið var um D-álmuna á
sínum tíma en hún var þá forseti bæj-
arstjórnar í Keflavík. Því hafi verið
ánægjulegt að koma aftur að þessu
verkefni.
Vonar að reynslan nýtist
í lokaverkefni í náminu
Í HNOTSKURN
»Rúmlega tvö þúsund inn-lagnir voru á sjúkrahúsið í
Keflavík á síðasta ári og legu-
dagar tæplega tuttugu þús-
und. Framkvæmdar voru yfir
eitt þúsund skurðaðgerðir.
»Tæplega 60 þúsund mannskomu í viðtöl á heilsu-
gæslustöð. Starfsemi heima-
hjúkrunar jókst um 31% frá
árinu á undan.
»Á árinu fæddust 206 börn,þar af tvennir tvíburar.
Grindavík | Bæjarstjórn Grindavík-
ur hefur samþykkt að láta útbúa
útboðsgögn fyrir fyrsta áfanga nýs
grunnskóla í bænum. Skólinn verð-
ur í Hópshverfi, í nágrenni íþrótta-
vallarins í Grindavík.
Í samþykkt bæjarstjórnar, sem
allir bæjarfulltrúar stóðu að, er
forstöðumanni tæknideildar falið
að vinna að gerð útboðsgagna fyrir
1. áfanga grunnskólans í Hóp-
shverfi og leggja fyrir bæjarráð.
Íbúum hefur fjölgað mikið í
Grindavík og ný hverfi eru að
byggjast upp. Umræður og und-
irbúningur að byggingu nýs grunn-
skóla hefur staðið yfir í ár og ligg-
ur fyrir teikning að fullbúnum
skóla.
Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri
segir að unnið verði áfram að und-
irbúningi í vetur og síðan muni
bæjarstjórn taka ákvörðun um út-
boð. Segir hann að úr þessu sé ekki
ráðlegt að reikna með að skólinn
taki til starfa fyrr en haustið 2009.
Miðað er við að í fyrsta áfanga
verði sex stofur og þar verði
yngstu bekkjunum kennt, 100 til
120 nemendum. Eldri nemendur
munu ljúka skólagöngu sinni í
Grunnskóla Grindavíkur. Reiknað
er með að fyrsti áfangi kosti yfir
hálfan milljarð króna. Áætlanir
miða við að fullbyggður verði nýi
grunnskólinn tveggja bekkjadeilda
skóli fyrir alla árganga.
Áhugi á framhaldsskóla
Áhugi er á því innan bæj-
arstjórnar að koma upp námi á
framhaldsskólastigi í Grindavík.
Ólafur Örn segir að ýmsar hug-
myndir séu uppi í þeim efnum. Sér-
stakur áhugi sé á því að hefja bók-
legt nám fyrstu tveggja bekkja
framhaldsskóla þannig að nem-
endur geti lengur notið þess að
sækja skóla í heimabyggð. Fleiri
hugmyndir hafa verið til umræðu,
meðal annars í samvinnu við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja.
Útlit Nýi grunnskólinn í Grindavík verður í Hópshverfi, rétt við íþrótta-
svæði Grindvíkinga. Útlitsteikningin er frá Kollgátu ehf.
Undirbúa grunn-
skóla í Hópshverfi
Eftir Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjar | Kiwanismenn í
Vestmannaeyjum minnast þess að
fjörutíu ár eru frá því Kiwanisklúbb-
urinn Helgafell var stofnaður. Fyrsta
félagsheimili klúbbsins stóð við
Heimatorg og fór undir hraun hinn
27. mars 1973. Kiwanismenn hafa
komið fyrir minnisvarða um þetta
fyrsta félagsheimili sitt á hrauninu,
yfir staðnum þar sem húsið stóð. Það
var því við hæfi að stjórnarskipti á af-
mælisárinu yrðu við minnisvarðann
þar sem Gísli Valtýsson tók við af
Kristjáni Björnssyni sem forseti
Helgafells.
Kiwanisklúbburinn Helgafell er
um margt sérstæður því hann er sá
fjölmennasti hér landi, með liðlega 80
félaga og hann var fyrsti Kiwanis-
klúbburinn í Evrópu sem eignaðist
eigið félagsheimili. Þótt klúbburinn
sé að komast á miðjan aldur er engan
bilbug á félögunum að finna. Góður
fulltrúi þeirra er Sigurfinnur Sig-
urfinnsson teiknikennari. Hann er
ekki meðal stofnfélaga en var annar
tveggja sem fyrst voru teknir form-
lega inn eftir að klúbburinn var stofn-
aður.
Félagsheimilið fór undir hraun
„Ég var tekinn inn á þorrablóti
sem klúbburinn hélt í febrúar 1968 en
hann var stofnaður í september árið á
undan. Er ég félagi númer 28, ef ég
man rétt,“ segir Sigurfinnur um
fyrstu kynni sín af Kiwanisklúbbnum
Helgafelli. „Þarna vorum við tveir
teknir inn, ég og Helgi Guðjónsson
frá Dölum en hann eins og svo margir
aðrir félagar sneri ekki aftur eftir
gosið 1973.“
Sigurfinnur er mikill kiwanis-
maður og segist hafa notið hverrar
stundar sem farið hafi í starfið hjá
klúbbnum. „Ég hef lent í uppbygg-
ingu á þremur félagsheimilum. Það
fyrsta fór undir hraun, annað sem við
keyptum eftir gos fylltist af vatni í
leysingum en núverandi félagsheimili
stendur enn og er hið glæsilegasta.“
Sigurfinnur byrjaði sem ritari
stjórnar en vegur hans átti eftir að
vaxa. „Næst varð ég varaforseti og
svo forseti á árunum 1979 til 1980. Ég
gladdist yfir því trausti sem mér var
sýnt af góðum félögum sem eru svo
mikils virði í svona starfi. En þetta er
ekki bara leikur því Kiwanishreyf-
ingin sinnir líka líknarmálum. Við
höfum skipt því í tvennt, annars veg-
ar með framlögum til Sjúkrahússins í
Eyjum og Hraunbúða, heimilis aldr-
aðra, og hins vegar til öryggismála
við höfnina. Höfum við t.d. haft for-
göngu um lýsingu í stigum utan á
bryggjum og að komið var upp neyð-
arhnöppum á öllum bryggjum í höfn-
inni. Allt gefur þetta starfinu gildi og
klúbburinn hefur vaxið að þroska
með aldrinum,“ sagði Sigurfinnur að
lokum.
Nýtur hverrar stundar
með góðum kiwanisfélögum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Minnismerki Kiwanismenn minntust afmælis Helgafells á Nýjahrauninu þar sem félagsheimili klúbbsins er undir.
Fjölmennasti Kiw-
anisklúbburinn er
í Vestmannaeyjum
Fljót | Við smölun á Siglunesi og
Nesdal sl. laugardag náðust alls 13
kindur. Þar af voru sex sem gengu
úti á þessum slóðum sl. vetur. Tvær
þeirra höfðu eignast lömb í vor.
Fullorðin ær kom með þrjú lömb og
veturgömul með eitt. Svo hafði tví-
lembd kind bæst í þennan hóp í
sumar. Kindurnar voru frá tveimur
bæjum í Fljótum.
Það voru menn úr Siglufirði og
Fljótum sem fóru í smölunina sem
gekk í rauninni vel. Erfiðleikarnir
byrjuðu þegar koma þurfti kind-
unum út í bát við Siglunes. Þá
þurfti að ferja þær á gúmmíbát af
nesinu og út í fiskibát, um 2-300
metra. Veður hafði breyst til hins
verra meðan smölunin stóð yfir og
var kominn talsverður öldugangur
við Siglunes. Það hafðist en menn
voru sammála um að ekki hefðu
þeir mátt vera seinni. Menn og
skepnur sluppu án meiðsla úr þess-
um leiðangri.
Náðu kind-
um af löng-
um útigangi
Þorlákshöfn | Nemendum í tónlist-
arnámi er boðinn ókeypis aðgangur
að tónleikum Tóna við hafið á
morgun, miðvikudag.
Á tónleikunum munu Sigrún Eð-
valdsdóttir fiðluleikari og Selma
Guðmundsdóttir píanóleikari flytja
verk eftir Grieg og Beethoven auk
Slavneskra dansa eftir Dvorak/
Kreisler og íslenskra þjóðlaga í út-
setningu Atla Heimis Sveinssonar.
Tónleikarnir verða í Versölum,
tónleikasal í Ráðhúsi Ölfuss í Þor-
lákshöfn.
Nemendum
boðið á tónleika
♦♦♦
LANDIÐ