Morgunblaðið - 20.10.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.10.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 31 SKEMMTILEG tilviljun að þetta skuli vera sami dagurinn og býður það upp á marga möguleika sam- starfs matreiðslumanna og næring- arfræðinga, enda mörg sameiginleg markmið. Síðustu ár hefur Klúbbur mat- reiðslumeistara helgað þennan dag um- ræðunni um hollar matarvenjur, einkum meðal barna og ung- menna. Verður þörfin á þeirri umræðu sífellt mikilvægari þegar æ fleiri börn og ungling- ar mælast yfir kjör- þyngd með tilheyrandi vandamálum. Þrátt fyrir mikla heilsuvakningu meðal þjóð- arinnar er það ákveðin þversögn að fleiri og fleiri skuli sjá fram á heilsu- farsleg vandamál vegna rangs mat- aræðis. Beinvernd og Klúbbur mat- reiðslumeistara hafa tekið höndum saman þennan dag og ætla að vekja athygli á beinheilsu sem er mjög mikilvæg og allajafna ekki í um- ræðunni. Beinþynning er sjúkdómur sem fæstir leiða hugann að fyrr en of seint en auðvelt er að afstýra honum með réttu mataræði og er það ein- mitt boðskapur dagsins. Hæfileg neysla á kalkríkum mat eins og mjólkurvörum, og D- vítamínríkum mat eins og feitum fiski eða lýsi, auk ýmissa annarra þátta ættu að geta komið í veg fyrir beinþynningu á efri árum. Allar upp- lýsingar um forvarnir gegn bein- þynningu er að finna á heimasíðu Beinverndar. Tilgangur Klúbbs matreiðslu- meistara með þátttöku í þessum degi er líka að vekja athygli á mat- reiðslunni sem skemmtilegu fagi að starfa við. Mikill skort- ur er á faglærðum mat- reiðslumönnum á Ís- landi þar sem ferðamönnum fjölgar stöðugt og kemur til með að fjölga enn frek- ar í framtíðinni. Svo bætist við að með bætt- um efnahag fara Ís- lendingar á veitingahús sem aldrei fyrr. Nám matreiðslumanna tekur fjögur ár og að því loknu eru möguleikarnir miklir og fjöl- breyttir. Starfssviðin eru sömuleiðis mörg, til dæmis hótel, veitingahús, veisluþjónustur, mötuneyti, sjúkra- hús, kjötvinnsla, vöruþróun á mat- vælasviði og svo mætti lengi telja. Fagið er mjög fjölbreytt og enda- laust er hægt að bæta við sig þekk- ingu á hinum ýmsu sviðum mat- reiðslunnar. Framtíð matreiðslunnar er björt og miklir möguleikar fyrir hæfi- leikaríkt fólk sem vill velja sér skap- andi starf. 20. október er dagurinn sem félagar í Klúbbi matreiðslu- meistara ætla að kynna fag sitt og mikilvægi þess. Langtímamarkmiðið er svo að reyna að byggja upp já- kvæða ímynd Íslands sem mat- armenningarþjóðar og framleiðanda hreinna og ómengaðra matvæla. Menning landa og matarmenning þeirra er oft samofin og mikilvægt að sú ímynd sé jákvæð þegar við er- um að byggja landið upp sem ferða- mannaland. Eitt af því fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ferðalag til einhvers lands er áætlað er það hvort ætur matur sé í viðkomandi landi. Matreiðslufagið og mat- armenning á íslenskum veitinga- húsum hefur breyst gríðarlega síð- ustu 10-15 árin og má segja að bylting hafi orðið og er nú svo komið að Ísland er í 9. sæti á alþjóðlegum styrkleikalista WACS yfir þjóðir sem keppa í matreiðslu. Er það að miklu leyti að þakka þeim mat- reiðslumönnum sem lagt hafa á sig mikla vinnu við þátttöku í keppnum úti um allan heim með góðum ár- angri, sem í framhaldi skilar sér í auknum áhuga og metnaði inn í fag- ið, sem skilar sér svo áfram á disk- inn til gestanna öllum til heilla. Alþjóðlegur dagur mat- reiðslumanna og Beinverndardagurinn Ingvar Sigurðsson skrifar í tilefni af alþjóðlegum degi matreiðslumanna og Bein- verndardagsins » Þrátt fyrir miklaheilsuvakningu með- al þjóðarinnar er það ákveðin þversögn að fleiri og fleiri skuli sjá fram á heilsufarsleg vandamál vegna rangs mataræðis. Höfundur er forseti Klúbbs matreiðslumeistara. Ingvar Sigurðsson SÚ STAÐREYND að rúmlega tveir einstaklingar fá heilaslag á dag hér á landi ætti því að vekja almenn- ing til umhugsunar um lífsstíl, því heilaslag er þriðja algengasta dán- arorsökin. Að fá slag, heilblæðingu, blóð- tappa eða súrefnisþurrð af einhverju tagi, getur bara sá einn lýst sem fyr- ir því hefur orðið. En þar með er ekki öll sagan sögð. Þessi ein- staklingur á sér að- standendur, s.s. maka, börn, foreldri, systkini og aðra nána aðstand- endur, sem verða óbeint fyrir þessu slagi líka, það má ekki gleyma því. Heilu fjöl- skyldurnar gætu því verið undirlagðar af þessu áfalli og það segir sína sögu. Hvað er slag og hvernig er hægt að koma í veg fyrir það? eru spurningar sem brenna á vörum margra. Hvað er til ráða? Slög eru algeng og fara ekki í mann- greinarálit og eru eins mismunandi og mennirnir eru margir. Allir geta fengið slag, en sérfræðingar hafa þó talað um að áhættuþættir, s.s. of hár blóðþrýstingur, reykingar, ójafn- vægi í blóðsykri og blóðfitu, streita, óhófleg neysla áfengis og fíkniefna o.s.frv., væru orsakavaldar að heila- slagi. Flest þessara atriða tengjast lífsstíl sem hægt er að breyta með betra líferni. Möguleikarnir á bata eru því meiri, sem lík- amlegt form er betra hjá hverjum og einum þegar hann verður fyrir þessu áfalli. Bjargaðu því sjálfum þér með betra lífi. Og þú ert ekki bara að bjarga sjálfum þér, heldur lífi og fram- tíð þinna nánustu. Félagið Heilaheill ætlar að halda sér- stakan Slagdag 20. október nk. í versl- unarmiðstöðvunum Kringlunni, Smáralindinni og við Glerártorg á Akureyri frá kl. 13-16, undir slagorðunum „Áfall er ekki endirinn!“ og „Þetta er ekki búið!“ til að vekja fólk til umhugsunar og bjarga þannig mannslífum. Læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir fag- aðilar, er meðhöndla slagsjúklinga, verða á staðnum, gera ókeypis áhættumat á gestum og gangandi og veita þeim upplýsingar og ráðlegg- ingar. Ætlarðu að láta slag standa eða gera eitthvað í málinu? Ætlarðu að láta slag standa? Þórir Steingrímsson segir frá „Slagadeginum“, sem er í dag Þórir Steingrímsson »Rúmlega tveir ein-staklingar fá heila- slag á dag hér á landi og ætti því að vekja al- menning til umhugs- unar, því slag er þriðja algengasta dánarorsök- in. Höfundur er formaður Heilaheilla. UM ÞESSAR mundir er unnið af kappi að því undirbúa aðgerðaáætlun stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) á næstu áratugum. Í flestum ná- grannaríkjum okkar hefur vinna af þessu tagi þegar farið fram, enda búa þau flest við þær að- stæður að þurfa að draga úr losun strax á fyrsta skuldbinding- artímabili Kýótó- bókunarinnar, 2008- 2012. Hér á landi hefur almennt verið talið að við munum verða innan marka á því tímabili enda höfum við lang- rýmstu heimildir sem nokkurt ríki hefur, eða sem nemur um 50-60% aukningu í útblæstri GHL frá 1990, ef heimildir innan ákvörðunar 14/ CP.7 – stundum nefndar íslenska ákvæðið – eru teknar með. Markmið ríkisstjórnar Íslands Ég legg mikla áherslu á að efla og hraða vinnu við aðgerðaáætlun til að mæta framtíðarskuldbindingum – ekki bara markmiði okkar um 50- 75% samdrátt fyrir árið 2050 – heldur einnig þeim líklegu skuldbindingum sem verða settar í alþjóðlegum samn- ingum til 2017 eða 2020. Hvað sem allri óvissu líður um framgang samn- ingaviðræðna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á næstu misserum, er verk- efni íslenskra stjórnvalda að sjá til þess að langtímamarkmiðum um samdrátt í losun GHL verði náð. Stjórnvöld þurfa að setja á fót svo- kallaða landsskrifstofu fyrir lofts- lagsvæna þróun- araðstoð, en Ísland er eitt af fáum ríkum löndum sem ekki hafa tekið þátt í slíkum verkefnum undir hatti Kýótó-bókunarinnar. Þetta verður mjög mikilvægt skref. Norð- menn hyggjast t.d. mæta sínum skuld- bindingum í framtíð- inni að miklu leyti með loftslagsvænni þróun- araðstoð. Hér höfum við ekki undirbúið jarðveg- inn fyrir slíkt til þessa, en það stend- ur sem sagt til bóta. Evrópusambandið hefur sagst ætla að draga úr heildarlosun aðild- arríkjanna um 20% til 2020 og um 30% ef önnur ríki koma með sem hluti af alþjóðlegu samkomulagi. Ekki hefur hins vegar verið gengið frá markmiðum um losun einstakra ríkja innan ESB. Norðmenn hafa einnig sett fram áfangaskipta áætlun um minnkun losunar fram til 2050, þegar þeir ætla sér að verða kolefn- ishlutlausir. Önnur ríki hafa ekki sett á borðið töluleg markmið fyrir 2020, og ESB og Norðmenn hafa tekið fram að þau muni ekki telja sig bundna af sínum markmiðum al- þjóðlega nema víðtækt samkomulag náist. Ísland hefur enn ekki lagt fram hugmyndir um töluleg markmið varðandi losun til skemmri tíma. Það er erfitt að gera slíkt nema fyrir liggi greining á möguleikum til að ná slík- um markmiðum og mat á kostnaði við það. Þar erum við mörgum árum á eftir t.d. Norðmönnum, en erum að spýta í lófana nú og ég mun reyna að tryggja að þessi mynd muni skýrast fyrri hluta næsta árs. Gjald fyrir losunarheimildir Við afgreiðslu frumvarps til laga um losun gróðurhúsalofttegunda á Alþingi í mars kom fram sú afstaða þingmanna Samfylkingarinnar að taka ætti gjald fyrir losunarheim- ildir, og það er enn afstaða mín að það eigi að taka gjald fyrir slíkar heimildir. Það var hins vegar ekki samþykkt í vor og því stóð ég frammi fyrir þeirri spurningu í sumar hvort setja ætti bráðabirgðalög fyrir fyrstu úthlutun samkvæmt lögunum 1. október. Slíkt hefði hins vegar orkað tvímælis og raunar vafasamt að það hefði staðist. Meginmáli skiptir nú að koma á kerfi þar sem gjald er lagt á losun koltvísýrings frá stóriðju, til þess að skapa hvata til þess að draga úr losun og tryggja að Ísland standi við skuld- bindingar sínar í framtíðinni. Það er forgangsverkefni í loftslagsmálum að leggja grunn að slíku kerfi gjaldtöku. Þar þarf að sjálfsögðu að skoða vel allar hliðar málsins, enda stöndum við að mörgu leyti frammi fyrir svip- uðum spurningum nú og við uppsetn- ingu fiskveiðistjórnunarkerfisins á sínum tíma. Því þarf að vanda vel til verka í þessu sambandi, m.a. þarf að hafa til hliðsjónar kerfi ESB um við- skiptakerfi með losunarheimildir. Ég vona að öllum sé ljóst að tími gjald- frjálsrar losunar gróðurhúsaloftteg- unda í andrúmsloftið er senn liðinn. Ekki er víst að allir hafi gert sér grein fyrir að þessi er raunin, að það er ljóst að ekki síðar en 2013 munu heimildir Íslands til losunar verða minni en losunin verður þá að óbreyttri þróun. Gjaldtaka á los- unarheimildir er það sem koma skal. Loftslagsmál í kappi við tímann Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar um losunarheimildir » Stjórnvöld þurfa aðsetja á fót svokall- aða landsskrifstofu fyrir loftslagsvæna þróun- araðstoð Höfundur er umhverfisráðherra. Þórunn Sveinbjarnardóttir NÁMS- og starfsráðgjafar starfa víða í samfélaginu. Einn vettvang- urinn er í endurhæfingu fólks til starfa. Verkefnið Atvinna með stuðningi (AMS) felst í að aðstoða fólk með skerta vinnugetu við að fá vinnu á almennum vinnumarkaði. Þjónustan er einstaklingsbundin og sniðin að þörfum hvers og eins. Fólk fær að- stoð við að finna starf við hæfi og stuðning á nýjum vinnustað. Við starfsval er tekið tillit til áhuga, hæfni og þekkingar ein- staklingsins. Aðstoðin er mest í byrjun þegar starfsmaður byrjar í starfi, en alltaf er hægt að hafa samband og leita eftir aðstoð ef á þarf að halda. Flestir sem hafa skerta vinnugetu hafa áhyggjur af því að geta ekki skilað vinnu- framlagi á við aðra. Þá er gott að fá aðlög- unartíma og geta svo bætt smátt og smátt við sig verkefnum eftir því sem úthaldið vex. Þegar fólk er farið að vinna kemur yfirleitt í ljós að það getur miklu meira en það hélt í upphafi. Það er gaman að sjá breytinguna hjá fólki eftir að það byrj- ar í vinnu, sjálfstraustið eykst og það blómstrar í starfi. Samkvæmt nýjum lögum um vinnumarkaðsaðgerðir frá 2006 á starfsemi AMS að flytjast til Vinnu- málastofnunar, en starfsemin er nú eitt af verkefnum Fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar. Síðastliðin tíu ár hefur Akureyrarbær annast málefni fatlaðra, samkvæmt málefnasamn- ingi við ríkið. Á þessu tíu ára tímabili hefur náðst góður árangur í þverfag- legri vinnu og samþættingu verkefna samkvæmt félagsþjónustulögum og lögum um málefni fatlaðra. Mark- miðið er að allir fái þjónustu við hæfi og aðstoð til sjálfshjálpar, sama hvaða lögum málið tilheyrir. Vonandi getur reynsla okkar hjá Akureyr- arbæ nýst í þeim breytingum sem framundan eru á tryggingakerfinu. Samkvæmt skýrslu nefndar á veg- um forsætisráðuneytisins, sem út kom 5. mars 2007, eru stjórnvöld nú að und- irbúa breytingar á ör- orkumati og endurhæf- ingu. Markmiðið verður að fólk komist sem fyrst út á vinnumarkaðinn aftur. Endurhæfing þarf að hefjast eins fljótt og unnt er. Þjón- ustan þarf að vera sam- felld og einstaklings- miðuð, með eftirfylgni eftir að út í atvinnulífið er komið. Samfara þess- um breytingum á ör- orkumati og endurhæf- ingu verður þörf á aukinni þverfaglegri vinnu félags- og heil- brigðisstétta og náms- og starfsráðgjafar koma til með að gegna þar mikilvægu hlut- verki. Það er óskandi að þessar fyrirhuguðu breytingar á trygg- ingakerfinu verði til þess að gera kerfið ein- faldara og skilvirkara og færa það til nú- tímans. Horft verði á sjálfstæði hvers einstaklings og þörf hans fyrir tekjur ekki metin eftir því hvort hann býr einn eða með öðrum full- orðnum. Vonandi berum við gæfu til að skapa samfélag þar sem samhjálp og sveigjanleiki ríkir bæði á vinnu- markaði og annars staðar þar sem allir hafa ávinning. Tækifæri til starfa Hulda Steingrímsdóttir skrifar um gildi endurhæfingar » Það er ósk-andi að þess- ar fyrirhuguðu breytingar á tryggingakerf- inu verði til þess að gera kerfið einfaldara og skilvirkara og færa það til nú- tímans. Höfundur er náms- og starfsráðgjafi í Atvinnu með stuðningi. Hulda Steingrímsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.