Morgunblaðið - 20.10.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 286. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Ætlar þú að
gera eitthvað um
helgina? >> 48
Leikhúsin í landinu
FORNAR FJALIR
DÓMSDAGSMYND SYNDUGRA HÓLA-
KIRKJUGESTA Í ÞJÓÐMINJASAFNINU >> 18
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
PRÓFUNUM er nú að
ljúka á nýju miðlægu
stýrikerfi fyrir umferð-
arljós á nokkrum helstu
umferðaræðum höf-
uðborgarinnar og er
stefnt að því að taka það
formlega í notkun innan
tíðar, um hálfu ári á eftir
áætlun. Tafirnar skýr-
ast einkum af skemmd-
um sem urðu á
ljósleiðaralögnum.
Umferðarljós í Reykjavík eru nú þegar tíma-
stillt og raunar eru um 70% samstillt þannig að
þau mynda svokallaðar grænar bylgjur, þ.e. ef
ökumenn halda löglegum hraða eiga þeir að geta
ekið langar leiðir án þess að lenda á rauðu ljósi.
Stillingarnar í kerfinu sem fyrir var voru miðaðar
við mat á umferðarþunga og tóku breytingum
eftir tíma dags. Þannig loguðu grænu ljósin t.d.
lengur á morgnana fyrir umferð í vesturátt um
Miklubraut en síðdegis breyttist stillingin og um-
ferð á leið í austur fékk meiri forgang.
36 gatnamót tengd kerfinu
Breytingin sem verður með nýja kerfinu er sú
að umferðarljósin eru tengd við umferðarskynj-
ara sem búið er að koma fyrir ofan í malbikinu, í
120 metra fjarlægð frá gatnamótum. Skynj-
ararnir eru síðan tengdir við stjórnkassa sem all-
ir eru tengdir með ljósleiðara við miðlægt stjórn-
kerfi. Skynjararnir telja bíla og mæla hraða
þeirra og þegar umferð tekur að þyngjast lagar
stjórnkerfið stillingar ljósanna að því, þ.e. lætur
græna ljósið loga lengur í þá átt sem þyngsta um-
ferðin stefnir í en önnur umferð þarf að sjálf-
sögðu að bíða lengur á rauðu ljósi. Kerfið á að
stytta aksturstíma um 2-10%.
Alls er búið að tengja 36 gatnamót við kerfið,
þ.e. öll gatnamót á Kringlumýrarbraut, á Sæ-
braut að Kringlumýrarbraut, á Miklubraut og á
Suðurlandsbraut. Einnig eru ljósin á Hafnar-
fjarðarvegi frá Engidal og í gegnum Garðabæ
tengd við hið miðlæga stjórnkerfi. Næst á að
bæta Bústaðavegi og Snorrabraut inn á kerfið og
er stefnt að því að kerfið nái til allra umferðar-
ljósa í Reykjavík árið 2010.
Grænu
ljósin loga
Umferðarþungi stýrir
umferðarljósunum
Ljós Kerfið er lokað og
bófar geta ekki stýrt ljós-
unum, eins og í bíó.
reglustjóra höfuðborgarsvæðisins
frá 23. ágúst sl. þar sem m.a. kemur
fram að ítrekað hafi verið höfð af-
skipti og lögregla kölluð til vegna at-
vika sem beint eða óbeint tengjast
rekstri staðanna. Þessi tilvik séu
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
leggja til við lögreglustjóra höfuð-
borgarsvæðisins að áfengisveitinga-
tími þriggja skemmtistaða verði
skertur frá því sem verið hefur.
Staðirnir eru Monte Carlo, Mónakó
og Q-bar. Lögreglustjóri höfuðborg-
arsvæðisins sagði við Morgunblaðið
að tillit yrði tekið til umsagna allra
aðila en vildi að öðru leyti lítið tjá sig
um málið, sem væri í réttum farvegi.
Í umsögn borgarráðs fyrir veit-
ingastaðina Monte Carlo og Mónakó
við Laugaveg er vísað í bréf lög-
fleiri en gengur og gerist vegna veit-
ingastaða í miðbænum. Einnig hafa
nágrannar staðanna ítrekað kvartað
vegna ónæðis og áreitis gesta um-
ræddra staða. Borgarráð vill að
áfengisveitingatími á stöðunum hefj-
ist ekki fyrr en kl. 19 öll kvöld – í stað
kl. 11 á morgnana.
Q-bar verði lokað fyrr
Borgarráð samþykkti einnig á
fundi sínum að takmarka veitinga-
tíma Q-bars við Ingólfsstræti, m.a.
vegna hávaða sem frá staðnum
berst. Veitingatími staðarins er nú
til kl. 5.30 um helgar en lagt er til að
ekki verði opið lengur en til kl. þrjú.
Vilja styttri afgreiðslutíma
Morgunblaðið/Júlíus
FULLTRÚAR á ársfundi Alþýðusambands
Íslands (ASÍ) segja að leggja þurfi áherslu á
aukinn kaupmátt og hækkun lægstu launa í
komandi kjarasamningum.
Már Guðnason, fulltrúi Verkalýðsfélags
Suðurlands, sagði að svokallað sjálftökulið
hefði breytt landslaginu. „Það hefur gert að
verkum að fólki er orðið heitt í hamsi og vill fá
meira.“
Rannveig Sigurðardóttir, fulltrúi VR, sagði
skiljanlegt að hinir lægst launuðu færu fram á
miklar launahækkanir. „Útvarpsstjóri gaf upp
boltann fyrir komandi kjarasamninga. Hér
horfir fólk á og talar mikið um þessa millj-
arðamæringa sem eru eingöngu með fjár-
magnstekjur og greiða ekkert til samfélagsins.
Þetta þarf að jafna.“ Jón Jónsson, fulltrúi
kjaramál. Þar er lögð áhersla á að í komandi
kjarasamningum verði samið um launahækk-
anir sem tryggi aukinn kaupmátt, sérstaka
hækkun lægstu launa, auk þess sem tekið verði
af festu á launamisrétti kynjanna. Jafnframt
verði öryggisnet kjarasamninganna styrkt og
þannig komið í veg fyrir félagsleg undirboð.
Það verði meðal annars gert með því að færa
taxta að greiddu kaupi og með því að tryggja
að fagleg starfsréttindi launafólks verði virt.
Einnig telur ASÍ áríðandi að stjórnvöld
komi sérstaklega til móts við lág- og millitekju-
fólk með aðgerðum í skatta-, velferðar- og
menntamálum og að skattbyrði þeirra tekju-
lægri verði minnkuð.
„Fólki heitt í hamsi“
Ársfundur ASÍ leggur áherslu á að í komandi kjarasamningum verði tekið
af festu á launamisrétti kynjanna og á hækkun kaupmáttar og lægstu launa
Verkalýðsfélags Akraness, kvaðst vona að
krafan um hækkun lægstu launa yrði sótt fast í
komandi kjaraviðræðum.
Ársfundur ASÍ samþykkti í gær ályktun um
Í HNOTSKURN
»Sjöunda ársfundi ASÍ lauk í gær.Hann var haldinn í Reykjavík dag-
ana 18.-19. október undir yfirskriftinni
Íslensk velferð í fremstu röð.
»Helstu viðfangsefni fundarins, aukreglulegra ársfundarstarfa, voru
tvö: Efnahags- og kjaramál og svo nor-
ræna velferðarsamfélagið og vinnu-
markaðsmódelið.
Ársþing ASÍ | Miðopna
HELGI Sigurðsson úr Val var kjörinn knatt-
spyrnumaður ársins og Hólmfríður Magn-
úsdóttir úr KR knattspyrnukona ársins.
Þetta var kunngjört á lokahófi í Broadway
seint í gærkvöld en það eru leikmennirnir
sjálfir sem greiða atkvæði í kjörinu. | Íþróttir
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hólmfríður og
Helgi kjörin
leikmenn ársins