Morgunblaðið - 20.10.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.10.2007, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Við bjóðum upp á stórkostlega skíðaferð um áramótin til bæjarins Engelberg í Sviss. Svæðið er snjóöruggt, enda hægt að skíða á fjölbreyttu svæði Titlis jökulsins. Brekkurnar eru 82 km og við allra hæfi. Fjallasýnin er ólýsanleg og margir möguleikar á ýmiss konar afþreyingu. Meðal annars sem við prófum er skemmtileg sleðaferð og dagskrá á vegum skíðakennaranna er einnig í boði. Að upplifa áramótin í öðru landi er frábær skemmtun auk þess að njóta útiverunnar og renna sér á skíðum. Hér er engu til sparað og hreinlega allt innifalið í þessari ferð! Fararstjóri: Marianne Eiríksson Verð á mann í tvíbýli: 204.500 kr. 28. desember 2007 - 6. janúar 2008 Sp ör - Ra gn he ið ur In gu nn Ág ús ts dó tti r s: 570 2790www.baendaferdir.is A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R Engelberg SVIGSKÍÐAFERÐ Áramótaferð til Láttu fagmanninn um að redda þessu, Villi minn, bara allt í drasli og ekkert finnst. VEÐUR Ásgeir Margeirsson, forstjóriGeysis Green Energy, var gal- vaskur í samtali við Ríkisútvarpið, hljóðvarp, í gærkvöldi. Hann sagði að stýrihópur borgarráðs breytti engu um það, að búið væri að skrifa undir samninga um sameiningu.     Orðrétt segir ífrétt RÚV: „Sameining Geysis Green Energy og REI er frágengin og búið að skrifa undir samninga, segir Ásgeir Margeirsson, for- stjóri Geysis Green Energy. Menn haldi sínu striki í samruna- ferlinu. Stýrihópur borgarráðs breyti þar engu um.“     Þessi hrokafullu ummæli bendatil að forstjóri Geysis Green sé nokkuð viss um, að stýrihópur hins nýja meirihluta borgarstjórnar sé sýndarmennskan ein og ekkert muni koma út úr starfi hans.     Hvernig getur Ásgeir Margeirs-son verið svona viss um það?     Hver hefur sagt honum, að stýri-hópur lýðræðislega kjörinna fulltrúa í borgarstjórn skipti bara engu máli?!     Hefur borgarstjórinn nýi sagthonum það?     Hefur Össur Skarphéðinsson, iðn-aðarráðherra og helzti stuðn- ingsmaður þess að afhenda einka- rekstrarmönnum alla þekkingu og mannauð Orkuveitu Reykjavíkur í 20 ár, sagt honum það?     Þær Svandís Svavarsdóttir ogMargrét Sverrisdóttir þurfa að líta í kringum sig vel og rækilega á hverjum degi. STAKSTEINAR Ásgeir Margeirsson Breytir stýrihópurinn engu?! SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                   *(!  + ,- .  & / 0    + -                         12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (  !              "##    :  *$;<                  !    " # $  % &   *! $$ ; *! $ % & '  % '  ( )' *) =2 =! =2 =! =2 $('& + # ,-.)/   <!-         6 2  >   >8    ' &  (! !  '   )  *!  +  &,& -   (  ;  . (,     !*   " $     ! &,    *  ,/  &,/ &) 0    +1)" 2   % ! 31    ) ,    0"  )11  )'  2 ) . )+ # 3'45 ?4 ?*=5@ AB *C./B=5@ AB ,5D0C ).B  3                  3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3           Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Birkir Jón Jónsson | 19. október Lífsgæðakapphlaup Í MBA-náminu í morg- un var farið yfir vinnu- stundir Íslendinga, samanborið við önnur lönd. Niðurstaðan er sorgleg, við vinnum þjóða mest. Þetta höf- um við vitað lengi en er ekki kominn tími til að bregðast við? Lífsgæða- kapphlaupið er komið út fyrir öll mörk og er hreint út sagt að gera út af við okkur. Við þurfum að end- urmeta lífsgildin og hefja til vegs og virðingar dýrmætar… Meira: birkir.blog.is Linda Lea Bogadóttir | 19. október Líftryggingar… … fyrir hverja? Fer líftryggingin þín í manngreinarálit? … Er réttlætanlegt að einungis sé hægt að tryggja sig fyrir ákveðnum tegundum af dauða! Ég keypti mér líftryggingu fyrir ári og tel mig nú nokkuð örugga… sef vært allar nætur. Það er þó varla í frásögur færandi nema þá kannski vegna þess að neðangreind atriði eiga við. … Meira: lindalea.blog.is Kristján B. Jónasson | 19. október Bókamessan … Á bókamessunni heyrði ég nú ekki í mörgum höfundum þótt raunar sé vel hægt að taka þann rúnt á messunni ef maður vill, einkum þó utan mess- unnar því það er fullt af upplestrum á kvöldin úti í Frankfurtarbæ, en að- allega hittir maður aðra útgefendur, ýmist á fundum, á börum eða í kvöldverðarboðum. Íslenska útgef- endur hitti maður þó fyrst og fremst á sameiginlegum … Meira: kristjanb.blog.is Þorgeir Arason | 19. október Orð kvöldsins Fyrir nokkrum vikum veitti ég því eftirtekt að Orð kvöldsins, kristileg kvöldhugleið- ing Ríkisútvarpsins, var ekki lengur á sín- um stað rétt fyrir tíu- fréttirnar. Í fyrstu hélt ég að hér væri um tímabundin mistök að ræða, en nú er komið í ljós að ákvörðun hefur verið tekin um að fella þennan dagskrárlið niður í dagskrá Rásar 1. Þar sem ég var nokkuð viss um, að fleiri en ég myndu sakna þessa stutta en uppbyggilega dagskrár- liðar, hringdi ég á Ríkisútvarpið í gær til að spyrjast fyrir um málið. Þar varð fátt um svör, reyndar var eina skýringin sem mér var gefin sú, að þessi ákvörðun hefði verið tekin af yfirmönnum Útvarpsins í samráði við Biskupsstofu. Undrandi var ég á því samráði – skyldi það hafa verið eitthvað sambærilegt og samráðið, sem Síminn hafði við Biskupsstofu um Júdasarauglýsingarnar frægu? Hvers vegna skyldi þessi ákvörð- un hafa verið tekin? Var lengd Orðs kvöldsins þvílík, að farið var að þrengja að öðru útvarpsefni? Því á ég bágt með að trúa, þar sem þessi dagskrárliður tók varla nema um 2-3 mínútur í flutningi í hvert sinn. Var það þá launakostnaður flytjenda, sem orðinn var íþyngjandi fyrir Rík- isútvarpið? Varla trúi ég að hann nemi nema brotabroti af nýlegri hækkun á mánaðarlaunum útvarps- stjóra, svo að það er afar ósennilegt. Er þá hugmyndin sú, að hér sé mismunun á ferðinni, þar sem ekki eru allir landsmenn, og þar með allir greiðendur skattfjár og afnota- gjalda, kristinnar trúar? Stendur þá til að ýta einnig öðrum dagskrár- liðum með kristinni íhugun og boðun út af dagskránni, svo sem morgun- bæninni og sunnudagsmessunni? Vera kann, að hér hafi verið látið undan þrýstingi þeirra afla, sem vilja veg kristni og kirkju sem minnstan í þessu landi. En gleymum því ekki, að um 95% landsmanna eru skráð í kristin trúfélög, og afar stór hluti landsmanna sækir styrk í kristna trú, m.a. með bæn og/eða lestri Biblíunnar, jafnvel daglega. Og ekki dytti sjálfum mér í hug að agnúast út í það, þó að guðlaus heimspekingur flytti erindi um efa- hyggju … Meira: tharason.blog.is BLOG.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.