Morgunblaðið - 21.11.2007, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2007 9
FRÉTTIR
UTANRÍKISRÁÐHERRA hefur
ákveðið að verja 50 þúsund Banda-
ríkjadölum, um þremur milljónum
króna, til neyðarastoðar í Bangla-
dess á vegum Matvælaáætlunar SÞ.
Öflugur fellibylur fór yfir suður-
hluta Bangladess hinn 15. þessa
mánaðar og er tala látinna nú álitin
vera 3.100 og fer hækkandi. Margra
er enn saknað og hundruð þúsunda
hafa yfirgefið heimili sín. Matar-
birgðir, búfénaður og uppskera skol-
uðust burt í óveðrinu og drykkjar-
vatn mengaðist. Við blasir
hungursneyð og að farsóttir breiðist
út, en Bangladess er meðal fátæk-
ustu ríkja heims. Matvælaaðstoð SÞ
hóf dreifingu matvæla innan við sól-
arhring eftir að fellibylurinn fór yfir
og hefur nú komið matvælum til
a.m.k. 650 þúsund manns. Nokkuð
erfiðlega hefur gengið að koma fólki
til aðstoðar á afskekktustu svæðun-
um og er nú hafin dreifing matvæla
úr þyrlum. Fyrirséð er að veita þarf
matvælaaðstoð í Bangladess áfram
næstu mánuðina og mikil þörf fyrir
neyðaraðstoð.
Neyðaraðstoð
til Bangladess
mbl.issmáauglýsingar
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands úr-
skurðaði í gær karlmann í gæslu-
varðahald til mánudagsins 26. nóv-
ember næstkomandi vegna gruns
um að hann hafi stungið annan
mann með hnífi í samkvæmi verka-
manna við Hellisheiðarvirkjun um
helgina.
Lögregla hefur lagt hald á hníf
vegna rannsóknar málsins en óvíst
er hvort um árásarvopnið er að
ræða. Sá sem nú situr í gæsluvarð-
haldi lét sig hverfa úr samkvæminu
eftir árásina en gaf sig fram við lög-
regluna á höfuðborgarsvæðinu sam-
dægurs. Hann hefur neitað að hafa
haft hníf í fórum sínum í samkvæm-
inu. Eftir er að ræða við fjölda
manns sem þar var en fram hefur
komið að mikil ölvun var á staðnum.
Gæsluvarð-
hald vegna
hnífstungu
Jólamyndatökur
Pantið tímanlega
MYND
Bæjarhraun 26, Hafnarfirði,
s. 565 4207
www.ljosmynd.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Sparijakkar og -pils
Nýbýlavegi 12, Kóp.
Sími 554 4433
Opið virka daga kl. 10-18,
lau. kl. 11-16.
Ný sending
af
náttfatnaði
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur hefur á ný tryggt sér keppnisrétt
á meðal bestu atvinnukylfinga heims á Evrópumótaröðinni í golfi. Þetta er
annað árið í röð sem Birgir Leifur nær þessum merka áfanga. Með stolti
hefur Kaupþing stutt við bakið á Birgi Leifi í gegnum árin og óskum við
honum innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
Kaupþing er aðalsamstarfsaðili
Golfsambands Íslands
Til hamingju Birgir Leifur!
mbl.is
smáauglýsingar