Morgunblaðið - 20.10.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2007 39
KIRKJUSTARF
SIGURVEGARI síðasta Reykja-
víkurskákmóts, Egyptinn Ahmed
Adly varð nokkuð óvænt heimsmeist-
ari unglinga 20 ára og yngri í Yerevan
í Armeníu. Hann hlaut 10 vinninga af
13 mögulegum. Mótinu lauk fyrir
viku. Dagur Arngrímsson og Guð-
mundur Kjartansson tefldu annað ár-
ið á þessu móti og hlutu báðir 5½
vinning sem er nokkuð undir vænt-
ingum. Þó hækkaði Dagur lítils hátt-
ar að stigum. Alls voru þátttakendur
80 talsins þar af 15 stórmeistarar.
Báðir byrjuðu illa, t.d. tapaði Guð-
mundur þrem fyrstu skákum sínum
og Dagur tveim fyrstu. Þeir náðu sér
vel á strik um miðbik mótsins en slök-
uðu á undir lokin. Dagur var sérstak-
lega ófarsæll þegar hann var með
hvítt.
Ahmed Adly náði efsta sæti á síð-
asta Reykjavíkurskákmóti þegar
hann lagði Magnús Carlsen í lokaum-
ferðinni eftir að hafa þurft að vera
með alveg sérstaklega ólánlega stöðu
lengi vel. Hann er fyrsti stórmeistari
Egypta og er hér greinilega athygl-
isverður persónuleiki á ferðinni.
Uppáhaldsskákmaður hans er
Mikhael Tal og hann tefldi nokkrar
skákir í anda töframannsins frá Ríga.
Á mótinu í Yerevan var hann nr. 21 í
styrkleikaröðinni.
Ahmed Adly tapaði fyrstu skák
sinni en vann síðan sjö skákir í röð!
Síðan tapaði hann næstu tveimur en
klykkti út með því vinna síðustu þrjár
– toppaði því í hárréttum tíma. Rúss-
inn Ivan Popov varð í 2. sæti með 9½
vinning og Kínverjinn Hao Wang í 3.
sæti með 9 vinninga.
Lítum á sigur Egyptans í 8. um-
ferð. Hann mætir Sikileyjarvörninni í
anda Bobby Fischer með því að beita
kóngsindverskri uppbyggingu. Upp-
bygging svarts er ekki nógu markviss
og hann missir hrókunarréttinn þar
sem 19. … O-O strandar á 20. Rxg7!
Kxg7 21. Rf6! ásamt 22. Dg4+.
Mannsfórnin 23. Rf6! má heita beint
út úr skóla Tal, 24. … Ke8 strandar á
25. Dxf6! Hg8 26. Rd6+ Kf8 27.
Bh6+ Rg7 28. Rf5! o.s.frv. Á g8 er
kóngsstaða svarts fullkomlega von-
laus. Sennilega hefur svartur vonast
til að geta leikið 26. … Rcd4 en þá
kemur einfaldlega 27. Rxd4! cxd4 28.
He5! – tjaldið.
Drottningarfórnin í lokin er snotur,
28. … Rxg7 29. Rh6 mát.
HM unglinga – Yerevan; 8. umferð:
Ahmed Adly (Egyptaland)
– Viktor Laznicka(Tékkland)
Sikieyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d3 Rc6 4. g3 d5
5. Rbd2 Rf6 6. Bg2 Be7 7. O-O b6 8.
He1 Bb7 9. e5 Rd7 10. c4 Dc7 11.
cxd5 exd5 12. d4 Rf8 13. Rf1 Re6 14.
dxc5
bxc5 15. Re3 d4 16. Rd5 Dd7 17.
Rd2 Rb4 18. Rxe7 Bxg2 19. Rf5 Bd5
20. Re4 Kf8 21. a3 Rc6 22. Dh5 d3 23.
Rf6 gxf6 24. Dh6+ Kg8 25. exf6 He8
26. Bf4 Hc8 27. Bd6 Rcd4
28. Dg7+
At-skákmót Íslands 2007
Meira en 40 skákmenn hófu keppni
í At-skákmóti Íslands sl. fimmtudags-
kvöld. Keppt er með út-
sláttarfyrirkomulagi sem gerði það að
verkum að sterkustu skákmennirnir
sátu yfir í 1. umferð. Í annarri um-
ferð, sem hófst í gær, hófu þeir tafl-
mennsku en þar fer fremstur Hannes
Hlífar Stefánsson og síðan komu m.a.
Þröstur Þórhallsson, Stefán Krist-
jánsson, Arnar Gunnarsson, Stefán
Kristjánsson, Bragi Þorfinnsson, Sig-
urbjörn Björnsson, Snorri Bergsson,
Björn Þorfinnsson, Davíð Kjartans-
son, Róbert Lagerman, Ingvar Jó-
hannesson og Guðmundur Kjartans-
son.
Haustmót TR – MP-mótið
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur
– MP-mótið, hefst sunnudaginn 21.
október kl. 14 í Skákhöllinni. Faxa-
feni 12. Haustmót TR hefur löngum
verið eitt af stóru mótunum í flokki
með Skákþingi Reykjavíkur og Skák-
þingi Íslands. Aðalstyrktaraðili þess
er MP fjárfestingarbanki. Teflt verð-
ur í húsakynnum Taflfélags Reykja-
víkur, í skákhöllinni Faxafeni 12, á
miðvikudögum, föstudögum og
sunnudögum og eru góð verðlaun í
boði í öllum flokkum. Alls verða tefld-
ar 9 skákir í hverjum flokki. Í efstu
flokkunum verður teflt í lokuðum 10
manna flokkum, en í neðsta flokki
verður teflt eftir svissnesku kerfi.
Hægt er að tilkynna þátttöku í net-
fangið taflfelag@taflfelag.is eða í
síma 895-5860. Skákstjóri er Ólafur S.
Ásgrímsson.
Óvæntur eygypskur sigur
Góðar móttökur Nýbakaður heimsmeistari Wisvanathan Aanad fékk góð-
ar móttökur þegar hann sneri aftur til Indlands á dögunum. Mikill mann-
fjöldi beið komu hans á flugvellinum í Nýju Dehli og lá við að móttöku-
athöfnin færi úr böndunum vegna mannfjöldans. Í heimaborg hans sem
áður hét Madras en ber nú nafnið Chennai var skipulagið betra en hér veif-
ar Anand til mannfjöldans.
Skák
HM unglinga í Yerevan
2.–27. október
helol@simnet.is
Helgi Ólafsson
Haustmessa
í Krýsuvíkurkirkju
Haustmessa verður haldin í Krýsu-
víkurkirkju sunnudaginn 21. októ-
ber kl. 14, á þessu 150 ára afmæl-
isári hennar. Sætaferð verður frá
Hafnarfjarðarkirkju kl. 13. Sr.
Gunnþór Þ. Ingason messar, Guð-
mundur Sigurðsson kantor leikur á
orgel og Þóra Björnsdóttir verður
forsöngvari. Við upphaf messu verð-
ur nýútgefin Biblía í nýrri þýðingu
borin inn í kirkjuna. Við lok messu
verður „Upprisa“, altaristafla
Krýsuvíkurkirkju eftir Svein
Björnsson, tekin ofan og að þessu
sinni mun hún hafa vetursetu í
Sveinshúsi vegna viðgerða á Hafn-
arfjarðarkirkju. Eftir messuna er
boðið til messukaffis í Sveinshúsi en
þar stendur yfir sýningin ,,Siglingin
mín“. Mikill mannfjöldi var við-
staddur hátíðarmessu í Krýsuvík-
urkirkju á hvítasunnu í vor, þegar
150 ára vígsluafmæli hennar var
fagnað m.a. með frumflutningi ljóðs
eftir Matthías Johannessen og nýrr-
ar tónlistar eftir Atla Heimi Sveins-
son. Messuskrá var þá gefin út sem
fólki býðst í Sveinshúsi.
Sameiginleg
messa á Héraði
Sameiginleg messa safnaðanna á
Héraði verður í Eiðakirkju 21. októ-
ber kl. 14, í tilefni af útkomu nýrrar
Biblíu. Sr. Lára G. Oddsdóttir pré-
dikar, sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir
og sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson
þjóna fyrir altari. Kaffi í safn-
aðarheimilinu eftir messuna.
Myndlistarsýning
í Grafarvogskirkju
Guðsþjónusta verður 21. október kl.
11. Dr. Gunnar Kristjánsson pró-
fastur prédikar og séra Vigfús Þór
Árnason þjónar fyrir altari.
Opnuð verður sýning á verkum
Magnúsar heitins Kjartanssonar
myndlistarmanns. Aðalsteinn Ing-
ólfsson listfræðingur flytur erindi
um myndlistarmanninn. Listfélag
Grafarvogskirkju stofnað og nýja
Biblían afhent skólastjórum í Graf-
arvogi. Kaffiveitingar eftir messu.
Samkirkjulegur bóka-
og tónlistarmarkaður
Bókaforlagið Salt ehf. og Samband
íslenskra kristniboðsfélaga standa
fyrir samkirkjulegum bóka- og tón-
listarmarkaði dagana 25.-27. októ-
ber í kjallara húss KFUM og KFUK
við Holtaveg 28, gegnt Langholts-
skóla. Til sölu verða bækur og tón-
listardiskar með kristilegu efni frá
mismunandi bókaútgefendum og
kirkjum. Bækurnar eru bæði inn-
lendar og erlendar, nýjar, nýlegar
og eldri, barnabækur, ýmiss konar
fræðslurit um kristna trú og kirkju,
og bækur um hjónaband og upp-
eldi, auk ljóða- og bænabóka, skáld-
sagna og ævisagna. Kaffihús verð-
ur opið meðan á markaðinum
stendur. Sérstök tilboð verða í
gangi og útvaldar bækur gefins.
Markaðurinn verður opinn fimmtu-
daginn 25. og föstudaginn 26. okt.
kl. 16-22 og laugardaginn 27. okt.
kl. 13-16.
Nýr hökull
afhentur í
Seltjarnarneskirkju
Guðsþjónusta kl. 11. Tekið verður á
móti nýrri Biblíuþýðingu frá Hinu
íslenska Biblíufélagi. Einnig verður
afhentur og helgaður nýr hökull
eftir Herder Andersson og afhendir
Herder sjálfur hökulinn. Eftir guðs-
þjónustuna er boðið upp á kaffiveit-
ingar í safnaðarheimili kirkjunnar.
Kammerkór kirkjunnar leiðir tón-
listarflutning undir stjórn Friðriks
Vignis organista. Prestur er Sig-
urður Grétar Helgason.
Tónlistarmessa
í Vídalínskirkju
Tekið verður á móti nýrri Bibl-
íuútgáfu við messu í Vídalínskirkju
21. október kl. 11. Af því tilefni
verður kirkjuskipið fyllt af tónlist
og kór Vídalínskirkju flytur fjöl-
breytta sálma og tónlist frá ýmsum
löndum og frá ýmsum tímum, m.a.
sálm frá rússnesk orþodox-
kirkjunni, lag frá Suður-Ameríku og
verk eftir tónskáld sem var uppi á
17. öld auk sálmalaga eftir núlifandi
höfunda. Nýjasti sálmurinn er eftir
Hildigunni Rúnarsdóttur við texta
eftir sr. Kristján Val Ingólfsson og
var hann fyrst kynntur á Menning-
arnótt í Reykjavík í ágúst sl. Þetta
eru allt ljúf en ólík lög og verður
notast við ásláttarhljóðfæri við
flutning sumra þeirra. Sunnudaga-
skóli er á sama tíma í umsjá Ár-
manns H. Gunnarssonar. Hressing í
safnaðarheimili eftir messu. Sjá
www.gardasokn.is.
Bæna- og
kyrrðarstundir
í Garðaprestakalli
Í Garðaprestakalli er boðið upp á
fjórar samverur í viku þar sem
kyrrð og samtal við Guð er megintil-
gangurinn. Kyrrðar- og íhug-
unarstundir eru á þriðjudögum kl.
12, í Vídalínskirkju. Kl. 12.10 fyllist
kirkjuskipið af tónlist og stendur sá
flutningur í tuttugu mínútur með
þremur hléum, en þá eru flutt ritn-
ingarvers eða ljóð. Stundin endar á
bæn, söng og blessunarorðum. Á
meðan tónlist er leikin í kyrrð-
arstundinni er hægt að ganga milli
bænastöðva í kirkjuskipinu. Að lok-
inni kyrrðarstund kl. 12.30 er hægt
að kaupa súpu og brauð í safn-
aðarheimilinu á vægu verði. Bæna-
hringur kvenna er á miðvikudögum
kl. 17.30, í kapellu Vídalínskirkju.
Þau sem vilja senda inn bænarefni
geta sent á netfangið jonahronn@g-
ardasokn.is. Á miðvikudagskvöldum
kl. 20-21 eru kyrrðar- og bæna-
stundir í leikskólanum Holtakoti á
Álftanesinu. Bænarefni má senda á
netfangið maggegg@simnet.is. Á
fimmtudagskvöldum kl. 21 eru
helgistundir og fyrirbænarþjónusta
í Vídalínskirkju. Boðið eru upp á
hressingu og spjall í safnaðarheim-
ilinu á eftir. Bænarefni má senda á
netföngin fhjartar@gardasokn.is og
ngdjakni@gardasokn.is. Sjá
www.gardasokn.is
Nýja Biblíuútgáfan í
Hallgrímskirkju
Fræðslumorgunn, hátíðarmessa og
barnastarf verður 21. október, í til-
efni þess að um þessa helgi kemur út
ný Biblíuútgáfa. Fræðslumorgunn
hefst kl. 10 en efni hans nefnist:
Nýja biblíuþýðingin: kirkjubiblía,
biblíuhefð og tryggðin við frumtext-
ann. Erindi heldur dr. Guðrún Kvar-
an prófessor við hugvísindadeild
Háskóla Íslands sem kom að nýrri
þýðingu Biblíunnar sem formaður
þýðingarnefndar Gamla testament-
isins og apókrýfu bókanna og var
einnig í þýðingarnefnd Nýja testa-
mentisins. Í erindinu verður fjallað
um alla þá vinnu, biblíuhefðina og
trúna við frumtextann og rætt um
breytt viðhorf til tungumálsins.
Messa og barnastarf hefst kl. 11.
Biblían verður borin inn í kirkjuna
af unglingi í inngöngusálmi mess-
unnar ásamt ljósberum og kross-
bera. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Guðna Má Harðarsyni
skólapresti og hópi messuþjóna.
Barnastarfið er í umsjá Magneu
Sverrisdóttur djákna en börnin taka
einnig á móti nýju Biblíunni í sitt
starf. Hópur úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngur undir stjórn
Harðar Áskelssonar kantors sem
einnig verður organisti. Söfnun
dagsins rennur til Hins íslenska
Biblíufélags.
Tónleikar verða kl. 17. Jón Þor-
steinsson tenór syngur sálma-
dagskrá við undirleik Harðar Ás-
kelssonar.
Biblíulestur í
Fríkirkjunni
í Reykjavík
Biblíulestur úr nýútgefinni Biblíu
verður kl. 13 í Fríkirkjunni í Reykja-
vík. Við lesum saman sem leikmenn
en ekki sem fræðingar og berum
saman gamla og nýja textann í Rut-
arbók 2:8-12. Almenn guðsþjónusta
og barnastarf kl. 14. Hjörtur Magni
Jóhannsson þjónar og prédikar í
guðsþjónustunni, tvö börn verða
borin til skírnar. Carl Möller og
Anna Sigga leiða tónlistina og al-
mennan safnaðarsöng. Ása Björk
Ólafsdóttir og Móeiður Júníusdóttir
fara með börnunum í barnastarfið í
safnaðarheimilinu eftir að guðsþjón-
ustan er hafin. Þar verður lesin
helgisaga, sungið og brúðurnar
koma í heimsókn.
Æðruleysis-
guðsþjónusta í
Dómkirkjunni
Æðruleysisguðsþjónusta verður í
Dómkirkjunni 21. október. Guðs-
þjónustan verður með hefðbundnum
hætti, séra Jakob Ágúst Hjálm-
arsson prédikar og séra Karl Matt-
híasson og séra Anna Sigríður Páls-
dóttir þjóna með honum. Um tónlist
sjá Hörður Bragason, Birgir Braga
og Hjörleifur Valsson, Anna Sigríð-
ur Helgadóttir leiðir sönginn og
syngur einsöng. Æðruleysisguðs-
þjónustan er einkum ætluð þeim
sem kynnst hafa og tileinkað sér 12
spora kerfi AA-samtakanna, en aðr-
ir eru að sjálfsögðu velkomnir.
Regnbogamessa
Akureyrarkirkju
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Söfn-
uðurinn tekur við nýrri útgáfu Bibl-
íunnar. Barnakórar Akureyr-
arkirkju syngja undir stjórn Eyþórs
Inga Jónssonar, prestur er sr. Svav-
ar Alfreð Jónsson. Regnbogamessa
kl. 20. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
flytur hugvekju og Páll Óskar
Hjálmtýsson syngur. Fulltrúar frá
nýstofnuðum hópi Samtakanna ’78 á
Norðurlandi flytja stutt ávörp og at-
riði. Stúlknakór Akureyrarkirkju
syngur undir stjórn Eyþórs Inga
Jónssonar. Prestur er sr. Óskar Haf-
steinn Óskarsson.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Krýsuvíkurkirkja.