Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Í ÁHRIFARÍKRI ræðu taldi Nixon
Bandaríkjaforseti að eiturlyfin væru
versti óvinur landsins, orðin voru
sögð í kringum 1970, og eru ein af fé-
lagslegum rótum handritsins Am-
erican Gangster. Myndin hefst á
þessum umbrotatímum þegar
heimsmyndin hékk í lausu lofti, stríð
geisaði í Víetnam og óöld ríkti sem
aldrei fyrr á strætum stórborganna.
Frank Luca (Washington), er ekill
og hægri hönd Ellsworth (Bumpy)
Johnson, glæpaforingja í Harlem,
hann er útsmoginn, ungur smá-
krimmi sem hugsar stórt og lærir
iðn sína af húsbóndanum. Þegar
Bumpy fellur frá, grípur Luca tæki-
færið og leggur smám saman undir
sig eiturlyfjamarkaðinn í borg-
arhlutanum.
Til að ná markmiðunum, verða
ríkur og virtur, þarf Frank á að
halda ofurmagni heróíns, hann er
ekki að tvínóna við að láta draumana
rætast, heldur flýgur á fund fram-
leiðandans í Gullna þríhyrningnum á
Austur-Indlandsskaganum. Sér
sóknarfæri í flutningaleiðum Banda-
ríkjahers til og frá Víetnam.
Á sama tíma berst lögreglumað-
urinn Richie Roberts (Crowe), við
úrhrök öngstrætanna, er einn fárra
bláklæddra sem er heiðarlegur fram
í fingurgóma. Það kemur honum í
koll, starfsfélagarnir slá almennt
ekki hendinni á móti misjafnlega
fengnum launauppbótum. Vegur
Franks vex, staða Richies er tvísýn
þegar fleyg orð forsetans koma
skriði á baráttuna gegn eitur-
lyfjavandanum. Lögregluyfirvöld
þurfa á ærlegum mönnum að halda
og Richie er falin stjórn rannsóknar
á því hver er bakhjarl innflutnings
og dreifingar á óvenju hreinu her-
óíni sem flæðir yfir borgina, merkt
„Blue Magic“. Eftir áralanga, von-
litla baráttu þeirra bláklæddu skar-
ast að lokum leiðir Franks og Ric-
hies.
Scott, og allir þeir sem koma að
American Gangster, hafa ætlað sér
að skapa verk sem er frekar harm-
rænt en hasarmynd og allt frá fyrstu
mínútunum fram undir hlé liggur
tregi í loftinu. Frank er undarlega
samansettur, kominn af alþýðufólki í
Suðurríkjunum, er sá sem hefur
komist áfram í fjölskyldunni og litið
er upp til. Smekkvís, fágaður og lítur
á sig sem umsvifamikinn kaupsýslu-
mann. Þegar dópið hans er þynnt
áður en það fer á götuna af einum
milliliðnum (Gooding Jr.), tryllist
Frank gjörsamlega. Blue Magic er
vörumerki sem fólk á að geta treyst
eins og Pepsi, segir hann í fúlustu al-
vöru. Siðblindan villir honum víða
sýn, Frank líður engum að koma
óorði á viðskiptaveldið, sem hann
hefur sett í hendur bræðra sinna og
skyldmenna, lætur fjölskylduna
stjórna, að hætti Ítalanna.
Samtímis er hinn fjölskylduvæni
viðskiptajöfur drepandi á báða bóga,
beint og óbeint. Brugðið er upp
grimmum svipmyndum af afleið-
ingum eiturlyfjasölunnar og átökum
Franks við keppinautana, þar sem
öll meðul eru notuð.
Smám saman breytist harmleik-
urinn í kunnuglegan eltingaleik
heiðarlegu löggunnar við vonda bóf-
ann, í leiðinni sýnd mun áhugaverð-
ari átök á milli spilltra lögreglu-
manna og heiðarlegra og ekki síður
forvitnileg viðskipti þeirra fyrr-
nefndu við glæpaveröld Franks.
Trupo, leiðtogi löggukrimmana, er
með áleitnustu persónum mynd-
arinnar og leikinn af sannfæring-
arkrafti af Brolin, sem þarf ekki að
kvíða atvinnuleysi í náinni framtíð.
American Gangster er vönduð og
tilþrifamikil afþreying, jafnvel hríf-
andi á bestu köflunum. Framleið-
andinn er óspar á féð og fundvís á
réttan mannskap sem kann að láta
það njóta sín. Washington og Crowe
skila hlutverkum sínum óaðfinn-
anlega, en senuþjófarnir eru í minni
hlutverkunum. Enginn skyggir á
föðurbetrunginn Brolin; Ted Levine,
Gooding Jr., Ejiofor og Armand
Assante (af öllum mönnum), auka
dramatíska vigt American Gangster,
að miklum mun. Sama máli gegnir
um John Ortiz sem gerir veikgeðja
félaga Richies ljóslifandi, og fleiri
mætti nefna. Útlitið er glæsilegt í
stóru sem smáu og kvikmyndataka
Harris Savides er sér kapítuli. Líkt
og í Zodiac, dempar hann sterku lit-
ina, drunginn og myrkrið ráða ríkj-
um og er líklega besti liðsmaður
Scotts að þessu sinni.
Þrátt fyrir mikilvægari ásetning
víkur dramað fyrir spennunni, Scott
og handritshöfundinum Steven Za-
illian lætur betur að útskýra ytri
átök en innri og lokaatriðið skilur
mann eftir í óvissu um siðferðilegan
tilgang American Gangster.
Bláir galdrar
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Laugarásbíó
Leikstjóri: Ridley Scott. Aðalleikarar:
Denzel Washington, Russell Crowe,
Chiwetel Ejiofor, Cuba Gooding Jr., Josh
Brolin. 160 mín. Bandaríkin 2007.
American Gangster Sæbjörn Valdimarsson
Hrífandi American Gangster er vönduð og tilþrifamikil afþreying, jafnvel
hrífandi á bestu köflunum.
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
HVERNIG TÓKST EINUM BLÖKKUMANNI AÐ VERÐA
VALDAMEIRI EN ÍTALSKA MAFÍAN?
/ ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
SÝND Í ÁLFABAKKA
AMERICAN GANGSTER kl. 5D - 8D - 10 B.i.16.ára DIGITAL
AMERICAN GANGSTER kl. 5 - 8 LÚXUS VIP
JESSE JAMES kl. 8 B.i.16.ára
30 DAYS OF NIGHT kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára
MICHAEL CLAYTON kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára
THE INVASION kl. 8 B.i.16.ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
STARDUST kl. 5:30 B.i.10.ára
ASTRÓPÍA SÍÐUSTU SÝN. kl. 6 LEYFÐ
"RIDLEY SCOTT LEIKSTÝRIR RUSSELL
CROWE OG DENZEL WASHINGTON Í
BESTU MYND ÞESSA ÁRS!"
Ó.E.
A.T.H. BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM.
eeee
,,Virkilega vönduð glæpamynd í
anda þeirra sígildu.”
- LIB, TOPP5.IS
“Óskarsakademían
mun standa á öndinni.”
...toppmynd í alla staði.”
Dóri DNA - DV
3 DAGAR Í FRUMSÝNINGU
FYRSTA
ALVÖRU
ÞRÍVÍDDAR
MYND
SÖGUNNAR
HLÍÐASKÓLI fór með
sigur af hólmi í Skrekk,
hæfileikakeppni ÍTR og
grunnskóla Reykjavík-
urborgar, en úr-
slitakeppnin fór fram í
Borgarleikhúsinu í kvöld.
Seljaskóli varð í 2. sæti
og fékk einnig áhorf-
endaverðlaun Skjás eins,
sem sýndi beint frá úr-
slitakeppninni. Hagaskóli
varð í þriðja sæti.
Siguratriðið kallaðist
„Hvað er fullkomnun?“
og var ádeila á brengl-
aðar kvenímyndir nú-
tímans. Neonljós og
dúkkur komu svo við
sögu í hinum verðlauna-
atriðunum.
29 skólar hófu keppn-
ina en átta skólar kepptu
til úrslita í kvöld. Mikil
stemning var í þétt-
setnum salnum og hvöttu
áhorfendur sitt fólk
dyggilega milli þess sem
Skrekksbylgjan var tek-
in. Neon Atriði Seljaskóla varð í öðru sæti með neonfólkið.
Sigur! Hluti af liði Hlíðaskóla fagnar sigrinum af mikilli innlifun.
Páll Óskar Söng fyrir stjörnur framtíðarinnar.
Morgunblaðið/Ómar
Hárkollur Ungmennin voru í sínu skrautlegasta pússi.
Skrekkur í
Hlíðarnar