Morgunblaðið - 20.10.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.10.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI RÁÐSTEFNAN Friðargæsla á 21. öldinni verður haldin í dag við fé- lagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Frummælendur á ráðstefnunni verða Margrét Heinreksdóttir, em- eritus við félagsvísinda- og laga- deild Háskólans á Akureyri, Brian Lepard, prófessor við lagadeild Há- skólans í Nebraska í Bandaríkj- unum, Helga Þórólfsdóttir, sviðs- stjóri alþjóðasviðs Rauða kross Íslands, og Jóhann Ásmundsson, BA í samfélags- og þróunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri. Ráðstefnan verður í stofu L201 á Sólborg og hefst kl. 11. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Friðargæsla á 21. öldinni Friðargæsla Þorsteinn Gunnarsson rektor HA setur ráðstefnuna í dag. ÞAU sögulegu tímamót urðu í gær að höfuðstöðvar Skíðasambands Ís- lands voru fluttar til Akureyrar. SKÍ er þar með fyrsta sérsambandið inn- an ÍSÍ sem hefur höfuðstöðvar sínar utan höfuðborgarinnar. Akureyrarbær leggur Skíðasam- bandinu til húsnæðið að Glerárgötu 26, þar sem SKÍ verður í sambýli við Íþróttabandalag Akureyrar – en skrifstofa þess flyst nú úr Íþrótta- höllinni – og Íþróttasambandið sjálft, en sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ er með aðsetur á Akureyri. Daníel Jakobsson, formaður SKÍ, sagði marga hafa komið að máli við sig eftir að stjórn SKÍ tók þá ákvörð- un að flytja höfuðstöðvarnar norður í land, og spurt hvers vegna. „Ég hef kosið að snúa spurningunni og spurt á móti: Af hverju ættum við ekki að gera það? Hér er snjórinn, hér er mikil skíðamenning og í raun allt til alls fyrir okkur. Vissulega eru sam- bærilegar aðsetur til á fleiri stöðum á landinu en ég held að erfitt sé að neita því að Akureyri hefur tekið vissa forystu í skíðamálum á landinu. Snjóframleiðslukerfi, öflugar lyftur, kröftugt afreksstarf og almennur skíðaáhugi eru merki um þetta.“ Hann sagði stjórnendur bæjar- félagsins líka hafa sýnt vilja sinn í verki. „Þeir vilja bættan hag skíða- íþróttarinnar, þeir hafa sýnt það bæði með fjárframlögum og ákvörð- un sem þessari að styðja við bakið á Skíðasambandinu svo við getum flutt skrifstofuna hingað.“ Daníel segir það fagnaðarefni að eitt af sérsamböndum ÍSÍ skuli hafa kosið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Reykjavík. „Ég held líka að það sé mikilvægt fyrir alla sem vilja stuðla að bættu mannlífi á landsbyggðinni að reyna eftir fremsta megni að flytja störf frá höfuðborgarsvæðinu út á land, sérstaklega þegar menn eru í jafn augljósri stöðu og við. Þó að flutningur Skíðasambandsins kalli ekki á jafn mörg störf og álver er þetta engu að síður stuðningsyfir- lýsing frá okkur í Skíðasambandinu við alla landsbyggðina og lítið skref í átt að fjölbreyttara atvinnulífi hér í bæ. Vona ég að þetta verði öðrum til eftirbreytni,“ sagði formaður SKÍ. Daníel sagði það skemmtilega til- viljun að í gær hefði mágur sinn, Sig- urgeir Svavarsson skíðafrömuður, unnið við að rífa 47 ára gamalt hús- þak og rekist á gömul dagblöð sem notuð voru sem einangrun. Dró hann fram baksíðu úr Tímanum frá 1. mars 1960, sem búið var að ramma inn og sagði að hún yrði hengd upp á skrifstofunni. Við blasti fyrirsögnin: Frábær árangur Eysteins á leikun- um í Squaw-dal. Þar segir frá ár- angri Eysteins Þórðarsonar sem varð í 12. sæti í þríkeppni á Ólympíu- leikunum. „Eysteinn er sem kunnugt er föðurbróðir Kristins Svanbergs- sonar [íþróttafulltrúa Akureyrar- bæjar] sem er maðurinn á bak við þá ákvörðun að við stöndum hér í dag.“ Höfuðstöðvar SKÍ fluttar til Akureyrar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Skíðafrétt Daníel Jakobsson, formaður SKÍ, við opnun skrifstofunnar. Í HNOTSKURN »Þórunn Harðardóttir fráAkureyri hefur verið ráðin framkvæmdastjóri SKÍ, en hún hefur lengi starfað innan skíðahreyfingarinnar, m.a. sem stjórnarmaður í SKÍ og formaður barna- og unglinga- nefndar Skíðafélags Akureyr- ar undanfarin sex ár. KYNNING fyrir foreldra og for- ráðamenn nýnema í Mennta- skólanum á Akureyri verður í dag og hefst kl. 14 á Hólum. Stuttlega verður sagt frá skól- anum og skólastarfinu, nemendur segja frá félagsstarfinu og for- ráðamenn fá færi á að hitta um- sjónarkennara barna sinna og ræða við þá. Síðan verður aðal- fundur FORMA, foreldrafélags MA. Kynningar- dagur í MA SÍÐASTA sýning ársins hefst í Listasafninu á Akureyri í dag. Sýn- endur eru Baldvin Ringsted Vign- isson, Will Duke, Erica Eyres, Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Lorna Mac- intyre en sýningarstjóri er Francis McKee, safnstjóri Nýlistasafnsins í Glasgow, einn virtasti og fram- sæknasti sýningarstjóri Skotlands, skv. fréttatilkynningu. Sýning hefst OPIÐ hús verður í dag í Hamri, fé- lagsheimili Þórs, kl. 15 til 18. Starf deilda félagsins í vetur verður kynnt og félagar í Tae-know-do deildinni verða með sýningu. Einn- ig verður lið Akureyrar – hand- boltafélags kynnt, en það er sam- eiginlegt lið Þórsara og KA-manna. Þór: opið hús ÞORBJÖRG Halldórsdóttir opnar í dag kl. 16 sýninguna Rúllutertur og randalín í Galleríi BOXi í Lista- gilinu. Þarna má sjá litríkar ljós- myndir af kökum sem voru vinsæl- ar á sjötta og sjöunda áratugnum sem lengi hafa heillað listakonuna. Sýnir í Boxinu REGNBOGAMESSA verður í Ak- ureyrarkirkju á morgun kl. 20. Þar flytur Guðfríður Lilja Grétarsdóttir forseti Skáksambands Íslands ávarp og Páll Óskar Hjálmtýsson syngur. Fulltrúar frá nýstofnuðum hópi ungliða Samtakanna 78 á Norðurlandi flytja ávörp og atriði. Stúlknakór Akureyrarkirkju syng- ur undir stjórn Eyþórs Inga Jóns- sonar. Regnboga- messa Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | „Þetta er góður fé- lagsskapur og það breytir miklu að koma hér og fá félagsskap,“ sagði ein kvennanna í prjónahópnum „Síð- asta umferðin“ en það er hópur kvenna sem hittist á Selfossi á mánudögum frá kl.13 til 16 í húsi Rauðakrossdeildarinnar í Árnes- sýslu. Hópurinn verður með basar og selur fallegar hannyrðavörur á góðu verði í opnu húsi á Eyravegi 23, Selfossi, í dag, laugardag, frá kl. 11 til 18 og rennur ágóðinn til hjálp- arstarfs Rauða krossins. Þessi basar er liður í kynning- arviku Rauða krossins á starfinu innanlands sem staðið hefur yfir í þessari viku undir kjörorðinu „Byggjum betra samfélag“. Guð- mundur Magnússon trésmiður, fé- lagi og stjórnarmaður í Árnes- ingadeild til margra ára, ætlar að vera með sýnikennslu á ,,tálgað í tré“ í húsnæði deildarinnar og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni. Safna sjálfboðaliðum Kynning var í versluninni Strax á Flúðum í vikunni og í Fjölbrauta- skóla Suðurlands var kynning í há- deginu síðastliðinn miðvikudag en til stendur að bjóða upp á sjálfboðið starf til eininga í skólanum á vorönn 2008. Einnig var kynning í Másbak- aríi í Þorlákshöfn en í Þorlákshöfn fór deildin á stað með verkefni með ungum börnum af erlendum upp- runa í samvinnu við Sveitarfélagið Ölfus. Markmið Rauða krossins auk kynningar á starfinu er að safna sjálfboðaliðum. Þá er í undirbúningi hjá deildinni að hafa opið hús einu sinni í viku fyrir eldri menn sem vettvang til að hittast og tefla, spila, spjalla og hafa gaman saman. Stefnt að því í vetur ef áhugi er fyrir hendi. Alltaf með eitthvað í höndunum „Við hittumst hérna einu sinni í viku en auðvitað er alltaf líka prjón- að heima. Við erum alltaf með eitt- hvað í höndunum. Við erum með þessu að styrkja starf Rauða kross- ins en við vinnum úr garni sem við fáum gefins,“ sögðu konurnar í prjónahópnum „Síðasta umferðin“ en þær hafa afkastað mjög miklu af prjónavörum sem verða á basarnum í dag. Meðal varanna eru prjónaðar dúkkur og ein þeirra er karl í mál- arafötum sem þær nefna Palla mál- ara og eiga þar við þekktan málara á Selfossi. Víst er að mikil þörf er fyrir verk- efni af þessu tagi og konurnar eru sammála um það að prjónaskap- urinn sé mjög gefandi fyrir þær sjálfar og svo einnig fyrir Rauða krossinn að geta liðsinnt þeim sem þurfa þess með. Ragnheiður Ágústsdóttir, starfs- maður Rauða kross deildar Árnes- inga, sagði að starfið nyti mikillar velvildar og alltaf væri þörf fyrir framlög. Hún nefndi sem dæmi að krakkar hefðu komið með afrakstur af tombólum og fyrir þá peninga var byggður vatnsbrunnur í Síerra Leóne. „Það munar um allt,“ sagði Ragnheiður. „Það munar um allt“ Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Síðasta umferðin Ragnheiður Ágústsdóttir er fremst á myndinni með Palla málara, hinar konurnar eru helm- ingur prjónahópsins „Síðasta umferðin“, f.v.: Halldóra Ármannsdóttir, Alda Andrésdóttir, Guðrún Lísa Óskars- dóttir, Þórdís Frímannsdóttir, Oddný Þorkelsdóttir, Guðrún Einarsdóttir og Jónína Guðmundsdóttir.  Opið hús hjá Rauða krossinum og prjónahópnum „Síðasta umferðin“ sem hittist vikulega  Til stendur að bjóða upp á sjálfboðið starf til eininga í Fjölbrautaskóla Suðurlands Árborg | Bæjarráð Sveitarfé- lagsins Árborgar hefur samþykkt að taka upp niðurgreiðslur á íþrótta- og tómstundastarfi. Greiðslurnar nema 10 þúsund krón- um á hvert barn, samkvæmt sér- stökum reglum þar um, og taka gildi haustið 2008. Samþykktin var gerð að tillögu meirihlutaflokkanna á síðasta fundi bæjarráðs og samþykkt með at- kvæðum meirihlutans en fulltrúi minnihlutans sat hjá við afgreiðsl- una. Í samþykktinni kemur fram að verkefnisstjóra íþrótta-, forvarnar- og menningarmála er falið að vinna að reglum um framkvæmd slíkra greiðslna og leggja fyrir bæjarráð til samþykktar eigi síðar en 1. apríl næstkomandi. Fram kemur að þetta er fyrsta skrefið í niður- greiðslum af þessu tagi í Árborg. Fulltrúi minnihlutans lét bóka að hann hefði viljað sjá reglurnar áður en föst upphæð yrði ákveðin. Greiða 10 þúsund á hvert barn Hveragerði | Indverskur myndlist- armaður, Baniprosonno, býður upp á fjórar listasmiðjur fyrir börn í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Listamaðurinn dvelur í lista- mannaíbúðinni í Hveragerði síðari hluta mánaðarins. Hann hefur ver- ið með listasmiðjur og sýningar á list sinni víða um heim. Þrjár af listasmiðjum Banipros- onno í Hveragerði eru fyrir börn á aldrinum átta til tólf ára og ein fyr- ir fjögurra til sjö ára. Skráning er á Listasafni Árnesinga. Listasmiðjur fyrir börn ♦♦♦ ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.