Morgunblaðið - 21.11.2007, Page 6

Morgunblaðið - 21.11.2007, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is VEFSÍÐAN www.deCODEme.com hafði á mánudagskvöld fengið um tíu þúsund heimsóknir að sögn forsvars- manna Íslenskrar erfðagreiningar en um er að ræða nýja þjónustu sem ÍE hleypti af stokkunum fyrir helgi og gerir fólki kleift að öðlast vitneskju um eigin uppruna og hvernig erfða- mengi þeirra lítur út með tilliti til þeirra erfðaþátta sem vitað er að auka eða minnka líkur á algengum sjúkdómum. Þessar 10.000 heimsókn- ir hafa nú þegar skilað u.þ.b. eitt þús- und viðskiptavinum, þ.e.a.s. um eitt þúsund manns eru búnir að opna reikning á vefsvæðinu í því skyni að fá þjónustuna sem í boði er. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskr- ar erfðagreiningar, segir tilganginn með þessari þjónustu þá að færa erfðafræði nær almenningi með því að nýta þá sérþekkingu sem ÍE hefur byggt upp á sl. ellefu árum. Vonandi geti hún þróast út í það að verða afl í fyrirbyggjandi læknisfræði. Vefsvæðið veiti mönnum vitaskuld ekki endanlegar upplýsingar um það hvaða algengu sjúkdóma þeir muni fá – s.s. hjartaáfall, sykursýki, hjart- sláttaróreglu eða brjóstakrabbamein – enda sé það ekki erfðaþátturinn einn sem ráði því hvaða sjúkdóma menn fái, þar komi umhverfisþáttur- inn einnig inn í. Kári segir hins vegar að með þær upplýsingar í höndunum, sem kaupandi þjónustunnar tryggir sér, geti menn orðið meðvitaðri um hvaða sjúkdóma þeir séu líklegri til að fá en ella og geti þá um leið reynt að haga lífi sínu skynsamlega þannig að það hafi áhrif á umhverfisþáttinn. Kostar um 60 þúsund ísl. kr. Þjónustan virkar svona: Menn heimsækja vefsvæðið, www.de- CODEme.com, og skrá sig þar til þátttöku með því að inna af hendi greiðslu með krítarkorti. Um leið og það hefur verið gert opnast fyrir þá sérstakt svæði á síðunni og þeir fá jafnframt sendan tunguspaða í pósti sem þeir nota til að stroka lífsýni úr munninum innanverðum. Sýnið er svo sent Íslenskri erfðagreiningu þar sem það er rannsakað og arfgerðar- greint og niðurstöðurnar svo settar á persónulegt vefsvæði einstaklingsins. Þjónusta þessi er tiltölulega dýr, kostar 985 dollara eða um sextíu þús- und íslenskar krónur. Kári segir hins vegar að gjaldið helgist af kostnaðin- um og bendir á að annað fyrirtæki, sem rói á sömu mið, hyggist rukka viðskiptavininn um 3.000 dollara. Þá segist Kári vonast til að gjaldið eigi eftir að lækka þegar fram í sækir. Vonir standa til að vefsíðan www.deCODEme.com eigi eftir að reynast Íslenskri erfðagreiningu drjúg tekjulind en Kári vill lítið tala um hvers konar væntingar menn gera til þjónustunnar. Útilokað sé að segja fyrir um þá hluti. Hitt er auðséð að markaðurinn hefur trú á verkefn- inu því að gengi bréfa deCODE, móð- urfélags Íslenskrar erfðagreiningar, snarhækkaði á Nasdaq-hlutabréfa- markaðnum í Bandaríkjunum á föstu- dag, daginn sem tilkynnt var um opn- un www.deCODEme.com, eða um nálega 19%. Gengið var 2,96 dollarar á hlut í lok þriðjudags fyrir viku, var komið í 3,60 dollara við lok viðskipta á föstudag og hækkaði svo enn á mánu- dag, fór í 3,77 dollara hluturinn. Kári hefur mikla trú á þessari af- urð ÍE. Hann nefnir annað fyrirtæki sem bjóði upp á svipaða þjónustu, www.23andme.com, en segir Íslenska erfðagreiningu hafa miklu betri vöru að bjóða. Hann nefnir sem dæmi að hin vefsíðan útvisti genarannsóknirn- ar sjálfar, hafi aldrei starfað neitt að erfðarannsóknum. Þar búi ÍE hins vegar að mikilli reynslu. „Við erum búin að vera að vinna við arfgerðar- greininguna í ellefu ár og það er hún sem skiptir öllu máli,“ segir Kári og heldur svo áfram: „Íslensk erfða- greining skarar algerlega fram úr á sínu sviði. Ég fullyrði þetta.“ Eigum að reyna að öðlast innsýn í sjúkdóma „Hugmyndin á bak við þetta bygg- ist á því að við erum búin að vera að vinna í mannerfðafræði í ellefu ár. Við höfum líklega lagt jafnmikið af mörk- um til uppgötvunar á erfðavísum sem leggja af mörkum til arfgengra sjúk- dóma eins og allur heimurinn sam- anlagður. Þetta eru engar ýkjur. Við höfum verið í forystu á þessu sviði og höfum t.d. fengið birtar á annað hundrað fræðigreinar upp á síðkastið um erfðafræði algengra sjúkdóma. Jafnframt hefur verið skrifað um þessar rannsóknir í dagblöðum, New York Times hefur t.d. 42 sinnum skrifað um deCODE á undanförnum þremur árum og rannsóknir okkar endað á forsíðu blaðsins á milli tíu og tuttugu sinnum vegna uppgötvana af þessari gerð. En þessu fylgir, í mín- um huga að minnsta kosti, sú skylda að við gerum þetta skiljanlegt fyrir fólkið sem er sífellt að lesa um þetta, þ.e. hvað þýðir þessi uppgötvun fyrir þig?“ Sjúklingurinn veit meira en læknirinn Kári leggur áherslu á að tilkoma www.deCODEme.com sé því liður í þróun sem stuðli að því að æ meiri vitneskja verði til um sjúkdóma. „Ef við horfum á þetta í víðara samhengi þá getum við spurt okkur að því hvernig heilbrigðisþjónusta hefur þróast. Á undanförnum árum hefur það orðið æ algengara að menn fari á netið og lesi allt um sjúkdóminn, sem þá grunar að þeir hafi, og um ein- kenni hans áður en þeir fara og hitta lækninn. Það er mjög algengt að þeg- ar sjúklingurinn loks hittir lækninn þá veit hann meira um sjúkdóminn heldur en læknirinn. Þetta held ég að sé mjög jákvætt, mér finnst sem lækni að það sé mjög jákvætt, þarna er fólk farið að taka meiri og meiri ábyrgð á eigin heilbrigðisþjónustu. Það má leiða að því rök að þessi þjón- usta okkar sé næsta skref í þessa átt. Þarna fá menn innsýn í það hver sé þeirra áhætta varðandi sjúkdóma og hvort þeir geti gert eitthvað í því; sé erfðafræðilega meiri hætta á því að þú fáir hjartaáfall en gengur og gerist geturðu reynt að stjórna umhverfis- þættinum með því að lækka blóðfitu eða hreyfa þig.“ Kári segist ósam- mála því að mikilvægt sé að löggjaf- inn setji reglur um svona rannsóknir. Menn eigi að geta fengið að öðlast vitneskju um sjálfa sig, það sé rangt að hætta að reyna að öðlast innsýn í sjúkdóma. Hitt sé annað mál hvað trygginga- félög fái að spyrja fólk um varðandi fjölskyldusögu og mögulega sjúk- dóma. Afstaða manna til þeirra hluta eigi ekki að verða til þess að þeir setji hömlur á rannsóknir sem geti stuðlað að betri heilsu. Þróast vonandi út í það að verða afl í fyrirbyggjandi læknisfræði KÁRI Stefánsson lét sig hafa það ný- verið – þegar www.deCODEme.com komst á koppinn – að arfgerð- argreina sig í fyrsta sinn. Sú greining leiddi ýmislegt áhugavert í ljós en Kári segir ekkert þar hafa komið sér á óvart. „Ég veit hvers konar vesa- lingur ég er, ég þarf ekki DNA til að sýna mér sannleikann í þeim efnum,“ segir hann kersknislega. Greining sú sem Kári fékk til baka, eftir að hafa prófað þjónustu www.deCODEme.com, leiðir í ljós að hættan á því að hann fái hjartaáfall er 70% af meðaláhættu á því að fá hjartaáfall í samfélaginu, þ.e. áhættan er 30% minni en hjá meðaljóninum. Kári er hins vegar í meiri áhættuhópi en almennt gerist hvað varðar elliblindu, áhættan er 50% meiri en að meðaltali. En hver er þessi meðaláhætta? Þeir útreikningar byggjast á víðtækum rannsóknum sem sýna að átta af hverjum 100 fá elliblindu, meðaláhættan er því 8%. Áhættan hjá Kára er 12%, hún er því ekkert ofboðslega mikil en 50% meiri en gengur og gerist. Kára er líka hættara við að fá sykursýki fullorðinna en gengur og gerist, þar munar um 30%. Rannsóknir sýna að 7-10% líkur eru á því að fólk fái sykursýki full- orðinna og líkurnar hjá Kára eru því 10-13%. Kára er ennfremur 30% hættara við að fá hjartslátt- aróreglu en meðalmanninum, en hjartsláttaróregla er ein af algengustu ástæðum þess að menn fá heilablóð- fall. „Ég veit hvers konar vesalingur ég er“ DeCODE býður erfðagreiningu fyrir almenning Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „SAMVERA foreldra og unglinga skiptir alveg rosalega miklu máli,“ segir Sunneva Sverrisdóttir, nem- andi í 10. bekk í Hagaskóla. Hún tók þátt í dagskrá Forvarnardagsins í 9. bekk í fyrra og segir hana tvímæla- laust hafa haft áhrif á hugsanagang unglinga og foreldra. Ragnhildur Ásta Valsdóttir er nú í 9. bekk og tekur því þátt í dag- skránni í ár. Hún er jákvæð gagn- vart skilaboðunum og segist viss um að áherslurnar séu góðar og eigi eft- ir að virka vel. Sunneva og Ragnhildur eru sam- mála um að mikill kostur sé að verk- efni Forvarnardagsins fjalli ekki um áfengis- eða tóbaksneyslu sem al- gjört bann. „Það er ekkert verið að tala um að það eigi aldrei að drekka áfengi eða aldrei að reykja. Það er bara verið að benda okkur á að hvert ár sem við bíðum með að drekka skiptir máli og minnkar líkurnar á því að neyslan leiði út í eitthvað meira,“ segir Sunneva. Þær halda að þessar áherslur hafi hjálpað mörgum og fengið þá til að staldra við og hugsa. Umræðan um aukna samveru með foreldrum segja þær að hafi líka vakið þær til umhugsunar. „Maður áttaði sig betur á því hvað samvera er, – það þarf ekki að fara í Karab- íska hafið í einhverja rosa fjöl- skylduferð. Það er nóg að tala sam- an, borða saman eða horfa á sjónvarpið. Eða að spjalla við pabba þegar hann skutlar mér í skólann,“ segir Sunneva. Ragnhildur er sammála um að oft séu það unglingarnir sem þurfi að vera jákvæðari í garð foreldranna, þó foreldrarnir verði vissulega líka að passa að gefa þeim tíma. Varðandi íþróttaiðkun unglinga eru þær sammála um að það vanti meira val fyrir unglinga sem ekki vilji endilega stunda íþróttir til að keppa í þeim og ná langt. „Þetta er bara of mikið stundum og þá hafa unglingarnir minni tíma fyrir skól- ann og detta jafnvel alveg út úr fé- lagslífinu,“ segir Ragnhildur. Þær búast báðar við miklum breytingum þegar þær byrja í fram- haldsskóla og hafa orðið varar við að foreldrum þyki áfengisneysla þar ekki endilega stórmál. Nauðsynlegt sé þó að foreldrar skipti sér áfram af og grípi inn í ef það þurfi, forvarn- arstarf sé einnig mikilvægt í fram- haldsskólum. Ragnhildur og Sunneva myndu báðar vilja hafa meira um það að segja hvernig forvarnarfræðsla meðal unglinga er byggð upp, að betur væri hlustað á hugmyndir unglinga og þeir fengju tækifæri til að móta starfið. Forvarnardagurinn hefur ótvíræð áhrif Morgunblaðið/Brynjar Gauti Jákvæðar Ragnhildur Ásta Valsdóttir og Sunneva Sverrisdóttir eru nem- endur í Hagaskóla. Þær telja áherslur Forvarnardagsins góðar og að verk- efnið frá því í fyrra hafi skilað góðum árangri. Í HNOTSKURN » Forvarnardagurinn er ídag og beinist að öllum 9. bekkjum grunnskóla. »Heilræðin eru þrjú:Meiri samvera fjölskyldna. Þátttaka ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Frestun áfengisneyslu. »Niðurstöður úr hópastarfiunglinganna verða kynnt- ar eftir áramót. »Nánari upplýsingar umverkefnið má finna á: www.forvarnardagur.is. Kári Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.