Morgunblaðið - 27.10.2007, Side 5

Morgunblaðið - 27.10.2007, Side 5
Morgunblaðið |5 Við vetrarkomu til forna tíðk- uðust ekki aðeins matarhátíðir heldur var til siðs að rýna í ýmis líffæri dýra, til þess að reyna að spá því hvernig veðurfarið yrði þann vetur, einkum kinda enda spiluðu þær stóra rullu í lífi hins íslenska bónda til forna. Í Sögu daganna eftir Árna Björnsson segir frá því að samkvæmt einni heimild þótti gott að taka nýtt kindarmilta, skera í það átta samsíða skurði og leggja það svo einhvers staðar þar sem enginn næði í það daglangt. Við skoðun daginn eftir var sérstaklega rýnt í hvort skurðirnir hefðu glennst í sundur eða ekki. Hefðu þeir glennst í sundur þýddi það góða veðráttu um veturna en væru þeir fastir saman myndi illa viðra. Ýmsar útfærslur voru þó á vetrarveðurspánni með kind- armiltanu eftir ársfjórðungum. Einnig var spáð í kindagarnir og var þá yfirleitt miðað við fyrstu kind sem slátrað var heima. Rakið var frá endagörn sem merkti upphaf vetrar og kannað hvar auðir blettir var í görnunum. Á þeim tímabilum vetrarins mátti búast við harð- indum en þíðviðri þar sem garnir voru fullar. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Spákindur Kindur höfðu margvíslegu hlutverki að gegna til forna og kindamiltu og garnir voru meðal annars talin geta sagt til um veðurfar. Kindalíf- færi segja fyrir um vetrar- veðrið EKKI VERA SÚR Eru tennurnar í sýrubaði oft á dag? Sýran í sykruðum og sykurlausum gos- drykkjum getur eytt glerungi tannanna – og hann kemur aldrei aftur. Það er ekki bara súrt heldur líka sárt. Drekktu vatn – líka kolsýrt vatn! E N N E M M / S ÍA / N M 2 5 2 0 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.