Morgunblaðið - 20.10.2007, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.10.2007, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                                                                ! "##$                                                                           !"#$% &  ' "( # &) *+$ ,-./,.,/0 .-0. .,.12 0.0./. .2/.0., 0/./0.1 ,../- .,.2--.0- -.-.-2.-- 2.,02.1 .,2.20 -0.0.2/2 -.-1-  ,.2,.2 0.-,./, 0./1.,2 .. 0.,2.2., 1/./-. 3- //3 ,3 -/3 -23- -3 -/30 ,13 3 131 /3,0 /3 -30 /3, /,3 /223 3 -3 32 3 --3 23 ,-3 3- //30 ,3 -/3 -23, -31 -/31 3 3- -3 /3- /3 -31 /3 /3 /13 3, -23 322 3 13 ,3 -3 /30 45  !"#$% 1 1 ,0 -0 // -  0 /2 -  2 -  1 2    & %  & !"#.! " 1..-0 1..-0 1..-0 1..-0 1..-0 1..-0 2..-0 1..-0 1..-0 .1.-0 1..-0 1..-0 1..-0 1..-0 2..-0 1..-0 1..-0 /..-0 1..-0 0..-0 1..-0 ..-0 2..-0 --.2.-0 1..-0 2..-0 2..-0       % #6 +$78. ##!56 +$78. 9%78. :6 +$78. 6% ' #78. 8.;#$8<&=  >?  6 +$78. *+$@ &' #78. : ' #= 78.  ? 7 78. %+;+ +"A 4A8.'.78. B;78. C+78.    ! "   ,/78. 8 ?78. % %?D %  +;DE # # &6 +$78. F B # >?  ?6 +$78.  78. G7 478. B&& &;"%5" 78. H +%5" 78.   # $ ! % & I %+B+; +; 6 78. ;$"4 78. Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is ÞÓTT erfitt sé að spá fyrir um hve- nær lánsfjármarkaðir komast aftur í eðlilegt horf og þótt íslensku bank- arnir séu enn að verulegu leyti háðir þeim um fjármagn eru þeir þó ágæt- lega í stakk búnir til þess að standa af sér núverandi erfiðleika á mörk- uðum enda hafa þeir á undanförnu einu og hálfu ári eða svo leitast við að verða minna háðir þeim um fjár- mögnun, m.a. með því að auka hlut- fall innlána af útlánum og leita á fleiri og nýja lánsfjármarkaði. Þetta er meðal þess sem sérfræð- ingar alþjóðlega matsfyrirtækisins Fitch Ratings segja í nýrri skýrslu um Kaupþing banka, Landsbanka Íslands, Glitni og Straum-Burðarás Fjárfestingabanka. Útgáfur á fleiri stöðum Þar er bent á að íslensku bank- arnir, sem um tíma sóttu nær allt sitt fé á Evrópumarkað, hafi á undan- förnum misserum gefið út skulda- bréf í Bandaríkjunum, Japan, Kan- ada og Ástralíu, svo dæmi séu tekin. Þá hafi bankarnir náð að lengja í lán- um sínum; þannig komi megnið af þeim skuldabréfum sem þeir hafi gefið út að undanförnu ekki á gjald- daga fyrr en 2010 eða síðar. Sér- fræðingar Fitch Ratings segja lausafjárstöðu allra íslensku bank- anna vera með þeim hætti að þeir geti haldið sig frá lánsfjármörkuð- um í eitt ár og í sumum tilvikum lengur, að því gefnu að enginn vöxt- ur yrði þá í útlánum. Þá benda sér- fræðingar Fitch á að þrátt fyrir erf- iðleika á lánsfjármörkuðum hafi íslensku bankarnir getað sótt sér fé með skuldabréfaútgáfum að undan- förnu – að vísu við nokkuð hærra verði en áður var. Þeir benda á að af- koma íslensku bankanna hafi verið afar góð á undanförnum misserum og árum, m.a. vegna hagstæðrar þróunar á hlutabréfamörkuðum og tekna af fjárfestingabankastarf- semi. Dragist lánsfjárkreppan á langinn eða kjörin versni til muna í lengri tíma muni það vafalaust hafa áhrif á afkomu íslensku bankanna en á móti muni þá vega að þeir afli nú tekna í mun fleiri löndum en áður sem aftur dreifi áhættunni. Fitch telur bankana vera í ágætri stöðu Í HNOTSKURN »Sérfræðingar Fitch Rat-ings telja íslensku bank- ana ágætlega í stakk búna til þess að standa af sér þreng- ingar á lánsfjármörkuðum. » Íslensku bankarnir gætuallir haldið sig frá láns- fjármörkuðum í eitt ár ef á þyrfti að halda. »Þá bendir Fitch á að bank-arnir hafi allir, en sér- staklega þó Landsbankinn, náð árangri í að auka innlán. ● GREININGARDEILD Landsbank- ans heldur sig við óbreytta spá og telur að úrvalsvísitala OMX á Íslandi muni standa í 8.750 stigum í árslok en það myndi samsvara 37% hækk- un á árinu öllu en aðeins um 2,7% hækkun það sem eftir er ársins enda er það mat sérfræðinga Lands- bankans að fá góð tækifæri séu á ís- lenska hlutabréfamarkaðnum við nú- verandi aðstæður. Verðkennitölur fyrirtækjanna styðja þá ályktun. Því mælir greiningardeild Lands- bankans aðeins með kaupum í þremur fyrirtækjum, Alfesca, Bakka- vör og Össuri, en tekur þó jafnframt fram að þetta beri þó ekki að skilja sem svo að hún álíti markaðinn í heild of hátt verðlagðan. Fá góð tækifæri á íslenska hluta- bréfamarkaðinum ● SNARPT fall varð á gengi hluta- bréfa í Bandaríkj- unum í gær, Dow Jones- og Nasdaq- vísitölurnar lækk- aðu um 2,65% og S&P 500 lækkaði um 2,6%. Gengi bréfa 27 félaga af þeim 30 fyrirtækjum sem mynda Dow Jones-vísitöluna lækkaði og var þetta þriðja mesta lækkun Dow Jones á einum degi á þessu ári. Ástæða lækkunarinnar er m.a. rak- in til lélegra fjórðungsuppgjöra Cater- pillar og Honeywell sem og almennra áhyggna fjárfesta af afkomu fyr- irtækja og þá ekki síst fjármálafyr- irtækja á þriðja fjórðungi ársins. Svim- andi hátt verð á olíu, sem um tíma fór í yfir 90 dali á tunnuna, og veiking dollarsins eru einnig talin hafa dregið markaðinn niður og valdið því að fjár- festar seldu hlutabréf í gríð og erg og sóttu í staðinn í skuldabréf. Gengi Bandaríkjadalsins gagnvart evru lækkaði enn frekar í gær og hefur ekki verið lægra. Hlutabréf hríðféllu í Bandaríkjunum ● SPRON- sjóðurinn ses, sem er stærsti hluthafi SPRON með 15% hlut, áformar sölu á að hámarki 4,8% við skráningu spari- sjóðsins í kaup- höll OMX nk. þriðjudag. Markmiðið er að stuðla að virkri verðmyndun á markaði, segir í tilkynningu. Þegar og ef sjóðurinn hefur selt 60% af áætluðu magni, eða í síðasta lagi kl. 14 á fyrsta við- skiptadegi, eiga tveir viðskiptavakar valrétt á að kaupa af honum hluti í SPRON að fjárhæð 300 milljónir króna hvor. Kynning verður á Hótel Nordica í dag kl. 13 fyrir hluthafa SPRON í tilefni skráningar í kauphöll. SPRON-sjóðurinn selur bréf í SPRON ÞRIÐJI ársfjórðungur Nýherja var tekjuhæsti fjórðungur félagsins frá upphafi. Námu tekjurnar 2.750 millj- ónum króna, sem er 44% aukning frá sama tíma í fyrra. Þar af var aukn- ingin 12% vegna nýrra dótturfélaga. Hagnaður tímabilsins var hins vegar minni nú, eða 93 milljónir króna, samanborið við 154 milljónir á þriðja ársfjórðungi 2006. Fyrstu níu mánuði ársins var hagnaðurinn 302 milljónir króna samanborið við 238 milljónir í fyrra. Tekjur Nýherja fyrstu níu mán- uðina námu 7,8 milljörðum króna, borið saman við 5,9 milljarða á síð- asta ári. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir var 485 milljónir eða 6,2% af tekjum saman- borið við 509 milljónir eða 8,6% á sama tímabili í fyrra. Samkvæmt tilkynningu Nýherja til kauphallar hafa tekjur félagsins á árinu verið umfram áætlanir og af- koman er sögð í samræmi við vænt- ingar. Horfur fyrir fjórða ársfjórð- ung séu góðar og ný tækifæri að skapast með kaupum Nýherja á TM Software. Vaxandi hluti starfsemi Nýherja er í dótturfélögum, eða 35% af veltu samstæðunnar og starfs- menn 54% af heildinni. Meðal dótt- urfélaga eru AppliCon, ParX, Dan- support og Linkur. Tekjuhæsti fjórð- ungur Nýherja STOFNUN fjárfestingabankans Askar Capital var fagnað með formlegum hætti í gær í húsakynn- um bankans á Suðurlandsbraut 12. Bankinn hefur verið starfandi í bráðum ár. Starfsmenn eru um 80 í fjórum löndum, en auk höfuðstöðv- anna í Reykjavík eru starfsstöðvar reknar í Lúxemborg og Rúmeníu. Þá eru útibú í burðarliðnum í Hong Kong og Mumbai á Indlandi, en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær er Askar með stórt fasteignaverk- efni í burðarliðnum þar í landi. Þá er fyrirhugað að opna útibú í London eftir að tilskilin leyfi hafa fengist. Að sögn Tryggva Þórs Her- bertssonar forstjóra er stefnan að fjárfesta í sjóðum sem byggjast á fasteignum, framtaksfjármagni og öðrum óskráðum fjárfestingum. Askar með 80 manns í fjórum löndum Morgunblaðið/Eggert Glaðbeittir Karl Wernersson, Tryggvi Þór Herbertsson, Haukur Harð- arson, Steingrímur Wernersson og Benedikt Árnason. ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA OMX á Íslandi lækkaði í gær um 0,6% í 8.334 stig. Hlutabréfavísitölur á Norðurlönd- unum að undanskilinni þeirri norsku lækkuðu allar og sú sænska mest eða um 1,5%. Sömu sögu var að segja af hlutabréfamörkuðum í Evr- ópu þar sem allar helstu vísitölurnar lækkuðu einnig. Hér heima varð mest lækkun á gengi bréfa Össurar eða um 1,4% og þá lækkaði gengi bréfa Eimskipafélagsins og Kaup- þings um 1,3%. Mest hækkun varð á gengi bréfa Eikar banka eða um 4%. Íslenska krónan veiktist um 0,25% og kostar evran 85,8 og dal- urinn 60,2 og pundið 123,2 krónur. Lækkun og veiking VÍSITALA íbúðaverðs hækkaði um 0,8% í september að því er kemur fram í nýjum töl- um Fasteignamats ríkisins. Síðastliðna sex mánuði hefur vísitalan hækkað um 8% á höf- uðborgarsvæðinu og tólf mánaða hækkun vísitölunnar stendur enn í 11%. Síðustu tólf mánuði hefur verð á fjölbýli hækkað um 11,3% en verð á sérbýli um 10,3%. Í hálffimmfréttum Kaupþings banka er bent á að ein vísbending um aukna eftirspurn á fasteignamarkaði sé fjöldi þinglýstra kaupsamninga á markaði. Heildarfjöldi kaupsamninga í september hafi verið um það bil 900 og sé það fjölgun um 90% frá fyrra ári. „Greiningardeild gaf nýverið út fast- eignaspá, Haust á fasteignamarkaði, en í þeirri spá er gert ráð fyrir að það dragi úr umsvifum á fasteignamark- aði á næsta ári samhliða niðursveiflu í efnahagslífi á sama tíma og vextir haldast áfram háir,“ segir í hálffimmfrétt- um. Íbúðaverð hækkar áfram EXISTA hyggst, eins og Kaupþing banki, styðja yfirtöku Storebrand á sænska líftrygginga- og lífeyrisfyr- irtækinu SPP og vill auka hlut sinn í félaginu rétt eins og Kaupþing banki. Gangi það eftir myndu Kaup- þing banki og Exista til samans fara með nær 35% af hlutafé Storebrand eftir hlutafjáraukningu sem væri án vafa ráðandi hluti. Taka ber þó fram að norska fjármálaeftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Kaup- þing og Exista hafi ekki unnið í sam- einingu að fjárfestingum í Store- brand og eins þarf Kaupþing að fá heimild hins norska FME til þess að fá að fara úr 20% upp í 25% eins og bankinn hefur tilkynnt að hann stefni að. Í tilkynningu Exista til OMX kem- ur fram að Exista eigi nú 8,5% hlut í Storebrand og hyggist jafnframt sölutryggja hluta af forkaupsréttar- útboðinu sem gæti þá aukið hlut fé- lagsins í Storebrand að flöggunar- mörkum eða í 9,9% eftir hluta- fjáraukninguna. Norska tryggingafélagið Gjensid- ige hefur bætt lítillega við sig í Storebrand og er komið með rétt lið- lega 10% hlut en átti fyrir rétt undir 10%. Talsmaður Gjensidige sagði í samtali við Morgunblaðið að enn hafi ekki verið gefið út hvort félagið muni styðja yfirtöku Storebrand á SPP eða ekki en hvað kaupin varðaði sagði hann að stjórnendum Gjen- sidige hafi þótt verð bréfa í Store- brand vera hagfellt. Styður kaupin á SPP Stefnir í að Exista og Kaupþing eign- ist ráðandi hlut RANNSÓKN er hafin á því hvort lög hafi verið brotin í tengslum við það þegar bandaríski fjárfestingar- bankinn Bear Stearns neyddist til að loka tveimur vogunarsjóðum í sum- ar. Sá óróleiki, sem verið hefur á peningamörkuðum heimsins í haust, er m.a. rakinn til þessa. Í frétt The Wall Street Journal kemur fram að grunsemdir séu uppi um að bankinn hafi fært skuldabréf á milli eigin reikninga og vogunarsjóðanna án þess að upplýsa viðkomandi fram- kvæmdastjóra um málið. Bear Stearns í rannsókn ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.