Morgunblaðið - 20.10.2007, Page 23
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 23
Lítill drengur stendur á gangbraut
við Tjarnarbraut á Egilsstöðum og
bíður eftir að komast yfir götuna.
Klukkan ekki orðin níu og snjó-
mugga í morgunlofti. Bílarnir, sem
koma beggja vegna frá, herða held-
ur róðurinn og þrusa yfir upphækk-
aða gangbrautina, kannski til að
sleppa við að stoppa fyrir barninu.
Þekki í gegnum blautar framrúð-
urnar bílstjórana sem nenna ekki að
stoppa eða átta sig ekki á að þeir eru
að aka í gegnum eina af helstu leið-
um barnanna á Egilsstöðum í skól-
ann sinn. Langar að taka þá á beinið
og skamma ærlega.
Næsta morgun á svipuðum tíma
kemur annar lítill drengur eftir
gangstéttinni og heldur á logandi
sígarettu. Brennir vettlinginn sinn
og segist ætla að henda þessu ógeði í
ruslið í skólanum. Það er nefnilega
fólk á leið í vinnunna í bílunum sín-
um sem finnst allt í lagi að henda
logandi sígarettum út um bílglugg-
ann við barnaskóla bæjarins. Ég tek
sígarettuna af drengnum, slekk í
henni og lofa honum að ég skuli
henda stubbnum. Svo ræðum við að-
eins um að svona megi fólk ekki
gera, en það sé svo skrítið að það
geri þetta samt. Hendi logandi og
dauðum sígarettum út um bílglugg-
ana. Svo við minnumst nú ekki á allt
hitt sem hent er út.
Nokkrum dögum síðar koma þrír
unglingar gangandi eftir götunni þar
sem ég bý og ákveða í gleði sinni að
mölbrjóta tvær flöskur á hvalbaki í
garðinum hjá mér. Vildi að ég hefði
náð þeim og getað rassskellt þá fast.
Í það minnsta heimtað að þeir tíndu
upp öll þessi andstyggilegu glerbrot
sem eru út um allt og geta valdið
börnunum sem leika sér þarna tjóni.
Núna skulum við margfalda þessar
þrjár sögur með fjölda þeirra tilfella
af vítaverðu gáleysi sem hljóta að
vera í gangi og fá þá útkomu að við
þurfum að vanda okkur meira. Palli
er einn í heiminum virkar ekki þegar
maður býr innan um aðra. Gerum
virðingu og tillitssemi að einkunn-
arorðum okkar í þessu annars góða
sambýli hér á Egilsstöðum.
Umferðarþungi á Egilsstöðum er
mikill eftir helstu aðalæðum. Svo
áfram sé haldið með lítil börn á leið í
skólann, er vert að minna á gang-
braut ofarlega á Fagradalsbraut-
inni, einni helstu umferðargötunni
gegnum bæinn. Þar yfir þurfa börn
úr hverfinu á hæðinni að fara til að
komast í skólann. Það er sama hvort
um er að ræða fólksbíla eða risa-
stóra flutningabíla, það hvarflar
varla að mönnum að stoppa og
hleypa börnum yfir. Á þetta er
skelfilegt að horfa. Er ekki að verða
tímabært að yfirvöld bæjarins hug-
leiði í fullri alvöru og nærtíma að
setja þarna upp gangbrautarljós,
undirgöng eða göngubrú? Á sama
tíma og verið er að hanna bæði nýj-
an miðbæ og viðbyggingu við grunn-
skóla og nýja hönnun á umhverfi
hans, er það verðugt verkefni að
finna varanlegar lausnir á helstu
hættustöðum umferðarmannvirkja.
Að þessu þusi slepptu er óhætt að
segja að mannlífið blómstrar í bæn-
um. Fólk veltir á málþingum og ráð-
stefnum fyrir sér leiðum til að bæta
geðheilbrigði, efla menningarmál
enn frekar og heilsugæsluna, eldri
borgarar fagna hausti með veislu-
höldum, opnuð er sérstök geðrækt-
armiðstöð, menn mæta á dans-
æfingar, skreppa í golf og hefja
vetrarstarfið í íþróttum og hross-
unum, svo fátt eitt sé nefnt. Svo
verður haldið upp á 60 ára afmæli
barnaskólans 27. október.
EGILSSTAÐIR
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Gangbraut Börn úr grunnskól-
anum á Egilsstöðum þurfa mörg
hver yfir þessa götu.
Mikið er rætt um svik ístjórnmálum þessa dagana
og nógur er forðinn af kveðskap
um slíka háttsemi í Vísnasafni
Héraðsskjalasafns Skagfirðinga,
sem finna má á Netinu. Þar er til
dæmis vísa eftir Svein Hannesson
frá Elivogum:
Oft fer verst sem byrjar best
og byggt á mestum vonum.
Svo er um prest og svikinn hest
og sannast á flestum konum.
Einnig er þar oddhend
„kosningavísa, birt í Tímanum 23.
júní 1959, nafnlaus eins og títt er
með svona kveðskap“:
Á því kenna íhaldsmenn,
orðstír grenna svikin.
Rofnir brenna eiðar enn,
orð og pennastrikin.
Ludwig Kemp á Illugastöðum
orti:
Þóroddur segir að Þormóður sé
þrælborinn landráðamaður.
Lifi á svikum og ljúgi út fé
og lepji upp framsóknarslaður.
Jón Pálmason þingmaður orti um
Eystein Jónsson ráðherra:
Eysteinn, hann má eiga það,
öðrum fremur hinum.
Hann hefur svikist aftan að
öllum sínum vinum.
Árni Jónsson frá Múla orti:
Öll hann svíkur orð og vé
enginn slíkur mundi.
Enda er flíkað að hann sé
út af tík og hundi.
Andrés Björnsson eldri orti um
Hannes Hafstein:
Þrjátíu silfurs segja menn
svikara Júdas gerði.
Nú eru goldin þúsund þrenn
– Þett’ er að hækk’ í verði.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORN
Af svikum
og pólitík
endur og furðulegt að
verzlunareigendur eða
samtök þeirra geri at-
hugasemdir við að slík
þjónusta sé veitt að
ekki sé talað um að
reynt sé að banna verð-
könnunaraðilum að
koma í verzlanir.
Bezta aðferðin við
verðkannanir er auðvit-
að að fara í verzlun,
kaupa vörur og taka
mið af þeim strimli,
sem prentaður er út úr
kassa við greiðslu.
Verzlunareigendur
beita ótrúlegustu að-
ferðum til þess að
halda því fram, að verðkannanir séu
ekki trúverðugar. Í fórum Morgun-
blaðsins er að finna mikið skjalasafn
með slíkum ásökunum.
Það er erfitt að skilja hvað veldur.
Stórmarkaðirnir sjálfir birta auglýs-
ingar í dagblöðum þar sem gefið er
upp verð á einstökum vörum. Við-
skiptavinir þeirra geta sjálfir borið
saman verð. Hvað er að því að aðili á
borð við ASÍ beri saman verð?
Það er tími til kominn að stór-
markaðirnir hætti þessum barna-
skap og láti verðkönnunaraðila í
friði. Þeir eru sjálfir að kanna verð
hjá hver öðrum öllum stundum.
Hvenær banna þeir það?
Það er athyglisvertað fylgjast með
því uppnámi, sem orðið
hefur hjá stórmörk-
uðum vegna síðustu
verðkönnunar ASÍ.
Hagar, sem er fyr-
irtækið sem rekur
bæði Bónusverzlanir,
Hagkaupsbúðir og 10-
11 ásamt fleiri verzl-
unum, hafa bannað
starfsmönnum ASÍ að
koma í verzlanir fyr-
irtækisins til þess að
gera verðkannanir!
Frá talsmönnum
samtaka verzlunar-
innar heyrðist sú at-
hugasemd, að það væri engin þörf á
verðkönnunum vegna þess að fólk
vissi sjálft hvar lægsta verðið væri.
Nú er að vísu ekki ljóst hvernig
Hagar ætla að banna starfsmönnum
ASÍ að koma í verzlanir fyrirtæk-
isins. Hvernig á að gera það?
Hitt er alveg á hreinu, að það er
full ástæða til að veita neytendum þá
þjónustu að birta reglulega yfirlit
um verð í einstökum verzlunum.
Slíkar verðkannanir veita verzl-
unum aðhald og halda þeim við efnið
í samkeppni þeirra í milli. Þær sýna
líka ef breytingar verða á mark-
aðnum. Fyrst og fremst er þó um að
ræða sjálfsagða þjónustu við neyt-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
PAPPÍRSFJALLIÐ sem meðal-
skrifstofan kemst í gegnum á
hverju ári er ekki lítið – og mikið
um pappírsútprent sem reynast svo
óþörf.
Með nýrri prenttækni má þó
e.t.v. draga verulega úr pappírs-
fjallinu, að því er segir í Berlingske
Tidende, en Xerox-fyrirtækið hefur
hannað prentara sem notar útfjólu-
blátt ljós í staðinn fyrir blek. Papp-
írinn breytir þannig um lit fyrir til-
stilli útfjólubláa ljóssins sem dregur
fram letrið. Fljótlega eftir að papp-
írsörkin kemst í snertingu við súr-
efni og birtu á ný eftir dvölina í
prentaranum byrjar hins vegar
letrið að dofna og er gott sem horfið
8 tímum síðar. Næsta dag má því
nota sömu pappírsörk og er hægt
að nota sama blaðið 30 sinnum.
Vonast framleiðendurnir til að
með þessu móti megi minnka það
mikla magn tölvupappírs sem endar
í ruslinu.
Prentað
með ósýni-
legu bleki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Pappírsflóð Með því að nota hverja pappírsörk þrjátíu sinnum má örugg-
lega draga úr pappírsfjallinu sem hleðst upp á skrifborðinu.
Fréttir
í tölvupósti
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Trine Lundgaard Olsen
farsími nr. +45 61 62 05 25
netfang: tlo@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
Þvottavél verð frá kr.:
99.900
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200
www.eirvik.is
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Gerð Listaverð TILBOÐ
Þvottavél W1514 142.714 99.900
1400sn/mín/5 kg
Þurrkari T7644C 135.571 94.900
rakaþéttir/6 kg
Eirvík kynnir
sportlínuna
frá Miele
Miele gæði
AFSLÁTTUR30%