Morgunblaðið - 20.10.2007, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 20.10.2007, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Kristján Krist-jánsson fæddist í Hvammkoti í Skagahreppi hinn 3. ágúst 1934, hann lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi hinn 10. október 2007. Foreldrar hans voru Kristján Guð- mundsson bóndi, f. 12.7. 1896, d. 14.2. 1979, og Guðríður Jónasdóttir, f. 3.8. 1908, d. 20.4. 1982. Systkini Kristjáns eru Sigurlaug, f. 13.9. 1935, maki Pétur Mikael Sveinsson. María, f. 3.4. 1937, maki Sveinn Guðberg Sveinsson, Sigurbjörg, f. 11.12. 1938, maki Gunnar Kaprasíus Stefánsson, hann er látinn, Ásta, f. 19.1. 1941, maki Sigurður Einarsson. Guð- mundur, f. 16.4. 1944, maki Ragn- heiður Grímsdóttir. Kristján kvæntist hinn 2. ágúst 1964 Árnýju Margréti Hjaltadótt- ur frá Skeggjastöðum í Skaga- hreppi, f. 6.4. 1939. Hún er dóttir Hjalta Árnasonar, bónda á Skeggjastöð- um, og konu hans, Önnu Lilju Magnúsdóttur, og er hún látin. Börn Kristjáns og Árnýjar Mar- grétar eru 1) Anna, f. 23.8. 1965, maki Gunnar Már Ármannsson, f. 28.3. 1964, synir þeirra eru Krist- ján Már, f. 8.2. 1988, Ármann ánægju af. Kristján og Árný byggðu upp jörðina, bæði húsa- kost og tún af miklum dugnaði og eljusemi, með hjálp og þátttöku barna sinna. Það var Kristjáni mikið ánægjuefni að Steini og Linda tóku við búinu á Steinn- ýjarstjöðum. Kristján var mikill bókamaður og átti mikið bókasafn og var víð- lesinn. Hann hélt alltaf dagbók. Á sínum yngri árum var hann til sjós bæði frá Skagaströnd og einnig frá Grindavík. Hann vann einn vetur við byggingarvinnu á Keflavíkurflugvelli. Sumarið 1963 vann hann við bryggjusmíðar í Neskaupstað. Hann vann við tog- aralöndun á Skagaströnd upp úr 1980. Formaður sóknarnefndar Hofskirkju frá því árið 1985 og til dauðadags. Starfaði mikið við kirkjuna á Hofi. Kristján var einn af stofnendum Veiðifélags Langavatns og var rit- ari í stjórn og sá um að selja veiði- leyfi í Langavatn. Hann hafði mikla ánægu af því að veiða og talaði sjálfur um að hans bestu stundir hefðu verið við Langa- vatn. Hann var lengi í stjórn Rauða kross deildarinnar á Skagaströnd. Kristján gekk í Búnaðarfélag Skagahrepps árið 1965 og var þar ritari fram til þessa dags. Hann var deildarstjóri við Kaupfélag Húnvetninga. Í hrepps- nefnd Skagahrepps í 20 ár. Kristján verður jarðsunginn frá Hofskirkju í Skagabyggð í dag, laugardaginn 20. október, og hefst athöfnin kl. 14. Steinar, f. 8.4. 1991, Helgi Grétar, f. 5.1. 1996, og Guðmundur Sveinn, f. 25.11. 2004. 2) Kristján Steinar, f. 21. 9. 1966 maki Linda Björk Ævarsdóttir, f. 13.7. 1973, börn þeirra eru Kristján Heiðmar, f. 1.7. 1991, Andrea Björk, f. 23.8. 1993, Gunnþór Ingi, f. 1.4. 1997, og Feydís Ósk, f. 14.11. 2002. 3) Guð- ríður Ingunn, f. 23.11. 1968, maki Sævar Freyr Þorvarðarson, f. 20.6. 1968, börn þeirra eru Fannar, f. 22.5. 1991, Arnór Freyr, f. 10.5. 1993, Svan- hildur, f. 21.4. 1997, og Árný Mar- grét, f. 7.5. 2001. 4) Hjalti, f. 18.3. 1972, kvæntur Sveinbjörgu Snekkju Jóhannesdóttur, f. 20.8. 1973, synir þeirra eru Almar Knörr, f. 5.1. 1997, Steinar Daði, f. 3.9. 2002, og Þórður Ingi, f. 2.5. 2005. Kristján fæddist og ólst upp í Hvammkoti, árið 1949 fluttist fjöl- skyldan að Steinnýjarstöðum. Hann tók mjög ungur virkan þátt í bústörfunum. Hann gekk í skóla í sveitinni og hafði mjög gaman af því að læra. Þegar hann var 18 ára fór hann einn vetur í Smíða- skóla að Hólmi í Landbroti. Þar lærði hann smíði og einnig bók- legar greinar og hafði mikla Það er eins og árin séu steinar í grýttri fjöru, sumir ávalir, mjúkir og þægilegir, aðrir harðir, skörðóttir og beittir. Það er eins og árin séu steinar, sumir brotnir sem mistök fyrri ára, sumir gimsteinar sem við viljum aldrei gleyma. Það er líkt og árin séu steinar í grýttri fjöru, sem allir eru breytilegir. Og í höndum okkar við höldum á þessari fjöru fullri af steinum áranna af sandkornum augnablika og öldum minninga. (Kristján Már Gunnarsson.) Haustlaufin hafa verið að tínast af trjánum og allir fallegu litirnir þeirra með. Á haustdegi hinn 10. október kvaddi hann pabbi minn okkur. Baráttan var snörp, greining- in kom 9. júlí, krabbamein, reiðars- lag. Við reyndum öll að standa sam- an, sjá von og ljós í því sem framundan var en smám saman fór ljósið að dofna. En trúin á lífið er sterk. Hann pabbi stóð meðan stætt var, ekki var kvartað, það var ekki hans vani. Við fórum í réttirnar hinn 15. september, þar hitti hann vini sína og kunningja úr sveitinni, gat heils- að þeim og glaðst yfir því að sjá kindurnar koma af fjalli. Hann var þarna meira af vilja en mætti. Hon- um þótti alltaf gaman að fara í göng- ur og réttir og var um árabil í fjall- kóngur í Miðheiðinni. Reyndar var Skagaheiðin og Langavatn honum hugleikið. Hann átti sína bestu stundir við Langavatn eins og hann sagði sjálfur. Þarna var hann í ess- inu sínu og mest gaman ef aflinn var góður og flakaði silunginn að mikilli list. Eftir að veiðifélag var stofnað um Langavatn voru veiðileyfi seld á Steinnýjarstöðum og pabbi sá mikið um það og fylgdist vel með þeim afla sem kom á land. Pabbi var staðfastur og vandvirk- ur. Það sem hann tók að sér kláraði hann með sóma. Honum þótti gaman að smíða og með dugnaði og elju- semi byggðu hann og mamma upp jörðina á Steinnýjarstöðum. Á seinni árum einnig Steini bróðir og Linda með þeim. Pabbi var mikill bókamaður, haf- sjór af fróðleik og átti mikið bóka- safn. Ósjaldan var mér rétt ný bók þegar ég kom til hans og mömmu og spurt hvort ég væri búin að lesa þessa. Svo fékk ég kannski smávegis inngang að bókinni, svona til að vekja áhuga minn. Stundum varð lít- ið úr lestrinum hjá mér og þá sagði hann mér innihald bókarinnar. Pabbi hélt alltaf dagbók og í dag eru þessar bækur mikill fróðleikur um liðna tíð. Elsku pabbi minn, takk fyrir allt, nú líður þér vel. Guð geymi þig. Þú, mikla stund, gafst mönnum æðri sýn, svo myrkrið byrgir aldrei þeirra vegi. Því leynd í brjósti logar minning þín og lýsir þeirra veg á hinsta degi. (Davíð Stefánsson.) Elsku mamma, þú ert og verður hetjan okkar allra. Guð veri með þér og okkur öllum. Ykkar dóttir, Anna. Elsku pabbi. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka . Guð sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Pabbi var hafsjór af fróðleik og sagði svo vel frá að unun var á að hlusta. Hann var einnig mjög verklaginn, allt lék í höndunum á honum. Hvort sem það var að gera við vél- ar, smíða eða flaka silung. Hann sat aldrei auðum höndum og öll verk voru unnin af mikilli vand- virkni. Elsku pabbi, við kveðjum þig með söknuði. Megi góður Guð vaka yfir þér, elsku mamma og gefa þér styrk. Blessuð sé minning þín, elsku pabbi. Guðríður Ingunn og Sævar Freyr. Tengdafaðir minn er fallinn frá, maður sem við héldum öll að væri óendanlega hraustur og sterkur. En í sumar sem leið fór hann að finna fyrir einhverju í höfðinu, hreyfingar urðu hægar og hann átti orðið erfiðara um mál. Hann fór til læknis og þegar greiningin kom, að það væri krabba- mein, vissum við í hjarta okkar að framundan væri erfið en ekki óyf- irstíganleg þrautaganga. Hann tók þessu öllu með ótrúlegu æðruleysi og ró. Hans frábæra eiginkona stóð sem sterkur klettur með honum í þeirri baráttu og vék aldrei frá hon- um. En hann varð að lúta í lægra haldi fyrir þessum illvíga sjúkdómi hinn 10. október síðastliðinn. Kidda þótti gaman að veiða, hvort sem að það var að fara á rjúpu eða til silungsveiða í Langavatni, en þar hefur hann oft verið við veiði alveg frá því að hann var ungur maður heima á Steinnýjarstöðum. Kiddi var hagur maður, hvort sem hann smíðaði úr járni eða tré og þess bera vitni verk hans heima á Steinn- ýjarstöðum og víðar en í sameiningu byggðu þau hjónin upp allan húsa- kost á bænum. Hann sótti vertíðir frá Skagaströnd og Grindavík þegar hann var ungur maður og hafði gam- an af að vera á sjó. Margar sögur sagði hann okkur frá þeim tíma og var gaman að hlusta því að hann hafði góða frásagnargáfu og gaf sér góðan tíma til að segja frá þeim at- burðum sem hann hafði lent í. Hann fór til náms þegar hann var ungur maður og lá leiðin þá að Hólmi í Landbroti en þar var starf- ræktur skóli fyrir unga menn er vildu nema smíði og þar var gaman að vera og margar skemmtilegar sögur sem hann sagði okkur frá tíma sínum þar. Elsku Kiddi minn, nú er komið að leiðarlokum, ég þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og okkar fjölskyldu. Takk fyrir allt sem þú færðir okkur. Elsku tengdamamma, missir þinn er mikill sem og okkar allra. Ég bið þess að algóður guð styrki þig og blessi. Stýr mínu fari heilu heim í höfn á friðarlandi. Þar mig í þinni gæslu geym ó guð minn allsvaldandi. (V. Briem.) Gunnar Már Ármannsson. Kristján Kristjánsson ✝ Aðalbjörg Pétursdóttir fædd-ist á Stóra-Steinsvaði í Hjalta- staðaþinghá 2. janúar 1919. Hún andaðist á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 11. október síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Hall- fríður Björnsdóttir frá Engilæk í Hjaltastaðaþinghá og Pétur Rustikusson frá Blöndugerði í Hróarstungu. Systkini hennar, sem komust til fullorðinsára, voru Anna hús- freyja á Hrærekslæk í Hróars- tungu, Snorri, ólst upp á Litla- Bakka í Hróarstungu en fluttist síðar til Reykjavíkur og nam þar garðyrkju, og Margrét, húsfreyja á Akureyri. Aðalbjörg giftist 4. nóvember árið 1939 Eiríki Péturssyni bónda í Bót í Hróarstungu. Þau bjuggu allan sinn búskap í Bót, eða þar til Eiríkur andaðist í júní árið 1976 en það sama ár fluttist Aðalbjörg til Egilsstaða þar sem hún átti heimili upp frá því. Börn þeirra hjóna eru: 1) Hermann húsasmið- ur á Egilsstöðum, kona hans er Gunnþórunn Benediktsdóttir, börn þeirra eru Aðalbjörg, maður hennar er Haraldur Klausen, þau eiga tvær dætur, og Tryggvi. 2) Björn vélvirki á Seyðisfirði, kona hans er Gunnhildur Aðalbergs- dóttir, synir þeirra eru Viktor Bergur, kona hans er Teresa Stein, sonur þeirra Eiríkur Þór, og Ívar. 3) Sigríður verkstjóri í Reykjavík, dætur hennar og Guð- mundar Pálssonar eru Hafdís, gift Birni Ólafssyni, þau eiga þrjú börn, Heiðrún, sambýlismaður Kristvin Bjarnason, þau eiga tvö börn, Lilja Björg, sambýlismaður Friðrik Arnar Ásgrímsson, þau eiga eitt barn. 4) Pétur trésmiður í Reykjavík. Útför Aðalbjargar fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Nú hefur amma Abba loks fengið langþráða hvíld. Þegar Aðalbjörg frænka hringdi í okkur og sagði okkur að amma ætti ekki langt eftir ákváðum við systurn- ar að fljúga austur og dvelja hjá henni síðustu stundirnar. Við áttum hjá henni rúman sólahring og fyrir hann erum við óendanlega þakklátar. Það sem er efst í huga okkar á þessari stundu eru allar heimsókn- irnar til ömmu á Egils, eins og við kölluðum hana. Á hverju sumri fór einhver af okkur systrunum til ömmu og var hjá henni í góðan tíma. Það klikkaði aldrei að hún ætti Cocoa Puffs í búrinu, ís í frystikistunni og kleinur í dalli þegar okkur bar að garði, og ekki þurfti annað en að nefna að nú væri gott að fá rabar- bara- eða ávaxtagraut til að sú gamla væri hlaupin út í garð að slíta upp rabarbara og setja í pott. Eitt af því skemmtilega við að vera hjá ömmu var að fara með henni í berjamó. Þá var nú sko ekki nauðsyn- legt að öll berin rötuðu í dallinn. Það var jafnvel bara betra að einhver færu beint í munninn. Amma var mikil blómakona og ber garðurinn hennar þess gott vitni, með flottum steinbeðum með hinum ýmsu blómategundum og snyrtileg- um runnum og trjám. Oftar en ekki fórum við heim með afleggjara og færðum mömmu til að setja niður hjá sér. Við vorum alltaf stoltar af því hversu hraust amma var, hún fór um fjöll og firnindi og veigraði sér ekki við sér að fara í ferðir þó að hún væri komin á níræðisaldur. Hún var nú líka með húmorinn í lagi og alltaf gát- um við fengið hana til að hlæja. En umfram allt var amma góð kona sem alltaf var gott að heimsækja. Við eig- um allar góðar minningar frá Egils- stöðum og munum við sakna þess að koma á Furuvellina til ömmu. Með þessum orðum viljum við minnast ömmu og trúum við því að hún sé á góðum stað þar sem guð verndar hana og gætir. Ó, faðir, gjör mig lítið ljós um lífs míns stutta skeið, til hjálpar hverjum hal og drós, sem hefur vilzt af leið (Matthías Jochumsson.) Hafdís, Heiðrún og Lilja Björg. Það fækkar óðum í þeirri kynslóð sem lifði á sinni ævi mestu breytingar í sögu þjóðarinnar og raunar heims- ins alls. Verðugur fulltrúi þessarar kynslóðar, Aðalbjörg Pétursóttir, fyrrum húsfreyja í Bót í Hróars- tungu, er kvödd í dag. Í Bót var lengst af tvíbýli þeirra bræðra Eiríks Péturssonar, eigin- manns Aðalbjargar og föður míns, Stefáns. Þeir tóku við stórri jörð og góðu búi er móðir þeirra, Sigríður, lét af búskap. Þau Eiríkur og Aðalbjörg gengu í hjónaband 4. nóvember 1939. Ég var þá fjögurra ára og man glöggt er þau komu ríðandi í hlað utan frá Kirkjubæ. Í byrjun næsta árs tóku þau við búsforráðum á hlut Eiríks, bæði úti og inni. Húsið í Bót er steinhús, byggt árið 1913 og stórt á þess tíma mælikvarða. Alla tíð var mannmargt í Bót og gestagangur afar mikill, enda byggt um þjóðbraut þvera. Þessi heimili voru á þeim tíma heimur út af fyrir sig – allt frá vöggu til grafar. Vel þurfti að birgja sig upp af mat sem og öðru, í mörgu af ársforða.Var að mestu byggt á aldagömlum hefð- um og því sem búskapurinn gaf sér. Hlutskipti húsfreyjanna varð m.a. að taka á móti þeim sem að garði bar, annast bæði í mat og drykk og oft og tíðum gistingu. Og gistinætur og dagar gátu oft orðið æðimargir. Sam- göngur eystra voru þá afar erfiðar og oft ótryggar, svo iðulega varð að bíða færis, bæði veðurs og samleiðar lengra til. Þetta hlutverk ræktu hús- freyjurnar í Bót svo vel að orð fór af. Ég sniglaðist fljótt með í öllum verk- um og er ég nú lít til baka hef ég stundum á tilfinningunni að ég hafi að þessu leyti náð í skottið á „miðöld- um“ Þau Eiríkur eignuðust fjögur börn sem öll eru vel gjörð til orðs og æðis og voru þau ætíð foreldrum sínum stoð og stytta í hvívetna. Aðalbjörg var fremur hlédræg, en naut þess að gleðjast með glöðum. Bókhneigð var hún með afbrigðum og segja má að bóklestur hafi verið henni ástríða og hún las ekki bara því hún mundi allt. Þessi ástríða og löngun var hennar fylgja og litaði raunar allt hennar líf. Hún var því hafsjór af fróðleik er hún hafði á reiðum höndum þá á þurfti að halda. Hagmælt var hún en hirti ekki um. Ég var sem krakki í uppáhaldi hjá Öbbu og margar stundir var ég hjá henni við ýmsa sýslan. Daglegur könnunarleiðangur minn var um hvað væri í matinn á hvoru búi fyrir sig og hlammaði ég mér að sjálfsögðu þeim megin sem lokkaði meir. Síðar á lífsleiðinni dvaldi hjá þeim í nokkur sumur sonur okkar, Jón Steinar, sem þar með fékk að upplifa reykinn af bernskuheimili móður sinnar. Eiríkur frændi var íhaldssamur á alla búskaparhætti og frábitinn að gleypa við nýjungum er þá varðaði. Skuldir voru ekki í afstöðu eða orða- forða þeirra hjóna. En þau áttu traust bú sem gagn- aðist þeim vel, umfram það höfðu þau ekki áhuga. Hann naut þess eins og Aðalbjörg að lesa og afraksturinn skeggræddu þau fram og aftur. Frændi minn var andstætt Aðal- björgu svolítill bóhem í sér, söngvinn og naut þess að dreypa á „söngvatni“ í góðra vina hópi. „Æ, frændi minn. Þú kannt ekki að njóta lífsins,“ sagði hann eitt sinn er einn vinnuþjarkur- inn kom seint í gleðskapinn til hans. Eftir lát Eiríks fluttist Aðalbjörg austur í Egilsstaði og bjó þar í skjóli sonar síns og tengdadóttur þar til hún eignaðist sitt eigið hús, þar sem hún undi sér vel. Á ferðum hér syðra var gaman að taka á mót henni. Þá ekið var út fyrir borgina gjörþekkti hún til staða og kennileita sem á leið urðu þó í fyrsta sinn væri farið. Þau Eiríkur lásu Árbækur Ferða- félagsins á löngum vetrarkvöldum og ferðuðust á þann máta um landið og þekktu það með ólíkindum vel. Að öðru leyti voru þau ekki víðförul. Nú hefur lífsbók Aðalbjargar verið lokað. Megi hún handan móðunnar miklu fá svalað þeirri þekkingarþrá og fróðleiksfýsn, sem æ bjó í brjósti hennar í heimi hér. Birna H. Stefánsdóttir. Aðalbjörg Pétursdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.