Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT GORDON Brown, forsætisráðherra Bretlands, hefur lýst yfir heilshugar stuðningi við herferð, sem beinist að því að vísa helst allri plastpokanotkun út í hafsauga, að minnsta kosti að draga mjög verulega úr henni. Hefur hann hvatt félag breskra stórmarkaða og önnur slík samtök til að fara nú strax að huga að því hvernig leysa megi plastpokana af hólmi með öðrum og umhverf- isvænni umbúðum. Kom þetta fram hjá Brown í ræðu, sem hann flutti vegna fyrirhugaðrar loftslagsráðstefnu á Balí en með henni mun hefjast tveggja ára samningalota um aðgerð- ir til að draga úr mengun. Sagði hann ekki ólíklegt, að ríku löndin, þar á meðal Bretland, yrðu að skuldbinda sig til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda um 80%. Í Bretlandi falla árlega til milljarðar plastpoka og plássið, sem þeir taka á sorphaugum, er óskaplegt. Eru þeir eins og annað plast unnir úr olíu og það getur tekið náttúruna marga áratugi að brjóta þá niður. Gordon Brown styður barátt- una gegn notkun plastpoka Gordon Brown for- sætisráðherra. TVEIMUR hópum vísindamanna hefur tekist að breyta húðfrumum þannig að þær líkjast stofnfrumum og geta breyst í hvers kyns vefi. Að sögn fréttavefjar BBC er lík- legt að hægt verði að beita þessari aðferð við rannsóknir á nýjum meðferðum við ýmsum alvarlegum sjúkdómum. Það gæti orðið til þess að vísindamenn þyrftu ekki lengur að notast við stofnfrumur úr fósturvísum, en sú aðferð hefur verið mjög umdeild. Auðvelt er að ná í húðfrumur og rækta þær til slíkra rannsókna, að sögn BBC. Með því að taka húðfrumur úr sjúklingum er ekki hætta á að lík- amar þeirra hafni ígræddum vefj- um. Annar hópanna er japanskur og hinn bandarískur. Skýrt er frá þessu í Science og Cell. AP Tímamótatækni? Fjölgæf fruma. Nota húð en ekki fósturvísa Á SÍÐUSTU áratugum hefur tíðni hjartasjúkdóma minnkað mikið á Vest- urlöndum og sem dæmi má nefna, að í Bandaríkjunum fækkaði því fólki yf- ir 35 ára aldri, sem lést af völdum þeirra, um helming á árunum 1980 til 2002. Nú virðist hins vegar sem þetta sé að breytast til hins verra. Á það einkum við um konur undir 45 ára aldri. Grunar bandaríska lækna, að þetta séu meðal fyrstu merkja um afleiðingar offitu og aukinnar sykursýki. „Þetta er kannski fyrirboði þess, sem koma mun,“ sagði einn læknirinn. Hjartasjúkdómar á uppleið? LANDSKJÁLFTI varð í Ísrael í gær, 4,5 stig á Richter-kvarða, og fannst hann mest í Jerúsalem en einnig á Vesturbakkanum og í Jórdaníu. Voru upptök hans nærri Dauða hafinu. Jörð skalf í Ísrael MARYAM Hosseinkhah, blaðamað- ur, sem barist hefur fyrir rétti kvenna í Íran, hefur verið hand- tekin. Er sök hennar sú að hafa ver- ið með áróður gegn kerfinu. „Óvinur“ kerfisins HIN gamla háborg matreiðslulist- arinnar, París, þykir hafa sett dálít- ið ofan því að nú hefur Michelin- leiðarvísirinn kveðið upp úr með það, að hvergi sé bragðlaukunum gert hærra undir höfði en í Tókýó. Krásirnar í Tókýó IAN Smith, fyrrver- andi forsætisráð- herra Ródesíu, sem nú heitir Zimbabve, lést í gær, 88 ára að aldri. Smith lýsti yf- ir sjálfstæði lands- ins frá Bretlandi 1965 og var for- sætisráðherra stjórnar hvíta minnihlutans í 14 ár. Robert Mu- gabe steypti honum af stóli árið 1979. Ian Smith látinn ÞESSAR ungu stúlkur í Tókýó í Japan horfa aðdáunaraugum á jóla- sveininn enda ekki um að ræða neinn tötrum klæddan Giljagaur. Hann er nefnilega allur úr skíra- gulli, 20 kílóa þungur, og beltið hans er gimsteinum skreytt. Það tók völundarsmiðina hjá málmfyr- irtækinu Tanaka Kikinzoku Kogyo þrjá mánuði að ljúka smíðinni en þessi gullkálfur sem svo má kalla er falur fyrir um 110 millj. ísl. kr. AP Enginn venjulegur sveinstauli RANNSÓKNIR í Þýskalandi og Bandaríkjunum sýna, að um 6% af íbúunum eru haldin kaupæði eða verslunarfíkn, sem þeir ráða ekki við. Hefur verið um þetta rætt í dönskum fjölmiðlum nú í aðdrag- anda mestu kauptíðarinnar og segja sérfræðingar, að þessi tala sé vafa- laust mjög svipuð í Danmörku. Hún svarar þá til þess að 300.000 Danir séu ofurseldir þessari áráttu. Hér á landi ætti talan að vera eitthvað inn- an við 20.000. Afleiðing þessarar fíknar er ósjaldan gjaldþrot og upp- lausn fjölskyldna. Magnus Larusson, félagsfræðing- ur og sérfræðingur í að meðhöndla ýmiss konar fíkn á meðferðarstofn- uninni Majorgården, segir, að stjórnlítil verslunarfíkn sé risavaxið vandamál og miklu algengari en til dæmis fjárhættuspil. Verslunarfíkn- in leyni auk þess mjög á sér og kem- ur oft ekki á daginn fyrr en fólk er sokkið upp fyrir haus í skuldafenið. „Þessu fólki líður ömurlega. Það er að vísu mjög slungið við að fela sannleikann fyrir öðrum og jafnvel sjálfu sér en það skammast sín fyrir að hafa enga stjórn á eigin lífi að þessu leyti,“ segir Larusson. Hann bætir við, að þessi fíkn sé hvergi viðurkennd sem sjúkdómur og því lítið sem ekkert um meðferð- arúrræði. Tengja ímynd sína við neysluna Ole Bjerg félagsfræðingur, sem rannsakað hefur fíkn í sínum mörgu myndum í nútímasamfélagi, segir, að fyrir 10 til 15 árum hafi menn vaknað til vitundar um þann mikla vanda, sem fjárhættuspilið er, en verslunar- fíkninni hafi ekkert verið sinnt. Ástæðan sé kannski sú, að kaupæðið er skilgetið afkvæmi þess samfélags, sem við lifum í: „Það er einmitt í neyslunni, sem við leitum að okkar eigin ímynd, og það er í neyslunni, sem hún hrynur til grunna.“ Bjerg segir, að í neyslusamfélagi nútímans sé oft erfitt að koma auga á verslunarfíknina. „Alls konar inn- kaup eru snar þáttur af lífi okkar allra og það hendir okkur öll að kaupa of mikið og oft er um að ræða hreinan óþarfa. Verslunarfíkillinn ber því sjaldan fíknina utan á sér.“ Verslunarfíkn alvarlegt og vaxandi vandamál Afleiðingin er oft gjaldþrot og upplausn fjölskyldna Morgunblaðið/Þorkell Kaupæði Jafnan er margt um manninn í miðbænum síðustu daga fyrir jól. Sem betur fer kunna flest- ir fótum sínum forráð og eyða ekki um efni fram. París. AFP, AP. | Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, hét því í gær að hvika hvergi frá umbótastefnu sinni í efnahagsmálum þrátt fyrir viku- löng verkföll. „Þessum umbótum hefur verið frestað of lengi,“ sagði Sarkozy. „Eftir svo mikið hik og seinlæti, svo margar kúvendingar, þurfum við að segja skilið við fortíðina til að binda enda á hnignunina.“ Sarkozy bætti við að hann hefði lofað umbótunum fyrir forsetakosn- ingarnar fyrr á árinu og kjósend- urnir hefðu samþykkt umbæturnar og veitt honum umboð til að koma þeim í framkvæmd. Starfsmenn járnbrautarlesta hafa verið í verkfalli í viku til að mót- mæla áformum um að breyta lífeyr- isréttindum þeirra og hundruð þús- unda ríkisstarfsmanna efndu til sólarhrings verkfalls í gær til að krefjast launahækkana og mótmæla áformum um að fækka starfsmönn- um ríkisins. Á meðal þeirra sem tóku þátt í verkfallinu voru kenn- arar, starfsmenn póstþjónustunnar, hjúkrunarfræðingar og flugumferð- arstjórar. Tugir þúsunda manna tóku þátt í götumótmælum verkfallsmanna í París, Marseille, Lyon og fleiri borgum. Skólahald raskaðist í um helmingi háskóla landsins vegna mótmæla námsmanna gegn lögum sem heimila háskólum að afla fjár frá einkafyrirtækjum. Sarkozy kveðst ekki hvika frá umbótum Í HNOTSKURN » Ríkisstjórn Frakklandsáætlar að um 30% starfs- manna ríkisins hafi tekið þátt í verkfallinu í gær. » Margir skólar voru lok-aðir og aðeins var boðið upp á lágmarksþjónustu á sjúkrahúsum. HILLARY Clin- ton þykir heldur hafa styrkt stöðu sína í for- kosningabarátt- unni vestra en í skoðanakönnun þar sem spurt var hvaða fram- bjóðanda beggja flokka fólk vildi helst bjóða í mat á þakkargjörð- ardegi varð hún oftast fyrir valinu. 27% allra kjósenda og 42% demókrata nefndu Clinton en helsti keppinautur hennar, Barack Obama, var nefndur af 24% í báð- um flokkum. Repúblikanar eru ekki ánægðir með könnunina enda var þeirra fremsti maður, Rudolph Giuliani, í þriðja sæti á eftir tveimur demó- krötum. Nefndu hann 22% allra kjósenda en 26% repúblikana. Þakkargjörðardagurinn skipar stóran sess meðal Bandaríkja- manna. Clinton og kalkúninn Hillary Clinton Dalvegi 10-14 • Sími 577 1170 Innrettingar Þi´n vero¨ld X E IN N IX 0 7 10 0 25 UM ÞAÐ bil 600.000 manns hafa flú- ið frá Mogadishu, höfuðborg Sómal- íu, frá því í febrúar og alls er nú um milljón manna á vergangi í landinu vegna átaka, samkvæmt upplýs- ingum frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UHCR) í gær. Nær 200.000 manns hafa flúið frá Mogadishu á síðustu vikum vegna harðra bardaga sameiginlegs liðs eþíópískra og sómalskra stjórn- arhermanna við uppreisnarmenn hreyfingar sem berst fyrir stofnun íslamsks ríkis í Sómalíu. Tugir óbreyttra borgara hafa beð- ið bana og þúsundir manna hafa særst í átökunum síðustu vikur, að sögn íbúa höfuðborgarinnar. Í yfirlýsingu frá Flóttamanna- stofnun Sameinuðu þjóðanna sagði að alls hefðu um 60% íbúa Mogad- ishu flúið frá borginni síðan í febr- úar. Aðstæður flóttafólksins væru skelfilegar og fjölskyldurnar þyrftu til að mynda að notast við plastpoka og tötra til að búa til nokkurs konar tjöld. Um milljón manna á vergangi í Sómalíu vegna harðra átaka Reuters Neyð Íbúar Mogadishu búa sig und- ir að flýja borgina vegna átaka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.